Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

HákGóð ch. 30

Hákonar saga góða 30 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (HákGóð ch. 30)

HeimskringlaHákonar saga góða
293031

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Hákon konungur hafði þá fylkt liði sínu og segja menn svo að
konungur steypti af sér brynjunni áður orusta tókst.



Svo segir Eyvindur skáldaspillir í Hákonarmálum:



Bróður fundu þær Bjarnar

í brynju fara,

konung hinn kostsama,

kominn und gunnfána.

Drúptu dólgráar

en darraðr hristist.

upp var þá hildr um hafið.




Hét á Háleygi

sems á Hólmrygi

jarla einbani,

fór til orustu.

Gott hafði hinn göfgi

gengi Norðmanna

ægir Eydana,

stóð und árhjálmi.




Hrauðst úr hervoðum,

hratt á völl brynju

vísi verðungar,

áðr til vígs tæki.

Lék við ljóðmögu,

skyldi land verja

gramr hinn glaðværi,

stóð und gullhjálmi.



Hákon konungur valdi mjög menn í hirð með sér að afli og
hreysti svo sem gert hafði Haraldur konungur faðir hans.
Þórálfur hinn sterki Skólmsson var þar og gekk á aðra hlið
konungi. Hann hafði hjálm og skjöld, kesju og sverð það er
kallað var Fetbreiður. Það var kallað að þeir Hákon konungur
væru jafnsterkir.



Þess getur Þórður Sjáreksson í drápu þeirri er hann orti um
Þórálf:



Þar er böðharðir börðust

bands jódraugar landa,

lystr gekk her til hjörva

hnits í Storð á Fitjum,

og gimslöngvir ganga

gífrs hlémána drífu

nausta blakks hið næsta

Norðmanna gram þorði.


En er fylkingar gengu saman varð þar orusta óð og mannskæð.
Og er menn höfðu skotið spjótum þá brugðu menn sverðum. Gekk
þá Hákon konungur og Þórálfur með honum fram um merkið og hjó
til beggja handa.



Svo segir Eyvindur skáldaspillir:



Svo beit þá sverð

úr siklings hendi

voðir Váfaðar

sem í vatn brygði.

Brökuðu broddar.

Brotnuðu skildir.

Glumruðu glymringar

í gotna hausum.




Tröddust törgur

fyr Týs og bauga

hjalta harðfótum

hausar Norðmanna.

Róma varð í eyju.

Ruðu konungar

skírar skjaldborgir

í skatna blóði.



Hákon konungur var auðkenndur, meiri en aðrir menn. Lýsti og
af hjálminum er sólin skein á. Var vopnaburður mikill að
honum. Þá tók Eyvindur Finnsson hött og setti yfir hjálm
konungs.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.