Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Yng ch. 5

Ynglinga saga 5 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Yng ch. 5)

HeimskringlaYnglinga saga
456

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):


Fjallgarður mikill gengur af landnorðri til útsuðurs. Sá
skilur Svíþjóð hina miklu og önnur ríki. Fyrir sunnan fjallið
er eigi langt til Tyrklands. Þar átti Óðinn eignir stórar. Í
þann tíma fóru Rúmverjahöfðingjar víða um heiminn og brutu
undir sig allar þjóðir en margir höfðingjar flýðu fyrir þeim
ófriði af sínum eignum. En fyrir því að Óðinn var forspár og
fjölkunnigur þá vissi hann að hans afkvæmi mundi um
norðurhálfu heimsins byggja.



Þá setti hann bræður sína Vé og Víli yfir Ásgarð en hann fór
og díar allir með honum og mikið mannfólk. Fór hann fyrst
vestur í Garðaríki og þá suður í Saxland. Hann átti marga
sonu. Hann eignaðist ríki víða um Saxland og setti þar sonu
sína til landsgæslu. Þá fór hann norður til sjávar og tók sér
bústað í ey einni. Þar heitir nú Óðinsey í Fjóni.



Þá sendi hann Gefjun norður yfir sundið í landaleitan. Þá kom
hún til Gylfa og gaf hann henni eitt plógsland. Þá fór hún í
Jötunheima og gat þar fjóra sonu við jötni nokkurum. Hún brá
þeim í yxnalíki og færði þá fyrir plóginn og dró landið út á
hafið og vestur gegnt Óðinsey og er það kölluð Selund. Þar
byggði hún síðan. Hennar fékk Skjöldur sonur Óðins. Þau
bjuggu að Hleiðru. Þar er vatn eða sjár eftir. Það er kallað
Lögurinn. Svo liggja firðir í Leginum sem nes í Selundi.



Svo kvað Bragi hinn gamli:



Gefjun dró frá Gylfa

glöð djúpröðul öðla,

svo at af rennirauknum

rauk, Danmarkar auka.

Báru yxn og átta

ennitungl, þar er gengu

fyr vineyjar víðri

valrauf, fjögur haufuð.


En er Óðinn spurði að góðir landskostir voru austur að Gylfa
fór hann þannug og gerðu þeir Gylfi sætt sína því að Gylfi
þóttist engi kraft til hafa til mótstöðu við Ásana. Mart
áttust þeir Óðinn við og Gylfi í brögðum og sjónhverfingum og
urðu Æsir jafnan ríkri.



Óðinn tók sér bústað við Löginn þar sem nú eru kallaðar fornu
Sigtúnir og gerði þar mikið hof og blót eftir siðvenju
Ásanna. Hann eignaðist þar lönd svo vítt sem hann lét heita
Sigtúnir. Hann gaf bústaði hofgoðunum.



Njörður bjó í Nóatúnum en Freyr að Uppsölum, Heimdallur að
Himinbjörgum, Þór á Þrúðvangi, Baldur á Breiðabliki. Öllum
fékk hann þeim góða bólstaði.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.