Hálfdanar saga svarta 10 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Hálfds ch. 10)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Hálfdan svarti ók frá veislu á Haðalandi og bar svo til leið
hans að hann ók um vatnið Rönd. Það var um vor. Þá voru
sólbráð mikil. En er þeir óku um Rykinsvík, þar höfðu verið
um veturinn nautabrunnar en er mykrin hafði fallið á ísinn þá
hafði þar grafið um í sólbráðinu. En er konungur ók þar um þá
brast niður ísinn og týndist þar Hálfdan konungur og lið
mikið með honum. Þá var hann fertugur að aldri.
Hann hafði verið allra konunga ársælstur. Svo mikið gerðu
menn sér um hann að þá er það spurðist að hann var dauður og
lík hans var flutt á Hringaríki og var þar til graftar ætlað
þá fóru ríkismenn af Raumaríki og af Vestfold og Heiðmörk og
beiddust allir að hafa líkið með sér og heygja í sínu fylki
og þótti það vera árvænt, þeim er næðu. En þeir sættust svo,
að líkinu var skipt í fjóra staði og var höfuðið lagt í haug
að Steini á Hringaríki en hverjir fluttu heim sinn hluta og
heygðu og eru það allt kallaðir Hálfdanarhaugar.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.