Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

BjH ch. 29

Bjarnar saga Hítdœlakappa 29 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (BjH ch. 29)

Anonymous íslendingasögurBjarnar saga Hítdœlakappa
282930

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Það er sagt að sáttarfundur er lagður undir Hrauni. Síðan var
sent eftir Birni með mikinn flokk manna og var hann úti með
lið sitt en þeir Þórður voru inni. Þorsteinn gekk þar um
sættir. Og er þeir höfðu við ræðst um stund og innt til um
sættina horfðist á með þeim heldur en eigi með umstilli
Þorsteins.



Þórður mælti: "Enn er vanvitað nokkuð um sættina."



Þorsteinn spyr hvað það væri.



"Um það höfum við ekki rætt, verka okkarn Bjarnar. Vil eg nú
að við kveðum allt það er hvor okkar hefir ort um annan."



Þorsteinn kvað það óskylt vera munu.



"Það er eigi þann veg," segir Þórður. "Vil eg vita hvor
fleira hefir ort um annan og þarf eg eigi um það að verða
vanhluta fyrir Birni."



Það fer nú fram sem Þórður beiddi að hvor þeirra kvað allt
það er kveðið hafði um annan og var sú skemmtan sum ein
áheyrileg. En svo reynist að Björn hafði ort vísu fleira en
Þórður. Hann kvaðst vilja yrkja á móti vísu en Þorsteinn kvað
það óskylt og margir aðrir.



Björn svarar og kvaðst eigi vildu að honum yrði um það dæmt
að hann leyfði honum að yrkja vísuna "en ef þú vilt eigi láta
undan líða," segir hann, "þá fresta þú ekki og lát eigi
ákveðin orð í vera."



En Þorsteinn kvað sig eigi meira metinn í þessu en svo af
þeim Þórði að þeir vildu ekki þá sætt halda er hann hefir
gerva, lést nú nær kunna engan hlut í að eiga þeirra máli."



Þórður kvaðst ekki mundu að því fara hvort Björn leyfði eða
eigi og kvað vísu:



Björn tekr brátt, er mornar,

bráðr við illu ráði.

Grönum er vanr að grípa

glópr við hverju hrópi.

Og hvítmála hælir

hvimleiðr með stjöl breiðan,

sanni firrðr og svinnu,

siti hann vesalstr manna.


"Það megið þér nú heyra," segir Björn, "að sú mannfýla vill
enga sátt. Eigi skal hann enn þessari vísu hafa á glæ kastað
heldur en öðrum," og kvað Björn vísu:



Þræta að þú sért betri,

Þórðr, skuld enga vildag,

alls gast enga snilli,

eljun latr á skratti.

Vart höfum verri orta,

vinn eg bjór Háars inna,

sekr glæps, ógnar en ortag

ísbjóðr um þig vísu.


Lokið er upp sættum og fara af þinginu. Fór Þorsteinn á
Hítarnes með Þórði og dvaldist þar litla stund. Og er hann
fór þaðan fékk hann litlar gjafir af Þórði og þykir Þorsteini
Þórður ollað hafa er engar urðu sættir og var heldur í rénun
vinátta þeirra, þótti hann lítils virða sín tillög í þessu
máli. Þorsteinn fer í Hólm til Bjarnar og er þar nokkura
stund.



Og er hann fór á brott leiðir Björn hann á götu upp á
Hítardalsheiði og ætla þar að skiljast og ræðast við áður af
hugðu og kvaðst Björn mundu þykjast þá hafa hinn betra hlut
af málum við Þórð "þar sem eg vildi hafa þinn dóm. En við
höfum mælt til vinganar með okkur. Er eg ráðinn til að efna
það og vera þinn vinur en hvortveggi okkar á nokkuð sökótt.
Nú vildi eg til þess mæla að hvor okkar hefndi annars, sá er
lengur lifði, ef við höfum líflát af vopnum eða manna
völdum."



Þorsteinn kvað sér þykja í hvern stað jafnboðið er hann bauð
sitt vinfengi "En gerum þar á grein nokkura er þú ræðir um
hefndirnar því að nú vita menn gerr en fyrr hvað gera skulu
og vil eg það um mæla að hvor okkar taki eindæmi eftir annan
eða sektir og fébætur þótt eigi séu manndráp og sómir það
betur kristnum mönnum."



Nú tóku þeir þetta fastmælum að hvor þeirra skal hefna annars
eða eftir mæla svo sem þeir séu sambornir bræður. Nú voru
stóðhrossin fram leidd að nýju og játaði Þorsteinn nú og
kvaðst þiggja vilja fyrir hvern mun og einn. Og voru þar
eftir þann vetur hrossin og svo um sumarið eftir og var eigi
eftir komið og skyldi Björn þá senda vestur um haustið.



Þorfinnu gaf Björn gullhring og guðvefjarkyrtil er Ólafur
konungur hafði gefið Þórði Kolbeinssyni og hann gerði til
handa Birni eftir rán í Brenneyjum. Og nú skiljast þau góðir
vinir og fara heim hvorirtveggju.



Litlu síðar tók Björn augnaverk og helst hann um hríð og varð
honum að því mein en þó batnaði er á leið og drap þó heldur
fyrir honum því að hann var síðan þungeygur nokkuð og eigi
jafnskyggn sem áður.



En mjög þótti mönnum á einn meið hallast með þeim Birni og
Þórði í öllum viðskiptum og unir Þórður stórilla við og þeir
menn er að málum stóðu með honum. Er nú orðið vinfengi mikið
með Birni og Þorsteini Kuggasyni.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.