Haraldur, sonur Sigurðar sýr, bróðir Ólafs konungs hins helga sammæðri, hann var á Stiklastöðum í orustu þá er hinn helgi Ólafur konungur féll. Varð Ha...’
Eftir um vorið fengu þeir sér skipan og fóru um sumarið austur í Garðaríki á fund Jarisleifs konungs og voru þar um veturinn.
Svo segir Böl...’
Þá réð fyrir Grikklandi Zóe drottning hin ríka og með henni Mikjáll katalaktus.
En er Haraldur kom til Miklagarðs á fund drottningar þá gekk...’
Það var eitthvert sinn, er þeir höfðu farið um land og skyldu taka sér náttból við skóga nokkura, og komu Væringjar fyrstir til náttstaðar og völdu þei...’
Þeir fóru allir samt um sumarið og herjuðu. Þá er allur var saman herinn lét Haraldur sína menn vera fyrir utan bardaga eða ella þar er minnst var mann...’
En er Haraldur kom til Sikileyjar þá herjaði hann þar og lagði þar með liði sínu til einnar borgar mikillar og fjölmennrar. Settist hann um borgina því...’
Önnur borg var sú er Haraldur lagði til liði sínu. Sú var bæði fjölmenn og sterk svo að engi var von að þeir fengju brotið, vellir harðir og sléttir um...’
Hina þriðju borg hittu þeir, þá er mest var af þessum öllum og sterkust og ríkust að fé og fjölmenni. Voru um þá borg díki stór svo að þeir sáu að ekki...’
Menn íslenskir eru nefndir, þeir er fóru þar með Haraldi konungi: Halldór sonur Snorra goða, hann hafði þessa frásögn hingað til lands, annar var Úlfur...’
Sú var hin fjórða borg, er Haraldur kom til með her sinn, er mest var af öllum þeim er áður var frá sagt. Hún var og svo sterk að þeir sáu enga von ver...’
Haraldur var marga vetur í hernaði þessum, er nú var frá sagt, bæði í Serklandi og Sikileyju. Síðan fór hann aftur til Miklagarðs með her þenna og dval...’
Haraldur fór með liði sínu út til Jórsalalands, fór þá síðan yfir til Jórsalaborgar. En hvar sem hann fór um Jórsalaland voru allar borgir og kastalar ...’
Þá er Haraldur var kominn til Miklagarðs utan af Jórsalalandi fýsti hann að fara í Norðurlönd til óðala sinna. Hafði hann þá spurt að Magnús Ólafsson b...’
En er Haraldur kom mjög svo til dýflissunnar þá sýndist honum hinn helgi Ólafur konungur og segir að hann mundi hjálpa honum. Þar á strætinu var síðan ...’
Um þá sömu nótt gengu þeir Haraldur að þeim herbergjum er María svaf í og tóku hana í brott með valdi.
Síðan gengu þeir til galeiða Væringja...’
En er Haraldur kom til Hólmgarðs fagnaði Jarisleifur konungur honum forkunnarvel. Dvaldist hann þar um veturinn, tók þá í sína varðveislu gull það allt...’
Þann vetur gifti Jarisleifur konungur dóttur sína Haraldi. Sú hét Elísabet. Þá kalla Norðmenn Ellisif
Þetta tjáir Stúfur blindi:
Haraldur fann þar Svein Úlfsson. Það haust hafði hann flúið fyrir Magnúsi konungi við Helganes. En er þeir fundust fagnaði hvor öðrum vel. Ólafur sænsk...’
Síðan réðu þeir sér til skipa, Haraldur og Sveinn, og dróst þeim brátt her mikill. Og er lið það var búið þá sigla þeir austan til Danmerkur.
Magnús konungur Ólafsson hélt um haustið norður í Noreg eftir Helganessbardaga. Þá spurði hann þau tíðindi að Haraldur Sigurðarson, frændi hans, var ko...’
Menn Magnúss konungs, þeir er voru í ráðagerð með honum, tala það að þeim þykir í óvænt efni komið er þeir Haraldur frændur skulu berast banaspjót efti...’
Litlu síðar var það að Haraldur og Sveinn töluðu kveld eitt við drykkju. Spurði Sveinn hverja gripi Haraldur hefði, þá er honum væri virkt mest á. Hann...’
Magnús konungur lá við land og hafði landtjald á landi uppi. Hann bauð þá Haraldi frænda sínum til borðs síns og gekk Haraldur til veislunnar með sex t...’
Magnús konungur og Haraldur konungur réðu báðir Noregi hinn næsta vetur eftir sætt þeirra og hafði sína hirð hvor þeirra. Þeir fóru um veturinn um Uppl...’
Sveinn Úlfsson lá eftir í svefni þá er Haraldur hafði brott farið. Síðan leiddi Sveinn að spurningum um farar Haralds.
En er hann spurði að ...’
En er vora tók buðu þeir út leiðangri úr Noregi Magnús konungur og Haraldur konungur.
Það bar að eitt sinn að Magnús konungur og Haraldur ko...’
Magnús konungur og Haraldur konungur héldu her þeim suður til Danmerkur. En er Sveinn spurði það þá flýði hann undan austur á Skáni. Þeir Magnús konung...’
Eftir þessi tíðindi hafði Haraldur konungur þing við liðið, segir mönnum ætlan sína að hann vill fara með herinum til Vébjargaþings og láta sig taka ti...’
Einar þambarskelfir fór með líki Magnúss konungs og með honum allur Þrændaher og fluttu til Niðaróss og var hann þar jarðaður að Klemenskirkju. Þar var...’
Sveinn Úlfsson var það haust staddur á Skáni og byrjaði ferð sína austur í Svíaveldi og ætlaði að gefa upp tignarnafn það er hann hafði tekið í Danmörk...’
Haraldur konungur Sigurðarson tók konungdóm yfir öllum Noregi eftir andlát Magnúss konungs Ólafssonar. En er hann hafði ráðið Noregi einn vetur og er a...’
Haraldur konungur fékk Þóru dóttur Þorbergs Árnasonar hinn næsta vetur eftir en Magnús konungur hinn góði andaðist. Þau áttu tvo sonu. Hét hinn eldri M...’
Sveinn konungur réð fyrir öllu Danaveldi síðan er Magnús konungur andaðist. Hann sat um kyrrt á vetrum en lá úti með almenning á sumrum og heitaðist að...’
Þá fór Haraldur norður og hafði sex tigu skipa og voru flest stór og hlaðin mjög af herfangi er þeir höfðu tekið um sumarið. En er þeir komu norður fyr...’
Haraldur konungur var maður ríkur og stjórnsamur innanlands, spekingur mikill að viti svo að það er alþýðu mál að engi höfðingi hafi sá verið á Norðurl...’
Úlfur Óspaksson var með Haraldi konungi í miklum kærleikum. Hann var hinn vitrasti maður, snjallur í máli, skörungur mikill, tryggur og einfaldur. Hara...’
Magnús konungur Ólafsson lét gera Ólafskirkju í Kaupangi. Í þeim stað hafði náttsætt verið lík konungs. Það var þá fyrir ofan bæinn. Hann lét þar og re...’
Ívar hvíti er maður nefndur er var lendur maður göfugur. Hann átti bú á Upplöndum. Hann var dótturson Hákonar jarls hins ríka. Ívar var allra manna frí...’
Einar þambarskelfir var ríkastur lendra manna í Þrándheimi. Heldur var fátt um með þeim Haraldi konungi. Hafði Einar þó veislur sínar, þær sem hann haf...’
Ormur hét þá jarl á Upplöndum. Móðir hans var Ragnhildur dóttir Hákonar jarls hins ríka. Ormur var hinn mesti ágætismaður.
Þá var á Jaðri a...’
Haraldur konungur var ríklundaður og óx það sem hann festist í landinu og kom svo að flestum mönnum dugði illa að mæla í móti honum eða draga fram anna...’
Einar þambarskelfir var mest forstjóri fyrir bóndum allt um Þrándheim. Hélt hann upp svörum fyrir þá á þingum er konungsmenn sóttu. Einar kunni vel til...’
Einn dag var átt mót og var konungur sjálfur á mótinu. Hafði verið tekinn í býnum þjófur einn og var hafður á mótinu. Maðurinn hafði verið fyrr með Ein...’
Finnur Árnason bjó þá á Yrjum á Austurátt. Hann var þá lendur maður Haralds konungs. Finnur átti Bergljótu dóttur Hálfdanar Sigurðarsonar sýrs. Hálfdan...’
Finnur Árnason fór inn til bæjar og hafði með sér húskarla sína, nær átta tigum manna. En er hann kom inn til býjarins þá átti hann þing við býjarmenn....’
Síðan leggja þeir stefnulag við Hákon Ívarsson. En er þeir finnast þá bar Finnur upp erindi sín fyrir Hákon, þau er Haraldur konungur bauð honum. Fanns...’
En er sú stefna kom er Hákon skyldi vitja þessa einkamála þá fór hann á fund Haralds konungs.
En er þeir taka tal sitt þá segir konungur að ...’
Ásmundur er maður nefndur er sagt er að væri systurson Sveins konungs og fósturson hans. Ásmundur var allra manna gervilegastur. Unni konungur honum mi...’
Síðan fór Hákon brott úr Danmörk og norður í Noreg til eigna sinna. Þá var andaður Ormur jarl frændi hans. Menn urðu Hákoni fegnir mjög, frændur og vin...’
Kálfur Árnason hafði verið í vesturvíking síðan er hann fór úr Noregi en oft á vetrum var hann í Orkneyjum með Þorfinni jarli mági sínum. Finnur Árnaso...’
En hið næsta sumar eftir hafði Haraldur konungur leiðangur úti, fór suður til Danmerkur og herjaði þar um sumarið. En er hann kom suður til Fjóns þá va...’
Eftir það lét Finnur Árnason sér fjandskap í þykja við konung um fall Kálfs bróður síns, kallaði að konungur væri ráðbani Kálfs og það væri blekking ei...’
Guttormur hét sonur Ketils kálfs og Gunnhildar á Hringunesi, systurson Ólafs konungs og Haralds konungs. Guttormur var maður gervilegur og snemma roski...’
Um sumarið eftir fór Margaður konungur og Guttormur með honum og herjuðu á Bretland og fengu þar ógrynni fjár. Síðan lögðu þeir í Öngulseyjarsund. Þeir...’
Greifi einn var í Danmörku, illur og öfundfullur. Hann átti ambátt eina norræna æskaða úr Þrændalögum. Hún dýrkaði hinn helga Ólaf konung og trúði fast...’
Vestur á Vallandi var einn maður vanheill svo að hann var krypplingur, gekk á knjám og á knúm. Hann var staddur um dag úti á veg og var þá sofnaður. Þa...’
Haraldur konungur lét reisa kaupstað austur í Ósló og sat þar oft því að þar var gott til aðfanga, landsmegin mikið umhverfis. Sat hann þar vel til lan...’
Haraldur konungur sat um veturinn í Niðarósi. Hann lét reisa skip um veturinn út á Eyrum. Það var bússuskip. Skip það var gert eftir vexti Orms hins la...’
Þann vetur bauð Haraldur konungur út leiðangri, almenning úr Noregi. En er voraði dróst her mikill saman. Þá lét Haraldur konungur setja út skip það hi...’
En er Danir spyrja að Norðmannaher var kominn þá flýja allir þeir er því koma við. Norðmenn spyrja að Danakonungur hefir og úti her sinn og liggur hann...’
Sveinn konungur skipaði og sínu liði. Lagði hann sitt skip móti skipi Haralds konungs í miðju liði en næst honum lagði fram Finnur jarl Árnason sitt sk...’
Haraldur konungur lét blása herblástur þegar er hann hafði búin skip sín og lét þá greiða atróður sína menn.
Svo segir Steinn Herdísarson: ...’
Hákon jarl lá með sitt skip eftir er konungur og annað lið rak flóttann því að jarls skip mátti eigi þar fram fara fyrir skipum þeim er fyrir voru. Þá ...’
Haraldur konungur og hans lið rak skammt flóttann, reru síðan aftur til skipanna, þeirra er auð voru. Þá rannsökuðu þeir valinn. Fannst á konungsskipin...’
Finnur jarl Árnason varð handtekinn í orustu sem fyrr var ritað. Hann var leiddur til konungsins.
Haraldur konungur var þá allkátur og mælti...’
Svo segja menn að Sveinn konungur sat í Danmörk þann vetur og hélt ríki sínu sem áður. Hann sendi menn um veturinn norður á Halland eftir Karli og þeim...’
Haraldur konungur sat þann vetur eftir Nissarorustu í Ósló. Um haustið er liðið kom sunnan þá var mikil umræða og frásögn um orustu þá er verið hafði u...’
Hákon jarl fór um haustið til Upplanda og var þar um veturinn í ríki sínu. Hann var allvinsæll til Upplendinga.
Það var um vorið er á leið e...’
Hákon jarl fór þegar um sumarið aftur til Upplanda er hann spurði að konungur var norður farinn, dvaldist þar til þess er konungur kom norðan. Síðan fó...’
Þann vetur fóru boð og sendimenn milli Noregs og Danmerkur og var það í bundið að hvorirtveggju, Norðmenn og Danir, vildu gera frið milli sín og sætt o...’
Haraldur konungur var í Víkinni um sumarið en hann gerði menn sína til Upplanda eftir skyldum og sköttum er hann átti þar. Þá gerðu bændur þar engan gr...’
Vetur þenna fór Haraldur konungur upp á Raumaríki og hafði lið mikið. Bar hann sakar á hendur bóndum, þær að þeir hefðu haldið fyrir honum skyldum og s...’
Eftir það er Magnús konungur var andaður liðu fimmtán vetur áður Nissarorusta var en síðan tveir áður Haraldur og Sveinn sættust.
Svo segir...’
Játvarður Aðalráðsson var konungur í Englandi eftir Hörða-Knút bróður sinn. Hann var kallaður Játvarður hinn góði. Hann var svo. Móðir Játvarðar konung...’
Það var á einu sumri að Haraldur Guðinason átti ferð til Bretlands og fór á skipi. En er þeir komu í haf tók þá andviðri og rak út í haf. Þeir tóku lan...’
En er vor kom þá bjó Haraldur skip sitt og ferð brott. Skildust þeir jarl með kærleikum miklum. Fór þá Haraldur út til Englands á fund Játvarðar konung...’
En er Haraldur varð þess var að Tósti bróðir hans vildi hafa hann af konungdóminum þá trúði hann honum illa því að Tósti var maður forvitri og maður mi...’
Tósti jarl snýr þá ferðinni og kom hann fram í Noreg og fór á fund Haralds konungs. Hann var í Víkinni. En er þeir finnast ber jarl upp fyrir konung er...’
Her Haralds konungs safnaðist saman í Sólundum.
En er Haraldur konungur var búinn að leggja út úr Niðarósi þá gekk hann áður til skríns Ólaf...’
Þórður er maður nefndur er var á skipi því er skammt lá frá skipi konungs. Hann dreymdi um nótt að hann þóttist sjá flota Haralds konungs fara að landi...’
Harald konung dreymdi enn um nótt að hann var í Niðarósi og hitti Ólaf konung bróður sinn og kvað hann vísu fyrir honum:
Gramr vó ...’
En er Haraldur konungur var búinn og byr gaf sigldi hann út á haf og kom af hafi við Hjaltland en sumt lið hans kom við Orkneyjar. Lá Haraldur konungur...’
Síðan fór Haraldur konungur til Humbru og upp eftir ánni og lagði þar við land. Þá voru jarlarnir uppi í Jórvík, Mörukári og Valþjófur jarl bróðir hans...’
En er Haraldur konungur sá að fylking enskra manna var komin ofan með díkinu gegnt þeim þá lét hann blása herblásturinn og eggjaði herinn ákaflega, lét...’
Tósti jarl hafði komið sunnan af Flæmingjalandi til Haralds konungs þegar er hann kom til Englands og var jarl í öllum orustum þessum. Fór þá svo sem h...’
Mánadaginn er Haraldur Sigurðarson var mettur að dagverðarmáli þá lét hann blása til landgöngu, býr þá herinn og skiptir liðinu hverjir fara skulu eða ...’
Haraldur konungur Sigurðarson mælti þá: "Tökum nú nokkuð gott ráð og viturlegt því að ekki er að dyljast að ófriður er og mun vera konungur sjálfur." ...’
Síðan fylkti Haraldur konungur liði sínu, lét fylkingina langa og ekki þykkva. Þá beygði hann armana aftur á bak svo að saman tóku. Var það þá víður hr...’
Haraldur konungur Guðinason var þar kominn með her óvígjan, bæði riddara og fótgangandi menn. Haraldur konungur Sigurðarson reið þá um fylking sína og ...’
Riddarar tuttugu riðu fram af þingamannaliði fyrir fylking Norðmanna og voru albrynjaðir og svo hestar þeirra.
Þá mælti einn riddari: "Hvort...’
Nú hefur upp orustu og veita enskir menn áreið Norðmönnum. Varð viðurtakan hörð. Varð óhægt enskum mönnum að ríða á Norðmenn fyrir skotum og riðu þeir ...’
Eysteinn orri kom í því bili frá skipum með því liði er honum fylgdi. Voru þeir albrynjaðir. Fékk Eysteinn þá merki Haralds konungs Landeyðuna. Varð nú...’
Styrkár stallari Haralds konungs Sigurðarsonar komst brott, ágætur maður. Hann fékk hest og reið svo í brott. Um kveldið gerðist á vindur nokkur og hel...’
Vilhjálmur bastarður Rúðujarl spurði andlát Játvarðar konungs frænda síns og það með að þá var til konungs tekinn í Englandi Haraldur Guðinason og hafð...’
Haraldur konungur Guðinason lofaði brottferð Ólafi syni Haralds konungs Sigurðarsonar og því liði er þar var með honum og eigi hafði fallið í orustu. ...’
Vilhjálmur lét sig til konungs taka í Englandi. Hann sendi boð Valþjófi jarli að þeir skyldu sættast og selur honum grið til fundar. Jarl fór með fá me...’
Ólafur sonur Haralds konungs hélt liði sínu braut af Englandi og sigldi út af Hrafnseyri og kom um haustið til Orkneyja og voru þar þau tíðindi að Marí...’
Einum vetri eftir fall Haralds konungs var flutt vestan af Englandi lík hans og norður til Niðaróss og var jarðað í Maríukirkju þeirri er hann lét gera...’
Halldór sonur Brynjólfs gamla úlfalda var vitur maður og höfðingi mikill.
Hann mælti svo þá er hann heyrði ræður manna að menn misjöfnuðu m...’
Magnús konungur réð fyrir Noregi Haraldsson hinn fyrsta vetur eftir fall Haralds konungs en síðan réð hann landi tvo vetur með Ólafi bróður sínum. Voru...’