Ynglinga saga 49 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (Yng ch. 49)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Ólafur tók konungdóm eftir föður sinn. Hann var ríkur maður
og hermaður mikill. Hann var allra manna fríðastur og mestur
vexti. Hann hafði Vestfold því að Álfgeir konungur tók þá
undir sig Vingulmörk alla. Setti hann þar yfir Gandálf konung
son sinn. Þá gengu þeir feðgar mjög á Raumaríki og eignuðust
mestan hlut þess ríkis og fylkis.
Högni hét sonur Eysteins hins ríka Upplendingakonungs. Hann
lagði þá undir sig Heiðmörk alla og Þótn og Haðaland. Þá
hvarf og undan þeim Guðröðarsonum Vermaland og snerust þeir
þá að skattgjöfum til Svíakonungs.
Ólafur var þá á tvítugsaldri er Guðröður konungur andaðist.
En er Hálfdan konungur bróðir hans gekk til ríkis með honum
þá skiptu þeir Vestfold með sér. Hafði Ólafur hinn vestra
hlut en Hálfdan hinn innra. Ólafur konungur hafði að
Geirstöðum aðsetu. Hann tók fótarverk og andaðist þar af og
er hann heygður á Geirstöðum.
Svo segir Þjóðólfur:
Og niðkvísl
í Noregi
þróttar Þrós
of þróast náði.
Réð Ólafr
ofsa forðum
víðri grund
of Vestmari.
Uns fótverkr
við Foldar þröm
vígmiðlung
of viða skyldi.
Nú liggr gunndjarfr
á Geirstöðum
herkonungr
haugi ausinn.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.