Bjarnar saga Hítdœlakappa 13 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (BjH ch. 13)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Frá því er sagt eitt kveld að Þórður kom að máli við Oddnýju.
"Það segir þú mér og margir aðrir," segir hann, "að Björn sé
drengur góður en mér sýnist eigi svo um suma hluti. Hann
setur hund sinn jafnauðigan okkur undir borði en eg hefi eigi
fyrr við hunda átt og mun honum leiðast ef deildur er
verðurinn."
Hún segir: "Viltu þess freista þá og vita þá hvað að hafi?"
"Svo munum við vera láta," segir hann, "Nú skal vera
brauðhleifur syfldur fyrir manni og vitum hvort hann gefi
hundinum af. Það fylgir og þessu," segir Þórður, "að hestar
tveir eru hér í vetur og ginnir hann húskarla mína til þess
að gefa þeim. Og er það lítilmannlegt að ginna þá til að gefa
hrossum."
Og nú er breytt var búnaðinum þá gaf Björn hundi eigi síður
en áður en þeir Þórður og Björn höfðu mat að minna en hjónin
heituðust við í öðru lagi að hlaupa á brott fyrir búnaðar
sakir. Fá mál var þetta áður Þórður ræddi um við Oddnýju að
hann kvaðst eigi nenna lengur að svelta fyrir hundinn Bjarnar
og stoðar þetta ekki. Varð búnaður aftur að koma. Nú er svo
gert. Þá líkar hjónum vel en Björn lét sem hann viti eigi.
Oft ræddi Þórður um fyrir Oddnýju hversu honum þótti Björn
óþakklátur og stirður um það er við bar. Og eitt sinn er þau
áttu um það að ræða kvað Þórður vísu:
Sextán var hugr hjóna,
hverr lifði sér þverrir
ýs í óru húsi,
auð-Hlín, að mun sínum
áðr garðvita gerði
grundar einn fyr stundu
stríðir stökk í búðum
stórgeðr liði óru.
Þar voru þau öll um veturinn við lítið samþykki og ekki var
það mjög að vilja Oddnýjar. Því hafði Þórður í fyrstu heitið
Birni að hesta hans skyldi færa til haga í Hítarnes eða láta
gefa heima ella og hafði Björn viljað að heldur færu í brott
en leið undan og varð eigi gert.
Kálfur illviti kom á Hítarnes og spurði hve Þórði líkaði við
veturgestinn eða hvort hann réði því er meiri hlutur töðu
fórst en hestar hans ætu, gengu síðan að sjá heyið og þótti
illa með farið.
Þórði líkar illa og segir Oddnýju að Björn hafi keypt að
húskörlum að troða hey hans í saur og spilla því.
Hún segir og kvað Björn eigi mundu það gert hafa að eiga hlut
í því að hestum hans væri annan veg gefið en öðrum hrossum
"en þú hygg að, að þú efnir allt vel það er þú hefir honum
heitið."
Eftir þetta lét Þórður fara í brott hesta Bjarnar og út í
Hítarnes og hafa þeir þá góðan haga. Og lætur þá af gnadd
Þórðar við hesta Bjarnar og er nú kyrrt að kalla um stund.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.