Snorri Sturluson, Gylfaginning 39 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (SnSt, Gylf ch. 39)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þá mælti Gangleri: "Hvað hafa einherjar að drykk, það er þeim
endist jafngnóglega sem vistin, eða er þar vatn drukkið?"
Þá segir Hár: "Undarlega spyrðu nú, að Alföður mun bjóða til
sín konungum eða jörlum eða öðrum ríkismönnum og muni gefa
þeim vatn að drekka! Og það veit trúa mín að margur kemur sá
til Valhallar er dýrt myndi þykjast kaupa vatnsdrykkinn ef
eigi væri betri fagnaðar þangað að vitja, sá er áður þolir
sár og sviða til banans.
Annað kann eg þér þaðan segja. Geit sú er Heiðrún heitir
stendur uppi á Valhöll og bítur barr af limum trés þess er
mjög er nafnfrægt, er Léraður heitir. En úr spenum hennar
rennur mjöður sá er hún fyllir skapker hvern dag. Það er svo
mikið að allir einherjar verða fulldrukknir af."
Þá mælti Gangleri: "Það er þeim geysihagleg geit! Forkunnar
góður viður mun það vera er hún bítur af!"
Þá mælti Hár: "Enn er meira mark að of hjörtinn Eikþyrni, er
stendur á Valhöll og bítur af limum þess trés, en af hornum
hans verður svo mikill dropi að niður kemur í Hvergelmi, en
þaðan af falla ár þær er svo heita: Síð, Víð, Sekin, Ekin,
Svöl, Gunnþró, Fjörm, Fimbulþul, Gipul, Göpul, Gömul,
Geirvimul; þessar falla um ásabyggðir. Þessar eru enn
nefndar: Þyn, Vin, Þöll, Höll, Gráð, Gunnþráin, Nyt, Naut,
Nönn, Hrönn, Vína, Vegsvinn, Þjóðnuma."
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.