Haralds saga hárfagra 10 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HHárf ch. 10)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Haraldur konungur fór út úr Þrándheimi og sneri suður á Mæri.
Húnþjófur hét konungur er réð fyrir Mærafylki. Sölvi klofi er
son hans. Þeir voru hermenn miklir. En sá konungur er réð
fyrir Raumsdali er nefndur Nökkvi, móðurfaðir Sölva. Þessir
höfðingjar drógu her saman er þeir spurðu til Haralds konungs
og fara móti honum. Þeir hittust við Sólskel. Varð þar orusta
mikil og hafði Haraldur konungur sigur.
Þessar orustu getur Hornklofi:
Þar svo að barst að borði
borðhölkvis, rak norðan,
hlífar valdr til hildar,
hregg, döglinga tveggja,
og allsnæfrir jöfrar
orðalaust að morði,
endist rauðra randa
rödd, dynskotum kvöddust.
Þar féllu báðir konungar en Sölvi komst við flótta undan.
Lagði Haraldur konungur þá undir sig þessi tvö fylki og
dvaldist þar lengi of sumarið og skipaði þar réttum með
mönnum og setti þar forráðamenn og treysti sér fólkið. En of
haustið bjóst hann að fara norður til Þrándheims.
Rögnvaldur Mærajarl sonur Eysteins glumru hafði þá of sumarið
gerst maður Haralds konungs. Konungur setti hann höfðingja
yfir fylki þessi tvö, Norð-Mæri og Raumsdal, og fékk honum
þar styrk til, bæði af ríkismönnum og bóndum, svo og
skipakost að verja landið fyrir ófriði. Hann var kallaður
Rögnvaldur hinn ríki og hinn ráðsvinni og kalla menn að
hvorttveggja væri sannnefni.
Haraldur konungur var um veturinn eftir í Þrándheimi.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.