Hálfdanar saga svarta 1 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Hálfds ch. 1)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Hálfdan var þá veturgamall er faðir hans féll. Ása móðir hans
fór þegar með hann vestur á Agðir og settist þar til ríkis á
Ögðum þeim er átt hafði Haraldur faðir hennar. Hálfdan óx þar
upp. Var hann brátt mikill og sterkur og svartur á hár. Var
hann kallaður Hálfdan svarti. Hann var nítján vetra er hann
tók konungdóm á Ögðum. Fór hann þá þegar inn á Vestfold og
skipti ríki við Ólaf bróður sinn svo sem fyrr er ritað.
Sama haust fór hann með her á Vingulmörk á hendur Gandálfi
konungi og áttu þeir margar orustur og höfðu ýmsir sigur. En
að lyktum sættust þeir og skyldi Hálfdan hafa Vingulmörk
hálfa sem áður hafði haft Guðröður faðir hans.
Eftir það fór Hálfdan konungur upp á Raumaríki og lagði undir
sig. Það spurði Sigtryggur konungur son Eysteins konungs.
Hann hafði þá aðsetu á Heiðmörk og hafði áður lagið undir sig
Raumaríki. Fór þá Sigtryggur konungur í móti Hálfdani konungi
og varð þar orusta mikil og hafði Hálfdan sigur. En er
flóttinn brast var Sigtryggur konungur lostinn öru undir
vinstri hönd og féll hann þar. Síðan lagði Hálfdan undir sig
allt Raumaríki.
Eysteinn hét annar son Eysteins konungs, bróðir Sigtryggs.
Hann var konungur á Heiðmörk. En er Hálfdan konungur kom út á
Vestfold þá fór Eysteinn konungur með her sinn út á Raumaríki
og lagði þar þá víða undir sig.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.