Haralds saga hárfagra 12 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HHárf ch. 12)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Eftir það lagði Haraldur konungur undir sig Sunn-Mæri.
Vémundur bróðir Auðbjarnar konungs hélt Firðafylki og gerðist
konungur yfir. Þetta var síðla of haustið og gera menn það
ráð með Haraldi konungi að hann skyldi eigi fara suður um
Stað á haustdegi. Þá setti hann Rögnvald jarl yfir Mæri
hvoratveggju og Raumsdal. Hafði hann um sig mikið fjölmenni.
Haraldur konungur sneri þá norður aftur til Þrándheims.
Þann sama vetur fór Rögnvaldur jarl hið innra og svo suður of
Fjörðu. Hann hafði njósn af Vémundi konungi og kom um nótt
þar sem heitir Naustdalur. Var Vémundur konungur þar á
veislu. Rögnvaldur jarl tók hús á þeim og brenndi þar inni
Vémund konung með átta tigu manna.
Eftir það kom Berðlu-Kári til Rögnvalds jarls með langskip
alskipað og fóru þeir báðir norður á Mæri. Tók Rögnvaldur
jarl skip þau er átt hafði Vémundur konungur og allt lausafé
það er hann fékk. Berðlu-Kári fór norður til Þrándheims á
fund Haralds konungs og gerðist hans maður. Hann var
berserkur mikill.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.