Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

ISPM

The Íslendingasögur as Prosimetrum

Menu Search

ÍSP: Egils saga Skalla-Grímssonar

Eg 1. (ch. 24)
Kveldúlfr Bjálfason
SkP ids: o168, v3430

Skj BI, 26:
Nú frák norðr í eyju,
(norn erum grimm) til snimma
Þundr kaus þremja skyndi,
Þórólf und lok fóru;
létumk þung at þingi
Þórs fangvina at ganga,
skjótt munat hefnt, þótt hvettimk
hugr, malm-Gnáar brugðit.

24. kafli

Kveld-Úlfur spurði fall Þórólfs, sonar síns; varð hann hryggur við þessi tíðindi, svo að hann lagðist í rekkju af harmi og elli.

Skalla-Grímur kom oft til hans og taldi fyrir honum, bað hann hressa sig, sagði, að allt var annað athæfilegra en það að auvirðast og leggjast í kör - "er hitt heldur ráð, að vér leitum til hefnda eftir Þórólf; má vera, að vér komum í færi við þá nokkura menn, er verið hafa að falli Þórólfs; en ef það er eigi, þá munu þeir vera menn, er vér munum ná, er konungi mun sér þykja móti skapi."

Kveld-Úlfur kvað vísu:


Nú frák norðr í eyju,
norn erum grimm, til snimma
Þundr kaus þremja skyndi,
Þórólf und lok fóru;
létumk þung at þingi
Þórs fangvina at ganga,
skjótt munat hefnt, þótt hvettimk
hugr, malm-Gnáar brugðit.

Haraldur konungur fór það sumar til Upplanda og fór um haustið vestur á Valdres og allt á Vors. Ölvir hnúfa var með konungi og kom oft á mál við konung, ef hann myndi vilja bæta Þórólf, veita Kveld-Úlfi og Skalla-Grími fébætur eða mannsóma þann nokkurn, er þeir mættu við una. Konungur varnaði þess eigi með öllu, ef þeir feðgar færu á fund hans.

Síðan byrjaði Ölvir ferð sína norður í Fjörðu, létti eigi fyrr en hann kom að kveldi dags til þeirra feðga, tóku þeir þakksamlega við honum; dvaldist hann þar nokkura hríð.

Kveld-Úlfur spurði Ölvi vandlega frá atburðum þeim, er gerst höfðu á Sandnesi, þá er Þórólfur féll, svo að því, hvað Þórólfur vann til frama, áður hann félli, svo og hverjir vopn báru á hann, eða hvar hann hafði mest sár, eða hvernig fall hans yrði. Ölvir sagði allt það, er hann spurði, svo það, að Haraldur konungur veitti honum sár það, er ærið myndi eitt til bana, og Þórólfur féll nær á fætur konungi á grúfu.

Þá svarar Kveld-Úlfur: "Vel hefir þú sagt, því að það hafa gamlir menn mælt, að þess manns myndi hefnt verða, ef hann félli á grúfu, og þeim nær koma hefndin, er fyrir yrði, er hinn félli; en ólíklegt er, að oss verði þeirrar hamingju auðið."

Ölvir sagði þeim feðgum, að hann vænti, ef þeir vildu fara á fund konungs og leita eftir bótum, að það myndi sómaför verða, og bað þá til þess hætta og lagði mörg orð til.

Kveld-Úlfur sagði, að hann var hvergi fær fyrir elli sakar, - "mun eg vera heima," sagði hann.

"Vilt þú fara, Grímur?" sagði Ölvir.

"Ekki erindi ætla eg mig eiga," sagði Grímur; "mun konungi eg þykja ekki orðsnjallur; ætla eg mig ekki lengi munu biðja bótanna."

Ölvir sagði, að hann myndi þess eigi þurfa; "skulum vér mæla allt fyrir hönd þína, slíkt er vér kunnum."

En með því að Ölvir sótti það mál mjög, þá hét Grímur ferð sinni, þá er hann þættist búinn; kváðu þeir Ölvir á með sér þá stund, er Grímur skyldi koma á konungsfund. Fór þá Ölvir fyrst á brott og til konungs.

Eg 2. (ch. 27)
Skallagrímr Kveldúlfsson
SkP ids: o169, v3905

Skj BI, 26:
Nú's hersis hefnð
við hilmi efnð,
gengr ulfr ok ǫrn
of ynglings bǫrn;
flugu hǫggvin hræ
Hallvarðs á sæ;
grár slítr undir
ari Snarfara.

27. kafli

Kveld-Úlfur og þeir Skalla-Grímur héldu njósnum jafnan um sumarið inn á þjóðleiðinni. Skalla-Grímur var hverjum manni skyggnari; hann sá sigling þeirra Hallvarðs og kenndi skipið, því að hann hafði það skip séð fyrr, þá er Þorgils fór með. Skalla-Grímur hélt vörð á um ferð þeirra, hvar þeir lögðu til hafnar um kveldið; síðan fer hann aftur til liðs síns og segir Kveld-Úlfi það, er hann hafði séð, svo það, að hann hafði kennt skipið, það er þeir Hallvarður höfðu tekið af Þorgísli og Þórólfur hafði átt, og þar myndu þeir menn nokkurir fylgja, er veiður myndi í vera.

Síðan búast þeir og búa báða bátana og höfðu tuttugu menn á hvorum; stýrði öðrum Kveld-Úlfur, en öðrum Skalla-Grímur; róa þeir síðan og leita skipsins, en er þeir koma að, þar er skipið lá, þá lögðu þeir að landi.

Þeir Hallvarður höfðu tjaldað yfir skipi sínu og höfðu þá lagst til svefns; en er þeir Kveld-Úlfur komu að þeim, þá hljópu varðmenn upp, er sátu við bryggjusporð, og kölluðu á skip út, báðu menn upp standa, sögðu, að ófriður fór að þeim; hljópu þeir Hallvarður til vopna sinna.

En er þeir Kveld-Úlfur komu að bryggjusporðinum, þá gekk hann út að skutbryggju, en Skalla-Grímur gekk fram að bryggjunni; Kveld-Úlfur hafði í hendi bryntröll. En er hann kom á skipið, þá bað hann menn sína ganga hið ytra með borðum og höggva tjöldin úr klofum, en hann óð aftur til lyftingarinnar, og svo er sagt, að þá hamaðist hann, og fleiri voru þeir förunautar hans, er þá hömuðust. Þeir drápu menn þá alla, er fyrir þeim urðu; slíkt sama gerði Skalla-Grímur, þar er hann gekk um skipið; léttu þeir feðgar eigi, fyrr en hroðið var skipið. En er Kveld-Úlfur kom aftur að lyftingunni, reiddi hann upp bryntröllið og höggur til Hallvarðs í gegnum hjálminn og höfuðið, og sökk allt að skafti; hnykkti hann þá svo hart að sér, að hann brá Hallvarði á loft og slöngdi honum útbyrðis. Skalla-Grímur ruddi framstafninn og drap Sigtrygg. Margt hljóp manna á kaf, en menn Skalla-Gríms tóku bátinn, er þeir höfðu þangað haft, og reru til og drápu þá alla, er á sundinu voru.

Þar lést alls manna Hallvarðs meir en fimm tigir manna, en þeir Skalla-Grímur tóku skipið, það er þeir Hallvarður höfðu þangað haft, og fé allt, það sem á var.

Þeir tóku höndum menn tvo eða þrjá, þá er þeim þótti sem minnstir væru fyrir sér, og gáfu grið og höfðu af þeim tíðindi, fréttu, hverjir menn hefðu verið á skipinu, og svo hvernig ferð þeirra hefði ætluð verið. En er þeir voru vísir orðnir alls hins sanna, þá könnuðu þeir valinn, þann er á skipinu lá; fannst þeim þá það á, að meiri hlutur manna hafði fyrir borð hlaupið og höfðu týnst en það, er fallið hafði á skipinu. Þeir synir Guttorms höfðu fyrir borð hlaupið og höfðu týnst; þá var annar þeirra tólf vetra, en annar tíu, og hinir vænlegustu menn.

Síðan lét Skalla-Grímur lausa fara þá menn, er hann hafði grið gefið, og bað þá fara á fund Haralds konungs og segja honum vendilega frá þeim tíðindum, er þar gerðust, og svo hverjir þar höfðu að verið. "Skuluð þér," sagði hann, "bera til konungs kviðling þenna:


Nús hersis hefnd
við hilmi efnd;
gengr ulfr ok örn
of ynglings börn;
flugu höggvin hræ
Hallvarðs á sæ;
grár slítr undir
ari Snarfara."

Síðan fluttu þeir Grímur skipið með farmi út til skipa sinna; skiptu þá skipunum, hlóðu þetta, er þá höfðu þeir fengið, en ruddu hitt, er þeir höfðu áður og minna var, báru þar í grjót og brutu þar á raufar og sökktu niður; sigldu síðan á haf út, þegar byr gaf.

Svo er sagt, að þeim mönnum væri farið, er hamrammir eru, eða þeim, er berserksgangur var á, að meðan það var framið, þá voru þeir svo sterkir, að ekki hélst við þeim, en fyrst, er af var gengið, þá voru þeir ómáttkari en að vanda. Kveld- Úlfur var og svo, að þá er af honum gekk hamremmin, þá kenndi hann mæði af sókn þeirri, er hann hafði veitt, og var hann þá af öllu saman ómáttugur, svo að hann lagðist í rekkju.

En byr bar þá í haf út. Kveld-Úlfur réð fyrir skipi því, er þeir höfðu tekið af þeim Hallvarði; þeim byrjaði vel og héldu mjög samfloti, svo að hvorir vissu löngum til annarra.

En er sóttist hafið, þá elnaði sótt á hendur Kveld-Úlfi; en er dró að því, að hann var banvænn, þá kallaði hann til skipverja sína og sagði þeim, að honum þótti líklegt, að þá myndi brátt skilja vega þeirra. "Hef eg," sagði hann, "ekki kvellisjúkur verið, en ef svo fer, sem mér þykir nú líklegast, að eg andist, þá gerið mér kistu og látið mig fara fyrir borð, og verður þetta annan veg en eg hugði, að vera myndi, ef eg skal eigi koma til Íslands og nema þar land. Þér skuluð bera kveðju mína Grími, syni mínum, þá er þér finnist, og segið honum það með, ef svo verður, að hann kemur til Íslands, og beri svo að, þótt það muni ólíklegt þykja, að eg sé þar fyrir, þá taki hann sér þar bústað sem næst því, er eg hefi að landi komið."

Litlu síðar andaðist Kveld-Úlfur; gerðu skipverjar hans svo sem hann hafði fyrir mælt, að þeir lögðu hann í kistu og skutu síðan fyrir borð.

Grímur hét maður, sonur Þóris, Ketils sonar kjölfara, kynstór maður og auðugur; hann var skipverji Kveld-Úlfs; hann hafði verið aldavinur þeirra feðga og hafði verið í ferðum bæði með þeim og Þórólfi, hafði hann og fengið reiði konungs fyrir þá sök. Hann tók til forráða skipið, eftir er Kveld-Úlfur var dauður.

En er þeir voru komnir við Ísland, þá sigldu þeir sunnan að landi; þeir sigldu vestur fyrir landið, því að þeir höfðu það spurt, að Ingólfur hafði sér þar bústað tekið; en er þeir komu fyrir Reykjanes og þeir sáu firðinum upp lúka, þá stefna þeir inn í fjörðinn báðum skipunum. Veður gerði hvasst og væta mikil og þoka; skildust þá skipin. Sigldu þeir inn eftir Borgarfirði, til þess er þraut sker öll; köstuðu þá akkerum, til þess er veður lægði og ljóst gerði; þá biðu þeir flæðar; síðan fluttu þeir skipið upp í árós nokkurn; sú er kölluð Gufuá. Leiddu þar skipið upp eftir ánni, svo sem gekk; báru síðan farm af skipinu og bjuggust þar um hinn fyrsta vetur.

Þeir könnuðu landið með sæ, bæði upp og út; en er þeir höfðu skammt farið, þá fundu þeir í vík einni, hvar upp var rekin kista Kveld-Úlfs; fluttu þeir kistuna á nes það, er þar varð, settu hana þar niður og hlóðu að grjóti.

Eg 3. (ch. 30)
Skallagrímr Kveldúlfsson
SkP ids: o170, v3906

Skj BI, 27:
Mjǫk tekr ár, sás aura,
ísarns meiðr, at rísa,
váðir vidda bróður
veðr, leggja skal, kveðja;
gjalla lætk á golli
geisla njóts, meðan þjóta,
heitu, hrœrikytjur
hreggs vindfrekar, sleggjur.

30. kafli

Haraldur konungur hinn hárfagri lagði eigu sína á jarðir þær allar, er þeir Kveld-Úlfur og Skalla-Grímur höfðu eftir átt í Noregi, og allt það fé annað, er hann náði. Hann leitaði og mjög eftir mönnum þeim, er verið höfðu í ráðum og vitorðum eða nokkurum tilbeina með þeim Skalla-Grími um verk þau, er þeir unnu, áður Skalla-Grímur fór úr landi á brott, og svo kom sá fjandskapur, er konungi var á þeim feðgum, að hann hataðist við frændur þeirra eða aðra nauðleytamenn eða þá menn, er hann vissi, að þeim höfðu allkærir verið í vináttu. Sættu sumir af honum refsingum, og margir flýðu undan og leituðu sér hælis; sumir innan lands, en sumir flýðu með öllu af landi á brott.

Yngvar, mágur Skalla-Gríms, var einn af þessum mönnum, er nú var frá sagt; tók hann það ráð, að hann varði fé sínu, svo sem hann mátti, í lausaeyri og fékk sér hafskip, réð þar menn til og bjó ferð sína til Íslands, því að hann hafði þá spurt, að Skalla-Grímur hafði tekið þar staðfestu og eigi myndi þar skorta landakosti með Skalla-Grími. En er þeir voru búnir og byr gaf, þá sigldi hann í haf, og greiddist ferð hans vel; kom hann til Íslands fyrir sunnan landið og hélt vestur fyrir Reykjanes og sigldi inn á Borgarfjörð og hélt inn í Langá og upp allt til foss; báru þar farm af skipinu.

En er Skalla-Grímur spurði aðkomu Yngvars, þá fór hann þegar á fund hans og bauð honum til sín með svo mörgum mönnum, sem hann vildi. Yngvar þekktist það; var skipið upp sett, en Yngvar fór til Borgar með marga menn og var þann vetur með Skalla-Grími. En að vori bauð Skalla-Grímur honum landakosti; hann gaf Yngvari bú það, er hann átti á Álftanesi, og land inn til Leirulækjar og út til Straumfjarðar; síðan fór hann til útbús þess og tók þar við, og var hann hinn nýsti maður og hafði auð fjár. Skalla-Grímur gerði þá bú í Knarrarnesi og átti þar bú lengi síðan.

Skalla-Grímur var járnsmiður mikill og hafði rauðablástur mikinn á vetrinn; hann lét gera smiðju með sjónum mjög langt út frá Borg, þar sem heitir Raufarnes; þótti honum skógar þar fjarlægir. En er hann fékk þar engan stein þann, er svo væri harður eða sléttur, að honum þætti gott að lýja járn við, því að þar er ekki malargrjót; eru þar smáir sandar allt með sæ, -- var það eitt kveld, þá er aðrir menn fóru að sofa, að Skalla-Grímur gekk til sjóvar og hratt fram skipi áttæru, er hann átti og reri út til Miðfjarðareyja; lát þá hlaupa niður stjóra fyrir stafn á skipinu. Síðan steig hann fyrir borð og kafaði og hafði upp með sér stein og færði upp í skipið; síðan fór hann sjálfur upp í skipið og reri til lands og bar steininn til smiðju sinnar og lagði niður fyrir smiðjudurum og lúði þar síðan járn við. Liggur sá steinn þar enn og mikið sindur hjá, og sér það á steininum, að hann er barður ofan og það er brimsorfið grjót og ekki því grjóti líkt öðru, er þar er, og munu nú ekki meira hefja fjórir menn.

Skalla-Grímur sótti fast smiðjuverkið, en húskarlar hans vönduðu um og þótti snemma risið; þá orti hann vísu þessa:


Mjök verðr ár, sás aura,
ísarns meiðr at rísa,
váðir vidda bróður
veðrseygjar skal kveðja;
gjalla lætk á golli
geisla njóts, meðan þjóta,
heitu, hrærikytjur
hreggs vindfrekar, sleggjur.

Eg 4. (ch. 31)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o171, v1422

Skj BI, 602:
Kominn emk ern til arna
Yngvars, þess's beð lyngva
(hann vask fúss at finna)
fránþvengjar gefr drengjum;
mun eigi þú, þægir,
þrévetran mér betra,
ljósundinna landa
linns, óðar smið finna.

Eg 5. (ch. 31)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o172, v1423

Skj BI, 603:
Síþǫgla gaf sǫglum
sárgagls þría Agli
hirðimeiðr við hróðri
hagr brimrótar gagra,
ok bekkþiðurs blakka
borðvallar gaf fjorða
kennimeiðr, sás kunni,
kǫrbeð, Egil gleðja.

31. kafli

Skalla-Grímur og þau Bera áttu börn mjög mörg, og var það fyrst, að öll önduðust; þá gátu þau son, og var vatni ausinn og hét Þórólfur. En er hann fæddist upp, þá var hann snemma mikill vexti og hinn vænsti sýnum; var það allra manna mál, að hann myndi vera hinn líkasti Þórólfi Kveld-Úlfssyni, er hann var eftir heitinn. Þórólfur var langt um fram jafnaldra sína að afli; en er hann óx upp, gerðist hann íþróttamaður um flesta þá hluti, er þá var mönnum títt að fremja, þeim er vel voru að sér gerðir. Þórólfur var gleðimaður mikill; snemma var hann svo fullkominn að afli, að hann þótti vel liðfær með öðrum mönnum; varð hann brátt vinsæll af alþýðu; unni honum og vel faðir og móðir.

Þau Skalla-Grímur áttu dætur tvær; hét önnur Sæunn, en önnur Þórunn; voru þær og efnilegar í uppvexti.

Enn áttu þau Skalla-Grímur son; var sá vatni ausinn og nafn gefið og kallaður Egill. En er hann óx upp, þá mátti brátt sjá á honum, að hann myndi verða mjög ljótur og líkur föður sínum, svartur á hár. En þá er hann var þrevetur, þá var hann mikill og sterkur, svo sem þeir sveinar aðrir, er voru sex vetra eða sjö; hann var brátt málugur og orðvís; heldur var hann illur viðureignar, er hann var í leikum með öðrum ungmennum.

Það vor fór Yngvar til Borgar, og var það að erindum, að hann bauð Skalla-Grími til boðs út þangað til sín og nefndi til þeirrar ferðar Beru, dóttur sína, og Þórólf, son hennar, og þá menn aðra, er þau Skalla-Grímur vildu að færu; Skalla- Grímur hét för sinni. Fór Yngvar þá heim og bjó til veislunnar og lét þá öl heita.

En er að þeirri stefnu kemur, er Skalla-Grímur skyldi til boðsins fara og þau Bera, þá bjóst Þórólfur til ferðar með þeim og húskarlar, svo að þau voru fimmtán saman.

Egill ræddi um við föður sinn, að hann vildi fara; "á eg þar slíkt kynni sem Þórólfur," segir hann.

"Ekki skaltu fara," segir Skalla-Grímur, "því að þú kannt ekki fyrir þér að vera í fjölmenni, þar er drykkjur eru miklar, er þú þykir ekki góður viðskiptis, að þú sért ódrukkinn."

Steig þá Skalla-Grímur á hest sinn og reið í brott, en Egill undi illa við sinn hlut. Hann gekk úr garði og hitti eykhest einn, er Skalla-Grímur átti, fór á bak og reið eftir þeim Skalla-Grími; honum varð ógreiðfært um mýrarnar, því að hann kunni enga leið, en hann sá þó mjög oft reið þeirra Skalla-Gríms, þá er eigi bar fyrir holt eða skóga. Er það að segja frá hans ferð, að síð um kveldið kom hann á Álftanes, þá er menn sátu þar að drykkju; gekk hann inn í stofu. En er Yngvar sá Egil, þá tók hann við honum feginsamlega og spurði, hví hann hefði svo síð komið. Egill sagði, hvað þeir Skalla-Grímur höfðu við mælst. Yngvar setti Egil hjá sér. Sátu þeir gagnvert þeim Skalla-Grími og Þórólfi.

Það var þar haft ölteiti, að menn kváðu vísur; þá kvað Egill vísu:

Kominn emk til arna
Yngvars, þess's beð lyngva,
hann vask fúss at finna,
fránþvengjar gefr drengjum;
mun eigi þú, þægir,
þrévetran mér betra,
ljósundinna landa
linns, óðar smið finna.

Yngvar hélt upp vísu þeirri og þakkaði vel Agli vísuna; en um daginn eftir þá færði Yngvar Agli að skáldskapar launum kúfunga þrjá og andaregg. En um daginn eftir við drykkju kvað Egill vísu aðra um bragarlaun:

Síþögla gaf söglum
sárgagls þría Agli
hirðimeiðr við hróðri
hagr brimrótar gagra,
ok bekkþiðurs blakka
borðvallar gaf fjorða
kennimeiðr, sás kunni,
körbeð, Egil gleðja.

Vel lagði Egill í þökk skáldskap sinn við marga menn.

Ekki varð þá fleira til tíðinda í ferð þeirra. Fór Egill heim með Skalla-Grími.

Eg 6. (ch. 38)
Skallagrímr Kveldúlfsson
SkP ids: o173, v3907

Skj BI, 27:
Liggja ýgs fyr eggju,
(ák sveigar kǫr deiga)
fox es ilt í øxi,
undvargs flǫsur margar;
arghyrnu lát árna
aptr með roknu skapti,
þǫrfgi væri þeirar,
þat vas ingva gjǫf, hingat.

38. kafli

Þórólfur Skalla-Grímsson bjóst eitt sumar til kaupferðar; ætlaði þá, sem hann gerði, að fara til Íslands og hitta föður sinn. Hann hafði þá lengi á brottu verið; hann hafði þá ógrynni fjár og dýrgripi marga.

En er hann var búinn til ferðar, þá fór hann á fund Eiríks konungs; en er þeir skildust, seldi konungur í hendur Þórólfi öxi, er hann kveðst gefa vilja Skalla-Grími; öxin var snaghyrnd og mikil og gullbúin, upp skellt skaftið með silfri, og var það hinn virðilegasti gripur.

Þórólfur fór ferðar sinnar, þegar hann var búinn, og greiddist honum vel og kom skipi sínu í Borgarfjörð og fór þegar bráðlega heim til föður síns; varð þar fagnafundur mikill, er þeir hittust. Síðan fór Skalla-Grímur til skips móti Þórólfi, lét setja upp skipið, en Þórólfur fór heim til Borgar með tólfta mann.

En er hann kom heim, bar hann Skalla-Grími kveðju Eiríks konungs og færði honum öxi þá, er konungur hafði sent honum. Skalla-Grímur tók við öxinni, hélt upp og sá á um hríð og ræddi ekki um; festi upp hjá rúmi sínu.

Það var um haustið einn hvern dag að Borg, að Skalla-Grímur lét reka heim yxn mjög marga, er hann ætlaði til höggs; hann lét leiða tvo yxn saman undir húsvegg og leiða á víxl; hann tók hellustein vel mikinn og skaut niður undir hálsana. Síðan gekk hann til með öxina konungsnaut og hjó yxnina báða senn, svo að höfuðið tók af hvorumtveggja, en öxin hljóp niður í steininn, svo að munnurinn brast úr allur og rifnaði upp í gegnum herðuna. Skalla-Grímur sá í eggina og ræddi ekki um; gekk síðan inn í eldahús og steig síðan á stokk upp og skaut öxinni upp á hurðása, lá hún þar um veturinn.

En um vorið lýsti Þórólfur yfir því, að hann ætlaði utan að fara um sumarið. Skalla-Grímur latti hann, sagði, að þá var gott heilum vagni heim að aka; "hefur þú," sagði hann, "farið fremdarför mikla, en það er mælt, er ýmsar verður, ef margar fer; tak þú nú hér við fjárhlut svo miklum, að þú þykist verða mega gildur maður af."

Þórólfur sagði, að hann vill enn fara einhverja ferð, "og á eg nauðsynleg erindi til fararinnar; en þá er eg kem út öðru sinni, mun eg hér staðfestast; en Ásgerður, fóstra þín, skal fara utan með mér á fund föður síns; bauð hann mér um það, þá er eg fór austan."

Skalla-Grímur kvað hann ráða mundu "en svo segir mér hugur um, ef við skiljumst nú, sem við munum eigi finnast síðan."

Síðan fór Þórólfur til skips síns og bjó það; en er hann var albúinn, fluttu þeir út skipið til Digraness, og lá þar til byrjar; fór þá Ásgerður til skips með honum.

En áður Þórólfur fór frá Borg, þá gekk Skalla-Grímur til og tók öxina ofan af hurðásum, konungsgjöfina, og gekk út með; var þá skaftið svart af reyk, en öxin ryðgengin. Skalla-Grímur sá í egg öxinni; síðan seldi hann Þórólfi öxina. Skalla-Grímur kvað vísu:


Liggja ýgs í eggju,
ák sveigar kör deiga,
fox es illt í öxi,
undvargs flösur margar;
arghyrnu lát árna
aptr með roknu skapti;
þörfgi væri þeirar,
þat vas inga gjöf, hingat.

Eg 7. (ch. 40)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o174, v2273

Skj BI, 42:
Þat mælti mín móðir,
at mér skyldi kaupa
fley ok fagrar árar,
fara á braut með víkingum,
standa upp í stafni,
stýra dýrum knerri,
halda svá til hafnar
hǫggva mann ok annan.

40. kafli

Skalla-Grímur henti mikið gaman að aflraunum og leikum; um það þótti honum gott að ræða. Knattleikar voru þá tíðir. Var þar í sveit gott til sterkra manna í þann tíma, en þó hafði engi afl við Skalla-Grím; hann gerðist þá heldur hniginn að aldri.

Þórður hét sonur Grana að Granastöðum, og var hann hinn mannvænlegasti maður og var á ungum aldri; hann var elskur að Agli Skalla-Grímssyni. Egill var mjög að glímum; var hann kappsamur mjög og reiðinn, en allir kunnu það að kenna sonum sínum, að þeir vægðu fyrir Agli.

Knattleikur var lagður á Hvítárvöllum allfjölmennur á öndverðan vetur; sóttu menn þar til víða um hérað. Heimamenn Skalla-Gríms fóru þangað til leiks margir; Þórður Granason var helst fyrir þeim. Egill bað Þórð að fara með honum til leiks; þá var hann á sjöunda vetur; Þórður lét það eftir honum og reiddi hann að baki sér.

En er þeir komu á leikmótið, þá var mönnum skipt þar til leiks, þar var og komið margt smásveina, og gerðu þeir sér annan leik; var þar og skipt til.

Egill hlaut að leika við svein þann, er Grímur hét, sonur Heggs af Heggsstöðum; Grímur var ellefu vetra eða tíu og sterkur að jöfnum aldri. En er þeir lékust við, þá var Egill ósterkari; Grímur gerði og þann mun allan, er hann mátti. Þá reiddist Egill og hóf upp knatttréð og laust Grím, en Grímur tók hann höndum og keyrði hann niður fall mikið og lék hann heldur illa og kveðst mundu meiða hann, ef hann kynni sig eigi. En er Egill komst á fætur, þá gekk hann úr leiknum, en sveinarnir æptu að honum.

Egill fór til fundar við Þórð Granason og sagði honum, hvað í hafði gerst.

Þórður mælti: "Eg skal fara með þér, og skulum við hefna honum." Hann seldi honum í hendur skeggöxi eina, er Þórður hafði haft í hendi; þau vopn voru þá tíð; ganga þeir þar til, er sveinaleikurinn var. Grímur hafði þá hent knöttinn og rak undan, en aðrir sveinarnir sóttu eftir. Þá hljóp Egill að Grími og rak öxina í höfuð honum, svo að þegar stóð í heila. Þeir Egill og Þórður gengu í brott síðan og til manna sinna; hljópu þeir Mýramenn þá til vopna og svo hvorirtveggju. Óleifur hjalti hljóp til þeirra Borgarmanna með þá menn, er honum fylgdu; voru þeir þá miklu fjölmennri og skildust að svo gerðu.

Þaðan af hófust deildir með þeim Óleifi og Hegg; þeir börðust á Laxfit við Grímsá. Þar féllu sjö menn, en Heggur varð sár til ólífis, og Kvígur féll, bróðir hans.

En er Egill kom heim, lét Skalla-Grímur sér fátt um finnast, en Bera kvað Egil vera víkingsefni og kvað það mundu fyrir liggja, þegar hann hefði aldur til, að honum væru fengin herskip. Egill kvað vísu:


Þat mælti mín móðir,
at mér skyldi kaupa
fley ok fagrar árar
fara á brott með víkingum,
standa upp í stafni,
stýra dýrum knerri,
halda svá til hafnar,
höggva mann ok annan.

Þá er Egill var tólf vetra gamall, var hann svo mikill vexti, að fáir voru menn svo stórir og að afli búnir, að Egill ynni þá eigi flesta menn í leikum; þann vetur, er honum var hinn tólfti, var hann mjög að leikum. Þórður Granason var þá á tvítugs aldri; hann var sterkur að afli; það var oft, er á leið veturinn, að þeim Agli og Þórði tveimur var skipt í móti Skalla-Grími.

Það var eitt sinn um veturinn, er á leið, að knattleikur var að Borg suður í Sandvík; þá voru þeir Þórður í móti Skalla-Grími í leiknum, og mæddist hann fyrir þeim, og gekk þeim léttara. En um kveldið eftir sólarfall, þá tók þeim Agli verr að ganga; gerðist Grímur þá svo sterkur, að hann greip Þórð upp og keyrði niður svo hart, að hann lamdist allur, og fékk hann þegar bana; síðan greip hann til Egils.

Þorgerður brák hét ambátt Skalla-Gríms; hún hafði fóstrað Egil í barnæsku; hún var mikil fyrir sér, sterk sem karlar og fjölkunnug mjög.

Brák mælti: "Hamast þú nú, Skalla-Grímur, að syni þínum."

Skalla-Grímur lét þá lausan Egil, en þreif til hennar. Hún brást við og rann undan, en Skalla-Grímur eftir; fóru þau svo í utanvert Digranes; þá hljóp hún út af bjarginu á sund. Skalla-Grímur kastaði eftir henni steini miklum og setti milli herða henni, og kom hvortki upp síðan. Þar er nú kallað Brákarsund.

En eftir um kveldið, er þeir komu heim til Borgar, var Egill allreiður. En er Skalla-Grímur hafði setst undir borð og alþýða manna, þá var Egill eigi kominn í sæti sitt; þá gekk hann inn í eldahús og að þeim manni, er þar hafði þá verkstjórn og fjárforráð með Skalla-Grími og honum var kærstur; Egill hjó hann banahögg og gekk síðan til sætis síns. En Skalla-Grímur ræddi þá ekki um, og var það mál þaðan af kyrrt, en þeir feðgar ræddust þá ekki við, hvorki gott né illt, og fór svo fram þann vetur.

En hið næsta sumar eftir kom Þórólfur út, sem fyrr var sagt; en er hann hafði verið einn vetur á Íslandi, þá bjó hann eftir um vorið skip sitt í Brákarsundi.

En er hann var albúinn, þá var það einn dag, að Egill gekk til fundar við föður sinn og bað hann fá sér fararefni; "vil eg," sagði hann, "fara utan með Þórólfi."

Grímur spurði, ef hann hefði nokkuð það mál rætt fyrir Þórólfi; Egill segir, að það var ekki; Grímur bað hann það fyrst gera.

En er Egill vakti það mál við Þórólf, þá kvað hann þess enga von, "að eg muni þig flytja með mér á brott; ef faðir þinn þykist eigi mega um þig tæla hér í hýbýlum sínum, þá ber eg eigi traust til þess að hafa þig utanlendis með mér, því að þér mun það ekki hlýða að hafa þar slíkt skaplyndi sem hér."

"Vera má," sagði Egill, "að þá fari hvorgi okkar."

Um nóttina eftir gerði á æðiveður, útsynning; en um nóttina, er myrkt var og flóð var sjóvar, þá kom Egill þar og gekk fyrir utan tjöldin; hjó hann í sundur festar þær,er á útborða voru. Gekk hann þegar sem skjótast upp um bryggjuna, skaut út þegar bryggjunni og hjó þær festar, er á land upp voru. Rak þá út skipið á fjörðinn. En er þeir Þórólfur urðu varir við, er skipið rak, hljópu þeir í bátinn, en veðrið var miklu hvassara en þeir fengju nokkuð að gert. Rak skipið yfir til Andakíls og þar á eyrar upp, en Egill fór heim til Borgar.

En er menn urðu varir við bragð það, er Egill hafði gert, þá löstuðu það flestir; hann sagði, að hann skyldi skammt til láta að gera Þórólfi meira skaða og spellvirki, ef hann vildi eigi flytja hann í brott. En þá áttu menn hlut að í milli þeirra, og kom svo að lyktum, að Þórólfur tók við Agli, og fór hann utan með honum um sumarið.

Þegar Þórólfur kom til skips, þá er hann hafði tekið við öxi þeirri, er Skalla-Grímur hafði fengið í hendur honum, þá kastaði hann öxinni fyrir borð á djúpi, svo að hún kom ekki upp síðan.

Þórólfur fór ferðar sinnar um sumarið og greiddist vel um hafið, og komu utan að Hörðalandi; stefnir Þórólfur þegar norður til Sogns. En þar höfðu þau tíðindi orðið um veturinn, að Brynjólfur hafði andast af sótt, en synir hans höfðu skipt arfi. Hafði Þórður Aurland, bæ þann, er faðir þeirra hafði búið á; hafði hann gerst konungi handgenginn og gerst lendur maður.

Dóttir Þórðar hét Rannveig, móðir þeirra Þórðar og Helga; Þórður var faðir Rannveigar, móður Ingiríðar, er átti Ólafur konungur; Helgi var faðir Brynjólfs, föður þeirra Serks úr Sogni og Sveins.

Eg 8. (ch. 44)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o175, v2284

Skj BI, 42-3:
Sǫgðuð, sverriflagða,
sumbleklu, herkumbla
- því telk - brjótr, þars blétuð
- bragðvísan þik - dísir;
leynduð alls til illa
ókunna hjǫrrunna,
ilt hafið bragð of brugðit,
Bárøðr, hugar fári.

Eg 9. (ch. 44)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o176, v2295

Skj BI, 43:
Rístum rún á horni,
rjóðum spjǫll í dreyra,
þau velk orð til eyrna
óðs dýrs viðar róta;
drekkum veig sem viljum,
vel glýjaðra þýja;
vita, hvé oss of eiri
ǫl þats Bárøðr signði.

Eg 10. (ch. 44)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o177, v2307

Skj BI, 43:
Ǫl ber mér, þvít Ǫlvi
ǫl gerir nú fǫlvan,
atgeira lætk úra
ýring of grǫn skýra;
ǫllungis kant illa,
oddskýs, fyr þér nýsa,
(rigna getr at regni)
regnbjóðr (Háars þegna).

44. kafli

Eiríkur konungur og Gunnhildur komu það sama kveld í Atley, og hafði Bárður þar búið veislu móti honum, og skyldi þar vera dísablót, og var þar veisla hin besta og drykkja mikil inni í stofunni.

Konungur spurði, hvar Bárður væri, -- "er eg sé hann hvergi."

Maður segir: "Bárður er úti og greiðir fyrir gestum sínum."

"Hverjir eru gestir þeir," segir konungur, "er hann lætur sér það skyldara en vera inni hér hjá oss?"

Maðurinn sagði honum, að þar voru komnir húskarlar Þóris hersis.

Konungur mælti: "Gangið eftir þeim sem tíðast og kallið þá inn hingað." Og var svo gert, sagt að konungur vill hitta þá.

Síðan ganga þeir. Fagnar konungur vel Ölvi og bað hann sitja gagnvert sér í öndvegi og þar förunauta hans utar frá. Þeir gerðu svo; sat Egill næstur Ölvi.

Síðan var þeim borið öl að drekka. Fóru minni mörg, og skyldi horn drekka í minni hvert. En er á leið um kveldið, þá kom svo, að förunautar Ölvis gerðust margir ófærir, sumir spjóu þar inni í stofunni, en sumir komust út fyrir dyr; Bárður gekk þá að fast að bera þeim drykk.

Þá tók Egill við horni því, er Bárður hafði fengið Ölvi, og drakk af; Bárður sagði, að hann þyrsti mjög, og færði honum þegar hornið fullt og bað hann af drekka. Egill tók við horninu og kvað vísu:

Sögðuð sverri flagða
sumbleklu ér, kumbla,
því telk, brjótr, þars blétuð,
bragðvísan þik, dísir;
leynduð alls til illa
ókunna þér runna,
illt hafið bragð of brugðit,
Báröðr, hugar fári.

Bárður bað hann drekka og hætta flimtun þeirri. Egill drakk full hvert, er að honum kom, og svo fyrir Ölvi.

Þá gekk Bárður til drottningar og sagði henni, að þar var maður sá, er skömm færði að þeim og aldregi drakk svo, að eigi segði hann sig þyrsta. Drottning og Bárður blönduðu þá drykkinn ólyfjani og báru þá inn; signdi Bárður fullið, fékk síðan ölseljunni; færði hún Agli og bað hann drekka. Egill brá þá knífi sínum og stakk í lófa sér; hann tók við horninu og reist á rúnar og reið á blóðinu. Hann kvað:


Rístum rún á horni,
rjóðum spjöll í dreyra,
þau velk orð til eyrna
óðs dýrs viðar róta;
drekkum veig sem viljum
vel glýjaðra þýja,
vitum, hvé oss of eiri
öl, þats Báröðr signdi.

Hornið sprakk í sundur, en drykkurinn fór niður í hálm. Þá tók að líða að Ölvi; stóð þá Egill upp og leiddi Ölvi utar til dyranna og hélt á sverði sínu. En er þeir koma að dyrunum, þá kom Bárður eftir þeim og bað Ölvi drekka brautfararminni sitt. Egill tók við og drakk og kvað vísu:


Ölvar mik, þvít Ölvi
öl gervir nú fölvan,
atgeira lætk ýrar
ýring of grön skýra;
öllungis kannt illa,
oddskýs, fyr þér nýsa,
rigna getr at regni,
regnbjóðr, Hávars þegna.

Egill kastar horninu, en greip sverðið og brá; myrkt var í forstofunni; hann lagði sverðinu á Bárði miðjum, svo að blóðrefillinn hljóp út um bakið; féll hann dauður niður, en blóð hljóp úr undinni. Þá féll Ölvir, og gaus spýja úr honum. Egill hljóp þá út úr stofunni; þá var niðamyrkur úti; tók Egill þegar rás af bænum.

En inni í forstofunni sáu menn, að þeir voru báðir fallnir, Bárður og Ölvir; kom þá konungur til og lét bera að ljós; sáu menn þá, hvað títt var, að Ölvir lá þar vitlaus, en Bárður var veginn, og flaut í blóði hans gólfið allt.

Þá spurði konungur, hvar sá væri hinn mikli maður, er þar hafði drukkið mest um kveldið, menn sögðu, að hann gekk út.

"Leitið að honum," segir konungur, "og látið hann koma til mín."

Var hans nú leita farið um bæinn, og fannst hann hvergi; en er þeir koma í eldahúsið, þá lágu þar margir menn Ölvis; konungsmenn spurðu, ef þar hefði nokkuð Egill komið.

Þeir segja, að hann hefði hlaupið þar inn og tekið vopn sín, -- "og gekk út eftir það."

Þá var það sagt konungi; konungur bað menn sína fara sem hvatast og taka skip öll, þau er voru í eyjunni; "en á morgun, er ljóst er, skulum vér rannsaka alla eyna og drepa þá manninn."

Eg 11. (ch. 45)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o178, v2315

Skj BI, 43:
Svá hefk leystsk ór Lista
láðvarðaðar garði,
né fágak dul drjúgan,
dáðmildr ok Gunnhildar,
at þrifreynis þjónar
þrír nakkvarir Hlakkar,
til hásalar Heljar
helgengnir, fǫr dvelja.

45. kafli

Egill fór nú um nóttina og leitaði þar til, er skipin voru, en hvar sem hann kom til strandar, þá var þar allt menn fyrir; hann fór nótt þá alla og fékk hvergi skip.

En er lýsa tók, var hann staddur á nesi nokkuru; hann sá þá ey eina, og var þar sund í milli og furðulega langt. Þá var það ráð hans, að hann tók hjálminn, sverð og spjót og braut það af skafti og skaut því á sæ út, en vopnin vafði hann í yfirhöfn sinni og gerði sér af bagga og batt á bak sér. Þá hljóp hann á sund og létti eigi fyrr en hann kom til eyjarinnar; hún hét Sauðey og er ekki mikil ey og hrísótt. Þar var í fénaður, naut og sauðir, og lá það til Atleyjar. En er hann kom til eyjarinnar, vatt hann klæði sín; þá var dagur ljós og sól farin.

Eiríkur konungur lét rannsaka eyna, þegar ljóst var; það var seint, er eyin var mikil, og fannst Egill eigi; var þá farið á skipi til annarra eyja að leita hans. Það var um kveldið, að tólf menn reru til Sauðeyjar að leita Egils, en þó voru margar eyjar nær. Hann sá skipið, er fór til eyjarinnar, en níu gengu upp og skiptu leitum. Egill hafði lagst niður í hrísið og falst, áður skipið kom að landi.

Nú gengu þrír í hverja leit, en þrír gættu skips; og er leiti bar í milli þeirra og skipsins, þá stóð Egill upp og gekk til skipsins. En þeir, er skipsins gættu, fundu eigi fyrr en Egill var kominn að þeim; hann hjó einn þegar banahögg, en annar tók á rás, og var þar að hlaupa á brekku nokkura; Egill hjó eftir honum og af fótinn; en einn hljóp á skipið og stakk við forkinum, en Egill dró að sér festina og hljóp út á skipið, og skiptust þeir eigi lengi höggum við, áður Egill drap hann og rak hann útbyrðis. Þá tók hann árar og reri á brott skipinu; fór hann þá nótt alla og daginn eftir og létti eigi fyrr en hann kom til Þóris hersis. En Ölvi og förunauta hans lét konungur fara í friði af þessum sökum.

En þeir menn, er í Sauðey voru, þá voru þeir þar margar nætur og drápu fé til matar sér, tóku eld og gerðu seyði; þeir gerðu svo mikið, að sjá mátti heim, lögðu þá eld í og gerðu vita; en er það var séð, þá var róið til þeirra. Konungur var þá í brott; fór hann þá til annarrar veislu.

Þeir Ölvir komu fyrr heim en Egill, og voru þeir Þórir og Þórólfur nýkomnir heim frá brullaupinu; Ölvir sagði tíðindi, dráp Bárðar og þá atburði, er þar höfðu orðið, en hann vissi ekki til ferða Egils, og var Þórólfur allókátur og svo Arinbjörn; þótti þeim sem hann myndi eigi aftur koma. En eftir um morguninn kom Egill heim; en er Þórólfur varð þess vís, þá stóð hann upp og gekk til fundar við Egil og spurði, með hverjum hætti hann hefði undan komist og hvað til tíðinda hefði orðið í för hans. Þá kvað Egill vísu:


Svá hefk leystsk ór Lista
láðvarðaðar garði,
né fágak dul drjúgan,
dáðmildr ok Gunnhildar,
at þrifreynis þjónar
þrír nakkvarir Hlakkar
til hásalar Heljar
helgengnir för dvelja.

Arinbjörn lét vel yfir þessum verkum, sagði föður sinn skyldan vera til að sætta hann við konung.

Þórir segir: "Það mun vera mál manna, að Bárður hefði verðleika til þess, er hann var drepinn, en þó er Agli of mjög ættgengt að sjást of lítt fyrir að verða fyrir reiði konungs, en það verður flestum mönnum þungbært; en þó mun eg koma þér í sætt við konung að sinni."

Þórir fór á fund konungs, en Arinbjörn var heima og kvað eitt skyldu yfir þá líða alla; en er Þórir kom á fund konungs, þá bauð hann boð fyrir Egil, bauð festu sína, en dóm konungs.

Eiríkur konungur var hinn reiðasti, og var óhægt ráðum við hann að koma; konungur mælti og kvað það mundu sannast, er faðir hans hafði sagt, að seint myndi mega tryggja þá frændur, bað Þóri svo til haga, -- "þótt eg geri sætt nokkura, að Egill sé ekki langvistum í mínu ríki; en sakir þín, Þórir, mun eg fé taka fyrir menn þessa."

Gerði konungur fésekt slíka, sem honum sýndist, en Þórir galt allt; fór hann þá heim.

Eg 12. (ch. 47)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o179, v2316

Skj BI, 43:
Upp skulum órum sverðum,
ulfs tannlituðr, glitra,
eigum dôð at drýgja
í dalmiskunn fiska;
leiti upp til Lundar
lýða hverr sem bráðast,
gerum þar fyr sjǫt sólar
seið ófagran vigra.

47. kafli

Haraldur Gormsson hafði þá tekið við ríki í Danmörk, en Gormur, faðir hans, var þá dauður; landið var þá herskátt; lágu víkingar mjög úti fyrir Danmörku. Áka var kunnugt í Danmörku bæði á sjó og landi; spurði Egill hann mjög eftir, hvar þeir staðir væru, er stór féföng myndu fyrir liggja.

En er þeir komu í Eyrarsund, þá sagði Áki, að þar var á land upp kaupstaður mikill, er hét í Lundi, sagði, að þar var févon, en líklegt, að þar myndi vera viðtaka, er bæjarmenn væru. Það mál var upp borið fyrir liðsmenn, hvort þar skyldi ráða til uppgöngu eða eigi; menn tóku þar allmisjafnt á, fýstu sumir, en sumir löttu. Var því máli skotið til stýrimanna. Þórólfur fýsti heldur uppgöngu. Þá var rætt við Egil, hvað honum þótti ráð. Hann kvað vísu:


Upp skulum órum sverðum,
ulfs tannlituðr, glitra,
eigum dáð at drýgja
í dalmiskunn fiska;
leiti upp til Lundar
lýða hverr sem bráðast
gerum þar fyr setr sólar
seið ófagran vigra.

Síðan bjuggust menn til uppgöngu og fóru til kaupstaðarins. En er bæjarmenn urðu varir við ófrið, þá stefndu þeir í mót; var þar tréborg um staðinn, settu þeir þar menn til að verja; tókst þar bardagi. Egill gengur fyrstur inn um borgina; síðan flýðu bæjarmenn; varð þar mannfall mikið. Rændu þeir kaupstaðinn, en brenndu, áður þeir skildust við; fóru síðan ofan til skipa sinna.

Eg 13. (ch. 48)
Anonymous Lausavísur
SkP ids: o180, v1424

Skj BI, 603:
Hvat skalt sveinn í sess minn?
Sjaldan hefr þú gefnar
vargi varmar bráðir,
vesa vilk ein of mína;
sátta hrafn í hausti
of hræsolli gjalla,
vastat at, þars eggjar
á skelþunnar runnusk.

Eg 14. (ch. 48)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o181, v2318

Skj BI, 43-4:
Farit hefk blóðgum brandi,
mér benþiðurr fylgði,
ok gjallanda geiri,
gangr vas harðr af víkingum;
gerðum reiðir róstur,
rann eldr of sjǫt manna,
létum blóðga búka
í borghliði sœfask.

48. kafli

Þórólfur hélt liði sínu norður fyrir Halland og lögðu þar til hafnar, er þeim bægði veður; rændu þar ekki. Þar var skammt á land upp jarl sá, er Arnfinnur er nefndur; en er hann spurði, að víkingar voru þar komnir við land, þá sendi hann menn sína á fund þeirra þess erindis að vita, hvort þeir vildu þar friðland hafa eða hernað.

En er sendimenn voru komnir á fund Þórólfs með sín erindi, þá sagði hann, að þeir myndu þar ekki herja, sagði, að þeim var engi nauðsyn til að herja þar og fara herskildi, sagði, að þar var land ekki auðugt.

Sendimenn fara aftur til jarlsins og sögðu honum erindislok sín; en er jarlinn varð þess var, að hann þurfti ekki liði að safna fyrir þá sök, þá reið hann ofan með ekki lið til fundar við víkinga. En er þeir fundust, þá fóru þar allt vel ræður með þeim; jarl bauð Þórólfi til veislu með sér og liði hans, því er hann vildi, Þórólfur hét ferðinni.

En þá er á var kveðið, lét jarlinn senda reiðskjóta ofan móti þeim; réðust þeir til ferðar bæði Þórólfur og Egill og höfðu með sér þrjá tigu manna. En er þeir komu til jarlsins, fagnaði hann þeim vel; var þeim fylgt inn í stofu. Var þar þegar inni mungát og gefið þeim að drekka; sátu þeir þar til kvelds.

En áður borð skyldi upp fara, þá sagði jarl, að þar skyldi sæti hluta, skyldi drekka saman karlmaður og kona, svo sem til ynnist, en þeir sér, er fleiri væru. Menn báru þá hluti sína í skaut, og tók jarlinn upp. Jarl átti dóttur allfríða og þá vel frumvaxta; svo sagði hlutur til, að Egill skyldi sitja hjá jarlsdóttur um kveldið; hún gekk um gólf og skemmti sér. Egill stóð upp og gekk til rúms þess, er dóttir jarlsins hafði setið um daginn. En er menn skipuðust í sæti sín, þá gekk jarlsdóttir að rúmi sínu; hún kvað:


Hvat skaltu, sveinn, í sess minn?
þvít þú sjaldan hefr gefnar
vargi varmar bráðir,
vesa vilk ein of mína;
sáttaðu hrafn í hausti
of hræsolli gjalla,
vastaðu at, þars eggjar
á skelþunnar runnusk.

Egill tók til hennar og setti hana niður hjá sér; hann kvað:


Farit hefk blóðgum brandi,
svát mér benþiðurr fylgði,
ok gjallanda geiri;
gangr vas harðr af víkingum;
gerðum reiðir róstu,
rann eldr of sjöt manna,
létum blóðga búka
í borghliðum sæfask

Þá drukku þau saman um kveldið og voru allkát. Var þar veisla hin besta og svo um daginn eftir; fóru þá víkingar til skipa sinna; skildust þeir jarl með vináttu og skiptust gjöfum við. Héldu þeir Þórólfur liðinu til Brenneyja; þar var í þann tíma víkingabæli mikið, því að þar sigldu kaupskip mjög í gegnum eyjarnar.

Áki fór heim til búa sinna og synir hans; hann var maður vellauðugur og átti mörg bú á Jótlandi; skildust þeir með kærleik og mæltu til vináttu mikillar milli sín.

En er haustaði, sigldu þeir Þórólfur norður fyrir Noreg og koma fram í Fjörðum, fara á fund Þóris hersis. Tók hann vel við þeim, en Arinbjörn, sonur hans, miklu betur; býður hann, að Egill skal þar vera um veturinn; Egill tók það með þökkum.

En er Þórir vissi boð Arinbjarnar, þá kallaði hann það heldur bráðmælt; "veit eg eigi," sagði hann, "hversu það líkar Eiríki konungi, því að hann mælti svo eftir aftöku Bárðar, að hann vildi ekki, að Egill væri hér í landi."

"Ráða máttu vel, faðir," segir Arinbjörn, "því við konung, að hann telji ekki að um vist Egils; þú munt bjóða Þórólfi, mági þínum, hér að vera, en við Egill munum hafa eitt veturgrið báðir."

En af þessi ræðu sá Þórir, að Arinbjörn myndi þessu ráða; buðu þeir feðgar þá Þórólfi þar veturgrið, en hann þekktist það; voru þeir þar við tólf menn um veturinn.

Bræður tveir eru nefndir Þorvaldur ofsi og Þorfinnur strangi; það voru náfrændur Bjarnar hölds og höfðu með honum fæðst; þeir voru menn miklir og sterkir, kappsmenn miklir og framgjarnir. Þeir fylgdu Birni, þá er hann var í víking, en síðan er hann settist um kyrrt, þá fóru þeir bræður til Þórólfs og voru með honum í hernaði; þeir voru í stafni á skipi hans, en þá er Egill tók skipstjórn, þá var Þorfinnur hans stafnbúi. Þeir bræður fylgdu Þórólfi jafnan, og mat hann þá mest skipverja sinna; þeir bræður voru þann vetur í hans sveit og sátu næst þeim bræðrum. Þórólfur sat í öndvegi og átti drykkju við Þóri, en Egill sat fyrir ádrykkju Arinbjarnar. Skyldi þar um gólf ganga að minnum öllum.

Þórir hersir fór um haustið á fund Eiríks konungs; tók konungur við honum forkunnar vel. En er þeir tóku ræður sínar, þá bað Þórir konung, að hann skyldi eigi fyrirkunna hann þess, er hann hafði Egil með sér um veturinn.

Konungur svarar því vel, sagði, að Þórir mátti þiggja af honum slíkt, er hann vildi, -- "en ekki myndi þetta svo fara, ef annar maður hefði við Agli tekið."

En er Gunnhildur heyrði, hvað þeir ræddu, þá mælti hún: "Það ætla eg, Eiríkur, að nú fari enn sem oftar, að þú sért mjög talhlýðinn, og manst það eigi lengi, er illa er gert til þín, enda muntu til þess draga fram sonu Skalla-Gríms, að þeir munu enn drepa niður nokkura náfrændur þína; en þótt þú látir þér engis þykja vert um dráp Bárðar, þá þykir mér eigi svo þó."

Konungur segir: "Meir frýr þú mér, Gunnhildur, grimmleiks en aðrir menn; en verið hefir kærra við Þórólf af þinni hendi en nú er; en ekki mun eg orð mín aftur taka við þá bræður."

"Vel var Þórólfur hér," sagði hún, "áður Egill spillti fyrir honum, en nú ætla eg engan mun."

Þórir fór heim, þá er hann var búinn, og sagði þeim bræðrum orð konungs og drottningar.

Eg 15. (ch. 49)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o182, v2319

Skj BI, 44:
Gerðum hølzti harða
hríð fyr Jótlands síðu,
barðisk vel sás varði
víkingr Dana ríki,
áðr á sund fyr sandi
snarfengr með lið drengja
austr af unnar hesti
Eyvindr of hljóp skreyja.

49. kafli

Eyvindur skreyja og Álfur askmaður hétu bræður Gunnhildar, synir Össurar tóta; þeir voru menn miklir og allsterkir og kappsmenn miklir; þeir höfðu þá mest yfirlát af Eiríki konungi og Gunnhildi; ekki voru þeir menn þokkasælir af alþýðu, voru þá á ungum aldri og þó fullkomnir að þroska.

Það var um vorið, að blót skyldi vera að sumri á Gaulum; það var ágæst höfuðhof; sótti þangað fjölmenni mikið úr Fjörðum og af Fjölum og úr Sogni og flest allt stórmenni; Eiríkur konungur fór þangað.

Þá mælti Gunnhildur við bræður sína: "Það vil eg, að þið hagið svo til í fjölmenni þessu, að þið fáið drepið annanhvorn þeirra sona Skalla-Gríms og best, að báðir væru."

Þeir sögðu, að svo skyldi vera.

Þórir hersir bjóst til ferðar þeirrar; hann kallaði Arinbjörn til máls við sig. "Nú mun eg," sagði hann, "fara til blótsins, en eg vil ekki, að Egill fari þangað; eg kann ræðum Gunnhildar, en kappsemd Egils, en ríki konungs, að þess mun eigi hægt að gæta alls saman; en Egill mun ekki letjast láta, nema þú sért eftir. En Þórólfur skal fara með mér," sagði hann, "og aðrir þeir förunautar; skal Þórólfur blóta og leita heilla þeim bræðrum."

Síðan sagði Arinbjörn Agli, að hann mun heima vera -- "og við báðir," sagði hann; Egill kvað svo vera skyldu.

En þeir Þórir fóru til blótsins, og var þar allmikið fjölmenni og drykkjur miklar; Þórólfur fór með Þóri, hvar sem hann fór, og skildust aldregi dag né nótt.

Eyvindur sagði Gunnhildi, að hann fékk ekki færi við Þórólf. Hún bað hann þá drepa einhvern manna hans -- "heldur en allt beri undan."

Það var eitt kveld, þá er konungur var til svefns genginn og svo þeir Þórir og Þórólfur, en þeir sátu eftir Þorfinnur og Þorvaldur, þá komu þeir bræður, Eyvindur og Álfur, og settust hjá þeim og voru allkátir; drukku fyrst sveitardrykkju. Þá kom þar, að horn skyldi drekka til hálfs; drukku þeir saman Eyvindur og Þorvaldur, en Álfur og Þorfinnur. En er á leið kveldið, þá var drukkið við sleitur og því næst orðahnippingar og þá stóryrði. Þá hljóp Eyvindur upp og brá saxi einu og lagði á Þorvaldi, svo að það var ærið banasár; síðan hljópu upp hvorirtveggju, konungsmenn og húskarlar Þóris, en menn voru allir vopnlausir inni, því að þar var hofshelgi, og gengu menn í milli og skildu þá, er óðastir voru; varð þá ekki fleira til tíðinda það kveld.

Eyvindur hafði vegið í véum, og var hann vargur orðinn, og varð hann þegar brott að fara. Konungur bauð bætur fyrir manninn, en Þórólfur og Þorfinnur sögðu, að þeir höfðu aldregi tekið mannbætur og þeir vildu ekki þær taka; skildust að svo búnu; fóru þeir Þórir heim.

Eiríkur konungur og þau Gunnhildur sendu Eyvind suður til Danmerkur til Haralds konungs Gormssonar, því að hann mátti þá eigi vera í norrænum lögum; konungurinn tók vel við honum og föruneyti hans. Eyvindur hafði til Danmarkar langskip allmikið, síðan setti konungur Eyvind þar til landvarnar fyrir víkingum; Eytvindur var hermaður hinn mesti.

En er vor kom eftir vetur þann, þá búast þeir Þórólfur og Egill enn að fara í víking; en er þeir voru búnir, þá halda þeir enn í Austurveg. En er þeir koma í Víkina, þá sigla þeir suður fyrir Jótland og herja þar, og þá fara þeir til Fríslands og dveljast mjög lengi um sumarið, en þá halda þeir enn aftur til Danmerkur.

En er þeir koma til landamæris, þar er mætist Danmörk og Frísland, og lágu þá við land, þá var það eitt kveld, er menn bjuggust til svefns á skipum, að menn tveir komu á skip Egils og sögðu, að þeir áttu við hann erindi; var þeim fylgt til hans. Þeir segja, að Áki hinn auðgi hafði sent þá þangað með þeim erindum, að -- "Eyvindur skreyja liggur úti fyrir Jótlandssíðu og ætlar að sæta yður, þá er þér farið sunnan, og hefir hann lið mikið saman dregið, svo að þér hafið engi áhöld við, ef þér hittið lið hans allt; en hann sjálfur fer með léttiskipum tveimur og er nú hér skammt frá yður."

En er tíðindi þessi komu fyrir Egil, þá láta þeir þegar af sér tjöldin; bað þá fara hljóðlega; þeir gerðu svo. Þeir komu í dögun að þeim Eyvindi, þar er þeir lágu um akkeri, lögðu þegar að þeim, létu ganga bæði grjót og vopn; féll þar lið margt af Eyvindi, en hann sjálfur hljóp fyrir borð og komst með sundi til lands og svo allt það lið, er undan komst.

En þeir Egill tóku skipin og föt þeirra og vopn; fóru þá aftur um daginn til liðs síns, hittu þá Þórólf; spyr hann, hvert Egill hafði farið eða hvar hann hafði fengið skip þau, er þeir fara með. Egill segir, að Eyvindur skreyja hafði haft skipin og þeir höfðu af honum tekið; þá kvað Egill:


Gerðum helsti harða
hríð fyr Jótlands síðu,
barðisk vel, sás varði,
víkingr, Dana ríki,
áðr á sund fyr sandi
snarfengr með lið drengja
austr af unnar hesti
Eyvindr of hljóp skreyja.

Þórólfur segir: "Þetta ætla eg yður svo hafa gert, að oss mun ekki haustlangt ráð að fara til Noregs."

Egill sagði, að það var vel, þótt þeir leituðu þá í annan stað.

Eg 16. (ch. 52)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o183, v2320

Skj BI, 44:
Áleifr of kom jǫfri
ótt (víg) á bak flótta
(þingharðan frák þengil
þann), en feldi annan;
glapstígu lét gnóga
Goðrekr á mó troðna,
jǫrð spenr Engla skerðir
Alfgeirs und sik halfa.

52. kafli

Ólafur Skotakonungur dró saman her mikinn og fór síðan suður á England, en er hann kom á Norðimbraland, fór hann allt herskildi; en er það spurðu jarlarnir, er þar réðu fyrir, stefna þeir saman liði og fara móti konungi. En er þeir finnast, varð þar orusta mikil, og lauk svo, að Ólafur konungur hafði sigur, en Goðrekur jarl féll, en Álfgeir flýði undan og mestur hluti liðs þess, er þeim hafði fylgt og brott komst úr bardaga. Fékk Álfgeir þá enga viðstöðu; lagði Ólafur konungur þá allt Norðimbraland undir sig. Álfgeir fór á fund Aðalsteins konungs og sagði honum ófarar sínar.

En þegar er Aðalsteinn konungur spurði, að her svo mikill var kominn í land hans, þá gerði hann þegar menn frá sér og stefndi að sér liði, gerði orð jörlum sínum og öðrum ríkismönnum; sneri konungur þegar á leið með það lið, er hann fékk, og fór í mót Skotum.

En er það spurðist, að Ólafur Skotakonungur hafði fengið sigur og hafði lagt undir sig mikinn hluta af Englandi, hafði hann þá her miklu meira en Aðalsteinn, en þá sótti til hans margt ríkismanna. En er þetta spyrja þeir Hringur og Aðils -- höfðu þeir saman dregið lið mikið -- þá snúast þeir í lið með Ólafi konungi, höfðu þeir þá ógrynni liðs.

En er Aðalsteinn spurði þetta allt, þá átti hann stefnu við höfðingja sína og ráðamenn, leitaði þá eftir, hvað tiltækilegast væri, sagði þá allri alþýðu greinilega það, er hann hafði frétt um athöfn Skotakonungs og fjölmenni hans. Allir mæltu þar eitt um, að Álfgeir jarl hafði hinn versta hlut af, og þótti það til liggja að taka af honum tignina; en sú ráðagerð staðfestist, að Aðalsteinn konungur skyldi fara aftur og fara á sunnanvert England og hafa þá fyrir sér liðsafnað norður eftir landi öllu, því að þeir sáu ellegar myndi seint safnast fjölmennið, svo mikið sem þyrfti, ef eigi drægi konungur sjálfur að liðið.

En sá her, er þá var þar saman kominn, þá setti konungur þar yfir höfðingja Þórólf og Egil; skyldu þeir ráða fyrir því liði, er víkingar höfðu þangað haft til konungs, en Álfgeir sjálfur hafði þá enn forráð síns liðs; þá fékk konungur enn sveitarhöfðingja þá, er honum sýndist. En er Egill kom heim af stefnunni til félaga sinna, þá spurðu þeir, hvað hann kynni að segja þeim tíðinda frá Skotakonungi. Hann kvað:

Áleifr of kom jöfri,
ótt, víg, á bak flótta,
þingharðan frák þengil
þann, en felldi annan;
glapstígu lét gnóga
Goðrekr á mó troðna;
jörð spenr Engla skerðir
Alfgeirs und sik halfa.

Síðan gera þeir sendimann til Ólafs konungs og finna það til erinda, að Aðalsteinn konungur vill hasla honum völl og bjóða orustustað í Vínheiði við Vínuskóga, og hann vill, að þeir herji eigi á land hans, en sá þeirra ráði ríki á Englandi, er sigur fær í orustu, lagði til viku stef um fund þeirra, en sá bíður annars viku, er fyrr kemur. En það var þá siður, þegar konungi var völlur haslaður, að hann skyldi eigi herja að skammlausu, fyrr en orustu væri lokið; gerði Ólafur konungur svo, að hann stöðvaði her sinn og herjaði ekki og beið til stefnudags; þá flutti hann her sinn til Vínheiðar.

Borg ein stóð fyrir norðan heiðina; settist Ólafur konungur þar í borgina og hafði þar mestan hlut liðs síns, því að þar var út í frá héruð stór, og þótti honum þar betra til aðflutninga um föng þau, er herinn þurfti að hafa. En hann sendi menn sína upp á heiðina, þar sem orustustaðurinn var ákveðinn; skyldu þeir taka þar tjaldstaði og búast þar um, áður herinn kæmi. En er þeir menn komu í þann stað, er völlurinn var haslaður, þá voru þar settar upp heslistengur allt til ummerkja, þar er sá staður var, er orustan skyldi vera. Þurfti þann stað að vanda, að hann væri sléttur, er miklum her skyldi fylkja; var þar og svo, er orustustaðurinn skyldi vera, að þar var heiður slétt, en annan veg frá féll á ein, en á annan veg frá var skógur mikill.

En þar er skemmst var milli skógarins og árinnar, og var það mjög löng leið, þar höfðu tjaldað menn Aðalsteins konungs; stóðu tjöld þeirra allt milli skógarins og árinnar. Þeir höfðu svo tjaldað, að eigi voru menn í hinu þriðja hverju tjaldi og þó fáir í einu.

En er menn Ólafs konungs komu til þeirra, þá höfðu þeir fjölmennt fyrir framan tjöldin öll, og náðu þeir ekki inn að ganga. Sögðu menn Aðalsteins, að tjöld þeirra væru öll full af mönnum, svo að hvergi nær hefði þar rúm lið þeirra. En tjöldin stóðu svo hátt, að ekki mátti yfir upp sjá, hvort þau stóðu mörg eða fá á þykktina; þeir hugðu, að þar myndi vera her manns.

Ólafs konungs menn tjölduðu fyrir norðan höslurnar, og var þangað allt nokkuð afhallt. Aðalsteins menn sögðu og annan dag frá öðrum, að konungur þeirra myndi þá koma eða vera kominn í borg þá, er var sunnan undir heiðinni; lið dróst til þeirra bæði dag og nótt.

En er stefna sú var liðin, er ákveðið var, þá senda menn Aðalsteins erindreka á fund Ólafs konungs með þeim orðum, að Aðalsteinn konungur er búinn til orustu og hefir her allmikinn, en hann sendir Ólafi konungi þau orð, að hann vill eigi, að þeir geri svo mikið mannspell, sem þá horfðist til, bað hann heldur fara heim í Skotland, en Aðalsteinn vill fá honum að vingjöf skilling silfurs af plógi hverjum um allt ríki sitt og vill, að þeir leggi með sér vináttu.

En er sendimenn koma til Ólafs konungs, þá tók hann að búa her sinn og ætlaði að að ríða; en er sendimenn báru upp erindi, þá stöðvaði konungur ferð sína þann dag; sat þá í ráðagerð og höfðingjar hers með honum. Lögðu menn þar allmisjafnt til; sumir fýstu mjög, að þenna kost skyldi taka, sögðu, að það var þá orðin hin mesta fremdarferð, að þeir færu heim og hefðu tekið gjald svo mikið af Aðalsteini; sumir löttu og sögðu, að Aðalsteinn myndi bjóða miklu meira í annað sinn, ef þetta væri eigi tekið, og var sú ráðagerð staðfest.

Þá báðu sendimenn Ólaf konung að gefa sér tóm til, að þeir hittu enn Aðalstein konung og freistuðu, ef hann vildi enn meira gjald af hendi reiða, til þess að friður væri; þeir beiddu griða einn dag til heimreiðar, en annan til umráða, en hinn þriðja til afturferðar. Konungur játtaði þeim því. Fara sendimenn heim og koma aftur hinn þriðja dag, sem ákveðið var, segja Ólafi konungi, að Aðalsteinn vill gefa allt slíkt, sem hann bauð fyrr, og þar um fram til hlutskiptis liði Ólafs konungs skilling manni hverjum frjálsbornum, en mörk sveitarhöfðingja hverjum þeim, er réði tólf mönnum eða fleirum, en mörk gulls hirðstjóra hverjum, en fimm merkur gulls jarli hverjum.

Síðan lét konungur þetta upp bera fyrir lið sitt. Var enn sem fyrr, að sumir löttu, en sumir fýstu, en að lyktum veitti konungur úrskurð, segir, að þenna kost vill hann taka, ef það fylgir, að Aðalsteinn konungur lætur hann hafa Norðimbraland allt með þeim sköttum og skyldum, er þar liggja.

Sendimenn biðja enn fresta um þrjá daga og þess með, að Ólafur konungur sendi þá menn sína að heyra orð Aðalsteins konungs, hvort hann vill eða eigi þenna kost, segja, að þeir hyggja, að Aðalsteinn konungur myndi láta fátt við nema, að sættin tækist. Ólafur konungur játtir því og sendir menn sína til Aðalsteins konungs; ríða þá sendimenn allir saman og hitta Aðalstein konung í borg þeirri, er var næst heiðinni fyrir sunnan.

Sendimenn Ólafs konungs bera upp erindi sín fyrir Aðalstein konung og sættaboð. Aðalsteins konungs menn sögðu og, með hverjum boðum þeir höfðu farið til Ólafs konungs, og það með, að það var ráðagerð vitra manna að dvelja svo orustu, meðan konungur kæmi eigi.

En Aðalsteinn konungur veitti skjótan úrskurð um þetta mál og sagði sendimönnum svo: "Berið þau orð mín Ólafi konungi, að eg vil gefa honum orlof til þess að fara heim til Skotlands með lið sitt, og gjaldi hann aftur fé það allt, er hann tók upp að röngu hér á landi; setjum hér síðan frið í millum landa vorra og herji hvorugir á aðra; það skal og fylgja, að Ólafur konungur skal gerast minn maður og halda Skotland af mér og vera undirkonungur minn. Farið nú," segir hann, "aftur og segið honum svo búið."

Sendimenn sneru aftur leið sína þegar um kveldið og komu til Ólafs konungs nær miðri nótt; vöktu þá upp konung og sögðu honum þegar orð Aðalsteins konungs; konungur lét þegar kalla til sín jarlana og aðra höfðingja, lét þá sendimenn koma til og segja upp erindislok sín og orð Aðalsteins konungs. En er þetta var kunnugt gert fyrir liðsmönnum, þá var eitt orðtak allra, að það myndi fyrir liggja að búast til orustu, sendimenn sögðu og það með, að Aðalsteinn hafði fjölda liðs, og hann hafði þann dag komið til borgarinnar, sem sendimenn komu.

Þá mælti Aðils jarl: "Nú mun það fram komið, konungur, sem eg sagði, að yður myndu þeir reynast brögðóttir, hinir ensku; höfum vér hér setið langa stund og beðið þess, er þeir hafa dregið að sér allt lið sitt, en konungur þeirra mun verið hafa hvergi nær, þá er vér komum hér; munu þeir nú hafa safnað liði miklu, síðan vér settumst. Nú er það ráð mitt, konungur, að við bræður ríðum þegar í nótt fyrir með okkru liði; má það vera, að þeir óttist nú ekki að sér, er þeir hafa spurt, að konungur þeirra er nær með her mikinn; skulum við þá veita þeim áhlaup, en er þeir verða forflótta, þá munu þeir láta lið sitt, en ódjarfari síðan í atgöngu að móti oss."

Konungi þótti þetta ráð vel fundið. "Munum vér búa her vorn, þegar er lýsir, og fara til móts við yður."

Staðfestu þeir þetta ráð og luku svo stefnunni.

Eg 17. (ch. 55)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o184, v2274

Skj BI, 44:
Gekk, sás óðisk ekki,
jarlmanns bani snarla
(þreklundaðr fell) Þundar
(Þórolfr) í gný stórum;
jǫrð grœr, en vér verðum,
Vínu nærr of mínum,
(helnauð es þat) hylja
harm, ágætum barma.

Eg 18. (ch. 55)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o185, v2275

Skj BI, 44-5:
Valkǫstum hlóðk vestan
vang fyr merkistangir;
ótt vas él þats sóttak
Aðjils blôum Naðri;
háði ungr við Engla
Áleifr þrimu stála,
helt, né hrafnar sultu,
Hringr á vápnaþingi.

Eg 19. (ch. 55)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o186, v2276

Skj BI, 45:
Hrammtangar lætr hanga
hrynvirgil mér brynju
Hǫðr á hauki troðnum
heiðis vingameiði;
rauðmeldrs kná ek reiða,
ræðr gunnvala bræðir,
gelgju seiðs á galga
geirveðrs, lofi at meira.

Eg 20. (ch. 55)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o187, v2277

Skj BI, 45:
Knôttu hvarms af harmi
hnúpgnípur mér drúpa,
nú fank þann, es ennis
ósléttur þær rétti;
gramr hefr gerðihǫmrum
grundar upp of hrundit,
sá's mér ýgr af augum,
armsíma, mér, grímu.

Eg 21. (ch. 55)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o188, v2197

Skj BI, 30:
Nú hefr fald-Gnáar felda,
fellr jǫrð und nið Ellu,
hjaldr-snerrandi, harra
hǫfuðbaðmr þría jǫfra;
Aðalsteinn of vann annat,
alt's lægra kynfrægjum
(hér sverjum þess, hyrjar
hrannbrjótr) konungmanni.

Eg 22. (ch. 55)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o189, v2198

Skj BI, 30:
Nú liggr hæst und hraustum
hreinbraut Aðalsteini.

55. kafli

Aðalsteinn konungur sneri í brott frá orustunni, en menn hans ráku flóttann; hann reið aftur til borgarinnar og tók eigi fyrr náttstað en í borginni, en Egill rak flóttann og fylgdi þeim lengi og drap hvern mann, er hann náði. Síðan sneri hann aftur með sveitunga sína og fór þar til, er orustan hafði verið, og hitti þar Þórólf, bróður sinn, látinn; hann tók upp lík hans og þó, bjó um síðan, sem siðvenja var til. Grófu þeir þar gröf og settu Þórólf þar í með vopnum sínum öllum og klæðum; síðan spennti Egill gullhring á hvora hönd honum, áður hann skildist við, hlóðu síðan að grjóti og jósu að moldu. Þá kvað Egill vísu:


Gekk, sás óðisk ekki,
jarlmanns bani snarla,
þreklundaðr fell, Þundar,
Þórólfr í gný stórum;
jörð grær, en vér verðum,
Vínu nær of mínum,
helnauð es þat, hylja
harm, ágætum barma.

Og enn kvað hann:


Valköstum hlóðk vestan
vang fyr merkistangir,
ótt vas él þats sóttak
Aðgils bláum Naðri;
háði ungr við Engla
Áleifr þrimu stála;
helt, né hrafnar sultu,
Hringr á vápna þingi.

Síðan fór Egill með sveit sína á fund Aðalsteins konungs og gekk þegar fyrir konung, er hann sat við drykkju; þar var glaumur mikill; og er konungur sá, að Egill var inn kominn, þá mælti hann, að rýma skyldi pallinn þann hinn óæðra fyrir þeim, og mælti, að Egill skyldi sitja þar í öndvegi gegnt konungi.

Egill settist þar niður og skaut skildinum fyrir fætur sér; hann hafði hjálm á höfði og lagði sverðið um kné sér og dró annað skeið til hálfs, en þá skellti hann aftur í slíðrin; hann sat uppréttur og var gneyptur mjög. Egill var mikilleitur, ennibreiður, brúnamikill, nefið ekki langt, en ákaflega digurt, granstæðið vítt og langt, hakan breið furðulega og svo allt um kjálkana, hálsdigur og herðimikill, svo að það bar frá því, sem aðrir menn voru, harðleitur og grimmlegur, þá er hann var reiður; hann var vel í vexti og hverjum manni hærri, úlfgrátt hárið og þykkt og varð snemma sköllóttur; en er hann sat, sem fyrr var ritað, þá hleypti hann annarri brúninni ofan á kinnina, en annarri upp í hárrætur; Egill var svarteygur og skolbrúnn. Ekki vildi hann drekka, þó að honum væri borið, en ýmsum hleypti hann brúnunum ofan eða upp.

Aðalsteinn konungur sat í hásæti; hann lagði og sverð um kné sér, og er þeir sátu svo um hríð, þá dró konungur sverðið úr slíðrum og tók gullhring af hendi sér, mikinn og góðan, og dró á blóðrefilinn, stóð upp og gekk á gólfið og rétti yfir eldinn til Egils. Egill stóð upp og brá sverðinu og gekk á gólfið; hann stakk sverðinu í bug hringinum og dró að sér, gekk aftur til rúms síns; konungur settist í hásæti. En er Egill settist niður, dró hann hringinn á hönd sér, og þá fóru brýn hans í lag; lagði hann þá niður sverðið og hjálminn og tók við dýrshorni, er honum var borið, og drakk af. Þá kvað hann:


Hrammtangar lætr hanga
hrynvirgil mér brynju
Höðr á hauki troðnum
heiðis vingameiði;
rítmæðis knák reiða,
ræðr gunnvala bræðir,
gelgju seil á galga
geirveðrs, lofi at meira.

Þaðan af drakk Egill að sínum hlut og mælti við aðra menn.

Eftir það lét konungur bera inn kistur tvær; báru tveir menn hvora; voru báðar fullar af silfri.

Konungur mælti: "Kistur þessar, Egill, skaltu hafa, og ef þú kemur til Íslands, skaltu færa þetta fé föður þínum; í sonargjöld sendi eg honum; en sumu fé skaltu skipta með frændum ykkrum Þórólfs, þeim er þér þykja ágætastir. En þú skalt taka hér bróðurgjöld hjá mér, lönd eða lausa aura, hvort er þú vilt heldur, og ef þú vilt með mér dveljast lengdar, þá skal eg hér fá þér sæmd og virðing, þá er þú kannt mér sjálfur til segja."

Egill tók við fénu og þakkaði konungi gjafir og vinmæli; tók Egill þaðan af að gleðjast, og þá kvað hann:


Knáttu hvarms af harmi
hnúpgnípur mér drúpa,
nú fann ek þanns ennis
ósléttur þær rétti;
gramr hefr gerðihömrum
grundar upp of hrundit,
sá's til ýgr, af augum,
armsíma, mér grímu.

Síðan voru græddir þeir menn, er sárir voru og lífs auðið.

Egill dvaldist með Aðalsteini konungi hinn næsta vetur eftir fall Þórólfs, og hafði hann allmiklar virðingar af konungi; var þá með honum lið það allt, er áður hafði fylgt þeim báðum bræðrum og úr orustu höfðu komist. Þá orti Egill drápu um Aðalstein konung, og er í því kvæði þetta:


Nú hefr foldgnárr fellda,
fellr jörð und nið Ellu,
hjaldrsnerrandi, harra
höfuðbaðmr, þría jöfra;
Aðalsteinn of vann annat,
allt's lægra kynfrægjum,
hér sverjum þess, hyrjar
hrannbrjótr, konungmanni.

En þetta er stefið í drápunni:


Nú liggr hæst und hraustum
hreinbraut Aðalsteini.

Aðalsteinn gaf þá enn Agli að bragarlaunum gullhringa tvo, og stóð hvor mörk, og þar fylgdi skikkja dýr, er konungur sjálfur hafði áður borið.

En er voraði, lýsti Egill yfir því fyrir konungi, að hann ætlaði í brott um sumarið og til Noregs og vita, hvað títt er um hag Ásgerðar -- "konu þeirrar, er átt hefir Þórólfur, bróðir minn; þar standa saman fé mikil, en eg veit eigi, hvort börn þeirra lifa nokkur; á eg þar fyrir að sjá, ef þau lifa, en eg á arf allan, ef Þórólfur hefir barnlaus andast."

Konungur sagði: "Það mun vera, Egill, á þínu forráði að fara héðan á brott, ef þú þykist eiga skyldarerindi, en hinn veg þykir mér best, að þú takir hér staðfestu með mér og slíka kosti, sem þú vilt beiðast."

Egill þakkaði konungi orð sín; "eg mun nú fara fyrst, svo sem mér ber skylda til, en það er líkara, að eg vitji hingað þessa heita, þá er eg kemst við."

Konungur bað hann svo gera. Síðan bjóst Egill brott með liði sínu, en margt dvaldist eftir með konungi; Egill hafði eitt langskip mikið og þar á hundrað manna eða vel svo. Og er hann var búinn ferðar sinnar og byr gaf, þá hélt hann til hafs; skildust þeir Aðalsteinn konungur með mikilli vináttu; bað hann Egil koma aftur sem skjótast; Egill kvað svo vera skyldu.

Síðan hélt Egill til Noregs, og er hann kom við land, fór hann sem skyndilegast inn í Fjörðu; hann spurði þau tíðindi, að andaður var Þórir hersir, en Arinbjörn hafði tekið við arfi og gerst lendur maður. Egill fór á fund Arinbjarnar og fékk þar góðar viðtökur; bauð Arinbjörn honum þar að vera. Egill þekktist það; lét hann setja upp skipið og vista lið; en Arinbjörn tók við Agli við tólfta mann og var með honum um veturinn.

Eg 23. (ch. 56)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o190, v2278

Skj BI, 45:
Ókynni vensk, ennis,
ung, þorðak vel forðum,
hauka klifs, at hefja,
Hlín, þvergnípur mínar;
verðk í feld, þás, foldar,
faldr kømr í hug skaldi
berg-"óneris", brúna
brátt miðstalli hváta.

Eg 24. (ch. 56)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o191, v2279

Skj BI, 45-6:
Sef, Skuldar felk sjaldan,
sorg, Hlés vita, borgar,
í niðjerfi Narfa
nafn aurmýils, dafnar,
þvít geir-Rótu gǫtva
gnýþings bragar fingrum
rógs at ræsis veigum
reifendr munu þreifa.

56. kafli

Berg-Önundur sonur Þorgeirs þyrnifótar, hafði þá fengið Gunnhildar, dóttur Bjarnar hölds; var hún komin til bús með honum á Aski; en Ásgerður, er átt hafði Þórólfur Skalla-Grímsson, var þá með Arinbirni frænda sínum; þau Þórólfur áttu dóttur eina unga, er Þórdís hét, og var mærin þar með móður sinni. Egill sagði Ásgerði lát Þórólfs og bauð henni sína umsjá; Ásgerður varð mjög ókát við þá sögu, en svaraði vel ræðum Egils og tók lítið af öllu.

Og er á leið haustið, tók Egill ógleði mikla, sat oft og drap höfðinu niður í feld sinn.

Eitt hvert sinn gekk Arinbjörn til hans og spurði, hvað ógleði hans ylli -- "nú þó að þú hafir fengið skaða mikinn um bróður þinn, þá er það karlmannlegt að bera það vel; skal maður eftir mann lifa, eða hvað kveður þú nú? Láttu mig nú heyra."

Egill sagði, að hann hefði þetta fyrir skemmstu kveðið:


Ókynni vensk, ennis
ungr þorðak vel forðum,
haukaklifs, at hefja,
Hlín, þvergnípur mínar;
verðk í feld, þás foldar
faldr kömr í hug skaldi
berg-Óneris, brúna
brátt miðstalli hváta.

Arinbjörn spurði, hver kona sú væri, er hann orti mansöng um, -- "hefir þú fólgið nafn hennar í vísu þessi."

Þá kvað Egill:


Sef-Skuldar felk sjaldan,
sorg Hlés vita borgar,
í niðjerfi Narfa
nafn aurmýils, drafnar,
þvít geir-Rótu götva
gnýþings bragar fingrum
rógs at ræsis veigum
reifendr sumir þreifa.

"Hér mun vera," segir Egill, "sem oft er mælt, að segjanda er allt sínum vin; eg mun segja þér það, er þú spyrð, um hverja konu eg yrki; þar er Ásgerður, frændkona þín, og þar til vildi eg hafa fullting þitt, að eg næði því ráði."

Arinbjörn segir, að honum þyki það vel fundið -- "skal eg víst leggja þar orð til, að þau ráð takist."

Síðan bar Egill það mál fyrir Ásgerði, en hún skaut til ráða föður síns og Arinbjarnar, frænda síns; síðan ræðir Arinbjörn við Ásgerði, og hafði hún hin sömu svör fyrir sér; Arinbjörn fýsti þessa ráðs. Síðan fara þeir Arinbjörn og Egill á fund Bjarnar; og hefur Egill þá bónorð og bað Ásgerðar, dóttur Bjarnar; Björn tók því máli vel og sagði, að Arinbjörn myndi því mjög ráða; Arinbjörn fýsti mjög, og lauk því máli svo, að Egill festi Ásgerði, og skyldi brullaup vera að Arinbjarnar. En er að þeirri stefnu kemur, þá var þar veisla allvegleg, er Egill kvongaðist. Var hann þá allkátur, það er eftir var vetrarins.

Egill bjó um vorið kaupskip til Íslandsferðar; réð Arinbjörn honum það að staðfestast ekki í Noregi, meðan ríki Gunnhildar væri svo mikið -- "því að hún er allþung til þín," segir Arinbjörn, "og hefir þetta mikið um spillt, er þér Eyvindur fundust við Jótland."

Og er Egill var búinn og byr gaf, þá siglir hann í haf, og greiddist hans ferð vel; kemur hann um haustið til Íslands og hélt til Borgarfjarðar; hann hafði þá verið utan tólf vetur. Gerðist þá Skalla-Grímur maður gamall; varð hann þá feginn, er Egill kom heim; fór Egill til Borgar að vistum og með honum Þorfinnur strangi og þeir mjög margir saman; voru þeir með Skalla-Grími um veturinn. Egill hafði þar ógrynni fjár, en ekki er þess getið, að Egill skipti silfri því, er Aðalsteinn konungur hafði fengið honum í hendur, hvorki við Skalla-Grím né aðra menn.

Þann vetur fékk Þorfinnur Sæunnar, dóttur Skalla-Gríms, og eftir um vorið fékk Skalla-Grímur þeim bústað að Langárfossi og land inn frá Leirulæk milli Langár og Álftár allt til fjalls. Dóttir Þorfinns og Sæunnar var Þórdís, er átti Arngeir í Hólmi, sonur Bersa goðlauss; þeirra sonur var Björn Hítdælakappi.

Egill dvaldist þá með Skalla-Grími nokkura vetur; tók hann til fjárforráða og búsumsýslu engu miður Skalla-Grími. Egill gerðist enn snoðinn.

Þá tók héraðið að byggjast víða; Hrómundur, bróðir Gríms hins háleyska, byggði þá í Þverárhlíð og skipverjar hans; Hrómundur var faðir Gunnlaugs, föður Þuríðar dyllu, móður Illuga svarta.

Eg 25. (ch. 57)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o192, v2280

Skj BI, 46:
Þýborna kveðr þorna
þorn reið áar horna,
sýslir hann of sína
síngirnð Ǫnundr, mína;
naddhristir, ák nistis
norn til arfs of borna,
þigg þú auðkonr eiða,
eiðsœrt es þat, greiða.

Eg 26. (ch. 57)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o193, v2281

Skj BI, 46:
Erfingi ræðr arfi
arfljúgr fyr mér svarfa,
mœtik hans ok heitum
hótun, Þyrnifótar;
nærgis simla sorgar
slík rôn ek get hônum,
vér deildum fjǫt foldar
fold væringja, goldin.

Eg 27. (ch. 57)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o194, v2282

Skj BI, 46:
Nú hefr þrymrǫgnir þegna
þróttharðr, en mik varðak
víti, várrar sveitar
vígelds tíu felda,
þvít sárlaxa Sýrar,
sendr ór minni hendi,
digr fló beint meðal bjúgra
bifþorn Ketils rifja.

Eg 28. (ch. 57)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o195, v2283

Skj BI, 46-7:
Svá skyldi goð gjalda,
gram reki bǫnd af lǫndum,
reið sé rǫgn ok Óðinn,
rôn míns féar hônum;
folkmýgi lát flœja,
Freyr ok Njǫrðr, af jǫrðum,
leiðisk lofða stríði,
landôss, þanns vé grandar.

57. kafli

Egill hafði þá verið, svo að vetrum skipti mjög mörgum, að Borg; þá var það á einu sumri, er skip komu af Noregi til Íslands, að þau tíðindi spurðust austan, að Björn höldur var andaður. Það fylgdi þeirri sögn, að fé það allt, er Björn hafði átt, hafði upp tekið Berg-Önundur, mágur hans; hann hafði flutt heim til sín alla lausa aura, en jarðir hafði hann byggt og skilið sér allar landskyldir; hann hafði og sinni eigu kastað á jarðir þær allar, er Björn hafði átt.

Og er Egill heyrði þetta, þá spurði hann vandlega, hvort Berg-Önundur myndi sínum ráðum fram hafa farið um þetta eða hefði hann traust til haft sér meiri manna; honum var sagt, að Önundur var kominn í vináttu mikla við Eirík konung og við Gunnhildi þó miklu kærra.

Egill lét það kyrrt vera á því hausti, en er veturinn leið af og vora tók, þá lét Egill setja fram skip, það er hann átti, er staðið hafði í hrófi við Langárfoss; hann bjó skip það til hafs og fékk menn til. Ásgerður, kona hans, var ráðin til farar, en Þórdís, dóttir Þórólfs, var eftir. Egill sigldi í haf, er hann var búinn; er frá hans ferð ekki að segja, fyrr en hann kemur til Noregs; hélt hann þegar til fundar við Arinbjörn, sem fyrst mátti hann. Arinbjörn tók vel við honum og bauð Agli með sér að vera, og það þekktist hann; fóru þau Ásgerður bæði þangað og nokkurir menn með þeim.

Egill kom brátt á ræður við Arinbjörn um fjárheimtur þær, er Egill þóttist eiga þar í landi.

Arinbjörn segir: "Það mál þykir mér óvænlegt; Berg-Önundur er harður og ódæll, ranglátur og fégjarn, en hann hefir nú hald mikið af konungi og drottningu; er Gunnhildur hinn mesti óvinur þinn, sem þú veist áður, og mun hún ekki fýsa Önund, að hann geri greiða á málinu."

Egill segir: "Konungur mun oss láta ná lögum og réttindum á máli þessu, en með liðveislu þinni þá vex mér ekki í augu að leita laga við Berg-Önund."

Ráða þeir það af, að Egill skipar skútu; fóru þeir þar á nær tuttugu; þeir fóru suður á Hörðaland og koma fram á Aski; ganga þeir þar til húss og hitta Önund.

Ber þá Egill upp mál sín og krefur Önund skiptis um arf Bjarnar og segir, að dætur Bjarnar væru jafnkomnar til arfs eftir hann að lögum -- "þó að mér þyki," kvað Egill, "sem Ásgerður muni þykja ættborin miklu betur en Gunnhildur, kona þín."

Önundur segir þá snellt mjög: "Þú ert furðulega djarfur maður, Egill, útlagi Eiríks konungs, er þú ferð hingað í land hans og ætlar hér til ágangs við menn hans. Máttu svo ætla, Egill, að eg hefi velta látið slíka sem þú ert og af minnum sökum en mér þykja þessar, er þú telur til arfs fyrir hönd konu þinnar, því að það er kunnugt alþýðu, að hún er þýborin að móðerni." Önundur var málóði um hríð.

Og er Egill sá, að Önundur vildi engan hlut greiða um þetta mál, þá stefnir Egill honum þing og skýtur málinu til Gulaþingslaga.

Önundur segir: "Koma mun eg til Gulaþings, og myndi eg vilja, að þú kæmir þaðan eigi heill í brott."

Egill segir, að hann mun til þess hætta að koma þó til þings allt að einu -- "verður þá sem má, hversu málum vorum lýkur."

Fara þeir Egill síðan í brott, og er hann kom heim, segir hann Arinbirni frá ferð sinni og frá svörum Önundar; Arinbjörn varð reiður mjög, er Þóra, föðursystir hans, var kölluð ambátt.

Arinbjörn fór á fund Eiríks konungs, bar upp fyrir hann þetta mál.

Konungur tók heldur þungt hans máli og segir, að Arinbjörn hefði lengi fylgt mjög málum Egils -- "hefir hann notið þín að því, er eg hefi látið hann vera hér í landi, en nú mun mér örðugt þykja, ef þú heldur hann til þess, að hann gangi á vini mína."

Arinbjörn segir: "Þú munt láta oss ná lögum af þessu máli."

Konungur var heldur styggur í þessu máli; Arinbjörn fann, að drottning myndi þó miklu verr viljuð; fer Arinbjörn aftur og sagði, að heldur horfir óvænt.

Líður af veturinn og kemur þar, er menn fara til Gulaþings; Arinbjörn fjölmennti mjög til þings; var Egill í för með honum. Eiríkur konungur var þar og hafði fjölmenni mikið; Berg-Önundur var í sveit konungs og þeir bræður, og höfðu þeir sveit mikla. En er þinga skyldi um mál manna, þá gengu hvorirtveggju þar til, er dómurinn var settur, að flytja fram sannindi sín; var Önundur þá allstórorður.

En þar er dómurinn var settur, var völlur sléttur og settar niður heslistengur í völlinn í hring, en lögð um utan snæri umhverfis; voru það kölluð vébönd. En fyrir innan í hringinum sátu dómendur, tólf úr Firðafylki og tólf úr Sygnafylki, tólf úr Hörðafylki; þær þrennar tylftir manna skyldu þar dæma um mál manna. Arinbjörn réð því, hverjir dómendur voru úr Firðafylki, en Þórður af Aurlandi, hverjir úr Sogni voru; voru þeir allir eins liðs.

Arinbjörn hafði haft fjölmenni mikið til þingsins; hann hafði snekkju alskipaða, en hafði margt smáskipa, skútur og róðrarferjur, er búendur stýrðu. Eiríkur konungur hafði þar mikið lið, langskip sex eða sjö; þar var og fjölmenni mikið af búöndum.

Egill hóf þar mál sitt, að hann krafði dómendur að dæma sér lög af máli þeirra Önundar. Innti hann þá upp, hver sannindi hann hafði í tilkalli fjár þess, er átt hafði Björn Brynjólfsson. Sagði hann, að Ásgerður, dóttir Bjarnar, en eiginkona Egils, var til komin arfsins, og hún væri óðalborin og lendborin í allar kynkvíslir, en tiginborin fram í ættir, krafði hann þess dómendur að dæma Ásgerði til handa hálfan arf Bjarnar, lönd og lausa aura.

En er hann hætti ræðu sinni, þá tók Berg-Önundur til máls: "Gunnhildur, kona mín," sagði hann, "er dóttir Bjarnar og Ólafar, þeirrar konu, er Björn hafði lögfengið; er Gunnhildur réttur erfingi Bjarnar. Tók eg fyrir þá sök upp fé það allt, er Björn hafði átt, að eg vissi, að sú ein var dóttir Bjarnar önnur, er ekki átti arf að taka; var móðir hennar hernumin, en síðan tekin frillutaki og ekki að frændaráði og flutt land af landi. En þú, Egill, ætlar að fara hér sem hvarvetna annars staðar, þess er þú hefir komið, með ofkapp þitt og ójafnað; nú mun þér það hér ekki týja, því að Eiríkur konungur og Gunnhildur drottning hafa mér því heitið, að eg skal rétt hafa af hverju máli, þar er þeirra ríki stendur yfir. eg mun færa fram sönn vitni fyrir konungi og dómöndum, að Þóra hlaðhönd, móðir Ásgerðar, var hertekin heiman frá Þóris, bróður síns, og annað sinni af Aurlandi frá Brynjólfs. Fór hún þá af landi á braut með víkingum og útlögum konungs, og í þeirri útlegð gátu þau Björn dóttur þessa, Ásgerði. Nú er furða að um Egil, er hann ætlar að gera ómæt öll orð Eiríks konungs, það fyrst, er þú, Egill, hefir verið hér í landi, síðan er Eiríkur konungur gerði þig útlægan, og það, þótt þú hafir fengið ambáttar, að kalla hana arfgenga. Vil eg þess krefja dómendur, að þeir dæmi mér allan arf Bjarnar, en dæmi Ásgerði ambátt konungs, því að hún var svo getin, að þá var faðir hennar og móðir í útlegð konungs."

Þá tók Arinbjörn til máls: "Vitni munum vér fram bera, Eiríkur konungur, til þess og láta eiða fylgja, að það var skilið í sætt þeirra Þóris, föður míns, og Bjarnar hölds, að Ásgerður, dóttir þeirra Bjarnar og Þóru, var til arfs leidd eftir Björn, föður sinn, og svo það, sem yður er sjálfum kunnugt, konungur, að þú gerðir Björn ílendan, og öllu því máli var þá lukt, er áður hafði milli staðið sættar manna."

Konungur svarar ekki skjótt máli hans.

Þá kvað Egill:


Þýborna kveðr þorna
þorn reið áar horna,
sýslir hann of sína
síngirnð Önundr, mína;
naddhristir, ák nesta
norn til arfs of borna;
þigg, Auða konr, eiða,
eiðsært es þat, greiða.

Arinbjörn lét þá fram bera vitnisburðinn tólf menn, og allir vel til valdir, og höfðu allir þeir heyrt á sætt þeirra Þóris og Bjarnar og buðu þá konungi og dómöndum að sverja þar eftir. Dómendur vildu taka eiða þeirra, ef konungur bannaði eigi; konungur sagði, að hann myndi þar hvorki að vinna að leggja á það lof eða bann.

Þá tók til máls Gunnhildur drottning, sagði svo: "Þetta er undarlegt, konungur, hvernig þú lætur Egil þenna hinn mikla vefja mál öll fyrir þér; eða hvort myndir þú eigi móti honum mæla, þótt hann kallaði til konungdómsins í hendur þér? En þótt þú viljir enga úrskurði veita, þá er Önundi sé lið að, þá skal eg það eigi þola, að Egill troði svo undir fótum vini mína, að hann taki með rangindi sín fé þetta af Önundi; en hvar ertu, Askmaður? Far þú til með sveit þína, þar sem dómendurnir eru, og lát eigi dæma rangindi þessi."

Síðan hljóp Askmaður og þeir sveitungar til dómsins, skáru í sundur véböndin og brutu niður stengurnar, en hleyptu á braut dómöndunum; þá gerðist þys mikill á þinginu, en menn voru þar allir vopnlausir.

Þá mælti Egill: "Hvort mun Berg-Önundur heyra orð mín?"

"Heyri eg," sagði hann.

"Þá vil eg bjóða þér hólmgöngu og það, að við berjumst hér á þinginu; hafi sá fé þetta, lönd og lausa aura, er sigur fær, en þú ver hvers manns níðingur, ef þú þorir eigi."

Þá svarar Eiríkur konungur: "Ef þú, Egill, ert allfús til að berjast, þá skulum vér það nú veita þér."

Egill svarar: "Ekki vil eg berjast við þig eða við ofurefli liðs, en fyrir jafnmiklum mönnum, þá mun eg eigi flýja, ef mér skal þess unna; mun eg og að því gera engan mannamun."

Þá mælti Arinbjörn: "Förum vér á brott, ekki munum vér hér iðna að sinni, það að okkur vinni." Síðan sneri hann á braut og allt lið hans með honum.

Þá sneri Egill aftur og sagði: "Því skírskota eg undir þig, Arinbjörn, og þig, Þórður, og alla þá menn, er nú mega orð mín heyra, lenda menn og lögmenn og alla alþýðu, að eg banna jarðir þær allar, er Björn hefir átt, að byggja og að vinna. Banna eg þér, Berg-Önundur, og öðrum mönnum öllum, innlenskum og útlenskum, tignum og ótignum, en hverjum manni, er það gerir, legg eg við lögbrot landsréttar og griðarof og goðagremi."

Þá gekk Egill á brott með Arinbirni; fóru þeir nú til skipa sinna yfir leiti nokkuð, er eigi sá skipin af þinginu.

En er Arinbjörn kom til skips síns, mælti hann: "Það er öllum mönnum kunnugt, hver hér hafa orðið þinglok, að vér höfum eigi náð lögum, en konungur er reiður svo mjög, að mér er von, að vorir menn sæti afarkostum af honum, ef hann má; vil eg nú, að hver maður fari til skipa sinna og fari heim."

Þá mælti hann við Egil: "Gakk þú nú á skip þitt og þitt föruneyti og verðið í brottu og verjið yður, fyrir því að konungur mun eftir leita, að fund yðvarn beri saman; leitið þá á fund vorn, hvað sem í kann að gerast með yður konungi."

Egill gerði sem hann mælti; gengu þeir á skútu þrír tigir manna og fóru sem ákafast. Skipið var einkar skjótt. Þá reru fjöldi annarra skipa úr höfninni, er Arinbjörn átti, skútur og róðrarferjur, en langskip, er Arinbjörn átti, fór síðast, því að það var þyngst undir árum; en skúta Egils gekk skjótt hjá fram. Þá kvað Egill vísu:


Erfingi réð arfi
arfljúgr fyr mér svarfa,
mætik hans ok heitum
hótun, Þyrnifótar,
nærgis simla sorgar
slík rán ek get hánum,
vér deildum fjöl foldar
foldværingja, goldin.

Eiríkur konungur heyrði ályktarorð Egils, þau er hann mælti síðast á þinginu, og varð hann reiður mjög; en allir menn höfðu vopnlausir gengið á þinginu, veitti konungur því eigi atgöngu. Hann bað menn sína alla ganga til skipa, og þeir gerðu sem hann mælti.

Þá skaut konungur á húsþingi og sagði þá fyrirætlan sína: "Vér skulum nú láta fara tjöld af skipum vorum; vil eg nú fara á fund Arinbjarnar og Egils; vil eg og því lýsa fyrir yður, að eg vil Egil af lífi taka, ef vér komumst í færi, en hlífa engum þeim, er í móti vill standa."

Eftir það gengu þeir út á skip og bjuggust sem skjótast og lögðu út skipunum og reru þangað, sem skip Arinbjarnar höfðu verið; þá lét konungur róa eftir norður í sundin. En er þeir komu í Sognsæ, sáu þeir lið Arinbjarnar; sneru þá langskipin inn til Sauðungssunds, og sneri þá konungur þangað. Hann hitti þar skip Arinbjarnar, og lagði konungur þegar að, og köstuðust orðum á; spyr konungur, hvort Egill væri þar á skipinu.

Arinbjörn svaraði: "Eigi er hann á mínu skipi; munuð þér og, konungur, brátt mega það sjá; eru þeir einir hér innan borðs, er þér munuð kenna, en Egill mun ekki felast undir þiljum niðri, þótt fund yðvarn beri saman."

Konungur spyr, hvað Arinbjörn vissi síðast til hans, en hann sagði, að Egill var við þrítugunda mann á skútu, -- "og fóru þeir leið sína út til Steinssunds."

Þeir konungur höfðu séð, að mörg skip höfðu róið til Steinssunds. Mælti konungur, að þeir skyldu róa í hin innri sundin og stefna svo móti þeim Agli.

Maður er nefndur Ketill; hann var hirðmaður Eiríks konungs; hann sagði leið fyrir konungs skipinu, en hann stýrði sjálfur; Ketill var mikill maður vexti og fríður sýnum og náfrændi konungs, og var það mál manna, að þeir konungur væru líkir yfirlits.

Egill hafði flota látið skipi sínu og fluttan til farminn, áður hann fór til þingsins, en nú fer Egill þar til, er kaupskip var, og gengu þeir á skipið upp, en skútan flaut við stýristengur milli lands og skipsins, og lágu þar árar í hömlu.

En um morguninn, er ljóst var orðið varla, verða þeir varir við, er vörð héldu, að skip stór reru að þeim; en er Egill vissi það, þá stóð hann upp þegar; sá hann brátt, að ófriður var að kominn; voru þar sex langskip og stefndu að þeim. Þá mælti Egill, að þeir skyldu hlaupa allir í skútuna. Egill tók upp kistur tvær, er Aðalsteinn konungur gaf honum; hann hafði þær jafnan með sér; þeir hljópu í skútuna. Hann vopnaðist skjótt og allir þeir, og reru fram í milli landsins og snekkju þeirrar, er næst fór landinu, en það var skip Eiríks konungs.

En því að bráðum bar að, að lítt var lýst, þá renndust skipin hjá, og er lyftingar bar saman, þá skaut Egill spjóti, og kom á þann mann miðjan, er við stýrið sat, en þar var Ketill höður. Þá kallar Eiríkur konungur og bað menn róa eftir þeim Agli; en er skipin renndu hjá kaupskipinu, þá hljópu menn konungs upp á skipið, en þeir menn, er eftir höfðu orðið af Egils mönnum og eigi hljópu í skútuna, þá voru allir drepnir, þeir er náð varð, en sumir hljópu á land; þar létust tíu menn af sveitungum Egils. Sum skipin reru eftir þeim Agli, en sum rændu kaupskipið; var þar tekið fé það allt, er innan borðs var, en þeir brenndu skipið.

En þeir, er eftir þeim Agli reru, sóttu ákaft, tóku tveir eina ár; skortir þar eigi lið innan borðs, en þeir Egill höfðu þunnskipað; voru þeir þá átján á skútunni. Þá dró saman með þeim; en fyrir innan eyna var vaðilsund nokkuð grunnt milli og annarrar eyjar; útfall var sjávarins; þeir Egill hleyptu skútunni í það hið grunna sundið, en snekkjurnar flutu þar eigi, og skildi þar með þeim; sneri þá konungur suður aftur, en Egill fór norður á fund Arinbjarnar. Þá kvað Egill vísu:


Nú hefr þrym-Rögnir þegna
þróttharðr, en mik varðak
víti, várrar sveitar
vígelds tíu fellda,
þvít sárlagar Sýrar,
sendr ór minni hendi,
digr fló beint meðal bjúgra
bifþorn Ketils rifja.

Egill kom á fund Arinbjarnar og segir honum þessi tíðindi.

Arinbjörn segir, að honum var ekki vildara af von um skipti þeirra Eiríks konungs -- "en ekki mun þig fé skorta, Egill; eg skal bæta þér skipið og fá þér annað, það er þú megir vel fara á til Íslands."

Ásgerður, kona Egils, hafði verið með Arinbirni, síðan þeir fóru til þings.

Arinbjörn fékk Agli skip það, er vel var haffæranda, og lét ferma af viði; býr Egill skip það til hafs og hafði þá enn nær þremur tigum manna; skiljast þeir Arinbjörn þá með vináttu. Þá kvað Egill:


Svá skyldi goð gjalda,
gram reki bönd af löndum,
reið sé rögn ok Óðinn,
rán míns féar hánum;
folkmýgi lát flýja,
Freyr ok Njörðr, af jörðum,
leiðisk lofða stríði
landáss, þanns vé grandar.

Eg 29. (ch. 58)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o196, v2285

Skj BI, 47:
Lǫgbrigðir hefr lagða,
lindalfs, fyr mér sjǫlfum,
blekkir brœðra søkkva
brúðfang, vega langa;
Gunnhildi ák gjalda,
greypt's hennar skap, þenna,
ungr gatk ok læ launat,
landrekstr, bili grandat.

Eg 30. (ch. 58)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o197, v2286

Skj BI, 47:
Sôtum lyngs til lengi,
ljósheims of bǫr þeima,
meirr varðak fé forðum,
fjarð-ǫlna hlut skǫrðum,
áðr Berg-Ǫnund benjum
bensœfðan létk venjask;
Bors niðjar feltk beðju
blóði Hadds ok Fróða.

Eg 31. (ch. 58)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o198, v2287

Skj BI, 47:
Bǫrðumk vér, né virðak,
vígleiptr sonar, heiptir,
Blóðøxar rauðk blóði
bǫðmildr ok Gunnhildar;
þar fellu nú þollar
þrettán lagar mána,
stendr af styrjar skyndi
starf, á einum karfa.

Eg 32. (ch. 58)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o199, v2288

Skj BI, 47-8:
Þél høggr stórt fyr stáli
stafnkvígs á veg jafnan
út með éla meitli
andœrr jǫtunn vandar,
en svalbúinn selju
sverfr eirar vanr þeiri
Gestils ǫlpt með gustum
gandr of stáli ok brandi.

58. kafli

Haraldur hinn hárfagri setti sonu sína til ríkis í Noregi, þá er hann tók að eldast, gerði Eirík konung yfirkonung sona sinna allra, og er Haraldur hafði verið sjö tigu vetra konungur, þá seldi hann í hendur Eiríki, syni sínum, ríki. Í þann tíma ól Gunnhildur son, og jós Haraldur konungur vatni og gaf nafn sitt og lét það fylgja, að hann skyldi konungur vera eftir föður sinn, ef honum entist aldur til. Haraldur konungur settist þá í kyrrsetu og sat oftast á Rogalandi eða Hörðalandi; en þremur vetrum síðar andaðist Haraldur konungur á Rogalandi, og var ger haugur eftir hann við Haugasund.

En eftir andlát hans var deila mikil milli sona hans, því að Víkverjar tóku sér til konungs Ólaf, en Þrændir Sigurð; en Eiríkur felldi þá báða bræður sína í Túnsbergi einum vetri eftir andlát Haralds konungs. Var það allt á einu sumri, er Eiríkur konungur fór af Hörðalandi með her sinn austur í Vík til bardaga við bræður sína og áður höfðu þeir deilt á Gulaþingi Egill og Berg-Önundur og þessi tíðindi, er nú var sagt.

Berg-Önundur var heima að búi sínu, þá er konungur fór í leiðangur, því að honum þótti óvarlegt að fara frá búi sínu, meðan Egill var eigi úr landi farinn; þar var bróðir hans, Haddur, þá með honum.

Fróði hét maður, frændi Eiríks konungs og fóstursonur hans; hann var hinn fríðasti maður, ungur að aldri og þó vaxinn maður; Eiríkur konungur setti hann eftir til trausts Berg-Önundi; sat Fróði á Álreksstöðum að búi konungs og hafði þar sveit manna.

Rögnvaldur er nefndur sonur Eiríks konungs og Gunnhildar; hann var þá vetra tíu eða ellefu og var hið fríðasta mannsefni; hann var þá með Fróða, er þetta var tíðinda.

En áður Eiríkur konungur reri þenna leiðangur, þá gerði hann Egil útlaga fyrir endilangan Noreg og dræpan hverjum manni. Arinbjörn var með konungi í leiðangri, en áður hann fór heiman, þá lagði Egill skipi sínu til hafs og hélt í útver það, er Vitar heita, út frá Alda; það er komið af þjóðleið; þar voru fiskimenn, og var þar gott að spyrja tíðindi; þá spurði hann, að konungur hafði gert hann útlaga. Þá kvað Egill vísu:


Lögbrigðir hefr lagða,
landalfr, fyr mér sjölfum,
blekkir bræðra sökkva
brúðfang, vega langa;
Gunnhildi ák gjalda,
greypt's hennar skap, þenna,
ungr gatk ok læ launat,
landrekstr, bili grandat.

Veður voru vindlítil, fjallvindur um nætur, en hafgola um daga. Eitt kveld sigldu þeir Egill út á haf, en fiskimenn reru þá inn til lands, þeir er til njósnar höfðu settir verið um farar þeirra Egils. Kunnu þeir það að segja, að Egill hafði út látið og á haf siglt og hann var á brottu; létu þessa njósn koma til Berg-Önundar.

Og er hann vissi þessi tíðindi, hann sendi þá frá sér menn þá er hann hafði áður haft þar til varúðar. Reri hann þá inn til Álreksstaða og bauð Fróða til sín, því að Berg-Önundur átti öl mikið heima að sín; Fróði fór með honum og hafði með sér nokkura menn; tóku þeir þar veislu góða og höfðu gleði mikla; var þar þá allt óttalaust.

Rögnvaldur konungsson átti karfa einn, reru sex menn á borð; hann var steindur allur fyrir ofan sjó; hann hafði með sér menn tíu eða tólf, þá er honum fylgdu einart. Og er Fróði var heiman farinn, þá tók Rögnvaldur karfann, og reru þeir út til Herðlu tólf saman; þar var konungsbú mikið, og réð sá maður fyrir, er hét Skegg-Þórir; þar hafði Rögnvaldur verið á fóstri í barnæsku. Tók Þórir feginsamlega við konungssyni; skorti þar og eigi drykk mikinn.

Egill sigldi út á haf um nóttina, sem fyrr var ritað, og er morgnaði, féll veðrið og gerði logn; lögðu þeir þá í rétt og létu reiða fyrir nokkurar nætur; en er hafgola kom á, sagði Egill skipurum sínum:

"Nú munum vér sigla að landi, því að ógerla veit, ef hafviðri kemur á hvasst, hvar vér náum þá landi, en heldur ófriðvænt fyrir í flestum stöðum."

Hásetar báðu Egil fyrir ráða þeirra ferð; síðan tóku þeir til seglin og sigldu inn til Herðluvers; fengu þeir þar góða höfn og tjölduðu yfir skipi sínu og lágu þá um nóttina. Þeir höfðu á skipinu lítinn bát, og gekk Egill þar á við þriðja mann; reri hann þá inn um nóttina til Herðlu, sendi þar mann í eyna upp að spyrja tíðinda; og er sá kom ofan til skips, sagði hann, að þar á bænum var Rögnvaldur konungsson og hans menn - "sátu þeir þá við drykkju; hitti eg einn af húskörlum, en var sá ölóður og sagði, að hér skyldi eigi minna drekka en að Berg-Önundar, þótt Fróði væri þar á veislu og þeir fimm saman."

Ekki kvað hann þar fleira manna en heimamenn nema Fróða og hans menn.

Síðan reri Egill aftur til skips og bað menn upp standa og taka vopn sín; þeir gerðu svo; þeir lögðu út skipið um akkeri. Egill lét gæta tólf menn skips, en hann fór á eftirbátinn og þeir átján saman, reru síðan inn eftir sundum; þeir stilltu svo til, að þeir komu um kveldið inn í Fenhring og lögðu þar til leynivogs eins.

Þá mælti Egill: "Nú vil eg ganga einn upp í eyna og njósna, hvers eg verði vís, en þér skuluð bíða mín hér."

Egill hafði vopn sín, þau er hann var vanur að hafa, hjálm og skjöld, gyrður sverði, höggspjót í hendi; síðan gekk hann upp í eyna og fram með skógi nokkurum; hann hafði dregið hött síðan yfir hjálm. Hann kom þar að, er sveinar nokkurir voru og hjá þeim hjarðtíkur stórar, og er þeir tókust að orðum, spurði hann, hvaðan þeir væru, eða fyrir hví þeir væru þar og hefðu hunda svo stóra.

Þeir mæltu: "Þú munt vera allheimskur maður; hefir þú eigi heyrt, að hér gengur björn um eyna, hinn mesti spellvirki, drepur hér bæði menn og fénað, og er lagt fé til höfuðs honum; vökum við hér hverja nótt á Aski yfir fé voru, er byrgt er í grindum - eða hví ferðu með vopnum um nætur?"

Hann segir: "Hræðist eg björninn, og fáir þykir mér sem nú fari vopnlausir; hefir björninn lengi elt mig í nótt, eða sjáið hann nú, þar er hann nú í skógarnefinu. Hvort eru allir menn í svefni á bænum?"

Sveinninn sagði, að þeir Berg-Önundur og Fróði myndu enn drekka; "þeir sitja nætur allar."

"Segið þeim þá," segir hann Egill, "hvar björninn er, en eg verð að skynda heim."

Hann gekk þá brott, en sveinninn hljóp heim til bæjarins og til stofunnar, er þeir drukku í; var þá svo komið, að allir menn voru sofa farnir nema þeir þrír, Önundur og Fróði og Haddur. Sveinninn segir, hvar björninn var; þeir tóku vopn sín, er þar héngu hjá þeim, og hljópu þegar út og upp til skógar; þar gengu fram skógarnef af mörkinni og runnar í sumum stöðum. Sveinninn segir þeim, hvar björninn hafði verið í runninum. Þá sáu þeir, að limarnar hrærðust, þóttust þá skilja, að björninn myndi þar vera. Þá mælti Berg-Önundur, að þeir Haddur og Fróði skyldu fram renna milli og meginmerkurinnar og gæta, að björninn næði eigi skóginum.

Berg-Önundur rann fram af runninum; hann hafði hjálm og skjöld, gyrður sverði, en kesju í hendi. Egill var þar fyrir í runninum, en engi björn, og er hann sá, hvar Berg-Önundur var, þá brá hann sverðinu, en þar var hönk á meðalkaflanum, og dró hann hana á hönd sér og lét þar hanga. Hann tók í hönd sér kesjuna og rann þá fram í mót Berg-Önundi, og er Berg-Önundur sá það, þá gæddi hann rásina og skaut skildinum fyrir sig, og áður þeir mættust, þá skaut hvor kesju að öðrum. Egill laust skildinum við kesjunni og bar hallan, svo að reist úr skildinum og flaug í völlinn, en Egils spjót kom á miðjan skjöldinn og gekk í gegnum langt upp á fjöðrina, og varð fast spjótið í skildinum; varð Önundi þungbær skjöldurinn. Egill greip þá skjótt meðalkafla sverðsins; Önundur tók þá og að bregða sínu sverði, og er eigi var brugðið til hálfs, þá lagði Egill í gegnum hann með sínu sverði. Önundur rataði við lagið, e n Egill kippti að sér sverðinu hart og hjó til Önundar og af nær höfuðið; síðan tók Egill kesjuna úr skildinum.

Þeir Haddur og Fróði sáu fall Berg-Önundar og runnu þangað til; Egill snerist í móti þeim; hann skaut kesjunni að Fróða og í gegnum skjöld hans og í brjóstið, svo að yddi um bakið; féll hann þegar á bak aftur dauður; Egill tók þá sverðið og snerist í mót Haddi, og skiptust þeir fáum höggum við, áður Haddur féll.

Þá komu sveinarnir að, og mælti Egill við þá: "Gætið hér til Önundar, húsbónda yðvars, og þeirra félaga, að eigi slíti dýr eða fuglar hræ þeirra."

Egill gekk þá leið sína og eigi langt, áður félagar hans komu í mót honum ellefu, en sex gættu skips; þeir spurðu, hvað hann hefði sýslað. Hann kvað þá:


Sátum lyngs til lengi
ljósheims börvi þeima,
meir varðak fé forðum,
fjarðölna hlut skarðan,
áðr Berg-Önund benjum
bensæfðan létk venjask,
Bors niðjar feltk beðju
blóði, Hadd ok Fróða.

Þá mælti Egill: "Vér skulum nú snúa aftur til bæjarins og fara hermannlega, drepa menn þá alla, er vér náum, en taka fé allt, það er vér megum með komast."

Þeir fara til bæjarins og hlaupa þar inn í hús og drepa þar menn fimmtán eða sextán; sumir komust undan af hlaupi; þeir rændu þar öllu fé, en spilltu því, er þeir máttu eigi með fara. Þeir ráku búfé til strandar og hjuggu, báru á bátinn sem hann tók við; fóru síðan leið sína og reru út um eyjasund.

Egill var nú allreiður, svo að það mátti ekki við hann mæla; sat hann við stýri á bátinum.

Og er þeir sóttu út á fjörðinn til Herðlu, þá reru utan í móti þeim Rögnvaldur konungsson og þeir þrettán saman á karfanum þeim hinum steinda. Þeir höfðu þá spurt, að skip Egils lá í Herðluveri; ætluðu þeir að gera Önundi njósn um ferðir Egils; og er Egill sá skipið, þá kenndi hann þegar. Hann stýrði sem beinst á þá, og er skipin renndust að, þá kom barð skútunnar á kinnung karfans; hallaði honum svo, að sjór féll inn á annað borð og fyllti skipið. Egill hljóp þá upp á og greip kesjuna, hét á menn sína, að þeir skyldu engan láta með lífi á brott komast, þann er á karfanum var. Það var þá hægt, því að þar var þá engi vörn; voru allir þeir á kafi drepnir, en engi komst undan. Létust þeir þar þrettán, Rögnvaldur og förunautar hans; þeir Egill reru þá inn til eyjarinnar Herðlu. Þá kvað Egill vísu:


Börðumk vér, né virðak,
vígleiptr sonar, heiptir,
Blóðöxar rauðk blóði,
böðmildr ok Gunnhildar;
þar féllu nú þollar
þrettán lagar mána,
stendr af styrjar skyndi
starf, á einum karfa.

Og er þeir Egill komu til Herðlu, þá runnu þeir þegar upp til bæjar með alvæpni; en er það sá Þórir og hans heimamenn, þá runnu þeir þegar af bænum og forðuðu sér allir, þeir er ganga máttu, karlar og konur. Þeir Egill rændu þar öllu fé, því er þeir máttu höndum á koma; fóru síðan út til skips; var þá og eigi langt að bíða, að byr rann á af landi; búast þeir til að sigla, og er þeir voru seglbúnir, gekk Egill upp í eyna.

Hann tók í hönd sér heslistöng og gekk á bergsnös nokkura, þá er vissi til lands inn; þá tók hann hrosshöfuð og setti upp á stöngina. Síðan veitti hann formála og mælti svo: "Hér set eg upp níðstöng, og sný eg þessu níði á hönd Eiríki konungi og Gunnhildi drottningu" - hann sneri hrosshöfðinu inn á land - "sný eg þessu níði á landvættir þær, er land þetta byggja, svo að allar fari þær villar vega, engi hendi né hitti sitt inni, fyrr en þær reka Eirík konung og Gunnhildi úr landi."

Síðan skýtur hann stönginni niður í bjargrifu og lét þar standa; hann sneri og höfðinu inn á land, en hann reist rúnar á stönginni, og segja þær formála þenna allan.

Eftir það gekk Egill á skip; tóku þeir til segls og sigldu á haf út; tók þá byrinn að vaxa, og gerði veður hvasst og hagstætt; gekk þá skipið mikið. Þá kvað Egill:


Þél höggr stórt fyr stáli
stafnkvígs á veg jafnan
út með éla meitli
andærr jötunn vandar,
en svalbúinn selju
sverfr eirar vanr þeiri
Gestils ölpt með gustum
gandr of stál fyr brandi.

Síðan sigldu þeir í haf, og greiddist vel ferð þeirra og komu af hafi í Borgarfjörð; hélt hann skipi sínu þar til hafnar og báru föt sín á land. Fór þá Egill heim til Borgar, en skiparar hans vistuðust. Skalla-Grímur gerðist þá gamall og hrumur af elli; tók Egill þá til fjárforráða og bús varðveislu.

Eg 33. (ch. 60)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o200, v2289

Skj BI, 47-8:
Kominn emk á jó Ívu
angrbeittum veg langan
ǫldu enskrar foldar
atsitjanda at vitja;
nú hefr sískelfir sjalfan
snarþôtt Haralds áttar
við ofrhuga yfrinn
undar bliks of fundinn.

60. kafli

Eiríkur konungur réð einn vetur fyrir Noregi eftir andlát föður síns, Haralds konungs, áður Hákon Aðalsteinsfóstri, annar sonur Haralds konungs, kom til Noregs vestan af Englandi, og það sama sumar fór Egill Skalla-Grímsson til Íslands. Hákon fór norður til Þrándheims; var hann þar til konungs tekinn; voru þeir Eiríkur um veturinn báðir konungar í Noregi. En eftir um vorið dró hvortveggi her saman; varð Hákon miklu fjölmennri; sá Eiríkur þá engan sinn kost annan en flýja land; fór hann þá á brott með Gunnhildi, konu sína, og börn þeirra.

Arinbjörn hersir var fóstbróðir Eiríks konungs og barnfóstri hans; hann var kærstur konungi af öllum lendum mönnum; hafði konungur sett hann höfðingja yfir allt Firðafylki. Arinbjörn fór úr landi með konungi; fóru fyrst vestur um haf til Orkneyja; þá gifti hann Ragnhildi, dóttur sína, Arnfinni jarli; síðan fór hann með liði sínu suður fyrir Skotland og herjaði þar; þaðan fór hann suður til Englands og herjaði þar.

Og er Aðalsteinn konungur spurði það, safnaði hann liði og fór í mót Eiríki; og er þeir hittust, voru borin sáttmál milli þeirra, og var það að sættum, að Aðalsteinn konungur fékk Eiríki til forráða Norðimbraland, en hann skyldi vera landvarnarmaður Aðalsteins konungs fyrir Skotum og Írum. Aðalsteinn konungur hafði skattgilt undir sig Skotland eftir fall Ólafs konungs, en þó var það fólk jafnan ótrútt honum. Eiríkur konungur hafði jafnan atsetu í Jórvík.

Svo er sagt, að Gunnhildur lét seið efla og lét það seiða, að Egill Skalla-Grímsson skyldi aldrei ró bíða á Íslandi, fyrr en hún sæi hann. En það sumar, er þeir Hákon og Eiríkur höfðu hitst og deilt um Noreg, þá var farbann til allra landa úr Noregi, og komu það sumar engi skip til Íslands og engi tíðindi úr Noregi.

Egill Skalla-Grímsson sat að búi sínu; en þann vetur annan, er hann bjó að Borg eftir andlát Skalla-Gríms, þá gerðist Egill ókátur, og var því meiri ógleði hans, er meir leið á veturinn. Og er sumar kom, þá lýsti Egill yfir því, að hann ætlar að búa skip sitt til brottfarar um sumarið; tók hann þá háseta; hann ætlar þá að sigla til Englands; þeir voru á skipi þrír tigir manna. Ásgerður var þá eftir og gætti bús þeirra, en Egill ætlaði þá að fara á fund Aðalsteins konungs og vitja heita þeirra, er hann hafði heitið Agli að skilnaði þeirra.

Egill varð ekki snemmbúinn, og er hann lét í haf, þá byrjaði heldur seint, tók að hausta og stærði veðrin; sigldu þeir fyrir norðan Orkneyjar; vildi Egill ekki þar við koma; því að hann hugði, að ríki Eiríks konungs myndi allt yfir standa í eyjunum. Sigldu þeir þá suður fyrir Skotland og höfðu storm mikinn og veður þvert; fengu þeir beitt fyrir Skotland og svo norðan fyrir England. En aftan dags, er myrkva tók, var veður hvasst; finna þeir eigi fyrr en grunnföll voru á útborða og svo fram fyrir. Var þá engi annar til en stefna á land upp, og svo gerðu þeir, sigldu þá til brots og komu að landi við Humru mynni; þar héldust menn allir og mestur hluti fjár, annað en skip; það brotnaði í spón.

Og er þeir hittu menn að máli, spurðu þeir þau tíðindi, er Agli þótti háskasamleg, að Eiríkur konungur blóðöx var þar fyrir og Gunnhildur og þau höfðu þar ríki til forráða og hann var skammt þaðan uppi í borginni Jórvík. Það spurði hann og, að Arinbjörn hersir var þar með konungi og í miklum kærleik við konunginn.

Og er Egill var vís orðinn þessa tíðinda, þá gerði hann ráð sitt; þótti honum sér óvænt til undankomu, þótt hann freistaði þess að leynast og fara huldu höfði leið svo langa, sem vera myndi, áður hann kæmi úr ríki Eiríks konungs; var hann þá auðkenndur þeim, er hann sæju. Þótti honum það lítilmannlegt að vera tekinn í flótta þeim; herti hann þá huginn og réð það af, að þegar um nóttina, er þeir höfðu þar komið, þá fær hann sér hest og ríður þegar til borgarinnar. Kom hann þar að kveldi dags, og reið hann þegar í borgina; hann hafði síðan hatt yfir hjálmi, og alvæpni hafði hann.

Egill spurði, hvar garður sá væri í borginni, er Arinbjörn átti; honum var það sagt; hann reið þangað í garðinn; en er hann kom að stofunni, steig hann af hesti sínum og hitti mann að máli; var honum þá sagt, að Arinbjörn sat yfir matborði.

Egill mælti: "Eg vildi, góður drengur, að þú gengir inn í stofuna, og spyr Arinbjörn, hvort hann vill heldur úti eða inni tala við Egil Skalla-Grímsson."

Sá maður segir: "Það er mér lítið starf að reka þetta erindi."

Hann gekk inn í stofuna og mælti stundar hátt: "Maður er hér kominn úti fyrir dyrum," segir hann, "mikill sem tröll; en sá bað mig ganga inn og spyrja, hvort þú vildir úti eða inni tala við Egil Skalla-Grímsson."

Arinbjörn segir: "Gakk og bið hann bíða úti, og mun hann eigi lengi þurfa."

Hann gerði sem Arinbjörn mælti, gekk út og sagði sem mælt var við hann.

Arinbjörn bað taka upp borðin. Síðan gekk hann út og allir húskarlar hans með honum; og er Arinbjörn hitti Egil, heilsaði hann honum og spurði, hví hann var þar kominn.

Egill segir í fám orðum hið ljósasta af um ferð sína; "en nú skaltu fyrir sjá, hvert ráð eg skal taka, ef þú vilt nokkurt lið veita mér."

"Hefir þú nokkura menn hitt í borginni," segir Arinbjörn, "þá er þig muni kennt hafa, áður þú komst hér í garðinn?"

"Engi," segir Egill.

"Taki menn þá vopn sín," segir Arinbjörn.

Þeir gerðu svo, og er þeir voru vopnaðir og allir húskarlar Arinbjarnar, þá gekk hann í konungsgarð; en er þeir komu til hallar, þá klappaði Arinbjörn á dyrum og bað upp láta og segir, hver þar var; dyrverðir létu þegar upp hurðina. Konungur sat yfir borðum.

Arinbjörn bað þá ganga inn tólf menn, nefndi til þess Egil og tíu menn aðra. "Nú skaltu, Egill, færa Eiríki konungi höfuð þitt og taka um fót honum, en eg mun túlka mál þitt."

Síðan ganga þeir inn; gekk Arinbjörn fyrir konung og kvaddi hann. Konungur fagnaði honum og spurði, hvað er hann vildi.

Arinbjörn mælti: "Eg fylgi hingað þeim manni, er kominn er um langan veg að sækja yður heim og sættast við yður; er yður það vegur mikill, herra, er óvinir yðrir fara sjálfviljandi af öðrum löndum og þykjast eigi mega bera reiði yðra, þó að þér séuð hvergi nær. Láttu þér nú verða höfðinglega við þenna mann; lát hann fá af þér sætt góða fyrir það, er hann hefir gert veg þinn svo mikinn, sem nú má sjá, farið yfir mörg höf og torleiði heiman frá búum sínum; bar honum enga nauðsyn til þessar farar nema góðvilji við yður."

Þá litaðist konungur um, og sá hann fyrir ofan höfuð mönnum, hvar Egill stóð, og hvessti augun á hann og mælti: "Hví varstu svo djarfur, Egill, að þú þorðir að fara á fund minn? Leystist þú svo héðan næstum, að þér var engi von lífs af mér."

Þá gekk Egill að borðinu og tók um fót konungi; hann kvað þá:


Kominn emk á jó Íva
angrbeittan veg langan
öldu enskrar foldar
atsitjanda at vitja;
nú hefr sískelfir sjalfan
snarþátt Haralds áttar
viðr ofrhuga yfrinn
undar bliks of fundinn.

Eiríkur konungur sagði: "Ekki þarf eg að telja upp sakar á hendur þér, en þó eru þær svo margar og stórar, að ein hver má vel endast til, að þú komir aldrei héðan lífs. Áttu engis annars af von en þú munt hér deyja skulu; máttir þú það vita áður, að þú myndir enga sætt af mér fá."

Gunnhildur mælti: "Hví skal eigi þegar drepa Egil, eða manstu eigi nú, konungur, hvað Egill hefir gert, drepið vini þína og frændur og þar á ofan son þinn, en nítt sjálfan þig; eða hvar vita menn slíku bellt við konungmann?"

Arinbjörn segir: "Ef Egill hefir mælt illa til konungs, þá má hann það bæta í lofsorðum þeim, er allan aldur megi uppi vera."

Gunnhildur mælti: "Vér viljum ekki lof hans heyra; láttu, konungur, leiða Egil út og höggva hann; vil eg eigi heyra orð hans og eigi sjá hann."

Þá mælti Arinbjörn: "Eigi mun konungur láta að eggjast um öll níðingsverk þín; eigi mun hann láta Egil drepa í nótt, því að náttvíg eru morðvíg."

Konungur segir: "Svo skal vera, Arinbjörn, sem þú biður, að Egill skal lifa í nótt; hafðu hann heim með þér og fær mér hann á morgun."

Arinbjörn þakkaði konungi orð sín. "Væntum vér, herra, að héðan af muni skipast mál Egils á betri leið; en þó að Egill hafi stórt til saka gert við yður, þá lítið þér á það, að hann hefir mikils misst fyrir yðrum frændum. Haraldur konungur, faðir þinn, tók af lífi ágætan mann, Þórólf, föðurbróður hans, af rógi vondra manna, en af engum sökum; en þér, konungur, brutuð lög á Agli fyrir sakar Berg-Önundar; en þar á ofan vilduð þér hafa Egil að dauðamanni og drápuð menn af honum, en rænduð hann fé öllu, og þar á ofan gerðuð þér hann útlaga og rákuð hann af landi, en Egill er engi ertingamaður. En hvert mál, er maður skal dæma, verður að líta á tilgerðir. eg mun nú," segir Arinbjörn, "hafa Egil með mér í nótt heim í garð minn."

Var nú svo; og er þeir komu í garðinn, þá ganga þeir tveir í loft nokkurt lítið og ræða um þetta mál. Segir Arinbjörn svo: "Allreiður var konungur nú, en heldur þótti mér mýkjast skaplyndi hans nokkuð, áður létti, og mun nú hamingja skipta, hvað upp kemur; veit eg, að Gunnhildur mun allan hug á leggja að spilla þínu máli. Nú vil eg það ráð gefa, að þú vakir í nótt og yrkir lofkvæði um Eirík konung; þætti mér þá vel, ef það yrði drápa tvítug og mættir þú kveða á morgun, er við komum fyrir konung. Svo gerði Bragi, frændi minn, þá er hann varð fyrir reiði Bjarnar Svíakonungs, að hann orti drápu tvítuga um hann eina nótt og þá þar fyrir höfuð sitt; nú mætti vera, að vér bærum gæfu til við konung, svo að þér kæmi það í frið við konung."

Egill segir: "Freista skal eg þessa ráðs, er þú vilt, en ekki hefi eg við því búist að yrkja lof um Eirík konung."

Arinbjörn bað hann freista; síðan gekk hann brott til manna sinna; sátu þeir að drykkju til miðrar nætur. Þá gekk Arinbjörn til svefnhúss og sveit hans, og áður hann afklæddist, gekk hann upp í loftið til Egils og spurði, hvað þá liði um kvæðið.

Egill segir að ekki var ort - "hefir hér setið svala ein við glugginn og klakað í alla nótt, svo að eg hefi aldregi beðið ró fyrir."

Síðan gekk Arinbjörn á brott og út um dyr þær, er ganga mátti upp á húsið, og settist við glugg þann á loftinu, er fuglinn hafði áður við setið; hann sá, hvar hamhleypa nokkur fór annan veg af húsinu. Arinbjörn sat þar við glugginn alla nóttina, til þess er lýsti; en síðan er Arinbjörn hafði þar komið, þá orti Egill alla drápuna og hafði fest svo, að hann mátti kveða um morguninn, þá er hann hitti Arinbjörn; þeir héldu vörð á, nær tími myndi vera að hitta konung.

Eg 34. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o201, v2225

Skj BI, 30-1:
Vestr komk of ver,
en ek Viðris ber
munstrandar mar,
svá's mitt of far;
drók eik á flot
við ísabrot;
hlóðk mærðar hlut
munknarrar skut.

Eg 35. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o202, v2236

Skj BI, 31:
Buðumk hilmir lǫð,
ák hróðrs of kvǫð,
berk Óðins mjǫð
á Engla bjǫð;
lofat vísa vann,
víst mærik þann;
hljóðs biðjum hann,
þvíat hróðr of fann.

Eg 36. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o203, v2240

Skj BI, 31:
Hygg vísi at,
vel sómir þat,
hvé ek þylja fet,
ef ek þǫgn of get;
flestr maðr of frá,
hvat fylkir vá,
en Viðrir sá,
hvar valr of lá.

Eg 37. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o204, v2241

Skj BI, 31:
Óx hjǫrva glam
við hlífar þrǫm;
guðr óx of gram;
gramr sótti fram;
þar heyrðisk þá,
þaut mækis ô,
malmhríðar spô,
sú's mest of lá.

Eg 38. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o205, v2242

Skj BI, 31:
Vasat villr staðar
vefr darraðar
fyr grams glǫðum
geirvangs rǫðum;
þars í blóði
í brimils móði
vǫllr of þrumði,
und véum glumði.

Eg 39. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o206, v2243

Skj BI, 31:
Hné ferð á fit
við fleina hnit.
Orðstír of gat
Eiríkr at þat.

Eg 40. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o207, v2244

Skj BI, 31:
Fremr munk segja,
ef firar þegja;
frôgum fleira
til frama þeira;
œstu undir
jǫfurs of fundir,
brustu brandar
við bláar randar.

Eg 41. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o208, v2245

Skj BI, 32:
Hlam hein-sǫðul
við hjalmrǫðul;
beit bengrefill,
þat vas blóðrefill;
frák at felli
fyr fetils svelli
Óðins eiki
í járnleiki.

Eg 42. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o209, v2246

Skj BI, 32:
Þat vas eggja at
ok odda gnat.
Orðstír of gat
Eiríkr at þat.

Eg 43. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o210, v2226

Skj BI, 32:
Rauð hilmir hjǫr,
þar vas hrafna gǫr,
fleinn sótti fjǫr;
flugu dreyrug spjǫr;
ól flagðs gota
fárbjóðr Skota;
trað nipt Nara
náttverð ara.

Eg 44. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o211, v2227

Skj BI, 32:
Flugu hjaldrs tranar
of hræs lanar;
órut blóðs vanar
benmôs granar;
sleit und freki,
en oddbreki
gnúði hrafni
á hǫfuðstafni.

Eg 45. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o212, v2228

Skj BI, 32:
Kom gráðar læ
at gjalpar skæ;
bauð ulfum hræ
Eiríkr of sæ.

Eg 46. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o213, v2229

Skj BI, 32:
Beit fleinn floginn,
þá vas friðr loginn,
vas almr dreginn,
varð ulfr feginn;
brustu broddar,
en bitu oddar,
bôru hǫrvar
af bogum ǫrvar.

Eg 47. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o219, v2235

Skj BI, 33:
Verpr broddfleti
með baugseti
hjǫrleiks hvati,
hann's baugskati;
þróask hér sem hvar,
hugat mælik þar,
kunt's austr of mar,
Eiríks of far.

Eg 47x. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o214, v2230

Skj BI, 33:
Beit fleinn floginn,
þá vas friðr loginn,
vas almr dreginn,
varð ulfr feginn;
stózk folkhagi
við fjǫrlagi,
gall ýbogi
at eggtogi.

Eg 48. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o215, v2231

Skj BI, 33:
Jǫfurr sveigði ý,
hrutu unda bý;
bauð ulfum hræ
Eiríkr of sæ.

Eg 49. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o216, v2232

Skj BI, 32-3:
Enn munk vilja
fyr verum skilja
skapleik skata,
skal mærð hvata;
Lætr snót saka
sverð-Freyr vaka,
en skers Haka
skíðgarð braka;

Eg 50. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o217, v2233

Skj BI, 33:
Brýtr bógvita
bjóðr hrammþvita,
muna hodddofa
hringbrjótr lofa;
mjǫk's hônum fǫl
haukstrandar mǫl;
glaðar flotna fjǫl
við Fróða mjǫl.

Eg 51. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o218, v2234

Skj BI, 32-3:
Stóðz folk hagi
við fjár lagi
gall ýbogi
at egg togi;
verpr ábrǫndum,
en jǫfurr lǫndum
heldr hornklofi;
hann's næstr lofi.

Eg 52. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o220, v2237

Skj BI, 33:
Jǫfurr hyggi at,
hvé ek yrkja fat;
gótt þykkjumk þat,
es ek þǫgn of gat;
hrœrðak munni
af munar grunni
Óðins ægi
of jǫru fægi.

Eg 53. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o8767, v2238

Skj BI, 33:
Bark þengils lof
á þagnar rof;
kank mála mjǫt
of manna sjǫt;
ór hlátra ham
hróðr bark fyr gram;
svá fór þat fram,
at flestr of nam.

Eg 54. (ch. 61)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o8768, v2239

Skj BI, 33:
Njóti bauga
sem Bragi auga
vagna vára
eða vili tára.

61. kafli

Eiríkur konungur gekk til borða að vanda sínum, og var þá fjölmenni mikið með honum; og er Arinbjörn varð þess var, þá gekk hann með alla sveit sína alvopnaða í konungsgarð, þá er konungur sat yfir borðum. Arinbjörn krafði sér inngöngu í höllina; honum var það og heimilt gert. Ganga þeir Egill inn með helming sveitarinnar; annar helmingur stóð úti fyrir dyrum.

Arinbjörn kvaddi konung, en konungur fagnaði honum vel; Arinbjörn mælti: "Nú er hér kominn Egill; hefir hann ekki leitað til brotthlaups í nótt. Nú viljum vér vita, herra, hver hans hluti skal verða; vænti eg góðs af yður; hefi eg það gert, sem vert var, að eg hefi engan hlut til þess sparað að gera og mæla svo, að yðvar vegur væri þá meiri en áður. Hefi eg og látið allar mínar eigur og frændur og vini, er eg átti í Noregi, og fylgt yður, en allir lendir menn yðrir skildust við yður, og er það maklegt, því að þú hefir marga hluti til mín stórvel gert."

Þá mælti Gunnhildur: "Hættu, Arinbjörn, og tala ekki svo langt um þetta; margt hefir þú vel gert við Eirík konung, og hefir hann það fullu launað; er þér miklu meiri vandi á við Eirík konung en Egil; er þér þess ekki biðjanda, að Egill fari refsingalaust héðan af fundi Eiríks konungs, slíkt sem hann hefir til saka gert."

Þá segir Arinbjörn: "Ef þú, konungur, og þið Gunnhildur hafið það einráðið, að Egill skal hér enga sætt fá, þá er það drengskapur að gefa honum frest og fararleyfi um viku sakar, að hann forði sér; þó hefir hann að sjálfvilja sínum farið hingað á fund yðvarn og væntir sér af því friðar; fara þá enn skipti yður sem verða má þaðan frá."

Gunnhildur mælti: "Sjá kann eg á þessu, Arinbjörn, að þú ert hollari Agli en Eiríki konungi; ef Egill skal ríða héðan viku í brott í friði, þá mun hann kominn til Aðalsteins konungs á þessi stundu. En Eiríkur konungur þarf nú ekki að dyljast í því, að honum verða nú allir konungar ofureflismenn, en fyrir skömmu mundi það þykja ekki líklegt, að Eiríkur konungur myndi eigi hafa til þess vilja og aðferð að hefna harma sinna á hverjum manni slíkum, sem Egill er."

Arinbjörn segir: "Engi maður mun Eirík kalla að meira mann, þó að hann drepi einn bóndason útlendan, þann er gengið hefir á vald hans. En ef hann vill miklast af þessu, þá skal eg það veita honum, að þessi tíðindi skulu heldur þykja frásagnarverð, því að við Egill munum nú veitast að, svo að jafnsnemma skal okkur mæta báðum. Muntu, konungur, þá dýrt kaupa líf Egils, um það er vér erum allir að velli lagðir, eg og sveitungar mínir; myndi mig annars vara af yður, en þú myndir mig vilja leggja heldur að jörðu en láta mig þiggja líf eins manns, er eg bið."

Þá segir konungur: "Allmikið kapp leggur þú á þetta, Arinbjörn, að veita Agli lið; trauður mun eg til vera að gera þér skaða, ef því er að skipta, ef þú vilt heldur leggja fram líf þitt en hann sé drepinn; en ærnar eru sakar til við Egil, hvað sem eg læt gera við hann."

Og er konungur hafði þetta mælt, þá gekk Egill fyrir hann og hóf upp kvæðið og kvað hátt og fékk þegar hljóð:


Vestr fórk of ver,
en ek Viðris ber
munstrandar mar,
svá-s mitt of far;
drók eik á flot
við ísa brot,
hlóðk mærðar hlut
míns knarrar skut.


Buðumk hilmir löð,
þar ák hróðrar kvöð,
berk Óðins mjöð
á Engla bjöð;
lofat vísa vann,
víst mærik þann;
hljóðs biðjum hann,
því at hróðr of fann.


Hygg, vísi, at
vel sómir þat,
hvé ek þylja fet,
ef ek þögn of get;
flestr maðr of frá,
hvat fylkir vá,
en Viðrir sá,
hvar valr of lá.


Óx hjörva glöm
við hlífar þröm,
guðr óx of gram,
gramr sótti fram;
þar heyrðisk þá,
þaut mækis á,
malmhríðar spá;
sú vas mest of lá.


Vasat villr staðar
vefr darraðar
of grams glaðar
geirvangs raðar;
þars í blóði
enn brimlá-móði
völlr of þrumði,
und véum glumði.


Hné folk á fit
við fleina hnit;
orðstír of gat
Eiríkr at þat.


Fremr munk segja,
ef firar þegja,
frágum fleira
til frama þeira,
óxu undir
við jöfurs fundi,
brustu brandar
við bláar randar.


Hlam heinsöðul
við hjaldrröðul,
beit bengrefill,
þat vas blóðrefill;
frák, at felli
fyr fetilsvelli
Óðins eiki
í éarnleiki.


Þar vas eggja at
ok odda gnat;
orðstír of gat
Eiríkr at þat.


Rauð hilmir hjör,
þar vas hrafna gjör,
fleinn hitti fjör,
flugu dreyrug spjör;
ól flagðs gota
fárbjóðr Skota,
trað nipt Nara
náttverð ara.


Flugu hjaldrs tranar
á hræs lanar,
órut blóðs vanar
benmás granar,
sleit und freki,
en oddbreki
gnúði hrafni
á höfuðstafni.


Kom gríðar læ
at Gjalpar skæ;
bauð ulfum hræ
Eiríkr of sæ.


Lætr snót saka
sverð-Frey vaka,
en skers Haka
skíðgarð braka;
brustu broddar,
en bitu oddar,
báru hörvar
af bogum örvar.


Beit fleinn floginn,
þá vas friðr loginn,
vas almr dreginn,
varð ulfr feginn;
stósk folkhagi
við fjörlagi,
gall ýbogi
at eggtogi.


Jöfurr sveigði ý,
flugu unda bý;
bauð ulfum hræ
Eiríkr of sæ.


Enn munk vilja
fyr verum skilja
skapleik skata,
skal mærð hvata;
verpr ábröndum,
en jöfurr löndum
heldr hornklofi;
hann's næstr lofi.


Brýtr bógvita
bjóðr hrammþvita,
muna hodd-dofa
hringbrjótr lofa;
mjök's hánum föl
haukstrandar möl;
glaðar flotna fjöl
við Fróða mjöl.


Verpr broddfleti
af baugseti
hjörleiks hvati,
hann es baugskati;
þróask hér sem hvar,
hugat mælik þar,
frétt's austr of mar,
Eiríks of far.


Jöfurr hyggi at,
hvé ek yrkja fat,
gótt þykkjumk þat,
es ek þögn of gat;
hrærðak munni
af munar grunni
Óðins ægi
of jöru fægi.


Bark þengils lof
á þagnar rof;
kannk mála mjöt
of manna sjöt;
ór hlátra ham
hróðr bark fyr gram;
svá fór þat fram,
at flestr of nam.

Eg 56. (ch. 62)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o221, v2290

Skj BI, 48:
Erumka leitt,
þótt ljótr séi,
hjalma klett,
hilmir, þiggja;
hvar's sás gat
af gǫfuglundum
œðri gjǫf
allvalds syni.

Eg 57. (ch. 62)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o222, v2291

Skj BI, 48:
Svartbrúnum lét sjónum,
sannspár, hugins vára,
hugr tjóðum mjǫk mága,
mǫgnuðr Egil fagna;
arfstóli knák Ála
attgǫfguðum hattar
fyr rógnaðra regni
ráða nú sem áðan.

62. kafli

Eiríkur konungur sat uppréttur, meðan Egill kvað kvæðið, og hvessti augun á hann; og er lokið var drápunni, þá mælti konungur:

"Besta er kvæðið fram flutt, en nú hefi eg hugsað, Arinbjörn, um mál vort Egils, hvar koma skal. Þú hefir flutt mál Egils með ákafa miklum, er þú býður að etja vandræðum við mig; nú skal það gera fyrir þínar sakar, sem þú hefir beðið, að Egill skal fara frá mínum fundi heill og ósakaður. En þú, Egill, hátta svo ferðum þínum, að síðan, er þú kemur frá mínum fundi af þessi stofu, þá kom þú aldregi í augsýn mér og sonum mínum og verð aldri fyrir mér né mínu liði. En eg gef þér nú höfuð þitt að sinni; fyrir þá sök, er þú gekkst á mitt vald, þá vil eg eigi gera níðingsverk á þér, en vita skaltu það til sanns, að þetta er engi sætt við mig né sonu mína og enga frændur vora, þá sem réttar vilja reka."

Þá kvað Egill:


Erumka leitt,
þótt ljótr séi,
hjalma klett
af hilmi þiggja;
hvar's sás gat
af göfuglyndum
æðri gjöf
allvalds syni.

Arinbjörn þakkaði konungi með fögrum orðum þá sæmd og vináttu, er konungur hefir veitt honum. Þá ganga þeir Arinbjörn og Egill heim í garð Arinbjarnar; síðan lét Arinbjörn búa reiðskjóta liði sínu. Reið hann brott með Agli og hundrað manna alvopnaðra með honum; Arinbjörn reið með lið það, til þess er þeir komu til Aðalsteins konungs, og fengu þar góðar viðtökur; bauð konungur Agli með sér að vera og spurði, hvernig farið hafði með þeim Eiríki konungi.

Þá kvað Egill:


Svartbrúnum lét sjónum
sannsparr Hugins varra,
hugr tjóðum mjök mága,
mögnuðr Egil fagna;
arfstóli knák Ála
áttgöfguðum hattar
fyr regnaðar regni
ráða nú sem áðan.

En að skilnaði þeirra Arinbjarnar og Egils, þá gaf Egill Arinbirni gullhringa þá tvo, er Aðalsteinn konungur gaf honum, og stóð mörk hvor, en Arinbjörn gaf Agli sverð það, er Dragvandill hét. Það hafði gefið Arinbirni Þórólfur Skalla-Grímsson, en áður hafði Skalla-Grímur þegið af Þórólfi, bróður sínum, en Þórólfi gaf sverðið Grímur loðinkinni, sonur Ketils hængs; það sverð hafði átt Ketill hængur og haft í hólmgöngum, og var það allra sverða bitrast. Skildust þeir með kærleik hinum mesta; fór Arinbjörn heim í Jórvík til Eiríks konungs; en förunautar Egils og skipverjar hans höfðu þar frið góðan og vörðu varningi sínum í trausti Arinbjarnar; en er á leið veturinn, fluttust þeir suður til Englands og fóru á fund Egils.

Eg 58. (ch. 65)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o223, v2292

Skj BI, 48:
Urðumk leið en ljóta
landbeiðaðar reiði;
syngrat gaukr, ef glamma
gamm veit of sik þramma;
þar nautk enn sem optarr
arnstalls sjǫtul-bjarnar;
hnígrat allr, sás holla
hjalpendr of fǫr gjalpar.

Eg 59. (ch. 65)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o224, v2293

Skj BI, 48-9:
Esa Friðgeiri fœri,
fǫrum holms á vit sǫrvar
(skulum banna) mjǫk (manni
mey) ørlygi at heyja;
við þanns bítr ok blótar
bǫnd élhvǫtuð Gǫndlar,
alfeigum skýtr œgir
augum, skjǫld, of bauga.

Eg 60. (ch. 65)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o225, v2294

Skj BI, 49:
Esat lítillar Ljóti,
leik ek við hal bleikan
við bifteini, bœnar,
brynju, rétt at synja;
búumk til vígs, en vægðar
vôn lætka ek hônum,
skapa verðum vit skjǫldu
skœru-drengr á Mœri.

Eg 61. (ch. 65)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o226, v2296

Skj BI, 49:
Hǫggum hjalta vendi,
hœfum rǫnd með brandi,
reynum randar mána,
rjóðum sverð í blóði,
stýfum Ljót af lífi,
leikum sárt við bleikan,
kyrrum kappa errinn
(komi ǫrn á hræ) jǫrnum.

Eg 62. (ch. 65)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o227, v2297

Skj BI, 49:
Fyrir þykki mér, fúra
flóðstøkkvandi, nøkkvat,
hræðisk hodda beiðir
happlauss, fara kappi;
stendrat fast, sás frestar,
fleindǫggvar stafr, hǫggum;
vábeiða ferr víðan
vǫll fyr rotnum skalla.

Eg 63. (ch. 65)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o234, v2298

Skj BI, 49:
Fell sás flest et illa,
fót hjó skald af Ljóti,
ulfgrennir hefr unnit,
eir veittak Friðgeiri;
séka lóns til launa
logbrjótanda í móti;
jafn vas mér í gný geira
gamanleikr við hal bleikan.

65. kafli

Þorsteinn og Egill bjuggu ferð sína, þegar þeir höfðu lokið erindum sínum; fara þeir þá aftur á leið; og er þeir koma suður um Dofrafjall, þá segir Egill, að hann vill fara ofan til Raumsdals og síðan suður sundaleið. "Vil eg," segir hann, "lúka erindum mínum í Sogni og á Hörðalandi, því að eg vil búa skip mitt í sumar til Íslands út."

Þorsteinn bað hann ráða ferð sinni; skiljast þeir Þorsteinn og Egill; fór Þorsteinn suður um Dali og alla leið, til þess er hann kom til búa sinna; bar hann þá fram jartegnir konungs og orðsending fyrir ármennina, að þeir skyldu láta fé það allt, er þeir hafa upp tekið og Þorsteinn kallaði til.

Egill fór leiðar sinnar og þeir tólf saman; komu þeir fram í Raumsdal, fengu sér þá flutningar; fóru síðan suður á Mæri. Er ekki sagt frá ferð þeirra, fyrr en þeir komu í ey þá, er Höð heitir, og fóru til gistingar á bæ þann, er heitir á Blindheimi; það var göfugur bær. Þar bjó lendur maður, er Friðgeir hét; hann var ungur að aldri, hafði nýtekið við föðurarfi sínum; móðir hans hét Gyða. Hún var systir Arinbjarnar hersis, skörungur mikill og göfug kona. Hún var að ráðum með syni sínum, Friðgeiri; höfðu þau þar rausnarbú mikið. Þar fengu þeir allgóðar viðtökur; sat Egill um kveldið hið næsta Friðgeiri og förunautar hans þar utar frá; var þar drykkja mikil og dýrleg veisla.

Gyða húsfreyja gekk um kveldið til tals við Egil; hún spurði að Arinbirni, bróður sínum, og enn að fleirum frændum sínum og vinum, þeim er til Englands höfðu farið með Arinbirni. Egill sagði henni það, sem hún spurði; hún spurði, hvað til tíðinda hefði gerst í ferðum Egils; hann segir henni af hið ljósasta. Þá kvað hann:


Urðumk leið en ljóta
landbeiðaðar reiði;
sígrat gaukr, ef glamma
gamm veit of sik þramma;
þar nautk enn sem optar
arnstalls sjötulbjarnar;
hnígrat allr, sás holla
hjalpendr of för gjalpar.

Egill var allkátur um kveldið, en Friðgeir og heimamenn voru heldur hljóðir. Egill sá þar mey fagra og vel búna; honum var sagt, að hún var systir Friðgeirs; mærin var ókát og grét einart um kveldið; það þótti þeim undarlegt.

Þar voru þeir um kveldið. En um morguninn var veður hvasst og eigi sæfært; þar þurftu þeir far úr eyjunni. Þá gekk Friðgeir og bæði þau Gyða til fundar við Egil; buðu þau honum þar að sitja með förunauta sína, til þess er gott væri færiveður, og hafa þaðan fararbeina, þann sem þeir þyrftu. Egill þekktist það; sátu þeir þar veðurfastir þrjár nætur, og var þar hinn mesti mannfagnaður. Eftir það gerði veður lygnt; stóðu þeir Egill þá upp snemma um morguninn og bjuggust, gengu þá til matar, og var þeim gefið öl að drekka, og sátu þeir um hríð; síðan tóku þeir klæði sín. Egill stóð upp og þakkaði bónda og húsfreyju beina sinn, og gengu síðan út. Bóndi og móðir hans gengu á götu með þeim; þá gekk Gyða til máls við Friðgeir, son sinn, og talaði við hann lágt. Egill stóð meðan og beið þeirra.

Egill mælti við meyna: "Hvað grætur þú, mær? eg sé þig aldrei káta."

Hún mátti engu svara og grét að meir. Friðgeir svarar móður sinni hátt: "Ekki vil eg nú biðja þess; þeir eru nú búnir ferðar sinnar."

Þá gekk Gyða að Agli og mælti: "Eg mun segja þér, Egill, tíðindi þau, sem hér eru með oss. Maður heitir Ljótur hinn bleiki; hann er berserkur og hólmgöngumaður; hann er óþokkasæll. Hann kom hér og bað dóttur minnar, en vér svöruðum skjótt og synjuðum honum ráðsins; síðan skoraði hann til hólmgöngu á Friðgeir, son minn, og skal á morgun koma til hólmsins í ey þá, er Vörl heitir. Nú vildi, eg, Egill, að þú færir til hólmsins með Friðgeiri; myndi það sannast, ef Arinbjörn væri hér í landi, að vér myndum eigi þola ofríki slíkum manni sem Ljótur er."

"Skylt er það, húsfreyja, fyrir sakar Arinbjarnar, frænda þíns, að eg fari með syni þínum, ef honum þykir sér það nokkurt fullting."

"Þá gerir þú vel," segir Gyða, "skulum vér þá ganga inn í stofu og vera öll saman daglangt."

Ganga þeir Egill þá inn í stofu og drukku; sátu þeir þar um daginn, en um kveldið komu vinir Friðgeirs, þeir er til ferðar voru ráðnir með honum, og var fjölmennt um nóttina; var þar þá veisla mikil.

En eftir um daginn bjóst Friðgeir til ferðar og margt manna með honum; var þar Egill í för; þá var gott færiveður; fara þeir síðan og koma í eyna Vörl. Þar var fagur völlur skammt frá sjónum, er hólmstefnan skyldi vera; var þar markaður hólmstaður, lagðir steinar utan um.

Nú kom þar Ljótur með lið sitt; bjóst hann þá til hólmgöngu; hann hafði skjöld og sverð; Ljótur var allmikill maður og sterklegur. Og er hann gekk fram á völlinn að hólmstaðnum, þá kom á hann berserksgangur, tók hann þá að grenja illilega og beit í skjöld sinn. Friðgeir var maður ekki mikill, grannlegur og fríður sjónum og ekki sterkur; hafði hann og ekki staðið í bardögum. Og er Egill sá Ljót, þá kvað hann vísu:


Esa Friðgeiri færi,
förum holms á vit, sörvar,
skulum banna mjök manni
mey, örlygi at heyja
við þanns bítr ok blótar
bönd élhvötuð Göndlar,
alfeigum skýtr ægir
augum, skjöld at baugi.

Ljótur sá, hvar Egill stóð, og heyrði orð hans og mælti:

"Gakk þú hingað, hinn mikli maður, á hólminn og berst við mig, ef þú ert allfús til, og reynum með okkur; er það miklu jafnlegra en eg berjist við Friðgeir, því að eg þykist eigi að meiri maður, þó að eg leggi hann að jörðu."

Þá kvað Egill:


Esat lítillar Ljóti,
leik ek við hal bleikan
við bifteini, bænar,
brynju, rétt at synja;
búumk til vígs, en vægðar
ván lætka ek hánum,
skapa verðum vit skaldi
skæru, drengr, á Mæri.

Síðan bjóst Egill til hólmgöngu við Ljót. Egill hafði skjöld þann, sem hann var vanur að hafa, en hann var gyrður sverði því, er hann kallaði Naður, en hann hafði Dragvandil í hendi. Hann gekk inn yfir mark það, er hólmstefnan skyldi vera, en Ljótur var þá eigi búinn. Egill skók sverðið og kvað vísu:


Höggum hjaltvönd skyggðan,
hæfum rönd með brandi,
reynum randar mána,
rjóðum sverð í blóði;
stýfum Ljót af lífi.
leikum sárt við bleikan,
kyrrum kappa errinn,
komi örn á hræ, jörnum.

Þá kom Ljótur fram á vígvöllinn, og síðan rennast þeir að, og heggur Egill til Ljóts, en Ljótur brá við skildinum, en Egill hjó hvert högg að öðru, svo að Ljótur fékk ekki höggvið í móti. Hann hopaði undan til höggrúmsins, en Egill fór jafnskjótt eftir og hjó sem ákafast; Ljótur fór út um marksteinana og víða um völlinn. Gekk svo hin fyrsta hríð. Þá beiddist Ljótur hvíldar; Egill lét það og vera; nema þeir þá stað og hvíla sig. Þá kvað Egill:


Fyrir þykki mér fúra
fleins stökkvandi nökkvat,
hræðisk hodda beiðir
happlauss, fara kappi;
stendrat fast, sás frestar
fleindöggvar stafr, höggum;
vábeiða ferr víðan
völl fyr rotnum skalla.

Það voru hólmgöngulög í þann tíma, að sá, er skorar á mann annan til eins hvers hlutar, og fengi sá sigur, er á skoraði, þá skyldi sá hafa sigurmál það, er hann hafði til skorað, en ef hann fengi ósigur, þá skyldi hann leysa sig þvílíku fé, sem ákveðið væri; en ef hann félli á hólminum, þá hafði hann fyrirvegið allri sinni eigu, og skyldi sá taka arf hans, er hann felldi á hólmi. Það voru og lög, ef útlendur maður andaðist, sá er þar í landi átti engan erfingja, þá gekk sá arfur í konungsgarð.

Egill bað, að Ljótur skyldi búinn verða. "Vil eg, að vér reynum nú hólmgöngu þessa."

Síðan hljóp Egill að honum og hjó til hans; gekk hann þá svo nær honum, að hann hrökk fyrir, og bar þá skjöldinn af honum. Þá hjó Egill til Ljóts, og kom á fyrir ofan kné og tók af fótinn; féll Ljótur þá og var þegar örendur.

Þá gekk Egill þar til, er þeir Friðgeir voru; var þetta verk honum allvel þakkað. Þá kvað Egill:


Fell sás flest et illa,
fót hjó skald af Ljóti,
ulfgrennir hefr unnit,
eir veittak Friðgeiri;
séka lóns til launa
logbrjótanda í móti,
jafn vas mér í gný geira
gamanleikr við hal bleikan.

Ljótur var lítt harmaður af flestum mönnum, því að hann hafði verið hinn mesti óeirumaður; hann var sænskur að ætt og átti enga frændur þar í landi; hann hafði komið þangað og aflað sér fjár á hólmgöngum. Hann hafði fellt marga góða bændur og skorað áður á þá til hólmgöngu og til jarða þeirra og óðala, var þá orðinn stórauðugur bæði að löndum og lausum aurum.

Egill fór heim með Friðgeiri af hólmstefnunni; dvaldist hann þar þá litla hríð, áður hann fór suður á Mæri. Skildust þeir Egill og Friðgeir með miklum kærleik; bauð Egill Friðgeiri um að heimta jarðir þær, er Ljótur hafði átt. Fór Egill sína leið, kom fram í Fjörðum; þaðan fór hann inn í Sogn á fund Þórðar á Aurlandi. Tók hann vel við honum; bar hann fram erindi sín og orðsendingar Hákonar konungs; tók Þórður vel ræðum Egils og hét honum liðveislu sinni um það mál; dvaldist Egill þar lengi um vorið með Þórði.

Eg 64. (ch. 66)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o228, v2299

Skj BI, 50:
Beitat nú, sás brugðum,
blár Dragvendill randir,
af þvít eggjar deyfði
Atli, framm, enn skammi;
neyttak afls við ýti
ǫrmálgastan hjǫrva,
jaxlbróður létk eyða,
ek bar sauð, af nauðum.

66. kafli

Egill gerði ferð sína suður á Hörðaland; hann hafði til þeirrar ferðar róðrarferju og þar á þrjá tigu manna. Þeir koma einn dag í Fenhring á Ask; gekk Egill þar til með tuttugu menn, en tíu gættu skips. Atli hinn skammi var þar fyrir með nokkura menn; Egill lét hann út kalla og segja, að Egill Skalla-Grímsson átti erindi við hann; Atli tók vopn sín og allir þeir menn, er þar voru vígir fyrir, og gengu út síðan.

Egill mælti: "Svo er mér sagt, Atli, að þú munir hafa að varðveita fé það, er eg á að réttu og Ásgerður, kona mín; muntu heyrt hafa þar fyrr um rætt, að eg kallaði mér arf Bjarnar hölds, er Berg-Önundur, bróðir þinn, hélt fyrir mér. Er eg nú kominn að vitja fjár þess, landa og lausaaura, og krefja þig, að þú látir laust og greiðir mér í hendur."

Atli segir: "Lengi höfum vér það heyrt, Egill, að þú sért ójafnaðarmaður, en nú mun eg að raun um koma, ef þú ætlar að kalla til þess fjár í hendur mér, er Eiríkur konungur dæmdi Önundi, bróður mínum; átti Eiríkur konungur þá að ráða boði og banni hér í landi. Hugði eg nú, Egill, að þú myndir fyrir því hér kominn að bjóða mér gjöld fyrir bræður mína, er þú tókst af lífi, og þú myndir bæta vilja rán það, er þú rændir hér á Aski; myndi eg þá veita svör þessu máli, ef þú flyttir þetta erindi fram, en hér kann eg engu svara."

"Það vil eg," segir Egill, "bjóða þér, sem eg bauð Önundi, að Gulaþingslög skipi um mál okkur; tel eg bræður þína hafa fallið ógilda á sjálfra sinna verkum, því að þeir höfðu áður rænt mig lögum og landsrétti og tekið fé mitt að herfangi. Hefi eg til þessa konungsleyfi að leita laga við þig um þetta mál; vil eg stefna þér til Gulaþings og hafa þar lagaúrskurð um þetta mál."

"Koma mun eg," segir Atli, "til Gulaþings, og megum við þar ræða um þessi mál."

Síðan fór Egill í brott með föruneyti sitt; fór hann þá norður í Sogn og inn á Aurland til Þórðar, mágs síns, og dvaldist þar til Guluþings.

Og er menn komu til þings, þá kom Egill þar; Atli hinn skammi var og þar kominn. Tóku þeir þá að tala sín mál og fluttu fram fyrir þeim mönnum, er um skyldu dæma; flutti Egill fram fjárheimtu, en Atli bauð lögvörn í mót, tylftareiða, að hann hefði ekki fé það að varðveita, er Egill ætti.

Og er Atli gekk að dómum með eiðalið sitt, þá gekk Egill mót honum og segir, að eigi vill hann eiða hans taka fyrir fé sitt; "vil eg bjóða þér önnur lög, þau, að við göngum á hólm hér á þinginu, og hafi sá fé þetta, er sigur fær."

Það voru og lög, er Egill mælti, og forn siðvenja, að hverjum manni var rétt að skora á annan til hólmgöngu, hvort er hann skyldi verja sakir fyrir sig eða sækja.

Atli sagði, að hann myndi eigi synja að ganga á hólm við Egil "því að þú mælir það, er eg ætti að mæla, því að ærinna harma á eg að hefna á þér; þú hefir að jörðu lagt bræður mína tvo, og er mér mikilla muna vant, að eg haldi réttu máli, ef eg skal heldur láta lausar eignir mínar aflaga fyrir þér en berjast við þig, er þú býður mér það."

Síðan taka þeir Atli og Egill höndum saman og festa það með sér, að þeir skulu á hólm ganga og sá, er sigur fær, skal eiga jarðir þær, er þeir deildu áður um.

Eftir það búast þeir til hólmgöngu; gekk Egill fram og hafði hjálm á höfði og skjöld fyrir sér og kesju í hendi, en sverðið Dragvandil festi hann við hægri hönd sér. Það var siður hólmgöngumanna að þurfa ekki að bregða sverði sínu á hólmi, láta heldur sverðið hendi fylgja, svo að þegar væri sverðið tiltækt, er hann vildi. Atli hafði hinn sama búnað sem Egill; hann var vanur hólmgöngum; hann var sterkur maður og hinn mesti fullhugi.

Þar var leiddur fram graðungur mikill og gamall; var það kallað blótnaut; það skyldi sá höggva, er sigur hefði. Var það stundum eitt naut, stundum lét sitt hvor fram leiða, sá er á hólm gekk.

Og er þeir voru búnir til hólmgöngu, þá hlaupast þeir að og skutu fyrst spjótum, og festi hvortki spjótið í skildi, námu bæði í jörðu staðar. Síðan taka þeir báðir til sverða sinna, gengust þá að fast og hjuggust til; gekk Atli ekki á hæl; þeir hjuggu títt og hart, og ónýttust skjótt skildirnir. Og er skjöldur Atla var mjög ónýttur, þá kastaði hann honum, tók þá sverðið tveim höndum og hjó sem tíðast. Egill hjó til hans á öxlina, og beit ekki sverðið; hann hjó annað og hið þriðja; var honum þá hægt að leita höggstaðar á Atla, að hann hafði enga hlíf; Egill reiddi sverðið af öllu afli, en ekki beit, hvar sem hann hjó til.

Sér þá Egill, að eigi mun hlýða svo búið, því að skjöldur hans gerðist þá ónýtur. Þá lét Egill laust sverðið og skjöldinn og hljóp að Atla og greip hann höndum. Kenndi þá aflsmunar, og féll Atli á bak aftur, en Egill greyfðist að niður og beit í sundur í honum barkann; lét Atli þar líf sitt. Egill hljóp upp skjótt og þar til, er blótnautið stóð, greip annarri hendi í granarnar, en annarri í hornið og snaraði svo, að fætur vissu upp, en í sundur hálsbeinið; síðan gekk Egill þar til, er stóð föruneyti hans. Þá kvað Egill:


Beitat nú, sás brugðum,
blár Dragvandill randir,
af þvít eggjar deyfði
Atli framm enn skammi;
neyttak afls við ýti
örmálgastan hjörva;
jaxlbróður létk eyða,
ek bar af sauði, nauðum.

Síðan eignaðist Egill jarðir þær allar, er hann hafði til deilt og hann kallaði, að Ásgerður, kona hans, hefði átt að taka eftir föður sinn. Ekki er getið, að þá yrði fleira til tíðinda á því þingi. Egill fór þá fyrst inn í Sogn og skipaði jarðir þær, er hann hafði þá fengið að eiginorði; dvaldist hann þar mjög lengi um vorið; síðan fór hann með föruneyti sitt austur í Vík; fór hann þá á fund Þorsteins og var þar um hríð.

Eg 65. (ch. 68)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o229, v2300

Skj BI, 50:
Sjalfráði lét slœður
silki drengr of fengit
gollknappaðar greppi,
getk aldri vin betra;
Arinbjǫrn of hefr árnat
eirarlaust, eða meiri
síð man seggr of fœðask
slíkr, oddvita ríki.

68. kafli

Egill spurði þau tíðindi austan um haf, að Eiríkur blóðöx hefði fallið í vesturvíking, en Gunnhildur og synir þeirra voru farin til Danmerkur suður, og brottu var af Englandi það lið allt, er þeim Eiríki hefði þangað fylgt. Arinbjörn var þá kominn til Noregs; hafði hann fengið veislur sínar og eignir þær, er hann hafði átt, og var kominn í kærleika mikla við konunga; þótti Agli þá enn fýsilegt gerast að fara til Noregs. Það fylgdi og tíðindasögu, að Aðalsteinn konungur var andaður; réð þá fyrir Englandi bróðir hans, Játmundur.

Egill bjó þá skip sitt og réð háseta til. Önundur sjóni réðst þar til, sonur Ána frá Ánabrekku; Önundur var mikill og þeirra manna sterkastur, er þá voru þar í sveit; eigi var um það einmælt, að hann væri eigi hamrammur. Önundur hafði oft verið í förum landa í milli; hann var nokkuru eldri en Egill; með þeim hafði lengi verið vingott.

Og er Egill var búinn, lét hann í haf, og greiddist þeirra ferð vel; komu að miðjum Noregi. Og er þeir sáu land, stefndu þeir inn í Fjörðu; og er þeir fengu tíðindi af landi, var þeim sagt, að Arinbjörn var heima að búum sínum; heldur Egill þangað skipi sínu í höfn sem næst bæ Arinbjarnar.

Síðan fór Egill að finna Arinbjörn, og varð þar fagnafundur mikill með þeim; bauð Arinbjörn Agli þangað til vistar og föruneyti hans, því er hann vildi, að þangað færi. Egill þekktist það og lét ráða skipi sínu til hlunns, en hásetar vistuðust; Egill fór til Arinbjarnar og þeir tólf saman. Egill hafði látið gera langskipssegl mjög vandað; segl það gaf hann Arinbirni og enn fleiri gjafar, þær er sendilegar voru. Var Egill þar um veturinn í góðu yfirlæti. Egill fór um veturinn suður í Sogn að landskyldum sínum, dvaldist þar mjög lengi; síðan fór hann norður í Fjörðu.

Arinbjörn hafði jólaboð mikið, bauð til sín vinum sínum og héraðsbóndum; var þar fjölmenni mikið og veisla góð; hann gaf Agli að jólagjöf slæður, gerðar af silki og gullsaumaðar mjög, settar fyrir allt gullknöppum í gegnum niður; Arinbjörn hafði látið gera klæði það við vöxt Egils. Arinbjörn gaf Agli alklæðnað, nýskorinn, að jólum; voru þar skorin í ensk klæði með mörgum litum. Arinbjörn gaf margs konar vingjafar um jólin þeim mönnum, er hann höfðu heimsótt, því að Arinbjörn var allra manna örvastur og mestur skörungur.

Þá orti Egill vísu:


Sjalfráði lét slæður
silki drengr of fengit
gollknappaðar greppi,
getk aldri vin betra;
Arinbjörn hefr árnat
eirarlaust eða meira,
síð man seggr of fæðask
slíkr, oddvita ríki.

Eg 66. (ch. 72)
Ármóðr’s daughter
SkP ids: o230, v1425

Skj BI, 603:
Því sendi mín móðir
mik við þik til fundar
ok orð bera Agli
at ér varir skylduð;
Hildr mælti þat horna :
haga svá maga þínum,
eigu órir gestir
œðra nest á frestum.

Eg 67. (ch. 72)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o231, v2302

Skj BI, 50:
Títt erum verð at vátta,
vætti berk, at hættak,
þung, til þessar gǫngu,
þinn, kinnalô minni;
margr velr gestr, þars gistir,
gjǫld, finnumk vér sjaldan,
(Ármóði liggr) œðri
(ǫlðra dregg í skeggi).

Eg 68. (ch. 72)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o232, v2303

Skj BI, 50:
Drekkum ór, þótt Ekkils
eykríðr beri tíðum
horna sund at hendi,
hvert full, bragar Ulli,
leifum vætr, þótt Laufa
leikstœrir mér fœri
hrosta tjǫrn í horni,
horns, til dags at morni.

72. kafli

Egill bjóst til ferðar og þrír menn aðrir hans förunautar; höfðu þeir hesta og sleða svo sem konungsmenn. Þá voru snjóvar miklir og breyttir vegar allir. Ráða þeir til ferðar, er þeir voru búnir, og óku upp á land, og er þeir sóttu austur til Eiða, þá var það á einni nótt, að féll snjór mikill, svo að ógerla sá vegana; fórst þeim þá seint um daginn eftir, því að kafhlaup voru, þegar af fór veginum.

Og er á leið daginn, dvöldust þeir og áðu hestum sínum; þar var nær skógarháls einn.

Þá mæltu þeir við Egil: "Nú skiljast hér vegar, en hér fram undan hálsinum býr bóndi sá, er heitir Arnaldur, vinur vor; munum vér förunautar fara þangað til gistingar, en þér skuluð fara hér upp á hálsinn, og þá er þér komið þar, mun brátt verða fyrir yður bær mikill, og er yður þar vís gisting; þar býr stórauðugur maður, er heitir Ármóður skegg. En á morgun árdegis skulum vér hittast og fara annað kveld til Eiðaskógs, þar býr góður bóndi, er Þorfinnur heitir."

Síðan skiljast þeir; fara þeir Egill upp á hálsinn, en frá konungsmönnum er það að segja, að þegar er sýn fal í milli þeirra Egils, þá tóku þeir skíð sín, er þeir höfðu haft, og stigu þar á; létu síðan ganga aftur á leið, sem þeir máttu; fóru þeir nótt og dag og sneru til Upplanda, og þaðan norður um Dofrafjall, og léttu eigi fyrr en þeir komu á fund Hákonar konungs og sögðu um sína ferð sem farið hafði.

Egill og förunautar hans fóru um kveldið yfir hálsinn; var það þar skjótast af að segja, að þeir fóru þegar af veginum; var snjórinn mikill; lágu hestarnir á kafi annað skeið, svo að draga varð upp. Þar voru kleifar og kjarrskógar nokkurir, en um kjörrin og kleifarnar var alltorsótt; var þeim þá seinkan mikil að hestunum, en mannfærðin var hin þyngsta. Mæddust þeir þá mjög, en þó komust þeir af hálsinum og sáu þá fyrir sér bæ mikinn og sóttu þangað til.

Og er þeir komu í túnið, þá sáu þeir, að þar stóðu menn úti, Ármóður og sveinar hans. Köstuðust þeir orðum á og spurðust tíðinda; og er Ármóður vissi, að þeir voru sendimenn konungs, þá bauð hann þeim þar gisting; þeir þekktust það; tóku húskarlar Ármóðs við hestum þeirra og reiða, en bóndi bað Egil ganga inn í stofu, og þeir gerðu svo. Ármóður setti Egil í öndvegi á hinn óæðra bekk, og þar förunautar hans utar frá; þeir ræddu margt um, hversu erfillega þeir höfðu farið um kveldið, en heimamönnum þótti mikið undur, er þeir höfðu fram komist, og sögðu, að þar væri engum manni fært, þó að snjólaust væri.

Þá mælti Ármóður: "Þykir yður eigi sá beini bestur, að yður sé borð sett og gefinn náttverður, en síðan farið þér að sofa? Munuð þér þá hvílast best."

"Það líkar oss allvel," segir Egill.

Ármóður lét setja þeim borð, en síðan voru settir fram stórir askar, fullir af skyri; þá lét Ármóður, að honum þætti það illa, er hann hafði eigi mungát að gefa þeim. Þeir Egill voru mjög þyrstir af mæði; tóku þeir upp askana og drukku ákaft skyrið, og þó Egill miklu mest. Engi kom önnur vistin fram.

Þar var margt hjóna; húsfreyja sat á þverpalli og þar konur hjá henni, dóttir bónda var á gólfinu, tíu vetra eða ellefu. Húsfreyja kallaði hana til sín og mælti í eyra henni. Síðan fór mærin utar fyrir borðið, þar er Egill sat. Hún kvað:


Því sendi mín móðir
mik við þik til fundar
ok orð bera Agli,
at ér varir skyldið;
Hildr mælti þat horna:
haga svá maga þínum,
eigu órir gestir
æðra nest á frestum.

Ármóður laust meyna og bað hana þegja -- "mælir þú það jafnan, er verst gegnir."

Mærin gekk á brott, en Egill skaut niður skyraskinum, og var þá nær tómur; voru þá og brott teknir askarnir frá þeim. Gengu þá og heimamenn í sæti sín, og voru borð upp tekin um alla stofu, og sett á vist; því næst komu inn sendingar og voru þá settar fyrir Egil sem fyrir aðra menn.

Því næst var öl inn borið, og var það hið sterkasta mungát; var þá brátt drukkinn einmenningur; skyldi einn maður drekka af dýrshorni; var þar mestur gaumur að gefinn, er Egill var og sveitungar hans; skyldu drekka sem ákafast. Egill drakk ósleitilega fyrst langa hríð; en er förunautar hans gerðust ófærir, þá drakk hann fyrir þá, það er þeir máttu eigi. Gekk svo til þess, er borð fóru brott; gerðust þá og allir mjög drukknir, þeir er inni voru, en hvert full, er Ármóður drakk, þá mælti hann: "Drekk eg til þín, Egill;" en húskarlar drukku til förunauta Egils og höfðu hinn sama formála. Maður var til þess fenginn að bera þeim Agli hvert full, og eggjaði sá mjög, að þeir skyldu skjótt drekka. Egill mælti við förunauta sína, að þeir skyldu þá ekki drekka, en hann drakk fyrir þá, það er þeir máttu eigi annan veg undan komast.

Egill fann þá, að honum myndi eigi svo búið eira; stóð hann þá upp og gekk um gólf þvert, þangað er Ármóður sat; hann tók höndum í axlir honum og kneikti hann upp að stöfum. Síðan þeysti Egill upp úr sér spýju mikla og gaus í andlit Ármóði, í augun og nasarnar og í munninn; rann svo ofan um bringuna, en Ármóði varð við andhlaup, og er hann fékk öndinni frá sér hrundið, þá gaus upp spýja. En allir mæltu það, þeir er hjá voru, húskarlar Ármóðs, að Egill skyldi fara allra manna armastur og hann væri hinn versti maður af þessu verki, er hann skyldi eigi ganga út, er hann vildi spýja, en verða eigi að undrum inni í drykkjustofunni.

Egill segir: "Ekki er að hallmæla mér um þetta, þótt eg geri sem bóndi gerir, spýr hann af öllu afli, eigi síður en eg."

Síðan gekk Egill til rúms síns og settist niður, bað þá gefa sér að drekka. Þá kvað Egill við raust:


Títt erum verð at vátta,
vætti berk at hættak
þung til þessar göngu,
þinn kinnalá minni;
margr velr gestr, þars gistir,
gjöld, finnumsk vér sjaldan,
Ármóði liggr, æðri,
ölðra dregg í skeggi.

Ármóður hljóp upp og út, en Egill bað gefa sér drekka. Þá mælti húsfreyja við þann mann, er þeim hafði skenkt um kveldið, að hann skyldi gefa drykk, svo að þá skyrti eigi, meðan þeir vildu drekka; síðan tók hann dýrshorn mikið og fyllti og bar til Egils; Egill kneyfði af horninu í einum drykk. Þá kvað hann:


Drekkum ór, þótt Ekkils
eykríðr beri tíðum
horna sund at hendi,
hvert full, bragar Ulli;
leifik vætr, þótt Laufa
leikstærir mér færi
hrosta tjörn í horni,
horn til dags at morgni.

Egill drakk um hríð og kneyfði hvert horn, er að honum kom, en lítil var þá gleði í stofunni, þótt nokkurir menn drykkju. Síðan stendur Egill upp og förunautar hans og taka vopn sín af veggjum, er þeir höfðu upp fest; ganga síðan til kornhlöðu þeirrar, er hestar þeirra voru inni; lögðust þeir þar niður í hálm og sváfu um nóttina.

Eg 69. (ch. 73)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o233, v2304

Skj BI, 51:
Nýtr illsǫgull ýtir
armlinns konu sinnar,
oss's við ógnar hvessi
óttalaust, ok dóttur;
þeygi munt við þenna
þykkjask verðr fyr drykkju
grepp, skulum á veg vappa
vítt, svágǫru hlíta.

Eg 70. (ch. 73)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o235, v2305

Skj BI, 51:
Skalat maðr rúnar rísta,
nema ráða vel kunni;
þat verðr mǫrgum manni,
es of myrkan staf villisk;
sák á telgðu tálkni
tíu launstafi ristna,
þat hefr lauka lindi
langs oftrega fengit.

73. kafli

Egill stóð upp um morguninn, þegar er dagaði; bjuggust þeir förunautar og fóru þegar, er þeir voru búnir, aftur til bæjarins og leita Ármóðs. Og er þeir komu til skemmubúrs þess, er Ármóður svaf í og kona hans og dóttir, þá hratt Egill upp hurðinni og gekk til rekkjunnar Ármóðs; hann brá þá sverði, en annarri hendi greip hann í skegg Ármóðs og hnykkti honum á stokk fram, en kona Ármóðs og dóttir hljópu upp og báðu Egil, að hann dræpi eigi Ármóð.

Egill segir, að hann skyldi það gera fyrir þeirra sakar - "því að það er maklegt; en hefði hann verðleika til, að eg dræpi hann." Þá kvað Egill:

Nýtr illsögull ýtir
armlinns konu sinnar,
oss's við ógnar hvessi
óttalaust, ok dóttur;
þeygi munt við þenna
þykkjask verðr fyr drykkju
grepp, skulum á veg vappa
vítt, svágöru hlíta.

Síðan sneið Egill af honum skeggið við hökuna; síðan krækti hann fingrinum í augað, svo að úti lá á kinninni: eftir það gekk Egill á brott og til förunauta sinna.

Fara þeir þá leið sína, koma að dagverðarmáli til bæjar Þorfinns; hann bjó við Eiðaskóg; þeir Egill kröfðu dagverðar og æja hestum sínum. Þorfinnur bóndi lét heimilt skyldu það; ganga þeir Egill þá inn í stofu.

Egill spurði, ef Þorfinnur hefði var orðið við förunauta hans - "höfðum vér hér mælt mót með oss."

Þorfinnur segir svo: "Fóru hér sex menn saman nokkuru fyrir dag og voru vopnaðir mjög."

Þá mælti húskarl Þorfinns: "Eg ók í nótt eftir viði, og fann eg sex menn á leið, og voru það húskarlar Ármóðs, og var það miklu fyrir dag; nú veit eg eigi, hvort þeir munu allir einir og hinir sex menn, er þú sagðir frá."

Þorfinnur segir, að þeir menn, er hann hafði hitt, höfðu síðar farið en húskarlinn kom heim með viðarhlassið.

Og er þeir Egill sátu og mötuðust, þá sá Egill, að kona sjúk lá í þverpallinum; Egill spurði Þorfinn, hver kona sú væri, er þar var svo þunglega haldin.

Þorfinnur segir, að hún hét Helga og var dóttir hans - "hefir hún haft langan vanmátt," og það var kröm mikil; fékk hún enga nótt svefn og var sem hamstoli væri.

"Hefir nokkurs í verið leitað," segir Egill, "um mein hennar?"

Þorfinnur segir: "Ristnar hafa verið rúnar, og er sá einn bóndason héðan skammt í brott, er það gerði, og er síðan miklu verr en áður, eða kanntu, Egill, nokkuð gera að slíkum meinum?"

Egill segir: "Vera kann, að ekki spillist við, þó að eg komi til."

Og er Egill var mettur, gekk hann þar til, er konan lá, og ræddi við hana; hann bað þá hefja hana úr rúminu og leggja undir hana hrein klæði, og nú var svo gert. Síðan rannsakaði hann rúmið, er hún hafði hvílt í, og þar fann hann tálkn, og voru þar á rúnarnar. Egill las þær, og síðan telgdi hann af rúnarnar og skóf þær í eld niður; hann brenndi tálknið allt og lét bera vind í klæði þau, er hún hafði haft áður. Þá kvað Egill:

Skalat maðr rúnar rísta,
nema ráða vel kunni,
þat verðr mörgum manni,
es of myrkvan staf villisk;
sák á telgðu talkni
tíu launstafi ristna,
þat hefr lauka lindi
langs ofrtrega fengit.

Egill reist rúnar og lagði undir hægindið í hvíluna, þar er hún hvíldi; henni þótti sem hún vaknaði úr svefni og sagði, að hún var þá heil, en þó var hún máttlítil, en faðir hennar og móðir urðu stórum fegin; bauð Þorfinnur, að Egill skyldi þar hafa allan forbeina, þann er hann þóttist þurfa.

Eg 71. (ch. 74)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o236, v2306

Skj BI, 51:
Veizt, ef ferk með fjóra,
færat sex þás vexli
hlífa hneitiknífum
hjaldrgoðs við mik roðnum,
en ef ek em með átta,
esat þeir tolf, es skelfi
at samtogi sverða
svartbrúnum mér hjarta.

74. kafli

Egill segir förunautum sínum, að hann vill fara ferð sína og bíða eigi lengur. Þorfinnur átti son, er Helgi hét; hann var vasklegur maður; þeir feðgar buðu Agli föruneyti sitt um skóginn. Sögðu þeir, að þeir vissu til sanns, að Ámóður skegg hafði gert menn sex á skóginn fyrir þá, og þó líkara, að vera myndu fleiri sátirnar á skóginum, ef hin fyrsta slyppi; voru þeir Þorfinnur fjórir saman, er til ferðar buðust. Þá kvað Egill vísu:


Veist, ef ferk með fjóra,
færat sex, þás víxli
hlífa hneitiknífum
hjaldrgoðs við mik roðnum;
en ef ek em með átta,
esat þeir tolf, es skelfi
at samtogi sverða
svartbrúnum mér hjarta.

Þeir Þorfinnur réðu þessu, að þeir fóru á skóginn með Agli, og voru þeir þá átta saman; og er þeir komu þar, er sátin var fyrir, þá sáu þeir þar menn. En þeir húskarlar Ármóðs, er þar sátu, sáu, að þar fóru átta menn, og þótti þeim sér ekki færi til að ráða; leyndust þá í brott á skóginn. En er þeir Egill komu þar, sem njósnarmenn höfðu verið, þá sáu þeir, að eigi var allt fritt. Þá mælti Egill, að þeir Þorfinnur skyldu aftur fara, en þeir buðu að fara lengra. Egill vildi það eigi og bað þá fara heim, og þeir gerðu svo og hurfu aftur, en þeir Egill héldu fram ferðinni og voru þá fjórir saman.

Og er á leið daginn, urðu þeir Egill varir við, að þar voru sex menn á skóginum, og þóttust vita, að þar myndu vera húskarlar Ármóðs. Njósnarmenn hljópu upp og réðu að þeim, en þeir í mót, og varð sá fundur þeirra, að Egill felldi tvo menn, en hinir, er eftir voru, hljópu þá í skóginn.

Síðan fóru þeir Egill sína leið, og gerðist þá ekki til tíðinda, áður þeir komu af skóginum og tóku gisting við skóginn að bónda þess, er Álfur hét og var kallaður Álfur hinn auðgi. Hann var maður gamall og auðugur að fé, maður einrænn, svo að hann mátti ekki hafa hjón með sér nema fá ein. Góðar viðtökur hafði Egill þar, og var Álfur við hann málreitinn; spurði Egil margra tíðinda, en Álfur sagði slíkt, er hann spurði; þeir ræddu flest um jarlinn og um sendimenn Noregskonungs, þá er fyrr höfðu farið austur þangað að heimta skatt. Álfur var engi vinur jarls í ræðum sínum.

Eg 72. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o237, v2248

Skj BI, 34:
Mjǫk erum tregt
tungu at hrœra
með loptvætt
ljóðpundara;
esa nú vænligt
of Viðurs þýfi,
né hógdrœgt
ór hugar fylgsni.

Eg 73. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o238, v2259

Skj BI, 34:
Esa auðþeystr,
þvít ekki veldr
hǫfugligr,
ór hyggju stað
fagna fundr
Friggjar niðja
ár borinn
ór Jǫtunheimum.

Eg 74. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o239, v2266

Skj BI, 34:
Lastalauss,
es lifnaði
á nǫkkvers
nǫkkva bragi;
jǫtuns hals
undir þjóta
náins niðr
fyr naustdurum.

Eg 75. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o240, v2267

Skj BI, 34:
Þvít ætt mín
á enda stendr,
hreggbarnir
sem hlynir marka;
esa karskr maðr,
sás kǫgla berr
frænda hrørs
af fletjum niðr.

Eg 76. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o241, v2268

Skj BI, 34:
Þó munk mitt
ok móður hrør
fǫður fall
fyrst of telja;
þat berk út
ór orðhofi
mærðar timbr
máli laufgat.

Eg 77. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o242, v2269

Skj BI, 34:
Grimt vǫrum hlið,
þat's hrǫnn of braut
fǫður míns
á frændgarði;
veitk ófult
ok opit standa
sonar skarð,
es mér sær of vann.

Eg 78. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o243, v2270

Skj BI, 35:
Mjǫk hefr Rôn
of rysktan mik;
emk ofsnauðr
at ástvinum;
sleit marr bǫnd
minnar ættar,
snaran þôtt
af sjǫlfum mér.

Eg 79. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o244, v2271

Skj BI, 35:
Veizt ef sǫk
sverði of rækak,
vas ǫlsmið
allra tíma;
hroða vábrœðr
ef viða mættak,
fórk ægis
andvígr mani.

Eg 80. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o245, v2272

Skj BI, 35:
En ek ekki
eiga þóttumk
sakar afl
við sonar bana,
þvít alþjóð
fyr augum verðr
gamals þegns
gengileysi.

Eg 81. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o246, v2249

Skj BI, 35:
Mik hefr marr
miklu ræntan;
grimt es fall
frænda at telja,
síðan's minn
á munvega
ættar skjǫldr
af lífi hvarf.

Eg 82. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o247, v2250

Skj BI, 35:
Veitk þat sjalfr,
at í syni mínum
vasa ills þegns
efni vaxit,
ef randviðr
røskvask næði,
uns hergauts
hendr of tœki.

Eg 83. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o248, v2251

Skj BI, 35:
Æ lét flest
þat's faðir mælti,
þótt ǫll þjóð
annat segði,
mér upp helt
of herbergi
ok mitt afl
mest of studdi.

Eg 84. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o249, v2252

Skj BI, 35-6:
Opt kømr mér
mána brúðar
í byrvind
brœðraleysi;
hyggjumk umb,
es hildr þróask,
nýsumk hins
ok hygg at því,

Eg 85. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o250, v2253

Skj BI, 36:
hverr mér hugaðr
á hlið standi
annarr þegn
við óðræði;
þarfk þess opt
við þrágǫrum;
verðk varfleygr,
es vinir þverra.

Eg 86. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o251, v2254

Skj BI, 36:
Mjǫk's torfyndr,
sás trúa knegum,
of alþjóð
elgjar galga,
þvít niflgóðr
niðja steypir
bróður hrør
við baugum selr.

Eg 87. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o252, v2255

Skj BI, 36:
Finnk þat opt
es féar beiðir - - -

Eg 88. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o253, v2256

Skj BI, 36:
Þat's ok mælt
at mangi getr
sonar iðgjǫld
nema sjalfr ali,
né þann enn
es ǫðrum sé
borinn maðr
í bróður stað.

Eg 89. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o254, v2257

Skj BI, 36:
Erumka þekt
þjóða sinni,
þótt sér hverr
sôtt of haldi;
burr's býskeiðs
í bœ kominn,
kvánar sonr,
kynnis leita.

Eg 90. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o255, v2258

Skj BI, 36:
En mér fens
í fǫstum þokk
hrosta hǫfundr
á hendi stendr;
máka upp
í aroar grímu
rýnnis reið
réttri halda.

Eg 91. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o256, v2260

Skj BI, 36-7:
Síz son minn
sóttar brími
heiptugligr
ór heimi nam,
þanns ek veit
at varnaði
vamma vanr
við námæli.

Eg 92. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o257, v2261

Skj BI, 37:
Þat mank enn,
es upp of hóf
í Goðheim
Gauta spjalli
ættar ask,
þanns óx af mér,
ok kynvið
kvánar minnar.

Eg 93. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o258, v2262

Skj BI, 37:
Áttak gótt
við geirs dróttin,
gerðumk tryggr
at trúa hônum,
áðr vinan
vagna rúni
sigrhǫfundr
of sleit við mik.

Eg 94. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o259, v2263

Skj BI, 37:
Blœtka því
bróður Vílis,
goðjaðar,
at gjarn séak;
þó hefr Míms vinr
mér of fengnar
bǫlva bœtr,
es et betra telk.

Eg 95. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o260, v2264

Skj BI, 37:
Gǫfumk íþrótt
ulfs of bági
vígi vanr
vammi firða
ok þat geð,
es gerðak mér
vísa fjandr
af vélǫndum.

Eg 96. (ch. 79)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o261, v2265

Skj BI, 37:
Nú erum torvelt,
Tveggja bága
njǫrva nipt
á nesi stendr,
skalk þó glaðr
góðum vilja
ok ó-hryggr
heljar bíða.

79. kafli

Ólafur hét maður, sonur Höskulds Dala-Kollssonar og sonur Melkorku, dóttur Mýrkjartans Írakonungs. Ólafur bjó í Hjarðarholti í Laxárdal vestur í Breiðafjarðardölum; Ólafur var stórauðugur að fé; hann var þeirra manna fríðastur sýnum, er þá voru á Íslandi; hann var skörungur mikill.

Ólafur bað Þorgerðar, dóttur Egils; Þorgerður var væn kona og kvenna mest, vitur og heldur skapstór, en hversdagslega kyrrlát. Egill kunni öll deili á Ólafi og vissi, að það gjaforð var göfugt, og fyrir því var Þorgerður gift Ólafi; fór hún til bús með honum í Hjarðarholt. Þeirra börn voru þau Kjartan, Þorbergur, Halldór, Steindór, Þuríður, Þorbjörg, Bergþóra; hana átti Þórhallur goði Oddason; Þorbjörgu átti fyrr Ásgeir Knattarson, en síðar Vermundur Þorgrímsson; Þuríði átti Guðmundur Sölmundarson; voru þeirra synir Hallur og Víga-Barði.

Össur Eyvindarson, bróðir Þórodds í Ölfusi, fékk Beru, dóttur Egils.

Böðvar, sonur Egils, var þá frumvaxti; hann var hinn efnilegasti maður, fríður sýnum, mikill og sterkur, svo sem verið hafði Egill eða Þórólfur á hans aldri; Egill unni honum mikið; var Böðvar og elskur að honum.

Það var eitt sumar, að skip var í Hvítá, og var þar mikil kaupstefna. Hafði Egill þar keypt við margan og lét flytja heim á skipi; fóru húskarlar og höfðu skip áttært, er Egill átti. Það var þá eitt sinn, að Böðvar beiddist að fara með þeim, og þeir veittu honum það; fór hann þá inn á Völlu með húskörlum; þeir voru sex saman á áttæru skipi. Og er þeir skyldu út fara, þá var flæðurin síð dags, og er þeir urðu hennar að bíða, þá fóru þeir um kveldið síð. Þá hljóp á útsynningur steinóði, en þar gekk í móti útfallsstraumur; gerði þá stórt á firðinum, sem þar kann oft verða; lauk þar svo, að skipið kafði undir þeim, og týndust þeir allir. En eftir um daginn skaut upp líkunum; kom lík Böðvars inn í Einarsnes, en sum komu fyrir sunnan fjörðinn, og rak þangað skipið; fannst það inn við Reykjarhamar.

Þann dag spurði Egill þessi tíðindi, og þegar reið hann að leita líkanna; hann fann rétt lík Böðvars. Tók hann það upp og setti í kné sér og reið með út í Digranes til haugs Skalla-Gríms. Hann lét þá opna hauginn og lagði Böðvar þar niður hjá Skalla-Grími; var síðan aftur lokinn haugurinn, og var eigi fyrr lokið en um dagseturs skeið. Eftir það reið Egill heim til Borgar, og er hann kom heim, þá gekk hann þegar til lokrekkju þeirrar, er hann var vanur að sofa í; hann lagðist niður og skaut fyrir loku. Engi þorði að krefja hann máls.

En svo er sagt, þá er þeir settu Böðvar niður, að Egill var búinn: hosan var strengd fast að beini; hann hafði fustanskyrtil rauðan, þröngvan upphlutinn og lás að síðu; en það er sögn manna, að hann þrútnaði svo, að kyrtillinn rifnaði af honum og svo hosurnar.

En eftir um daginn lét Egill ekki upp lokrekkjuna; hann hafði þá og engan mat né drykk; lá hann þar þann dag og nóttina eftir. Engi maður þorði að mæla við hann.

En hinn þriðja morgun, þegar er lýsti, þá lét Ásgerður skjóta hesti undir mann -- reið sá sem ákaflegast vestur í Hjarðarholt -- og lét segja Þorgerði þessi tíðindi öll saman, og var það um nónskeið, er hann kom þar. Hann sagði og það með, að Ásgerður hafði sent henni orð að koma sem fyrst suður til Borgar.

Þorgerður lét þegar söðla sér hest, og fylgdu henni tveir menn; riðu þau um kveldið og nóttina, til þess er þau komu til Borgar; gekk Þorgerður þegar inn í eldahús. Ásgerður heilsaði henni og spurði, hvort þau hefðu náttverð etið.

Þorgerður segir hátt: "Engan hefi eg náttverð haft, og engan mun eg fyrr en að Freyju; kann eg mér eigi betri ráð en faðir minn; vil eg ekki lifa eftir föður minn og bróður."

Hún gekk að lokhvílunni og kallaði: "Faðir, lúk upp hurðinni, vil eg, að við förum eina leið bæði."

Egill spretti frá lokunni; gekk Þorgerður upp í hvílugólfið og lét loku fyrir hurðina; lagðist hún niður í aðra rekkju, er þar var.

Þá mælti Egill: "Vel gerðir þú, dóttir, er þú vilt fylgja föður þínum; mikla ást hefir þú sýnt við mig. Hver von er, að eg muni lifa vilja við harm þenna?"

Síðan þögðu þau um hríð.

Þá mælti Egill: "Hvað er nú, dóttir, tyggur þú nú nokkuð?"

"Tygg eg söl," segir hún, "því að eg ætla, að mér muni þá verra en áður; ætla eg ella, að eg muni of lengi lifa."

"Er það illt manni?" segir Egill.

"Allillt," segir hún, "viltu eta?"

"Hvað mun varða?" segir hann.

En stundu síðar kallaði hún og bað gefa sér drekka; síðan var henni gefið vatn að drekka.

Þá mælti Egill: "Slíkt gerir að, er sölin etur, þyrstir æ þess að meir."

"Viltu drekka, faðir?" segir hún.

Hann tók við og svalg stórum, og var það í dýrshorni. Þá mælti Þorgerður: "Nú erum við vélt; þetta er mjólk."

Þá beit Egill skarð úr horninu, allt það er tennur tóku, og kastaði horninu síðan.

Þá mælti Þorgerður: "Hvað skulum við nú til ráðs taka? Lokið er nú þessi ætlan. Nú vildi eg, faðir, að við lengdum líf okkar, svo að þú mættir yrkja erfikvæði eftir Böðvar, en eg mun rísta á kefli, en síðan deyjum við, ef okkur sýnist. Seint ætla eg Þorstein, son þinn, yrkja kvæðið eftir Böðvar, en það hlýðir eigi, að hann sé eigi erfður, því að eigi ætla eg okkur sitja að drykkjunni þeirri, að hann er erfður."

Egill segir, að það var þá óvænt, að hann myndi þá yrkja mega, þótt hann leitaði við, - "en freista má eg þess," segir hann.

Egill hafði þá átt son, er Gunnar hét, og hafði sá og andast litlu áður. Og er þetta upphaf kvæðis:


Mjök erum tregt
tungu at hræra
eða loptvætt
ljóðpundara;
esa nú vænligt
of Viðurs þýfi
né hógdrægt
ór hugar fylgsni.


Esa auðþeystr
þvít ekki veldr
höfugligr,
ór hyggju stað
fagnafundr
Friggjar niðja,
ár borinn
ór Jötunheimum,


lastalauss
es lifnaði
á Nökkvers
nökkva bragi.
Jötuns hals
undir þjóta
Náins niðr
fyr naustdyrum.


Þvít ætt mín
á enda stendr,
hræbarnir
sem hlynir marka;
esa karskr maðr
sás köggla berr
frænda hrörs
af fletjum niðr.


Þó munk mitt
ok móður hrör
föður fall
fyrst of telja,
þat berk út
ór orðhofi
mærðar timbr
máli laufgat.


Grimmt vörum hlið,
þats hrönn of braut
föður míns
á frændgarði;
veitk ófullt
ok opit standa
sonar skarð,
es mér sær of vann.


Mjök hefr Rán
ryskt um mik,
emk ofsnauðr
at ástvinum;
sleit marr bönd
minnar ættar,
snaran þátt
af sjölfum mér.


Veist, ef þá sök
sverði of rækak,
vas ölsmiðr
allra tíma;
hroða vágs bræðr,
ef vega mættak,
fórk andvígr
ok Ægis mani.


En ek ekki
eiga þóttumk
sakar afl
við sonar bana,
þvít alþjóð
fyr augum verðr
gamals þegns
gengileysi.


Mik hefr marr
miklu ræntan,
grimmt es fall
frænda at telja;
síðan's minn
á munvega
ættar skjöldr
aflífi hvarf.


Veitk þat sjalfr,
at í syni mínum
vasa ills þegns
efni vaxit,
ef sá randviðr
röskvask næði,
uns Hergauts
hendr of tæki.


Æ lét flest
þats faðir mælti,
þótt öll þjóð
annat segði,
mér upp helt
of verbergi
ok mitt afl
mest of studdi.


Opt kömr mér
mána bjarnar
í byrvind
bræðraleysi,
hyggjumk um,
es hildr þróask,
nýsumk hins
ok hygg at því,


hverr mér hugaðr
á hlið standi
annarr þegn
við óðræði;
þarfk þess opt
of þvergörum;
verðk varfleygr,
es vinir þverra.


Mjök es torfyndr,
sás trúa knegum
of alþjóð
Elgjar galga,
þvít niflgóðr
niðja steypir
bróður hrör
við baugum selr.


Finn ek þat opt,
es féar beiðir ...


Þat's ok mælt,
at engi geti
sonar iðgjöld
nema sjalfr ali
enn þann nið,
es öðrum sé
borinn maðr
í bróður stað.


Erumka þekkt
þjóða sinni,
þótt sér hverr
sátt of haldi;
burr's Bileygs
í bæ kominn,
kvánar sonr,
kynnis leita.


En mér fens
í föstum þokk
hrosta hilmir
á hendi stendr;
máka'k upp
jörðu grímu,
rýnnis-reið,
réttri halda,


sís son minn
sóttar brími
heiptugligr
ór heimi nam,
þanns ek veit
at varnaði
vamma varr
við vámæli.


Þat mank enn,
es upp of hóf
í goðheim
Gauta spjalli
ættar ask,
þanns óx af mér,
ok kynvið
kvánar minnar.


Áttak gótt
við geirs dróttin,
gerðumk tryggr
at trúa hánum,
áðr vinan
vagna rúni,
sigrhöfundr,
of sleit við mik.


Blætka því
bróður Vílis
goðjaðar,
at gjarn séak,
þó hefr Míms vinr
mér of fengnar
bölva bætr,
ef et betra telk.


Göfumk íþrótt
ulfs of bági
vígi vanr
vammi firrða
ok þat geð,
es ek gerða mér
vísa fjandr
af vélöndum.


Nú erum torvelt:
Tveggja bága
njörva nipt
á nesi stendr;
skalt þá glaðr
með góðan vilja
ok óhryggr
heljar bíða.

Egill tók að hressast, svo sem fram leið að yrkja kvæðið, og er lokið var kvæðinu, þá færði hann það Ásgerði og Þorgerði og hjónum sínum; reis hann þá upp úr rekkju og settist í öndvegi; kvæði þetta kallaði hann Sonatorrek. Síðan lét Egill erfa sonu sína eftir fornri siðvenju. En er Þorgerður fór heim, þá leiddi Egill hana með gjöfum í brott.

Eg 97. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o262, v2199

Skj BI, 38:
Emk hraðkvæðr
hilmi at mæra,
en glapmáll
of gløggvinga,
opinspjallr
of jǫfurs dôðum,
en þagmælskr
of þjóðlygi.

Eg 98. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o264, v2210

Skj BI, 38:
Skaupi gnœgðr
skrǫkberǫndum,
emk vilkvæðr
of vini mína;
sótt hefk mǫrg
mildinga sjǫt
með grunlaust
grepps of œði.

Eg 99. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o265, v2217

Skj BI, 38:
Hafðak endr
ynglings burar,
ríks konungs,
reiði fengna;
drók djarfhǫtt
of døkkva skǫr,
létk hersi
heim of sóttan.

Eg 100. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o266, v2218

Skj BI, 38:
Þars allvaldr
und ýgs hjalmi,
ljóðfrǫmuðr,
at landi sat;
stýrði konungr
við stirðan hug
í Jórvík
úrgum - - -.

Eg 101. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o267, v2219

Skj BI, 38:
Vasa tunglskin
tryggt at líta
né ógnlaust
Eiríks bráa,
þás ormfránn
ennimáni
skein allvalds
œgigeislum.

Eg 102. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o268, v2220

Skj BI, 38:
Þó bólstrverð
of bera þorðak
maka hœings
markar drótni,
svát Yggs full
ýranda kom
at hvers manns
hlustamunnum.

Eg 103. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o269, v2221

Skj BI, 39:
Né hamfagrt
hǫlðum þótti
skaldfé mitt
at skata húsum,
þás ulfgrátt
við Yggjar miði
hattar staup
at hilmi þák.

Eg 104. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o270, v2222

Skj BI, 39:
Við því tók,
en tiru fylgðu
sǫkk sámleit
síðra brúna
ok sá muðr,
es mína bar
hǫfuðlausn
fyr hilmis kné.

Eg 105. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o271, v2223

Skj BI, 39:
Þar tannfjǫlð
með tungu þák
ok hlertjǫld
hlustum gǫfguð,
en sú gjǫf
golli betri
hróðugs konungs
of heitin vas.

Eg 106. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o272, v2200

Skj BI, 39:
Þar stóð mér
mǫrgum betri
hoddfinnǫndum
á hlið aðra
tryggr vinr minn,
sás trúa knáttak,
heiðþróaðr,
hverju ráði.

Eg 107. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o273, v2201

Skj BI, 39:
Arinbjǫrn,
es oss einn of hóf,
knía fremstr,
frá konungs fjónum,
vinr þjóðans,
es vætki ló
í herskás
hilmis garði.

Eg 108. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o274, v2202

Skj BI, 39:
Ok - - - -
- - stuðill lét,
margfrǫmuðr
minna dáða,
sem en - að - -
- - - Halfdanar
at í væri
ættar skaði.

Eg 109. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o275, v2203

Skj BI, 39-40:
Munk vinþjófr
verða heitinn
ok váljúgr
at Viðurs fulli,
hróðrs ørvirðr
ok heitrofi,
nema þess gagns
gjǫld of vinnak.

Eg 110. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o276, v2204

Skj BI, 40:
Nú's þat sét,
hvar setja skalk
bratt stiginn
of bragar fótum
fyr mannfjǫlð
margri sjónir
hróðr máttigs
hersa kundar.

Eg 111. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o277, v2205

Skj BI, 40:
Erum auðskœf
ómunlokri
magar Þóris
mærðar efni,
vinar míns,
þvít valið liggja
tvén ok þrén
á tungu mér.

Eg 112. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o278, v2206

Skj BI, 40:
Þat telk fyrst,
es flestr of veit
ok alþjóð
eyru sœkir,
hvé mildgeðr
mǫnnum þótti
bjóða-bjǫrn
birkis ótta.

Eg 113. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o279, v2207

Skj BI, 40:
Þat alls heri
at undri gefsk,
hvé urþjóð
auði gnœgir,
en Grjótbjǫrn
of gœddan hefr
Freyr of Njǫrðr
at féar afli.

Eg 114. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o280, v2208

Skj BI, 40:
En Hróalds
at hǫfuðbaðmi
auðs iðgnótt
at alnum sifjar (?)
se - - - semd (?)
af vegum ǫllum
á vindkers
víðum botni.

Eg 115. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o281, v2209

Skj BI, 40:
Hann drógseil
of - - - gat
sem hildingr
heyrnar spanna
goðum ávarðr
með gumna fjǫlð
vinr Véþorms
veklinga tøs (?).

Eg 116. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o282, v2211

Skj BI, 40:
Þat hann viðr,
es þrjóta mun
flesta menn,
þótt fé eigi,
kveðka skamt
meðal skata húsa
né auðskept
almanna spjǫr.

Eg 117. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o283, v2212

Skj BI, 41:
Gekk maðr engr
at Arinbjarnar
ór legvers
lǫngum knerri
háði leiddr
né heiptkviðum
með atgeirs
auðar toptir.

Eg 118. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o284, v2213

Skj BI, 41:
Hinn's fégrimmr,
es í Fjǫrðum býr,
sá's of-dolgr
Draupnis niðja,
sǫkunautr
of sona hvinna,
hringum hættr (?)
hoddvegandi.

Eg 119. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o285, v2214

Skj BI, 41:
Hann aldrteig
of eiga gat
fjǫl - - - -
of friðar spjǫllum
- - - - - -

Eg 120. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o286, v2215

Skj BI, 41:
Þat's órétt,
es orpit hefr
á máskeið
mǫrgu gagni,
ramriðin
Rǫkkva stóði,
vellvǫnuðr,
því's veitti mér.

Eg 121. (ch. 80)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o287, v2216

Skj BI, 41:
Vask árvakr,
bark orð saman
með málþjóns
morginverkum;
hlóðk lofkǫst
þann's lengi stendr
óbrotgjarn
í bragar túni.

80. kafli

Egill bjó að Borg langa ævi og varð maður gamall, en ekki er getið, að hann ætti málaferli við menn hér á landi; ekki er og sagt frá hólmgöngum hans eða vígaferlum, síðan er hann staðfestist hér á Íslandi.

Svo segja menn, að Egill færi ekki í brott af Íslandi, síðan er þetta var tíðinda, er nú var áður frá sagt, og bar það mest til þess, að Egill mátti ekki vera í Noregi af þeim sökum, sem fyrr var frá sagt, að konungar þóttust eiga við hann. Bú hafði hann rausnarsamlegt, því að fé skorti eigi; hann hafði og gott skaplyndi til þess.

Hákon konungur Aðalsteinsfóstri réð fyrir Noregi langa stund, en hinn efra hluta ævi hans, þá komu synir Eiríks til Noregs og deildu til ríkis í Noregi við Hákon konung, og áttu þeir orustu saman, og hafði Hákon jafnan sigur. Hina síðustu orustu áttu þeir á Hörðalandi, í Storð á Fitjum; þar fékk Hákon konungur sigur og þar með banasár; eftir það tóku þeir konungdóm í Noregi Eiríkssynir.

Arinbjörn hersir var með Haraldi Eiríkssyni og gerðist ráðgjafi hans og hafði af honum veislur stórlega miklar; var hann forstjóri fyrir liði og landvörn; Arinbjörn var hermaður mikill og sigursæll; hann hafði að veislum Fjarðafylki.

Egill Skalla-Grímsson spurði þessi tíðindi, að konungaskipti var orðið í Noregi, og það með, að Arinbjörn var þá kominn í Noreg til búa sinna og hann var þá í virðing mikilli. Þá orti Egill kvæði um Arinbjörn, og er þetta upphaf að:


Emk hraðkvæðr
hilmi at mæra,
en glapmáll
of glöggvinga,
opinspjallr
of jöfurs dáðum,
en þagmælskr
of þjóðlygi,


skaupi gnægðr
skrökberöndum,
emk vilkvæðr
of vini mína;
sótt hefk mörg
mildinga sjöt
með grunlaust
grepps of æði.


Hafðak endr
Ynglings burar,
ríks konungs,
reiði fengna;
drók djarfhött
of dökkva skör,
létk hersi
heim of sóttan,


þars allvaldr
und ýgs hjalmi,
ljóðfrömuðr,
at landi sat;
stýrði konungr
við stirðan hug
í Jórvík
úrgum ströndum.


Vasa þat tunglskin
tryggt at líta
né ógnlaust
Eiríks bráa,
þás ormfránn
ennimáni
skein allvalds
ægigeislum.


Þó bólstrverð
of bera þorðak
maka hæings
markar dróttni,
svát Yggs full
ýranda kom
at hvers manns
hlusta munnum.


Né hamfagrt
hölðum þótti
skaldfé mitt
at skata húsum,
þás ulfgrátt
við Yggjar miði
hattar staup
at hilmi þák.


Við því tók,
en tvau fylgðu
sökk sámleit
síðra brúna
ok sá muðr,
es mína bar
höfuðlausn
fyr hilmis kné.


Þars tannfjölð
með tungu þák
ok hlertjöld
hlustum göfguð,
en sú gjöf
golli betri
hróðugs konungs
of heitin vas.


Þar stóð mér
mörgum betri
hoddfíöndum
á hlið aðra
tryggr vinr minn,
sás trúa knáttak,
heiðþróaðr
hverju ráði.


Arinbjörn,
es oss einn of hóf,
knía fremstr,
frá konungs fjónum,
vinr þjóðans,
es vættki ló
í herskás
hilmis garði.


Ok .....
... stuðli lét
margfrömuðr
minna dáða,
sem en ... að ...
... Halfdanar
at í væri
ættar skaði.


Munk vinþjófr
verða heitinn
ok váljúgr
at Viðurs fulli,
hróðrs örverðr
ok heitrofi,
nema þess gagns
gjöld of vinnak.


Nú's þat sét,
hvars setja skal
bratt stiginn
bragar fótum
fyr mannfjölð,
margra sjónir,
hróðr máttigs
hersa kundar.


Erum auðskæf
ómunlokri
magar Þóris
mærðar efni,
vinar míns,
þvít valið liggja
tvenn ok þrenn
á tungu mér.


Þat telk fyrst,
es flestr of veit
ok alþjóð
eyru sækir,
hvé mildgeðr
mönnum þótti
bjóða björn
birkis ótta.


Þat allsheri
at undri gefsk,
hvé hann urþjóð
auði gnægir,
en grjót-björn
of gæddan hefr
Freyr ok Njörðr
at féar afli.


En Hróalds
at höfuðbaðmi
auðs iðgnótt
at ölnum sifjar,
sér vinreið
af vegum öllum
á vindkers
víðum botni.


Hann drógseil
of eiga gat
sem hildingr
heyrnar spanna,
goðum ávarðr
með gumna fjölð,
vinr Véþorms,
veklinga tös.


Þat hann viðr,
es þrjóta mun
flesta menn,
þótt fé eigi;
kveðka skammt
meðal skata húsa
né auðskept
almanna spjör.


Gekk maðr engi
at Arinbjarnar
ór legvers
löngum knerri
háði leiddr
né heiptkviðum
með atgeirs
auðar toptir.


Hinn's fégrimmr,
es í Fjörðum býr,
sá's of dolgr
Draupnis niðja,
en sökunautr
Sónar hvinna,
hringum hættr,
hoddvegandi.


Hann aldrteig
of eiga gat
fjölsáinn
með friðar spjöllum.
...


Þat's órétt,
ef orpit hefr
á máskeið
mörgu gagni,
ramriðin
Rökkva stóði,
vellvönuðr,
þvís veitti mér.


Vask árvakr,
bark orð saman
með málþjóns
morginverkum,
hlóðk lofköst
þanns lengi stendr
óbrotgjarn
í bragar túni.

Eg 122. (ch. 81)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o288, v2308

Skj BI, 51:
Bǫrðumk einn við átta,
en við ellifu tysvar,
svá fingum val vargi,
varðk einn bani þeira;
skiptumk hart af heiptum
hlífar skelfiknífum;
létk af emblu aski
eld valbasta kastat.

Eg 123. (ch. 81)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o289, v2309

Skj BI, 51-2:
Þverra nú, þeirs þverðu,
þingbirtingar Ingva,
(hvar skalk mildra manna)
máreitar dag (leita?),
þeir es hauks fyr handan
háfjǫll digulsnjávi
jarðar gjǫrð við orðum
eyneglða mér heglðu.

Eg 124. (ch. 81)
Einarr skálaglamm Helgason
SkP ids: o290, v2399

Skj BI, 124:
Gerðak veig of virða
vǫrð, þanns sitr at jǫrðu,
(iðrumk þess) meðan aðrir,
ǫrr Váfaðar, svôfu;
hykk at hodda støkkvi
(hinig sóttak gram) þótti
(fýsinn) frœknum vísa
ferri skald in verra.

Eg 125a. (ch. 81)
Einarr skálaglamm Helgason
SkP ids: o9445, v10076

Skj BI, 124:
Sœkjum jarl, þanns auka
ulfs verð þorir sverðum;
skipum borðróinn barða
baugskjǫldum Sigvalda;
drepr eigi svá sveigir
sárlinns, es gram finnum,
(rǫnd berum út á andra
Endils) við mér hendi.

Eg 125b. (ch. 81)
Einarr skálaglamm Helgason
SkP ids: o291, v2400

Skj BI, 124:
Sœkjum jarl, þanns auka
ulfs verð þorir sverðum;
skipum borðróinn barða
baugskjǫldum Sigvalda;
drepr eigi svá sveigir
sárlinns, es gram finnum,
(rǫnd berum út á andra
Endils) við mér hendi.

Eg 126. (ch. 81)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o292, v2247

Skj BI, 42:
Mál es lofs at lýsa
ljósgarð, es þák, barða,
mér kom heim at hendi
hoddsendis boð, enda;
skalat of grundar Gylfa
glaums misfengnir taumar,
hlýðið ér til orða,
erðgróins mér verða.

81. kafli

Einar hét maður; hann var sonur Helga Óttarssonar, Bjarnarsonar hins austræna, er nam lönd í Breiðafirði; Einar var bróðir Ósvífurs hins spaka. Einar var þegar á unga aldri mikill og sterkur og hinn mesti atgervimaður; hann tók að yrkja, þegar er hann var ungur, og var maður námgjarn.

Það var eitt sumar á alþingi, að Einar gekk til búðar Egils Skalla-Grímssonar, og tókust þeir að orðum, og kom þar brátt talinu, að þeir ræddu um skáldskap; þótti hvorumtveggja þær ræður skemmtilegar.

Síðan vandist Einar oftlega að ganga til tals við Egil; gerðist þar vinátta mikil. Einar hafði litlu áður komið út úr för. Egill spurði Einar mjög austan tíðinda og að vinum sínum, svo og að þeim, er hann þóttist vita, að óvinir hans voru; hann spurði og mjög eftir stórmenni. Einar spurði og í móti Egil að þeim tíðindum, er fyrr höfðu gerst um ferðir Egils og stórvirki hans, en það tal þótti Agli gott, og rættist af vel. Einar spurði Egil, hvar hann hefði þess verið staddur, að hann hafði mest reynt sig, og bað hann það segja sér. Egill kvað:


Börðumk einn við átta,
en við ellifu tysvar,
svá fengum val vargi,
varðk einn bani þeira;
skiptumsk hart af heiptum
hlífar skelfiknífum;
létk af Emblu aski
eld valbasta kastat.

Þeir Egill og Einar mæltu til vináttu með sér að skilnaði. Einar var löngum utanlendis með tignum mönnum; Einar var ör maður og oftast félítill, en skörungur mikill og drengur góður; hann var hirðmaður Hákonar jarls Sigurðarsonar.

Í þann tíma var í Noregi ófriður mikill og bardagar með þeim Hákoni jarli og Eiríkssonum, og stukku ýmsir úr landi. Haraldur konungur Eiríksson féll suður í Danmörk, að Hálsi í Limafirði, og var hann svikinn; þá barðist hann við Harald Knútsson, er kallaður var Gull-Haraldur, og þá Hákon jarl.

Þar féll og þá með Haraldi konungi Arinbjörn hersir, er fyrr var frá sagt. Og er Egill spurði fall Arinbjarnar, þá kvað hann:


Þverra nú, þeirs þverrðu,
þingbirtingar Ingva,
hvar skalk manna mildra,
mjaðveitar dag, leita,
þeira's hauks fyr handan
háfjöll digulsnjávi
jarðar gjörð við orðum
eyneglda mér hegldu.

Einar Helgason skáld var kallaður skálaglamm; hann orti drápu um Hákon jarl, er kölluð er Vellekla, og var það mjög lengi, að jarlinn vildi eigi hlýða kvæðinu, því að hann var reiður Einari. Þá kvað Einar:

Gerðak veig um virða
vörð, þanns sitr at jörðu,
iðrumk þess, meðan aðrir,
örr Váfaðar, sváfu;
hykk, at hodda stökkvi,
hinig sóttak gram, þótti,
fýsinn, fræknum vísa,
ferri, skald in verra.

Og enn kvað hann:


Sækjum jarl, þanns auka
ulfs verð þorir sverðum;
skipum borðróinn barða
baugskjöldum Sigvalda;
drepr eigi sá sveigir
sárlinns, es gram finnum,
rönd berum út á andra
Endils, við mér hendi.

Jarlinn vildi eigi, að Einar færi á brott, og hlýddi þá kvæðinu, og síðan gaf hann Einari skjöld, og var hann hin mesta gersemi; hann var skrifaður fornsögum, en allt milli skriftanna voru lagðar yfir spengur af gulli, og settur steinum. Einar fór til Íslands og til vistar með Ósvífi, bróður sínum.

En um haustið reið Einar vestan og kom til Borgar og gisti þar. Egill var þá eigi heima, og var hann farinn norður til héraða, og var hans þá heim von. Einar beið hans þrjár nætur, en það var engi siður að sitja lengur en þrjár nætur að kynni. Bjóst Einar þá í brott, og er hann var búinn, þá gekk hann til rúms Egils og festi þar upp skjöldinn þann hinn dýra og sagði heimamönnum, að hann gaf Agli skjöldinn.

Síðan reið Einar í brott, en þann sama dag kom Egill heim; en er hann kom inn til rúms síns, þá sá hann skjöldinn og spurði, hver gersemi þá ætti; honum var sagt, að Einar skálaglamm hafði þar komið og hann hafði gefið honum skjöldinn.

Þá mælti Egill: "Gefi hann allra manna armastur! Ætlar hann, að eg skyli þar vaka yfir og yrkja um skjöld hans? Nú takið hest minn. Skal eg ríða eftir honum og drepa hann."

Honum var þá sagt, að Einar hafði riðið snemma um morguninn -- "mun hann nú kominn vestur til Dala."

Síðan orti Egill drápu, og er þetta upphaf að:


Mál es lofs at lýsa
ljósgarð, es þák, barða,
mér kom heim at hendi
hoddsendis boð, enda;
skalat at grundar Gylfa
glaums misfengnir taumar,
hlýðið ér til orða,
erðgróins mér verða.

Egill og Einar héldu vináttu sinni, meðan þeir lifðu báðir. En svo er sagt, að færi skjöldurinn um síðir, að Egill hafði hann með sér í brúðför þá, er hann fór norður á Víðimýri með Þorkatli Gunnvaldssyni og þeir Rauða-Bjarnarsynir, Trefill og Helgi; þá var spillt skildinum og kastað í sýruker; en síðan lét Egill taka af búnaðinn, og voru tólf aurar gulls í spöngunum.

Eg 127. (ch. 82)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o293, v2310

Skj BI, 52:
Ákkak erfinytja
arfa mér til þarfan,
mik hefr sonr of svikvinn
(svik telk í því) kvikvan;
vel mátti þess vatna
viggríðandi bíða,
es hafskíða hlœði
hljótendr of mik grjóti.

Eg 128. (ch. 82)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o294, v2224

Skj BI, 42:
Heyri fúss á forsa
fallhadds vinar stalla,
hyggi, þegn, til þagnar
þinn lýðr, konungs mína,
opt skal arnar kjapta
ǫrð góð of trǫð Hǫrða,
hrafnstýrandi hræra
hregna, mín of fregnask.

82. kafli

Þorsteinn, sonur Egils, þá er hann óx upp, var allra manna fríðastur sýnum, hvítur á hár og bjartur álitum; hann var mikill og sterkur, og þó ekki eftir því sem faðir hans. Þorsteinn var vitur maður og kyrrlátur, hógvær, stilltur manna best; Egill unni honum lítið; Þorsteinn var og ekki við hann ástúðugur, en þau Ásgerður og Þorsteinn unnust mikið. Egill tók þá að eldast mjög.

Það var eitthvert sumar, er Þorsteinn reið til alþingis, en Egill sat þá heima; en áður Þorsteinn færi heiman, stilltu þau Ásgerður um og tóku úr kistu Egils silkislæður, Arinbjarnarnauta, og hafði Þorsteinn til þings. Og er hann hafði á þinginu, þá voru honum dragsíðar og urðu saurgar neðan, þá er þeir voru í Lögbergsgöngu. Og er hann kom heim, þá hirti Ásgerður slæðurnar, þar sem áður voru; en mjög miklu síðar, þá er Egill lauk upp kistu sína, þá fann hann, að spillt var slæðunum, og leitaði þá máls um við Ásgerði, hverju það gegndi; hún sagði þá hið sanna til. Þá kvað Egill:


Áttak erfinytja,
arfa mér til þarfan,
mik hefr sonr of svikvinn,
svik telk í því, kvikvan;
vel mátti þess vatna
viggríðandi bíða,
es hafskíða hlæði
hljótendr of mik grjóti.

Þorsteinn fékk Jófríðar, dóttur Gunnars Hlífarsonar; móðir hennar var Helga, dóttir Ólafs feilans, systir Þórðar gellis; Jófríði hafði átt fyrr Þóroddur, sonur Tungu-Odds.

Litlu eftir þetta andaðist Ásgerður. Eftir það brá Egill búi og seldi í hendur Þorsteini, en Egill fór þá suður til Mosfells til Gríms, mágs síns, því að hann unni mest Þórdísi, stjúpdóttur sinni, þeirra manna, er þá voru á lífi.

Það var eitt sumar, að skip kom út í Leiruvogi, og stýrði sá maður, er Þormóður hét; hann var norrænn og húskarl Þorsteins Þórusonar; hann hafði með að fara skjöld, er Þorsteinn hafði sent Agli Skalla-Grímssyni, og var það ágætagripur. Þormóður færði Agli skjöldinn, en hann tók við þakksamlega; eftir um veturinn orti Egill drápu um skjaldargjöfina, er kölluð er Berudrápa, og er þetta upphaf að:


Heyri fúrs á forsa
fallhadds vinar stalla,
hyggi, þegn, til þagnar
þínn lýðr, konungs, mína;
opt skal arnar kjapta
örð góð of tröð Hörða,
hrafnstýrandi hræra
hregna, mín of fregnask.

Þorsteinn Egilsson bjó að Borg; hann átti tvo laungetna sonu, Hriflu og Hrafn, en síðan hann kvongaðist, áttu þau Jófríður tíu börn; Helga hin fagra var þeirra dóttir, er þeir deildu um Skáld-Hrafn og Gunnlaugur ormstunga. Grímur var elstur sona þeirra, annar Skúli, þriðji Þorgeir, fjórði Kollsveinn, fimmti Hjörleifur, sjötti Halli, sjöundi Egill, átti Þórður; Þóra hét dóttir þeirra, er átti Þormóður Kleppjárnsson. Frá börnum Þorsteins er komin kynslóð mikil og margt stórmenni; það er kallað Mýramannakyn, allt það, er frá Skalla-Grími er komið.

Eg 129. (ch. 87)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o295, v2311

Skj BI, 52:
Spanðak jǫrð með orðum
endr Steinari ór hendi,
ek þóttumk þá orka
arfa Geirs til þarfar;
mér brásk minnar systur
mǫgr, hétumk þá fǫgru,
máttit bǫls of bindask
Blundr, ek slíkt of undrumk.

87. kafli

Þorgeir er maður nefndur; hann var frændi Þorsteins og hinn mesti vinur; hann bjó í þenna tíma á Álftanesi; Þorgeir var vanur að hafa haustboð hvert haust. Þorgeir fór til fundar við Þorstein Egilsson og bauð honum til sín; Þorsteinn hét ferðinni, og fór Þorgeir heim.

En að ákveðnum degi bjóst Þorsteinn til farar, og voru þá fjórar vikur til vetrar; með Þorsteini fór Austmaður hans og húskarlar hans tveir. Grímur hét sonur Þorsteins; hann var þá tíu vetra og fór og með Þorsteini, og voru þeir fimm saman og riðu út til foss og þar yfir Langá, síðan út, sem leið lá, til Aurriðaár.

En fyrir utan ána var Steinar á verki og Önundur og húskarlar þeirra; og er þeir kenndu Þorstein, þá hljópu þeir til vopna sinna og síðan eftir þeim Þorsteini. Og er Þorsteinn sá eftirför Steinars, þá riðu þeir út af Langaholti; þar er hóll einn hár og óvíður; þar stíga þeir Þorsteinn af hestunum og sækja upp á hólinn. Þorsteinn mælti, að sveinninn Grímur skyldi fara í skóginn og verða eigi við staddur fundinn. Og þegar er þeir Steinar koma að hólnum, þá sækja þeir að þeim Þorsteini, og varð þar bardagi; þeir Steinar voru sex saman vaxnir menn, en hinn sjöundi sonur Steinars tíu vetra gamall. Þenna fund sáu þeir menn, er voru á engiteigum af öðrum bæjum, og runnu til að skilja þá. Og er þeir voru skildir, þá voru látnir húskarlar Þorsteins báðir; fallinn var og einn húskarl Steinars, en sárir sumir.

Og er þeir voru skildir, leitar Þorsteinn að, hvar Grímur var, og finna þeir hann; var Grímur þá sár mjög, og sonur Steinars lá þar hjá honum dauður.

Og er Þorsteinn hljóp á hest sinn, þá kallaði Steinar á hann og mælti: "Rennur þú nú, Þorsteinn hvíti?" segir hann.

Þorsteinn segir: "Lengra skaltu renna, áður vika sé liðin."

Síðan riðu þeir Þorsteinn út yfir mýrina og höfðu með sér sveininn Grím; og er þeir komu út í holt það, er þar verður, þá andast sveinninn, og grófu þeir hann þar í holtið, og er það kallað Grímsholt, en þar heitir Orustuhvoll, sem þeir börðust.

Þorsteinn reið á Álftanes um kveldið, sem hann hafði ætlað, og sat þar að boði þrjár nætur, en síðan bjóst hann til heimferðar; menn buðust til að fara með honum, en hann vildi eigi; riðu þeir tveir saman.

Og þann sama dag, er Steinar vissi von, að Þorsteinn myndi heim ríða, þá reið Steinar út með sjó. Og er hann kom á mela þá, er verða fyrir neðan Lambastaði, þá settist hann þar á melinn; hann hafði sverð það, er Skrýmir hét, allra vopna best; hann stóð þar á melnum með sverðið brugðið og horfði þá á einn veg, því að hann sá þá reið Þorsteins utan um sandinn.

Lambi bjó á Lambastöðum og sá, hvað Steinar hafðist að; hann gekk heiman og ofan á bakkann, og er hann kom að Steinari, þá greip hann aftan undir hendur honum. Steinar vildi slíta hann af sér. Lambi hélt fast, og fara þeir nú af melunum á sléttuna, en þá ríða þeir Þorsteinn hið neðra götuna. Steinar hafði riðið stóðhesti sínum, og hljóp hann inn með sjó; það sáu þeir Þorsteinn og undruðust, því að þeir höfðu ekki varir orðið við för Steinars. Þá þveraðist Steinar fram á bakkann, því að hann sá eigi, að Þorsteinn hefði um riðið. Og er þeir komu á bakkann framanverðan, þá hratt Lambi honum fyrir melinn ofan, en það varaðist Steinar ekki; hann rasaði ofan á sandinn, en Lambi hljóp heim. Og er Steinar komst á fætur, þá rann hann eftir Lamba; en er Lambi kom að dyrum, þá hljóp hann inn, en rak aftur hurðina. Steinar hjó eftir honum, svo að sverðið stóð fast í vindskeiðunum; skildust þeir þar; gekk Steinar heim.

En er Þorsteinn kom heim, þá sendi hann um daginn eftir húskarl sinn út til Leirulækjar að segja Steinari, að hann færði bústað sinn um Borgarhraun, en að öðrum kosti myndi hann njóta þess við Steinar, ef hann ætti fleira mannaforráð -- "og mun þá eigi kostur brottferðar."

En Steinar bjó ferð sína út á Snæfellsströnd, og þar setti hann bú saman, er heitir að Elliða, og lýkur þar viðskiptum þeirra Þorsteins Egilssonar.

Þorgeir blundur bjó að Ánabrekku; hann veitti Þorsteini illar búsifjar í öllu því, er hann mátti.

Það var eitt sinn, er þeir hittust Egill og Þorsteinn, að þeir ræddu margt um Þorgeir blund, frænda sinn, og komu allar ræður ásamt með þeim. Þá kvað Egill:

Spanðak jörð með orðum;
endr Steinari ór hendi;
ek þóttumk þá orka
arfa Geirs til þarfar;
mér brásk minnar systur
mögr; hétumk þá fögru;
máttit böls of bindask
Blundr, ek slíkt of undrumk.

Þorgeir blundur fór í brott frá Ánabrekku og fór suður í Flókadal, því að Þorsteinn þóttist ekki mega við hann eiga, en hann vildi þó vægjast þar við.

Þorsteinn var maður órefjusamur og réttlátur og óáleitinn við menn, en hélt hlut sínum, ef aðrir menn leituðu á hann, enda veitti það heldur þungt flestum að etja kappi við hann.

Oddur var þá höfðingi í Borgarfirði fyrir sunnan Hvítá; hann var hofsgoði og réð fyrir hofi því, er allir menn guldu hoftoll til fyrir innan Skarðsheiði.

Eg 130. (ch. 88)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o296, v2312

Skj BI, 52:
Vals hefk vôfur helsis,
váfallr em ek skalla,
blautr erum bergifótar
borr, en hlust es þorrin.

Eg 131. (ch. 88)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o297, v2313

Skj BI, 52:
Hvarfak blindr of branda,
biðk eirar Syn geira
þanns berk harm á hvarma
hnitvǫlum mér sitja,
es jarðgǫfugr orðum
orð mín konungr forðum
hafði grams at gamni
geirs Hamðis mik framði.

Eg 132. (ch. 88)
Egill Skallagrímsson
SkP ids: o298, v2314

Skj BI, 52-3:
Langt þykki mér,
ligg einn saman
karl afgamall
firr konungs vǫrnum,
eigum ekkjur
allkaldar tvær,
en þær konur
þurfa blossa.

88. kafli

Egill Skalla-Grímsson varð maður gamall, en í elli hans gerðist hann þungfær, og glapnaði honum bæði heyrn og sýn; hann gerðist og fótstirður. Egill var þá að Mosfelli með Grími og Þórdísi.

Það var einn dag, er Egill gekk úti með vegg og drap fæti og féll; konur nokkurar sáu það og hlógu að og mæltu: "Farinn ertu nú, Egill, með öllu, er þú fellur einn saman."

Þá segir Grímur bóndi: "Miður hæddu konur að okkur, þá er við vorum yngri."

Þá kvað Egill:


Vals hefk váfur helsis;
váfallr em ek skalla;
blautr erum bergis fótar
borr, en hlust es þorrin.

Egill varð með öllu sjónlaus. Það var einnhvern dag, er veður var kalt um veturinn, að Egill fór til elds að verma sig; matseljan ræddi um, að það var undur mikið, slíkur maður sem Egill hafði verið, að hann skyldi liggja fyrir fótum þeim, svo að þær mættu eigi vinna verk sín.

"Ver þú vel við," segir Egill, "þótt eg bakist við eldinn, og mýkjumst vér við um rúmin."

"Statt þú upp," segir hún, "og gakk til rúms þíns og lát oss vinna verk vor."

Egill stóð upp og gekk til rúms síns og kvað:


Hvarfak blindr of branda,
biðk eirar Syn geira,
þann berk harm á hvarma
hnitvöllum mér, sitja;
es jarðgöfugr orðum,
orð mín konungr forðum
hafði gramr at gamni,
Geirhamðis mik framði.

Það var enn eitt sinn, er Egill gekk til elds að verma sig, þá spurði maður hann, hvort honum væri kalt á fótum, og bað hann eigi rétta of nær eldinum.

"Svo skal vera," segir Egill, "en eigi verður mér nú hógstýrt fótunum, er eg sé eigi, og er of dauflegt sjónleysið."

Þá kvað Egill:


Langt þykki mér,
ligg einn saman,
karl afgamall,
á konungs vörnum;
eigum ekkjur
allkaldar tvær,
en þær konur
þurfu blossa.

Það var á dögum Hákonar hins ríka öndverðum, þá var Egill Skalla-Grímsson á níunda tugi, og var hann þá hress maður fyrir annars sakar en sjónleysis.

Það var um sumarið, er menn bjuggust til þings, þá beiddi Egill Grím að ríða til þings með honum; Grímur tók því seinlega.

Og er þau Grímur og Þórdís töluðust við, þá sagði Grímur henni, hvers Egill hafði beitt; "vil eg, að þú forvitnist, hvað undir mun búa bæn þessi."

Þórdís gekk til máls við Egil, frænda sinn; var þá mest gaman Egils að ræða við hana; og er hún hitti hann, þá spurði hún: "Er það satt, frændi, er þú vilt til þings ríða? Vildi eg, að þú segðir mér, hvað væri í ráðagerð þinni."

"Eg skal segja þér," kvað hann, "hvað eg hefi hugsað. eg ætla að hafa til þings með mér kistur þær tvær, er Aðalsteinn konungur gaf mér, er hvortveggja er full af ensku silfri. Ætla eg að láta bera kisturnar til Lögbergs, þá er þar er fjölmennast; síðan ætla eg að sá silfrinu, og þykir mér undarlegt, ef allir skipta vel sín í milli; ætla eg, að þar myndi vera þá hrundningar, eða pústrar, eða bærist að um síðir, að allur þingheimurinn berðist."

Þórdís segir: "Þetta þykir mér þjóðráð, og mun uppi, meðan landið er byggt."

Síðan gekk Þórdís til tals við Grím og sagði honum ráðagerð Egils.

"Það skal aldri verða, að hann komi þessu fram, svo miklum firnum."

Og er Egill kom á ræður við Grím um þingferðina, þá taldi Grímur það allt af, og sat Egill heima um þingið; eigi líkaði honum það vel; var hann heldur ófrýnn.

Að Mosfelli var höfð selför, og var Þórdís í seli um þingið.

Það var eitt kveld, þá er menn bjuggust til rekkna að Mosfelli, að Egill kallaði til sín þræla tvo, er Grímur átti; hann bað þá taka sér hest -- "vil eg fara til laugar."

Og er Egill var búinn, gekk hann út og hafði með sér silfurkistur sínar; hann steig á hest, fór síðan ofan eftir túninu fyrir brekku þá, er þar verður, er menn sáu síðast.

En um morguninn, er menn risu upp, þá sáu þeir, að Egill hvarflaði á holtinu fyrir austan garð og leiddi eftir sér hestinn; fara þeir þá til hans og fluttu hann heim.

En hvorki kom aftur síðan þrælarnir né kisturnar, og eru þar margar gátur á, hvar Egill hafi fólgið fé sitt. Fyrir austan garð að Mosfelli gengur gil ofan úr fjalli; en það hefir orðið þar til merkja, að í bráðaþeyjum er þar vatnfall mikið, en eftir það er vötnin hafa fram fallið, hafa fundist í gilinu enskir peningar; geta sumir menn þess, að Egill muni þar féð hafa fólgið. Fyrir neðan tún að Mosfelli eru fen stór og furðulega djúp; hafa það margir fyrir satt, að Egill muni þar hafa kastað í fé sínu. Fyrir sunnan ána eru laugar og þar skammt frá jarðholur stórar, og geta þess sumir, að Egill mundi þar hafa fólgið fé sitt, því að þangað er oftlega sénn haugaeldur. Egill sagði, að hann hefði drepið þræla Gríms, og svo það, að hann hafði fé sitt fólgið, en það sagði hann engum manni, hvar hann hefði fólgið.

Egill tók sótt eftir um haustið, þá er hann leiddi til bana. En er hann var andaður, þá lét Grímur færa Egil í klæði góð; síðan lét hann flytja hann ofan í Tjaldanes og gera þar haug, og var Egill þar í lagður og vopn hans og klæði.

1. kafli

Úlfur hét maður, sonur Bjálfa og Hallberu, dóttur Úlfs hins óarga. Hún var systir Hallbjarnar hálftrölls í Hrafnistu, föður Ketils hængs. Úlfur var maður svo mikill og sterkur, að eigi voru hans jafningjar, en er hann var á unga aldri, lá hann í víkingu og herjaði. Með honum var í félagsskap sá maður, er kallaður var Berðlu-Kári, göfugur maður og hinn mesti afreksmaður að afli og áræði; hann var berserkur. Þeir Úlfur áttu einn sjóð báðir, og var með þeim hin kærsta vinátta.

En er þeir réðust úr hernaði, fór Kári til bús síns í Berðlu; hann var maður stórauðugur. Kári átti þrjú börn; hét sonur hans Eyvindur lambi, annar Ölvir hnúfa; dóttir hans hét Salbjörg; hún var kvenna vænst og skörungur mikill; hennar fékk Úlfur; fór hann þá og til búa sinna. Úlfur var maður auðugur bæði að löndum og lausum aurum; hann tók lends manns rétt, svo sem haft höfðu langfeðgar hans, og gerðist maður ríkur.

Svo er sagt, að Úlfur var búsýslumaður mikill. Var það siður hans að rísa upp árdegis og ganga þá um sýslur manna eða þar er smiðir voru og sjá yfir fénað sinn og akra, en stundum var hann á tali við menn, þá er ráða hans þurftu. Kunni hann til alls góð ráð að leggja, því að hann var forvitri. En dag hvern, er að kveldi leið, þá gerðist hann styggur, svo að fáir menn máttu orðum við hann koma; var hann kveldsvæfur. Það var mál manna, að hann væri mjög hamrammur; hann var kallaður Kveld-Úlfur.

Þau Kveld-Úlfur áttu tvo sonu; hét hinn eldri Þórólfur, en hinn yngri Grímur. En er þeir óxu upp, þá voru þeir báðir miklir menn og sterkir, svo sem faðir þeirra var. Var Þórólfur manna vænstur og gjörvilegastur; hann var líkur móðurfrændum sínum, gleðimaður mikill, ör og ákafamaður mikill í öllu og hinn mesti kappsmaður; var hann vinsæll af öllum mönnum. Grímur var svartur maður og ljótur, líkur föður sínum, bæði yfirlits og að skaplyndi; gerðist hann umsýslumaður mikill; hann var hagur maður á tré og járn og gerðist hinn mesti smiður; hann fór og oft um vetrum í síldfiski með lagnarskútu og með honum húskarlar margir.

En er Þórólfur var á tvítugs aldri, þá bjóst hann í hernað. Fékk Kveld-Úlfur honum langskip. Til þeirrar ferðar réðust synir Berðlu-Kára, Eyvindur og Ölvir, - þeir höfðu lið mikið og annað langskip, - og fóru um sumarið í víking og öfluðu sér fjár og höfðu hlutskipti mikið. Það var nokkur sumur, er þeir lágu í víking, en voru heima um vetrum með feðrum sínum. Hafði Þórólfur heim marga dýrgripi og færði föður sínum og móður. Var þá bæði gott til fjár og mannvirðingar. Kveld-Úlfur var þá mjög á efra aldri, en synir hans voru rosknir.

2. kafli

Auðbjörn hét þá konungur yfir Firðafylki. Hróaldur hét jarl hans, en Þórir sonur jarlsins.

Þá var Atli hinn mjói jarl; hann bjó á Gaulum. Hans börn voru þau Hallsteinn, Hólmsteinn, Hersteinn og Sólveig hin fagra.

Það var á einu hausti, að fjölmennt var á Gaulum að haustblóti. Þá sá Ölvir hnúfa Sólveigu og gerði sér um títt; síðan bað hann hennar, en jarlinum þótti manna munur og vildi eigi gifta hana. Síðan orti Ölvir mörg mansöngskvæði um hana. Svo mikið gerði Ölvir sér um Sólveigu, að hann lét af herförum, og voru þá í herförum Þórólfur og Eyvindur lambi.

3. kafli

Haraldur, sonur Hálfdanar svarta, hafði tekið arf eftir föður sinn í Vík austur; hann hafði þess heit strengt að láta eigi skera hár sitt né kemba, fyrr en hann væri einvaldskonungur yfir Noregi; hann var kallaður Haraldur lúfa. Síðan barðist hann við þá konunga, er næstir voru, og sigraði þá, og eru þar langar frásagnir; síðan eignaðist hann Upplönd. Þaðan fór hann norður í Þrándheim og átti þar margar orustur, áður hann yrði einvaldi yfir öllum Þrændalögum.

Síðan ætlaðist hann að fara norður í Naumudal á hendur þeim bræðrum, Herlaugi og Hrollaugi, er þá voru konungar yfir Naumudal. En er þeir bræður spurðu til ferðar hans, þá gekk Herlaugur í haug þann með tólfta mann, er áður höfðu þeir gera látið þrjá vetur. Var síðan haugurinn aftur lokinn. En Hrollaugur konungur veltist úr konungdómi og tók upp jarls rétt og fór síðan á vald Haralds konungs og gaf upp ríki sitt. Svo eignaðist Haraldur konungur Naumdælafylki og Hálogaland; setti hann þar menn yfir ríki sitt.

Síðan bjóst Haraldur konungur úr Þrándheimi með skipaliði og fór suður á Mæri, átti þar orustu við Húnþjóf konung og hafði sigur; féll þar Húnþjófur. Þá eignaðist Haraldur konungur Norðmæri og Raumsdal.

En Sölvi klofi, sonur Húnþjófs, hafði undan komist, og fór hann á Sunnmæri til Arnviðar konungs og bað hann sér fulltings og sagði svo:

"Þótt þetta vandræði hafi nú borið oss að hendi, þá mun eigi langt til, að sama vandræði mun til yðvar koma, því að Haraldur, ætla eg, að skjótt mun hér koma, þá er hann hefir alla menn þrælkað og áþjáð, sem hann vill, á Norðmæri og í Raumsdal. Munuð þér hinn sama kost fyrir höndum eiga, sem vér áttum, að verja fé yðvar og frelsi og kosta þar til allra þeirra manna, er yður er liðs að von, og vil eg bjóðast til með mínu liði móti þessum ofsa og ójafnaði; en að öðrum kosti munuð þér vilja taka upp það ráð, sem Naumdælir gerðu, að ganga með sjálfvilja í ánauð og gerast þrælar Haralds. Það þótti föður mínum vegur að deyja í konungdómi með sæmd heldur en gerast undirmaður annars konungs á gamals aldri. Hygg eg, að þér muni og svo þykja og öðrum þeim, er nokkurir eru borði og kappsmenn vilja vera."

Af slíkum fortölum var konungurinn fastráðinn til þess að safna liði og verja land sitt. Bundu þeir Sölvi þá samlag sitt og sendu orð Auðbirni konungi, er réð fyrir Firðafylki, að hann skyldi koma til liðs við þá. En er sendimenn komu til Auðbjarnar konungs og báru honum þessa orðsending, þá réðst hann um við vini sína, og réðu honum það allir að safna liði og fara til móts við Mæri, sem honum voru orð til send. Auðbjörn konungur lét skera upp herör og fara herboð um allt ríki sitt; hann sendi menn til ríkismanna að boða þeim til sín.

En er sendimenn konungs komu til Kveld-Úlfs og sögðu honum sín erindi og það, að konungur vill, að Kveld-Úlfur komi til hans með alla húskarla sína, Kveld-Úlfur svarar svo:

"Það mun konungi skylt þykja, að eg fari með honum, ef hann skal verja land sitt og sé herjað í Firðafylki; en hitt ætla eg mér allóskylt að fara norður á Mæri og berjast þar og verja land þeirra. Er yður það skjótast að segja, þá er þér hittið konung yðvarn, að Kveld-Úlfur mun heima sitja um þetta herhlaup og hann mun eigi herliði safna og eigi gera sína þá heimanferð að berjast móti Haraldi lúfu, því að eg hygg, að hann hafi þar byrði nóga hamingju, er kon-ungur vor hafi eigi krepping fullan."

Fóru sendimenn heim til konungs og sögðu honum erindislok sín, en Kveld-Úlfur sat heima að búm sínum.

4. kafli

Auðbjörn konungur fór með lið sitt, það er honum fylgdi, norður á Mæri og hitti þar Arnvið konung og Sölva klofa, og höfðu þeir allir saman her mikinn. Haraldur konungur var þá og norðan kominn með sínu liði, og varð fundur þeirra fyrir innan Sólskel; var þar orusta mikil og mannfall mikið í hvorratveggju liði. Þar féllu úr Haralds liði jarlar tveir, Ásgautur og Ásbjörn, og tveir synir Hákonar Hlaðajarls, Grjótgarður og Herlaugur, og margt annað stórmenni, en af liði Mæra Arnviður konungur og Auðbjörn konungur. En Sölvi klofi komst undan á flótta og var síðan víkingur mikill og gerði oft skaða mikinn á ríki Haralds konungs og var kallaður Sölvi klofi. Eftir það lagði Haraldur konungur undir sig Sunnmæri.

Vémundur, bróðir Auðbjarnar konungs, hélt Firðafylki og gerðist þar konungur yfir. Þetta var síð um haustið, og gerðu menn það ráð með Haraldi konungi, að hann skyldi eigi fara suður um Stað á haustdegi. Þá setti Haraldur konungur Rögnvald jarl yfir Mæri hvoratveggju og Raumsdal og sneri norður aftur til Þrándheims og hafði um sig mikið fjölmenni.

Það sama haust veittu synir Atla heimför að Ölvi hnúfu og vildu drepa hann. Þeir höfðu lið svo mikið, að Ölvir hafði enga viðstöðu og komst með hlaupi undan. Fór hann þá norður á Mæri og hitti þar Harald konung, og gekk Ölvir til handa honum og fór norður til Þrándheims með konungi um haustið, og komst hann í hina mestu kærleika við konung og var með honum lengi síðan og gerðist skáld hans.

Þann vetur fór Rögnvaldur jarl hið innra um Eiðsjó suður í Fjörðu og hafði njósnir af ferðum Vémundar konungs og kom um nótt, þar sem heitir Naustdalur, og var Vémundur þar á veislu. Tók þar Rögnvaldur jarl hús á þeim og brenndi konunginn inni með níu tigum manna. Eftir það kom Berðlu- Kári til Rögnvalds jarls með langskip alskipað, og fóru þeir báðir norður á Mæri. Tók Rögnvaldur skip þau, er átt hafði Vémundur konungur, og allt það lausafé, er hann fékk. Berðlu-Kári fór þá norður til Þrándheims á fund Haralds konungs og gerðist hans maður.

Um vorið eftir fór Haraldur konungur suður með landi með skipaher og lagði undir sig Fjörðu og Fjalir og skipaði þar til ríkis mönnum sínum; hann setti Hróald jarl yfir Firðafylki.

Haraldur konungur var mjög gjörhugall, þá er hann hafði eignast þau fylki, er nýkomin voru í vald hans, um lenda menn og ríka búendur og alla þá, er honum var grunur á, að nokkurrar uppreistar var af von, þá lét hann hvern gera annað hvort, að gerast hans þjónustumenn eða fara af landi á brott, en að þriðja kosti sæta afarkostum eða láta lífið, en sumir voru hamlaðir að höndum eða fótum. Haraldur konungur eignaðist í hverju fylki óðul öll og allt land, byggt og óbyggt, og jafnvel sjóinn og vötnin, og skyldu allir búendur vera hans leiglendingar, svo þeir, er á mörkina ortu, og saltkarlarnir og allir veiðimenn, bæði á sjó og landi, þá voru allir þeir honum lýðskyldir.

En af þessari áþján flýðu margir menn af landi á brott, og byggðust þá margar auðnir víða, bæði austur í Jamtaland og Helsingjaland og Vesturlönd, Suðureyjar, Dyflinnar skíði, Írland, Norðmandí á Vallandi, Katanes á Skotlandi, Orkneyjar og Hjaltland, Færeyjar. Og í þann tíma fannst Ísland.

5. kafli

Haraldur konungur lá með her sinn í Fjörðum; hann sendi menn þar um land á fund þeirra manna, er eigi höfðu komið til hans, er hann þóttist erindi við eiga.

Konungs sendimenn komu til Kveld-Úlfs og fengu þar góðar viðtökur; þeir báru upp erindi sín, sögðu að konungur vildi, að Kveld-Úlfur kæmi á fund hans. "Hann hefir," sögðu þeir, "spurn af, að þú ert göfugur maður og stórættaður; muntu eiga kost af honum virðingar mikillar; er konungi mikið kapp á því að hafa með sér þá menn, að hann spyr, að afreksmenn eru að afli og hreysti."

Kveld-Úlfur svarar, sagði, að hann var þá gamall, svo að hann var þá ekki til fær að vera úti á herskipum. "Mun eg nú heima sitja og láta af að þjóna konungum."

Þá mælti sendimaður: "Láttu þá fara son þinn til konungs; hann er maður mikill og garplegur. Mun konungur gera þig lendan mann, ef þú vilt þjóna honum."

"Ekki vil eg," sagði Grímur, "gerast lendur maður, meðan faðir minn lifir, því að hann skal vera yfirmaður minn, meðan hann lifir."

Sendimenn fóru í brott, en er þeir komu til konungs, sögðu þeir honum allt það, er Kveld-Úlfur hafði rætt fyrir þeim. Konungur varð við styggur og mælti um nokkurum orðum, sagði, að þeir myndu vera menn stórlátir, eða hvað þeir myndu fyrir ætlast.

Ölvir hnúfa var þá nær staddur og bað konung vera eigi reiðan. "Eg mun fara á fund Kveld-Úlfs, og mun hann vilja fara á fund yðvarn, þegar er hann veit, að yður þykir máli skipta."

Síðan fór Ölvir á fund Kveld-Úlfs og sagði honum, að konungur var reiður og eigi myndi duga, nema annar hvor þeirra feðga færi til konungs, og sagði, að þeir myndu fá virðing mikla af konungi, ef þeir vildu hann þýðast, sagði frá mikið, sem satt var, að konungur var góður mönnum sínum, bæði til fjár og metnaðar.

Kveld-Úlfur sagði, að það var hans hugboð - "að vér feðgar munum ekki bera gæfu til þessa konungs, og mun eg ekki fara á fund hans; en ef Þórólfur kemur heim í sumar, þá mun hann auðbeðinn þessar farar og svo að gerast konungs maður. Segðu svo konungi, að eg mun vera vinur hans og alla menn, þá er að mínum orðum láta, halda til vináttu við hann. eg mun og halda hinu sama um stjórn og umboð af hans hendi sem áður hafði eg af fyrra konungi, ef konungur vill, að svo sé, og enn síðar sjá, hversu semst með oss konungi."

Síðan fór Ölvir aftur til konungs og sagði honum, að Kveld-Úlfur myndi senda honum son sinn, og sagði, að sá var betur til fallinn, er þá var eigi heima. Lét konungur þá vera kyrrt; fór hann þá um sumarið inn í Sogn, en er haustaði, bjóst hann að fara norður til Þrándheims.

6. kafli

Þórólfur Kveld-Úlfsson og Eyvindur lambi komu um haustið heim úr víking. Fór Þórólfur til föður síns.

Taka þeir feðgar þá tal sín í milli; spyr Þórólfur eftir, hvað verið hefir í erindum þeirra manna, er Haraldur sendi þangað. Kveld-Úlfur sagði, að konungur hafði til þess orð sent, að Kveld-Úlfur skyldi gerast maður hans eða sonur hans annar hvor.

"Hvernig svaraðir þú?" kvað Þórólfur.

"Eg sagði svo sem mér var í hug, að eg myndi aldrei ganga á hönd Haraldi konungi, og svo mynduð þið gera báðir, ef eg skyldi ráða. Ætla eg, að þær lyktir muni á verða, að vér munum aldurtila hljóta af þeim konungi."

"Þá verður allmjög á annan veg," sagði Þórólfur, "en mér segir hugur um, því að eg ætla mig skulu af honum hljóta hinn mesta frama, og til þess er eg fastráðinn að fara á fund konungs og gerast hans maður, og það hefi eg sannspurt, að hirð hans er skipuð afreksmönnum einum. Þykir mér það allfýsilegt að koma í þeirra sveit, ef þeir vilja við mér taka. Eru þeir menn haldnir miklu betur en allir aðrir í þessu landi. Er mér svo frá sagt konungi, að hann sé hinn mildasti af fégjöfum við menn sína og eigi síður þess ör að gefa þeim framgang og veita ríki þeim, er honum þykja til þess fallnir. En mér spyrst á þann veg til um alla þá, er bakverpast vilja við honum og þýðast eigi hann með vináttu, sem allir verði ekki að manna; stökkva sumir af landi á brott, en sumir gerast leigumenn. Þykir mér það undarlegt, faðir, um svo vitran mann sem þú ert og metnaðargjarnan, er þú vildir eigi með þökkum taka vegs emd þá, er konungur bauð þér. En ef þú þykist vera forspár um það, að vér munum hljóta af konungi þessum ófarnað og hann muni vilja vera vor óvinur, hví fórstu eigi þá til orustu í móti honum með konungi þeim, er þú ert áður handgenginn? Nú þykir mér það ósæmilegast að vera hvorki vinur hans né óvinur."

"Eftir gekk það," kvað Kveld-Úlfur, "er mér bauð hugur um, að þeir myndu engir sigurför fara, er börðust við Harald lúfu norður á Mæri. En slíkt sama mun það vera satt, að Haraldur mun verða að miklum skaða mínum frændum. En þú, Þórólfur, munt ráða vilja athöfnum þínum. Ekki óttast eg það, þóttú komir í sveit með hirðmönnum Haralds, að eigi þykir þú hlutgengur eða jafn hinum fremstum í öllum mannraunum. Varast þú það, að eigi ætlir þú hóf fyrir þér eða keppist við þér meiri menn; en eigi muntu fyrir vægja að heldur."

En er Þórólfur bjóst á brott, þá leiddi Kveld-Úlfur hann ofan til skips, hvarf til hans og bað hann vel fara og bað þá heila hittast.

7. kafli

Björgólfur hét maður á Hálogalandi; hann bjó í Torgum; hann var lendur maður, ríkur og auðugur, en hálfbergrisi að afli og vexti og kynferð. Hann átti son, er hét Brynjólfur; hann var líkur föður sínum. Björgólfur var þá gamall og önduð kona hans, og hafði hann selt í hendur öll ráð syni sínum og leitað honum kvonfangs. Brynjólfur átti Helgu, dóttur Ketils hængs úr Hrafnistu. Bárður er nefndur sonur þeirra; hann var snemma mikill og fríður sýnum og varð hinn mesti atgervismaður.

Það var eitt haust, að þar var gildi fjölmennt, og voru þeir Björgólfur feðgar í gildinu göfgastir menn; þar var hlutaður tvímenningur á öftnum, sem siðvenja var til. En þar að gildinu var sá maður, er Högni hét; hann átti bú í Leku; hann var maður stórauðigur, allra manna fríðastur sýnum, vitur maður og ættsmár og hafði hafist af sjálfum sér. Hann átti dóttur allfríða, er nefnd er Hildiríður. Hún hlaut að sitja hjá Björgólfi. Töluðu þau margt um kveldið; leist honum mærin fögur. Litlu síðar var slitið gildinu.

Það sama haust gerði Björgólfur gamli heimanför sína og hafði skútu, er hann átti, og á þrjátigi menn; hann kom fram í Leku, og gengu þeir heim til húss tuttugu, en tíu gættu skips. En er þeir komu á bæinn, þá gekk Högni á mót honum og fagnaði vel, bauð honum þar að vera með sínu föruneyti, en hann þekktist það, og gengu þeir inn í stofu. En er þeir höfðu afklæðst og tekið upp yfirhafnir, þá lét Högni bera inn skapker og mungát. Hildiríður bóndadóttir bar öl gestum.

Björgólfur kallar til sín Högna bónda og segir honum, að - "erindi er það hingað, að eg vil, að dóttir þín fari heim með mér, og mun eg nú gera til hennar lausabrullaup."

En Högni sá engan annan sinn kost en láta allt svo vera sem Björgólfur vildi. Björgólfur keypti hana með eyri gulls, og gengu þau í eina rekkju bæði. Fór Hildiríður heim með Björgólfi í Torgar. Brynjólfur lét illa yfir þessi ráðagerð.

Þau Björgólfur og Hildiríður áttu tvo sonu; hét annar Hárekur, en annar Hrærekur.

Síðan andast Björgólfur; en þegar hann var út hafinn, þá lét Brynjólfur Hildiríði á brott fara með sonu sína; fór hún þá í Leku til föður síns, og fæddust þar upp synir Hildiríðar; þeir voru menn fríðir sýnum, litlir vexti, vel viti bornir, líkir móðurfrændum sínum; þeir voru kallaðir Hildiríðarsynir. Lítils virti Brynjólfur þá og lét þá ekki hafa af föðurarfi þeirra. Hildiríður var erfingi Högna, og tók hún og synir hennar arf eftir hann og bjuggu þá í Leku og höfðu auð fjár; þeir voru mjög jafnaldrar, Bárður Brynjólfsson og Hildiríðarsynir. Þeir feðgar, Brynjólfur og Björgólfur, höfðu lengi haft finnferð og finnskatt.

Norður á Hálogalandi heitir fjörður Vefsnir. Þar liggur ey í firðinum og heitir Álöst, mikil ey og góð; í henni heitir bær á Sandnesi. Þar bjó maður, er Sigurður hét; hann var auðgastur norður þar; hann var lendur maður og spakur að viti. Sigríður hét dóttir hans og þótti kostur bestur á Hálogalandi; hún var einbirni hans og átti arf að taka eftir Sigurð, föður sinn.

Bárður Brynjólfsson gerði heimanferð sína, hafði skútu og á þrjá tigu manna; hann fór norður í Álöst og kom á Sandnes til Sigurðar. Bárður hefur uppi orð sín og bað Sigríðar. Því máli var vel svarað og líklega, og kom svo, að Bárði var heitið meyjunni. Ráð þau skyldu takast að öðru sumri. Skyldi þá Bárður sækja norður þangað ráðið.

8. kafli

Haraldur konungur hafði það sumar sent orð ríkismönnum þeim, er voru á Hálogalandi, og stefndi til sín þeim, er áður höfðu eigi verið á fund hans. Var Brynjólfur ráðinn til þeirrar ferðar og með honum Bárður, sonur hans. Fóru þeir um haustið suður til Þrándheims og hittu þar konung. Tók hann við þeim allfeginsamlega. Gerðist þá Brynjólfur lendur maður konungs. Fékk konungur honum veislur miklar, aðrar en áður hafði hann haft; hann fékk honum og finnferð, konungssýslu á fjalli og finnkaup. Síðan fór Brynjólfur á brott og heim til búa sinna, en Bárður var eftir og gerðist konungs hirðmaður.

Af öllum hirðmönnum virti konungur mest skáld sín; þeir skipuðu annað öndvegi. Þeirra sat innst Auðunn illskælda; hann var elstur þeirra, og hann hafði verið skáld Hálfdanar svarta, föður Haralds konungs. Þar næst sat Þorbjörn hornklofi, en þar næst sat Ölvir hnúfa, en honum hið næsta var skipað Bárði; hann var þar kallaður Bárður hvíti eða Bárður sterki. Hann virtist þar vel hverjum manni; með þeim Ölvi hnúfu var félagsskapur mikill.

Það sama haust komu til Haralds konungs þeir Þórólfur Kveld-Úlfsson og Eyvindur lambi, sonur Berðlu-Kára. Fengu þeir þar góðar viðtökur; þeir höfðu þangað snekkju, tvítugsessu, vel skipaða, er þeir höfðu áður haft í víking; þeim var skipað í gestaskála með sveit sína.

Þá er þeir höfðu þar dvalist, til þess er þeim þótti tími til að ganga á fund konungs, gekk þar með þeim Berðlu-Kári og Ölvir hnúfa. Þeir kveðja konung.

Þá segir Ölvir hnúfa, að þar er kominn sonur Kveld-Úlfs - "sem eg sagði yður í sumar, að Kveld-Úlfur myndi senda til yðvar; munu yður heit hans öll föst; megið þér nú sjá sannar jartegnir, að hann vill vera vinur yðvar fullkominn, er hann hefir sent son sinn hingað til þjónustu við yður, svo skörulegan mann sem þér megið nú sjá. Er sú bæn Kveld-Úlfs og allra vor, að þú takir við Þórólfi vegsamlega og gerir hann mikinn mann með yður."

Konungur svarar vel máli hans og kveðst svo gera skyldu - "ef mér reynist Þórólfur jafnvel mannaður sem hann er sýnum fulldrengilegur."

Síðan gerðist Þórólfur handgenginn konungi og gekk þar í hirðlög, en Berðlu-Kári og Eyvindur lambi, sonur hans, fóru suður með skip það, er Þórólfur hafði norður haft. Fór þá Kári heim til búa sinna og þeir Eyvindur báðir. Þórólfur var með konungi, og vísaði konungur honum til sætis milli þeirra Ölvis hnúfu og Bárðar, og gerðist með þeim öllum hinn mesti félagsskapur.

Það var mál manna um Þórólf og Bárð, að þeir væru jafnir að fríðleik og á vöxt og afl og alla atgervi. Nú er Þórólfur þar í allmiklum kærleikum af konungi og báðir þeir Bárður.

En er veturinn leið af og sumar kom, þá bað Bárður sér orlofs konung að fara að vitja ráðs þess, er honum hafði heitið verið hið fyrra sumar. En er konungur vissi, að Bárður átti skylt erindi, þá lofaði hann honum heimferð. En er hann fékk orlof, þá bað hann Þórólf fara með sér norður þangað; sagði hann, sem satt var, að hann myndi þar mega hitta marga frændur sína göfga, þá er hann myndi eigi fyrr séð hafa eða við kannast. Þórólfi þótti það fýsilegt, og fá þeir til þess orlof af konungi, búast síðan, höfðu skip gott og föruneyti, fóru þá leið sína, er þeir voru búnir. En er þeir koma í Torgar, þá senda þeir Sigurði menn og láta segja honum, að Bárður mun þá vitja ráða þeirra, er þeir höfðu bundið með sér hið fyrra sumar. Sigurður segir, að hann vill það allt halda, sem þeir höfðu mælt; gera þá ákveðið um brullaupsstefnu, og skulu þeir Bárður sækja norður þangað á Sandnes.

En er að þeirri stefnu kom, þá fara þeir Brynjólfur og Bárður og höfðu með sér margt stórmenni, frændur sína og tengdamenn. Var það sem Bárður hafði sagt, að Þórólfur hitti þar marga frændur sína, þá er hann hafði ekki áður við kannast. Þeir fóru, til þess er þeir komu á Sandnes, og var þar hin prúðlegasta veisla. En er lokið var veislunni, fór Bárður heim með konu sína og dvaldist heima um sumarið og þeir Þórólfur báðir. En um haustið koma þeir suður til konungs og voru með honum vetur annan.

Á þeim vetri andaðist Brynjólfur. En er það spyr Bárður, að honum hafði þar arfur tæmst, þá bað hann sér heimfararleyfis, en konungur veitti honum það; og áður þeir skildust, gerðist Bárður lendur maður, sem faðir hans hafði verið, og hafði af konungi veislur allar, þvílíkar sem Brynjólfur hafði haft. Bárður fór heim til búa sinna og gerðist brátt höfðingi mikill; en Hildiríðarsynir fengu ekki af arfinum þá

9. kafli

Haraldur konungur bauð út leiðangri miklum og dró saman skipaher, stefndi til sín liði víða um land; hann fór úr Þrándheimi og stefndi suður í land. Hann hafði það spurt, að her mikill var saman dreginn um Agðir og Rogaland og Hörðaland og víða til safnað, bæði ofan af landi og austan úr Vík, og var þar margt stórmenni saman komið og ætlar að verja land fyrir Haraldi konungi.

Haraldur konungur hélt norðan liði sínu; hann hafði sjálfur skip mikið og skipað hirð sinni. Þar var í stafni Þórólfur Kveld-Úlfsson og Bárður hvíti og synir Berðlu-Kára, Ölvir hnúfa og Eyvindur lambi, en berserkir konungs tólf voru í söxum. Fundur þeirra var suður á Rogalandi í Hafursfirði; var þar hin mesta orusta, er Haraldur konungur hafði átt, og mikið mannfall í hvorratveggju liði. Lagði konungur framarlega skip sitt, og var þar ströngust orustan. En svo lauk, að Haraldur konungur fékk sigur, en þar féll Þórir haklangur, konungur af Ögðum, en Kjötvi hinn auðgi flýði og allt lið hans, það er upp stóð, nema það, er til handa gekk.

Eftir orustuna, þá er kannað var lið Haralds konungs, var margt fallið, og margir voru mjög sárir. Þórólfur var sár mjög, en Bárður meir, og enginn var ósár á konungsskipinu fyrir framan siglu, nema þeir, er eigi bitu járn, en það voru berserkir. Þá lét konungur binda sár manna sinna og þakkaði mönnum framgöngu sína og veitti gjafir og lagði þar mest lof til, er honum þótti maklegir, og hét þeim að auka virðing þeirra, nefndi til þess skipstjórnarmenn og þar næst stafnbúa sína og aðra frambyggja. Þá orustu átti Haraldur konungur síðasta innan lands, og eftir það fékk hann enga viðstöðu, og eignaðist hann síðan land allt. Konungur lét græða menn sína, þá er lífs var auðið, en veita umbúnað dauðum mönnum, þann sem þá var siðvenja til.

Þórólfur og Bárður lágu í sárum; tóku sár Þórólfs að gróa, en Bárðar sár gerðust banvæn. Þá lét hann kalla konung til sín og sagði honum svo:

"Ef svo verður, að eg deyja úr þessum sárum, þá vil eg þess biðja yður, að þér látið mig ráða fyrir arfi mínum."

En er konungur hafði því játað, þá sagði hann:

"Arf minn allan, vil eg, að taki Þórólfur, félagi minn og frændi, lönd og lausa aura. Honum vil eg og gefa konu mína og son minn til uppfæðslu, því að eg trúi honum til þess best allra manna."

Hann festir þetta mál sem lög voru til að leyfi konungs. Síðan andast Bárður, og var honum veittur umbúnaður, og var hann harmdauði mjög. Þórólfur varð heill sára sinna og fylgdi konungi um sumarið og hafði fengið allmikinn orðstír.

Konungur fór um haustið norður til Þrándheims. Þá biður Þórólfur orlofs að fara norður á Hálogaland að vitja gjafar þeirrar, er hann hafði þegið um sumarið að Bárði, frænda sínum. Konungur lofar það og gerir með orðsending og jartegnir, að Þórólfur skal það allt fá, er Bárður gaf honum, lætur það, að sú gjöf var ger með ráði konungs og hann vill svo vera láta. Gerir konungur þá Þórólf lendan mann og veitir honum þá allar veislur þær, sem áður hafði Bárður haft, fær honum finnferðina með þvílíkum skildaga, sem áður hafði haft Bárður; konungur gaf Þórólfi langskip gott með reiða öllum og lét búa ferð hans þaðan sem best. Síðan fór Þórólfur þaðan ferð sína, og skildust þeir konungur með hinum mesta kærleik.

En er Þórólfur kom norður í Torgar, þá var honum þar vel fagnað; sagði hann þá fráfall Bárðar og það með, að Bárður hefði gefið honum eftir sig lönd og lausa aura og kvonfang það, er hann hafði áður átt; ber fram síðan orð konungs og jartegnir.

En er Sigríður heyrði þessi tíðindi, þá þótti henni skaði mikill eftir mann sinn. En Þórólfur var henni áður mjög kunnugur, og vissi hún, að hann var hinn mesti merkismaður og það gjaforð var allgott. Og með því að það var konungs boð, þá sá hún það að ráði og með henni vinir hennar að heitast Þórólfi, ef það væri föður hennar eigi í móti skapi. Síðan tók Þórólfur þar við forráðum öllum og svo við konungssýslu.

Þórólfur gerði heimanför sína og hafði langskip og á nær sex tigu manna og fór síðan, er hann var búinn, norður með landi; og einn dag að kveldi kom hann í Álöst á Sandnes; lögðu skip sitt til hafnar; en er þeir höfðu tjaldað og um búist, fór Þórólfur upp til bæjar með tuttugu menn. Sigurður fagnaði honum vel og bauð honum þar að vera, því að þar voru áður kunnleikar miklir með þeim, síðan er mægð hafði tekist með þeim Sigurði og Bárði. Síðan gengu þeir Þórólfur inn í stofu og tóku þar gisting.

Sigurður settist á tal við Þórólf og spurði að tíðindum. Þórólfur sagði frá orustu þeirri, er verið hafði um sumarið suður á landi, og fall margra manna, þeirra er Sigurður vissi deili á. Þórólfur sagði, að Bárður, mágur hans, hafði andast úr sárum þeim, er hann fékk í orustu. Þótti það báðum þeim hinn mesti mannskaði. Þá segir Þórólfur Sigurði, hvað verið hafði í einkamálum með þeim Bárði, áður en hann andaðist, og svo bar hann fram orðsendingar konungs, að hann vildi það allt haldast láta, og sýndi þar með jartegnir. Síðan hóf Þórólfur upp bónorð sitt við Sigurð og bað Sigríðar, dóttur hans. Sigurður tók því máli vel, sagði, að margir hlutir héldu til þess: sá fyrstur, að konungur vill svo vera láta, svo það, að Bárður hefði þess beðið, og það með, að Þórólfur var honum kunnugur og honum þótti dóttir sín vel gift; var það mál auðsótt við Sigurð; fóru þá fram festar og ákveðin brullaupsstefna í Torgum um haustið.

Fór þá Þórólfur heim til bús síns og hans förunautar og bjó þar til veislu mikillar og bauð þangað fjölmenni miklu. Var þar margt frænda Þórólfs göfugra. Sigurður bjóst og norðan og hafði langskip mikið og mannval gott. Var að þeirri veislu hið mesta fjölmenni.

Brátt fannst það, að Þórólfur var ör maður og stórmenni mikið; hafði hann um sig sveit mikla, en brátt gerðist kostnaðarmikið og þurfti föng mikil. Þá var ár gott og auðvelt að afla þess, er þurfti.

Á þeim vetri andaðist Sigurður á Sandnesi, og tók Þórólfur arf allan eftir hann; var það allmikið fé.

Þeir synir Hildiríðar fóru á fund Þórólfs og hófu upp tilkall það, er þeir þóttust þar eiga um fé það, er átt hafði Björgólfur, faðir þeirra.

Þórólfur svarar svo: "Það var mér kunnugt of Brynjólf og enn kunnara um Bárð, að þeir voru manndómsmenn svo miklir, að þeir myndu hafa miðlað ykkur það af arfi Björgólfs, sem þeir vissu, að réttindi væru til. Var eg nær því, að þið hófuð þetta sama ákall við Bárð, og heyrðist mér svo, sem honum þætti þar engi sannindi til, því að hann kallaði ykkur frillusonu."

Hárekur sagði, að þeir myndu vitni til fá, að móðir þeirra var mundi keypt - "en satt var það, að við leituðum ekki fyrst þessa mála við Brynjólf, bróður okkarn; var þar og með skyldum að skipta. En af Bárði væntum við okkur sæmdar í alla staði; urðu og eigi löng vor viðskipti. En nú er arfur þessi kominn undir óskylda menn okkur, og megum við nú eigi með öllu þegja yfir missu okkarri. En vera kann, að enn sé sem fyrr sá ríkismunur, að við fáum eigi rétt af þessu máli fyrir þér, ef þú vilt engi vitni heyra, þau er við höfum fram að flytja, að við séum menn aðalbornir."

Þórólfur svarar þá stygglega: "Því síður ætla eg ykkur arfborna, að mér er sagt móðir ykkur væri með valdi tekin og hernumin heim höfð."

Eftir það skildu þeir þessa ræðu.

10. kafli

Þórólfur gerði um veturinn ferð sína á fjall upp og hafði með sér lið mikið, eigi minna en níu tigu manna. En áður hafði vandi á verið, að sýslumenn höfðu haft þrjá tigu manna, en stundum færra; hann hafði með sér kaupskap mikinn. Hann gerði brátt stefnulag við Finna og tók af þeim skatt og átti við þá kaupstefnu; fór með þeim allt í makindum og í vinskap; en sumt með hræðslugæði.

Þórólfur fór víða um mörkina; en er hann sótti austur á fjallið, spurði hann, að Kylfingar voru austan komnir og fóru þar að finnkaupum, en sums staðar með ránum. Þórólfur setti til Finna að njósna um ferð Kylfinga, en hann fór eftir að leita þeirra og hitti í einu bóli þrjá tigu manna og drap alla, svo að engi komst undan, en síðan hitti hann saman fimmtán eða tuttugu. Alls drápu þeir nær hundrað manna og tóku þar ógrynni fjár og komu aftur um vorið við svo búið. Fór Þórólfur þá til bús síns á Sandnes og sat þar lengi. Um vorið lét hann gera langskip mikið og á drekahöfuð, lét það búa sem best, hafði það norðan með sér.

Þórólfur sópast mjög um föng þau, er þá voru á Hálogalandi, hafði menn sína í síldveri og svo í skreiðfiski; selver voru og nóg og eggver; lét hann það allt að sér flytja. Hann hafði aldregi færra frelsingja heima en hundrað; hann var ör maður og gjöfull og vingaðist mjög við stórmenni, alla þá menn, er honum voru í nánd; hann gerðist ríkur maður og lagði mikinn hug á um skipa búnað sinn og vopna.

11. kafli

Haraldur konungur fór það sumar á Hálogaland, og voru gerðar veislur í móti honum, bæði þar er hans bú voru, og svo gerðu lendir menn og ríkir bændur.

Þórólfur bjó veislu í móti konungi og lagði á kostnað mikinn. Var það ákveðið, nær konungur skyldi þar koma. Þórólfur bauð þangað fjölda manns og hafði þar allt hið besta mannval, það er kostur var. Konungur hafði nær þrjú hundruð manna, er hann kom til veislunnar, en Þórólfur hafði fyrir fimm hundruð manna. Þórólfur hafði látið búa kornhlöðu mikla, er þar var, og látið leggja bekki í og lét þar drekka, því að þar var engi stofa svo mikil, er það fjölmenni mætti allt inni vera; þar voru og festir skildir umhverfis í húsinu.

Konungur settist í hásæti; en er alskipað var hið efra og hið fremra, þá sást konungur um og roðnaði og mælti ekki, og þóttust menn finna, að hann var reiður. Veisla var hin prúðlegasta og öll föng hin bestu; konungur var heldur ókátur og var þar þrjár nætur, sem ætlað var.

Þann dag, er konungur skyldi brott fara, gekk Þórólfur til hans og bað, að þeir skyldu fara ofan til strandar; konungur gerði svo; þar flaut fyrir landi dreki sá, er Þórólfur hafði gera látið, með tjöldum og öllum reiða. Þórólfur gaf konungi skipið og bað, að konungur skyldi svo virða sem honum hafði til gengið, að hann hafði fyrir því haft fjölmenni svo mikið, að það væri konungi vegsemd, en ekki fyrir kapps sakir við hann. Konungur tók þá vel orðum Þórólfs og gerði sig þá blíðan og kátan; lögðu þá og margir góð orð til, sögðu sem satt var, að veislan var hin vegsamlegasta og útleiðslan hin skörulegasta og konungi var styrkur mikill að slíkum mönnum; skildust þá með kærleik miklum.

Fór konungur norður á Hálogaland, sem hann hafði ætlað, og sneri aftur suður, er leið á sumarið; fór þá enn að veislum, þar sem fyrir honum var búið.

12. kafli

Hildiríðarsynir fóru á fund konungs og buðu honum heim til þriggja nátta veislu. Konungur þekktist boð þeirra og kvað á, nær hann myndi þar koma. En er að þeirri stefnu kom, þá kom konungur þar með lið sitt, og var þar ekki fjölmenni fyrir, en veisla fór fram hið besta; var konungur allkátur.

Hárekur kom sér í ræðu við konung, og kom þar ræðu hans, að hann spyr um ferðir konungs, þær er þá höfðu verið um sumarið. Konungur sagði slíkt, er hann spurði, kvað alla menn hafa sér vel fagnað og mjög hvern eftir föngum sínum.

"Mikill munur," sagði Hárekur, "mun þess hafa verið, að í Torgum mundi veisla fjölmennust."

Konungur sagði, að svo var.

Hárekur segir: "Það var vís von, því að til þeirrar veislu var mest aflað, og báruð þér, konungur, þar stórlegar gæfur til, er svo snerist, að þér komuð í engan lífsháska. Fór það sem líklegt var, að þú varst vitrastur og hamingjumestur, því að þú grunaðir þegar, að eigi myndi allt af heilu vera, er þú sást fjölmenni það hið mikla, er þar var saman dregið. En mér var sagt, að þú létir allt lið þitt jafnan með alvæpni vera eða hafðir varðhöld örugg bæði nótt og dag."

Konungur sá til hans og mætli: "Hví mælir þú slíkt, Hárekur, eða hvað kanntu þar af að segja?"

Hann segir: "Hvort skal eg mæla í orlofi, konungur, það er mér líkar?"

"Mæltu," segir konungur.

"Það ætla eg," segir Hárekur, "ef þú, konungur, heyrðir hvers manns orð, er menn mæla heima eftir hugþokka sínum, hver ákúrun það þykir, er þér veitið öllu mannfólki, að þér þætti ekki vel vera; en yður er það sannast að segja, konungur, að alþýðuna skortir ekki annað til mótgangs við yður en dirfð og forstjóra. En það er ekki undarlegt," sagði hann, "um slíka menn sem Þórólfur er, að hann þykist um fram hvern mann; hann skortir eigi afl, eigi fríðleik; hann hefir og hirð um sig sem konungur; hann hefir morð fjár, þótt hann hefði það eina, er hann ætti sjálfur, en hitt er meira, að hann lætur sér jafnheimilt annarra fé sem sitt. Þér hafið og veitt honum stórar veislur, og var nú búið við, að hann myndi það eigi vel launa, því að það er yður sannast frá að segja, þá er spurðist, að þér fóruð norður á Hálogaland með eigi meira liði en þér höfðuð, þremur hundruðum manna, þá var það hér ráð manna, að hér skyldi her saman koma og taka þig af lífi, konungur, og allt lið þitt, og var Þórólfur höfðingi þeirrar ráðagerðar, því að honum var það til boðið, að hann skyldi konungur vera yfir Háleygjafylki og Naumdælafylki. Fór hann síðan út og inn með hverjum firði og um allar eyjar og dró saman hvern mann, er hann fékk, og hvert vopn, og fór það þá ekki leynt, að þeim her skyldi stefna í móti Haraldi konungi til orustu. En hitt er satt, konungur, þótt þér hefðuð lið nokkuru minna, þá er þér fundust, að búandkörlum skaut skelk í bringu, þegar þeir sáu sigling yðra. Var þá hitt ráð tekið að ganga á móti yður með blíðu og bjóða til veislu; en þá var ætlað, ef þér yrðuð drukknir og lægjuð sofandi, að veita yður atgöngu með eldi og vopnum, og það til jartegna, ef eg hefi rétt spurt, að yður var fylgt í kornhlöðu eina, því að Þórólfur vildi eigi brenna upp stofu sína, nýja og vandaða mjög. Það var enn til jartegna, að hvert hús var fullt af vopnum og herklæðum; en þá er þeir fengu engum vélræðum við yður komið, tóku þeir það ráð, sem helst var til, drápu öllu á dreif um þessa fyrirætlan. Ætla eg það alla kunna að dylja þessa ráða, því að fáir hygg eg, að sig viti saklausa, ef hið sanna kemur upp. Nú er það mitt ráð, konungur, að þú takir Þórólf til þín og látir hann vera í hirð þinni, bera merki þitt og vera í stafni á skipi þínu; til þess er hann fallinn allra manna best. En ef þú vilt, að hann sé lendur maður, þá fá honum veislur suður í Fjörðum; þar er ætterni hans allt; megið þér þá sjá yfir, að hann gerist eigi of stór. En fá hér sýslu á Hálogalandi í hönd þeim mönnum, er hófsmenn séu og yður munu með trúleik þjóna og hér eiga kyn, og þeirra frændur hafa hér áður haft þvílíkt starf. Skulum við bræður vera búnir og boðnir til slíks, sem þér viljið okkur til nýta. Hafði faðir okkar hér lengi konungssýslu; varð honum það vel í höndum. Eru yður, konungur, vandsettir hér menn yfir til forráða, því að þér munuð hér sjaldan koma sjálfir. Hér er lítið landsmegin til þess, að þér farið með her yðvarn, og munuð það eigi oftar gera að fara hingað með fáu liði, því að hér er ótryggt lið margt."

Konungur reiddist mjög við ræður þessar og mælti þó stillilega, sem hann var vanur jafnan, þá er hann frétti þau tíðindi, er mikils voru verð. Hann spurði þá, hvort Þórólfur væri heima í Torgum.

Hárekur sagði, að þess var engi von - "er Þórólfur svo viti borinn, að hann mundi kunna sér að vera eigi fyrir liði yðru, konungur, því að honum mundi þess von, að eigi skyldu allir svo haldinorðir, að þú, konungur, myndir eigi var verða við þessi tíðindi; fór hann norður í Álöst, þegar er hann spurði, að þér voruð norðan á leið."

Konungur ræddi fátt um þessi tíðindi fyrir mönnum, en fannst það á, að hann myndi trúnað á festa þessa orðræðu, er honum var sagt. Fór konungur síðan ferðar sinnar. Leiddu Hildiríðarsynir hann virðulega á brott með gjöfum, en hann hét þeim vináttu sinni. Þeir bræður gáfu sér erindi inn í Naumudal og fóru svo í svig við konung, að þeir hittu hann að öðru hverju. Tók hann jafnan vel máli þeirra.

13. kafli

Þorgils gjallandi hét maður; hann var heimamaður Þórólfs og hafði af honum mesta virðing húskarla hans; hann hafði fylgt Þórólfi, þá er hann var í víking, var þá stafnbúi hans og merkismaður. Þorgils hafði verið í Hafursfirði í liði Haralds konungs og stýrði þá skipi því, er Þórólfur átti og hann hafði haft í víking; Þorgils var rammur að afli og hinn mesti hreystimaður. Konungur hafði veitt honum vingjafir eftir orustu og heitið vináttu sinni. Þorgils var forstjóri fyrir búi í Torgum, þá er Þórólfur var eigi heima; hafði Þorgils þá þar ráð.

En er Þórólfur hafði heiman farið, þá hafði hann til greitt finnskatt þann allan, er hann hafði haft af fjalli og konungur átti, og fékk í hendur Þorgísli og bað hann færa konungi, ef hann kæmi eigi heim áður, um það er konungur færi norðan og suður um. Þorgils bjó byrðing mikinn og góðan, er Þórólfur átti, og bar þar á skattinn og hafði nær tuttugu mönnum; sigldi suður eftir konungi og fann hann inn í Naumudal.

En er Þorgils kom á fund konungs, þá bar hann konungi kveðju Þórólfs og sagði, að hann fór þar með finnskatt þann, er Þórólfur sendi honum.

Konungur sá til hans og svarar engu, og sáu menn, að hann var reiður.

Gekk þá Þorgils á brott og ætlaði að fá betra dagráð að tala við konung; hann kom á fund Ölvis hnúfu og sagði honum allt, sem farið hafði, og spurði, ef hann vissi nokkuð til, hverju gegndi.

"Eigi veit eg það," sagði hann; "hitt hefi eg fundið, að konungur þagnar hvert sinn, er Þórólfs er getið, síðan er vér vorum í Leku, og grunar mig af því, að hann muni rægður vera. Það veit eg um Hildiríðarsonu, að þeir eru löngum á einmælum við konung, en það er auðfundið á orðum þeirra, að þeir eru óvinir Þórólfs; en eg mun þessa brátt vís verða af konungi."

Síðan fór Ölvir til fundar við konung og mælti: "Þorgils gjallandi er hér kominn, vinur yðvar, með skatt þann, er kominn er af Finnmörk og þér eigið, og er skatturinn miklu meiri en fyrr hefir verið og miklu betri vara; er honum títt um ferð sína; ger svo vel, konungur, gakk til og sjá, því að engi mun séð hafa jafngóða grávöru."

Konungur svarar engu og gekk þó þar, er skipið lá; Þorgils bar þegar upp vöruna og sýndi konungi. En er konungur sá, að það var satt, að skatturinn var miklu meiri og betri en fyrr hafði verið, þá hóf honum heldur upp brún, og mátti Þorgils þá tala við hann; hann færði konungi bjórskinn nokkur, er Þórólfur sendi honum, og enn fleiri dýrgripi, er hann hafði fengið á fjalli. Konungur gladdist þá og spyr, hvað til tíðinda hefði orðið um ferðir þeirra Þórólfs; Þorgils sagði honum það allt greinilega.

Þá mælti konungur: "Skaði mikill er það, er Þórólfur skal eigi vera tryggur mér eða vilja vera banamaður minn."

Þá svöruðu margir, er hjá voru, og allir á eina lund, sögðu, að vera myndi róg illra manna, ef konungi væri slíkt sagt, en Þórólfur myndi ósannur að vera. Kom þá svo að konungur kveðst því mundu heldur af trúa; var konungur þá léttur í öllum ræðum við Þorgils, og skildust sáttir.

En er Þorgils hitti Þórólf, sagði hann honum allt, sem farið hafði.

14. kafli

Þórólfur fór þann vetur enn á mörkina og hafði með sér nær hundraði manna; fór hann enn sem hinn fyrra vetur, átti kaupstefnu við Finna og fór víða um mörkina.

En er hann sótti langt austur og þar spurðist til ferðar hans, þá komu Kvenir til hans og sögðu, að þeir voru sendir til hans, og það hafði gert Faravið konungur af Kvenlandi; sögðu, að Kirjálar herjuðu á land hans, en hann sendi til þess orð, að Þórólfur skyldi fara þangað og veita honum lið; fylgdi það orðsending, að Þórólfur skyldi hafa jafnmikið hlutskipti sem konungur, en hver manna hans sem þrír Kvenir.

En það voru lög með Kvenum, að konungur skyldi hafa úr hlutskipti þriðjung við liðsmenn og um fram að afnámi bjórskinn öll og safala og askraka.

Þórólfur bar þetta fyrir liðsmenn sína og bauð þeim kost á, hvort fara skyldi eða eigi, en það kjöru flestir að hætta til, er féfang lá við svo mikið, og var það af ráðið, að þeir fóru austur með sendimönnum.

Finnmörk er stórlega víð; gengur haf fyrir vestan og þar af firðir stórir, svo og fyrir norðan og allt austur um; en fyrir sunnan er Noregur, og tekur mörkin nálega allt hið efra suður svo sem Hálogaland hið ytra. En austur frá Naumudal er Jamtaland, og þá Helsingjaland og þá Kvenland, þá Finnland, þá Kirjálaland; en Finnmörk liggur fyrir ofan þessi öll lönd, og eru víða fjallbyggðir upp á mörkina, sumt í dali, en sumt með vötnum. Á Finnmörk eru vötn furðulega stór og þar með vötnunum marklönd stór, en há fjöll liggja eftir endilangri mörkinni, og eru það kallaðir Kilir.

En er Þórólfur kom austur til Kvenlands og hitti konung Faravið, þá búast þeir til ferðar og höfðu þrjú hundruð manna, en Norðmenn hið fjórða, og fóru hið efra um Finnmörk og komu þar fram, er Kirjálar voru á fjalli, þeir er fyrr höfðu herjað á Kveni. En er þeir urðu varir við ófrið, söfnuðust þeir saman og fóru í mót, væntu sér enn sem fyrr sigurs. En er orusta tókst, gengu Norðmenn hart fram; höfðu þeir skjöldu enn traustari en Kvenir; sneri þá mannfalli í lið Kirjála, féll margt, en sumir flýðu. Fengu þeir Faravið konungur og Þórólfur þar ógrynni fjár, sneru aftur til Kvenlands, en síðan fór Þórólfur og hans lið á mörkina; skildu þeir Faravið konungur með vináttu.

Þórólfur kom af fjallinu ofan í Vefsni, fór þá fyrst til bús síns á Sandnes, dvaldist þar um hríð, fór norðan um vorið með liði sínu til Torga. En er hann kom þar, var honum sagt, að Hildiríðarsynir höfðu verið um veturinn í Þrándheimi með Haraldi konungi, og það með, að þeir myndu ekki af spara að rægja Þórólf við konung; var Þórólfi margt sagt frá því, hvert efni þeir hefðu í um rógið.

Þórólfur svarar svo: "Eigi mun konungur trúa því, þótt slík lygi sé upp borin fyrir hann, því að hér eru engi efni til þessa, að eg muni svíkja hann, því að hann hefir marga hluti gert stórvel til mín, en engan hlut illa; og er að firr, að eg myndi vilja gera honum mein, þótt eg ætti þess kosti, að eg vil miklu heldur vera lendur maður hans en heita konungur, og væri annar samlendur við mig, sá er mig mætti gera að þræli sér, ef vildi."

15. kafli

Hildiríðarsynir höfðu verið þann vetur með Haraldi konungi og höfðu með sér heimamenn sína og nábúa. Þeir bræður voru oftlega á tali við konung og fluttu enn á sömu leið mál Þórólfs.

Hárekur spurði: "Líkaði yður vel finnskatturinn, konungur, er Þórólfur sendi yður?"

"Vel," sagði konungur.

"Þá myndi yður margt um finnast," segir Hárekur, "ef þér hefðuð allan þann, sem þér áttuð, en nú fór það fjarri. Var hitt miklu meiri hlutur, er Þórólfur dró undir sig. Hann sendi yður að gjöf bjórskinn þrjú, en eg veit víst, að hann hafði eftir þrjá tigu þeirra, er þér áttuð, og hygg eg, að slíkan mun hafi farið um annað. Satt mun það, konungur, ef þú færð sýsluna í hönd okkur bræðrum, að meira fé skulum við færa þér."

En allt það, er þeir sögðu á hendur Þórólfi, þá báru förunautar þeirra vitni með þeim. Kom þá svo, að konungur var hinn reiðasti.

16. kafli

Þórólfur fór um sumarið suður til Þrándheims á fund Haralds konungs og hafði þar með sér skatt allan og mikið fé annað og níu tigu manna og alla vel búna. En er hann kom til konungs, var þeim skipað í gestaskála og veitt þeim hið stórmannlegasta.

Eftir um daginn gekk Ölvir hnúfa til Þórólfs, frænda síns; töluðust þeir við; sagði Ölvir, að Þórólfur var þá hrópaður mjög og konungur hlýddi á slíkar fortölur.

Þórólfur bað Ölvi byrja mál sitt við konung - "því að eg mun," sagði hann, "vera skammtalaður fyrir konungi, ef hann vill heldur trúa rógi vondra manna en sannindum og einurð, er hann mun reyna að mér."

Annan dag kom Ölvir til móts við Þórólf og sagði, að hann hefði rætt mál hans við konung. "Veit eg nú eigi," sagði hann, "gerr en áður, hvað honum er í skapi."

"Eg skal þá sjálfur ganga til hans," segir Þórólfur.

Gerði hann svo, gekk til konungs, þá er hann sat yfir matborði, og er hann kom inn, heilsaði hann konungi; konungur tók kveðju hans og bað Þórólfi gefa að drekka.

Þórólfur sagði, að hann hafði þar skatt þann, er konungur átti, er kominn var af Finnmörk - "og enn fleiri hluti hefi eg til minningar við yður, konungur, þá er eg hefi yður að færa; veit eg, að því mun mér vera öllu best varið, er eg hefi gert til þakka yðvarra."

Konungur segir, að ekki mátti hann vænta að Þórólfi nema góðs eins - "því að eg er engis," segir hann, "annars af verður; en þó segja menn nokkuð tvennt til, hversu varfær þú munt um vera, hvernig mér skal líka."

"Eigi er eg þar fyrir sönnu hafður," segir Þórólfur, "ef nokkurir segja það, að eg hafi ótrúleika lýst við yður, konungur. Hygg eg, að þeir muni vera þínir vinir minni en eg, er slíkt hafa upp borið fyrir þér; en hitt er ljóst, að þeir munu vilja vera óvinir mínir fullkomnir, en það er og líkast, að þeir komist þar að keyptu, ef vér skulum einir við eigast."

Síðan gekk Þórólfur á brott; en annan dag eftir greiðir Þórólfur skattinn af hendi, og var konungur viðstaddur; og er það var allt greitt, þá bar Þórólfur fram bjórskinn nokkur og safala, sagði, að það vill hann gefa konungi.

Margir mæltu, er þar voru hjá staddir, að það var vel gert og var vináttu fyrir vert. Konungur sagði, að Þórólfur hafði þar sjálfur sér laun fyrir skapið. Þórólfur sagði, að hann hefði með trúleik gert allt það, er hann kunni, til skaps konungs - "og ef enn líkar honum eigi, þá mun eg fá ekki að gert. Var konungi það kunnugt, þá er eg var með honum og í hans sveit, hverja meðferð eg hafði, en það þykir mér undarlegt, ef konungur ætlar mig nú annan mann en þá reyndi hann mig."

Konungur segir: "Vel fórstu, Þórólfur, með þínum háttum, er þú varst með oss; ætla eg það sé enn best af að gera, að þú farir til hirðar minnar; tak við merki mínu og ver fyrir öðrum hirðmönnum; mun þá engi maður rægja þig, ef eg má yfir sjá nótt og dag, hverjar meðferðir þú hefir."

Þórólfur sá til beggja handa sér; þar stóðu húskarlar hans; hann mælti: "Trauður mun eg af hendi láta sveit þessa; muntu ráða, konungur, nafngiftum við mig og veislum þínum, en sveitunga mína mun eg ekki af hendi láta, meðan mér endast föng til, þótt eg véli um mína kosti eina. Er hitt bæn mín og vilji, að þér, konungur, farið að heimboði til mín og heyrið þá orð þeirra manna, er þú trúir, hvert vitni þeir bera mér um þetta mál; gerið þá eftir, sem yður finnst sannindi til."

Konungur svarar og segir, að eigi mun hann oftar veislu þiggja að Þórólfi. Gekk Þórólfur þá í brott og bjóst síðan til heimferðar.

En er hann var í brott farinn, þá fékk konungur í hönd Hildiríðarsonum sýslu þá á Hálogalandi, er áður hafði Þórólfur haft, og svo finnferð; konungur kastaði eigu sinni á bú í Torgum og allar þær eignir, er Brynjólfur hafði átt; fékk það allt til varðveislu Hildiríðarsonum.

Konungur sendi menn með jartegnum á fund Þórólfs að segja honum þessa tilskipan, sem hann hafði gert. Síðan tók Þórólfur skip þau, er hann átti, og bar þar á lausafé allt, það er hann mátti með fara, og hafði með sér alla menn sína, bæði frelsingja og þræla; fór síðan norður á Sandnes til bús síns; hafði Þórólfur þar eigi minna fjölmenni og eigi minni rausn.

17. kafli

Hildiríðarsynir tóku við sýslu á Hálogalandi; mælti engi maður í móti fyrir ríki konungs, en mörgum þótti þetta skipti mjög í móti skapi, þeim er voru frændur Þórólfs eða vinir. Þeir fóru um veturinn á fjall og höfðu með sér þrjá tigu manna; þótti Finnum miklu minni vegur að þessum sýslumönnum en þá er Þórólfur fór; greiddist allt miklu verr gjald það, er Finnar skyldu reiða.

Þann sama vetur fór Þórólfur upp á fjall með hundrað manna; fór þá þegar austur á Kvenland og hitti Faravið konung. Gerðu þeir þá ráð sitt og réðu það að fara á fjall enn sem hinn fyrra vetur og höfðu fjögur hundruð manna og komu ofan í Kirjálaland, hljópu þar í byggðir, er þeim þótti sitt færi vera fyrir fjölmennis sakar, herjuðu þar og fengu of fjár; fóru þá aftur, er á leið veturinn, upp á mörkina.

Fór Þórólfur heim um vorið til bús síns; hann hafði þá menn í skreiðfiski í Vogum, en suma í síldfiski, og leitaði alls konar fanga til bús síns.

Þórólfur átti skip mikið; það var lagt til hafs; það var vandað að öllu sem mest, steint mjög fyrir ofan sjó; þar fylgdi segl stafað með vendi blám og rauðum; allur var reiði vandaður mjög með skipinu. Það skip lætur Þórólfur búa og fékk til húskarla sína með að fara; lét þar bera á skreið og húðir og vöru ljósa; þar lét hann og fylgja grávöru mikla og aðra skinnavöru, þá er hann hafði haft af fjalli, og var það fé stórmikið. Skipi því lét hann Þorgils gjallanda halda vestur til Englands að kaupa sér klæði og önnur föng, þau er hann þurfti. Héldu þeir skipi því suður með landi og síðan í haf og komu fram á Englandi, fengu þar góða kaupstefnu, hlóðu skipið með hveiti og hunangi, víni og klæðum, og héldu aftur um haustið; þeim byrjaði vel, komu að Hörðalandi.

Það sama haust fóru Hildiríðarsynir með skatt og færðu konungi; en er þeir reiddu skattinn af hendi, þá var konungur sjálfur við og sá; hann mælti: "Er nú allur skatturinn af höndum reiddur, sá er þið tókuð við á Finnmörk?"

"Svo er," sögðu þeir.

"Bæði er nú," sagði konungur, "skatturinn miklu minni og verr af hendi goldinn en þá er Þórólfur heimti, og sögðuð þér, að hann færi illa með sýslunni."

"Vel er það, konungur," segir Hárekur, "er þú hefir hugleitt, hversu mikill skattur er vanur að koma af Finnmörk, því að þá veistu gerr, hversu mikils þér missið, ef Þórólfur eyðir með öllu Finnskattinum fyrir yður. Vér vorum í vetur þrír tigir manna á mörkinni, svo sem fyrr hefir verið vandi sýslumanna. Síðan kom þar Þórólfur með hundrað manna. Spurðum vér það til orða hans, að hann ætlaði af lífi að taka okkur bræður og alla þá menn, er okkur fylgdu, og fann hann það til saka, er þú, konungur, hafðir selt okkur í hendur sýslu þá, er hann vildi hafa. Sáum vér þann helst vorn kost að firrast fund hans og forða oss, og komum vér fyrir þá sök skammt frá byggðum á fjallið, en Þórólfur fór um alla mörkina með her manns. Hafði hann kaup öll; guldu Finnar honum skatt, en hann batst í því, að sýslumenn yðrir skyldu ekki koma á mörkina. Ætlar hann að gerast konungur yfir norður þar, bæði yfir mörkinni o g Hálogalandi, og er það undur, er þér látið honum hvatvetna hlýða. Munu hér sönn vitni til finnast um fjárdrátt þann, er Þórólfur hefir af mörkinni, því að knörr sá, er mestur var á Hálogalandi, var búinn í vor á Sandnesi, og kallaðist Þórólfur eiga einn farm allan, þann er á var. Hygg eg, að nær væri hlaðinn af grávöru, og þar hygg eg að finnast myndi bjór og safali meiri en það, er Þórólfur færði þér, og fór með Þorgils gjallandi; ætla eg, að hann hafi siglt vestur til Englands. En ef þú vilt vita sannindi af þessu, þá haldið til njósn um ferð Þorgils, þá er hann fer austur, því að eg hygg, að á ekki kaupskip hafi komið jafnmikið fé á vorum dögum. Ætla eg það sannast að segja, að þér, konungur, eigið hvern pening, þann er þar var á."

Þetta sönnuðu förunautar hans allt, er Hárekur sagði, en hér kunnu engir í móti að mæla.

18. kafli

Sigtryggur snarfari og Hallvarður harðfari hétu bræður tveir; þeir voru með Haraldi konungi, vikverskir menn. Var móðurætt þeirra á Vestfold, og voru þeir í frændsemistölu við Harald konung. Faðir þeirra hafði kyn átt tveim megin Gautelfar; hann hafði bú átt í Hísing og var maður stórauðugur, en þá höfðu þeir tekið við arfi eftir föður sinn. Þeir voru fjórir bræður; hét einn Þórður, og Þorgeir, og voru þeir yngri; þeir voru heima og réðu fyrir búi. Þeir Sigtryggur og Hallvarður höfðu sendiferðir konungs allar bæði innan lands og utan lands og höfðu margar ferðir þær farið, er háskasamlegar voru, bæði til aftöku manna eða fé upp að taka fyrir þeim mönnum, er konungur lætur heimferðir veita. Þeir höfðu sveit mikla um sig; ekki voru þeir vingaðir alþýðu manns, en konungur mat þá mikils, og voru þeir allra manna best færir bæði á fæti og á skíðum, svo og í skipförum voru þeir hvatfærri en aðrir menn; hreystimenn voru þeir og miklir og forsjálir um flest. Þeir voru þá með konungi, er þetta var tíðinda.

Um haustið fór konungur að veislum um Hörðaland. Það var einn dag, að hann lét kalla til sín þá bræður, Hallvarð og Sigtrygg; en er þeir komu til hans, sagði hann þeim, að þeir skyldu fara með sveit sína og halda njósn um skip það, sem Þorgils gjallandi fór með - "og hann hafði í sumar vestur til Englands. Færið mér skipið og allt það, er á er, nema menn; látið þá fara í brott leið sína í friði, ef þeir vilja ekki verja skipið."

Þeir bræður voru þess albúnir, og tók sitt langskip hvor þeirra; fara síðan að leita þeirra Þorgils og spurðu, að hann var vestan kominn og hann hafði siglt norður með landi. Þeir fara norður eftir þeim og hitta þá í Furusundi, kenndu brátt skipið og lögðu að annað skipið á útborða, en sumir gengu á land upp og út á skipið að bryggjunum. Þeir Þorgils vissu sér engis ótta von og vörðust ekki; fundu þeir eigi fyrr en fjöldi manns var uppi á skipinu með alvæpni og þeir voru allir handteknir og leiddir síðan á land upp og vopnlausir og höfðu ekki nema ígangsklæði ein. En þeir Hallvarður skutu út bryggjunum og slógu strenginum og drógu út skipið, snúa síðan leið sína og sigldu suður, þar til þess er þeir fundu konung; færðu honum skipið og allt það, er á var.

En er farmurinn var borinn af skipinu, þá sá konungur, að það var stórfé og eigi var það lygi, er Hárekur hafði sagt.

En Þorgils og hans félagar fengu sér flutningar, og leita þeir á fund Kveld-Úlfs og þeirra feðga og sögðu sínar farar eigi sléttar; fengu þar þó góðar viðtökur.

Sagði Kveld-Úlfur, að þá myndi þar til draga, sem honum hafði fyrir boðað, að Þórólfur myndi eigi til alls endis gæfu til bera um vináttu Haralds konungs - "og þætti mér ekki mikils vert um félát þetta, er Þórólfur hefir misst nú, ef nú færi eigi hér hið meira eftir. Grunar mig enn sem fyrr, að Þórólfur muni eigi gerr kunna að sjá efni sín, við ofurefli slíkt sem hann á að skipta," - og bað Þorgils svo segja Þórólfi, að - "mitt ráð er það," segir hann, "að hann fari úr landi á brott, því að vera kann, að hann komi sér betur, ef hann sækir á hönd Englakonungi eða Danakonungi eða Svíakonungi."

Síðan fékk hann Þorgísli róðrarskútu eina og þar með reiða allan, svo tjöld og vistir og allt það, er þeir þurftu til ferðar sinnar. Síðan fóru þeir og léttu eigi fyrr ferð sinni en þeir komu norður til Þórólfs og sögðu honum það, er til tíðinda hafði gerst.

Þórólfur varð vel við skaða sinn, sagði svo, að hann myndi ekki fé skorta; "er gott félag að eiga við konung."

Síðan keypti Þórólfur mjöl og malt og það annað, er hann þurfti til framflutningar liði sínu; sagði hann, að húskarlar myndu vera ekki svo fagurbúnir sem hann hafði ætlað um hríð.

Þórólfur seldi jarðir sínar, en sumar veðsetti hann, en hélt upp kostnaði öllum sem fyrr; hafði hann þá og ekki færra lið með sér en hina fyrri vetur, heldur hafði hann nokkuru fleira manna; svo um veislur og heimboð við vini sína, þá hafði hann meira efni um það allt en fyrr. Var hann heima þann vetur allan.

19. kafli

Þá er vor kom og snæ leysti og ísa, þá lét Þórólfur fram setja langskip mikið, er hann átti, og lét það búa og skipaði húskörlum sínum og hafði með sér meir en hundrað manna; var það lið hið fríðasta og vopnað allvel

En er byr gaf, hélt Þórólfur skipinu suður með landi, og þegar er hann kom suður um Byrðu, þá héldu þeir útleið fyrir utan eyjar allar, en stundum svo, að sjór var í miðjum hlíðum, létu svo ganga suður fyrir landið, höfðu ekki tíðindi af mönnum, fyrr en þeir komu austur í Vík; þá spurðu þeir, að Haraldur konungur var í Víkinni og hann ætlaði um sumarið að fara til Upplanda. Ekki vissu landsmenn til um ferð Þórólfs; honum byrjaði vel, og hélt hann suður til Danmerkur og þaðan í Austurveg og herjaði þar um sumarið og varð ekki gott til fjár.

Um haustið hélt hann til Danmerkur í þann tíma, er leystist Eyrarfloti; þar hafði verið um sumarið, sem vant var, fjöldi skipa af Noregi. Þórólfur lét það lið sigla allt fyrir og gerði ekki vart við sig; hann sigldi einn dag að kveldi til Mostrarsunds; þar var fyrir í höfninni knörr einn mikill, kominn af Eyri. Þórir þruma hét maður sá, er stýrði; hann var ármaður Haralds konungs; hann réð fyrir búi hans í Þrumu; það var mikið bú, sat konungur þar löngum, þá er hann var í Víkinni; þurfti þar stór föng til bús þess. Hafði Þórir farið fyrir þá sök til Eyrar að kaupa þar þunga, malt og hveiti og hunang, og varið þar til fé miklu, er konungur átti. Þeir lögðu að knerrinum og buðu þeim Þóri kost á að verjast, en fyrir því að þeir Þórir höfðu engan liðskost til varnar móti fjölmenni því, er Þórólfur hafði, gáfust þeir upp. Tók Þórólfur skip það með öllum farmi, en setti Þóri upp í eyna; hélt Þórólfur þá skipum þeim báðum norður með landi.

En er hann kom fyrir Elfina, þá lágu þeir þar og biðu nætur; en er myrkt var, reru þeir langskipinu upp í ána og lögðu til bæjar þess, er þeir áttu, Hallvarður og Sigtryggur. Koma þeir þar fyrir dag og slógu manngarð, æptu síðan heróp, og vöknuðu þeir við það, er inni voru, og hljópu þegar upp til vopna sinna; flýði Þorgeir þegar út úr svefnskemmunni. Skíðgarður hár var um bæinn; Þorgeir hljóp að skíðgarðinum og greip hendinni upp á garðstaurinn og kastaði sér út um garðinn. Þar var nær staddur Þorgils gjallandi; hann sveiflaði til sverðinu eftir Þorgeiri og kom á höndina og tók af við garðstaurinn. Hljóp Þorgeir síðan til skógar, en Þórður, bróðir hans, var þar felldur og meir en tuttugu menn. Síðan rændu þeir þar fé öllu og brenndu bæinn, fóru síðan út eftir ánni til hafs.

Þeim byrjaði vel og sigldu norður í Víkina. Þá hittu þeir enn fyrir sér kaupskip mikið, er áttu Víkverjar, hlaðið af malti og mjölvi. Þeir Þórólfur lögðu að skipi því; en þeir, er fyrir voru, þóttust engi föng hafa til varnar og gáfust upp; gengu þeir á land upp slyppir; en þeir Þórólfur tóku skipið með farmi og fóru leiðar sinnar. Hafði Þórólfur þá þrjú skip, er hann sigldi austan um Foldina; sigldu þá þjóðleið til Líðandisness; fóru þá sem skyndilegast, en námu nesnám, þar sem þeir komu við, og hjuggu strandhögg. En er þeir sigldu norður frá Líðandisnesi, fóru þeir meir útleið, en þar sem þeir komu við land, þá rændu þeir.

En er Þórólfur kom norður fyrir Fjörðu, þá sneri hann inn af leið og fór á fund Kveld-Úlfs, föður síns, og fengu þar góðar viðtökur; sagði Þórólfur föður sínum, hvað til tíðinda hafði orðið í förum hans um sumarið. Þórólfur dvaldist þar litla hríð, og leiddi Kveld-Úlfur og þeir feðgar hann til skips.

En áður þeir skildust, töluðust þeir við; sagði Kveld- Úlfur: "Eigi hefir því fjarri farið, Þórólfur, sem eg sagði þér, þá er þú fórst til hirðar Haralds konungs, að þér myndi svo út ganga, að hvorki þér né oss, frændum þínum, myndi hamingja að verða. Hefir þú nú það ráð upp tekið, er eg varaði þig mest við, er þú etur kappi við Harald konung; en þótt þú sért vel búinn að hreysti og allri atgervi, þá hefir þú ekki til þess gæfu að halda til jafns við Harald konung, er engum hefir öðrum enst hér í landi, þótt áður hafi haft ríki mikið og fjölmenni. Er það mitt hugboð, að sjá verði fundur okkar hinn síðasti, og væri það að sköpuðu fyrir aldurs sakar, að þú lifðir lengur okkar, en annan veg ætla eg að verði."

Síðan steig Þórólfur á skip sitt og hélt á brott leið sína. Er þá ekki sagt frá ferð hans, að til tíðinda yrði, áður hann kom á Sandnes heim og lét flytja til bæjar herfang það allt, er hann hafði heim haft, en setja upp skip sitt; skorti þá eigi föng að fæða lið sitt um veturinn. Sat Þórólfur heima jafnan og hafði fjölmenni eigi minna en hina fyrri vetur.

20. kafli

Maður hét Yngvar, ríkur og auðugur; hann hafði verið lendur maður hinna fyrri konunga, en síðan er Haraldur kom til ríkis, settist Yngvar heima og þjónaði ekki konungi. Yngvar var maður kvongaður og átti dóttur, er hét Bera; Yngvar bjó í Fjörðum; Bera var einbirni hans og stóð til arfs eftir hann.

Grímur Kveld-Úlfsson bað Beru til handa sér, og var það að ráði gert. Fékk Grímur Beru þann vetur, er þeir Þórólfur höfðu skilist áður um sumarið; var Grímur þá hálfþrítugur að aldri og var þá sköllóttur; síðan var hann kallaður Skalla-Grímur. Hann hafði þá forráð öll fyrir búi þeirra feðga og tilöflun alla, en þó var Kveld-Úlfur hress maður og vel fær. Margt höfðu þeir frelsingja með sér og marga þá menn, er heima þar höfðu upp vaxið og voru nær jafnaldrar Skalla-Gríms; voru þeir margir afreksmenn miklir að afli, því að Kveld-Úlfur og þeir feðgar völdu menn mjög að afli til fylgdar við sig og tömdu við skaplyndi sitt.

Skalla-Grímur var líkur föður sínum á vöxt og að afli, svo og að yfirlitum og skaplyndi.

21. kafli

Haraldur konungur var í Víkinni, þá er Þórólfur var í hernaðinum, og fór um haustið til Upplanda og þaðan norður til Þrándheims og sat þar um veturinn og hafði fjölmenni mikið.

Þar voru þá með konungi Sigtryggur og Hallvarður og höfðu spurt, hvernig Þórólfur hafði búið að herbergjum þeirra í Hísing og hvern mannskaða og fjárskaða, er hann hafði þar gert. Þeir minntu konung oft á það og svo það með, að Þórólfur hafði rænt konung og þegna hans og farið með hernaði þar innan lands. Þeir báðu konung orlofs til, að þeir bræður skyldu fara með liði því, er vant var þeim að fylgja, og sækja heim að Þórólfi.

Konungur svarar svo: "Vera munu ykkur þykja sakar til, þó að þið ráðið Þórólf af lífi, en eg ætla, að ykkur skorti mikið hamingju til þess verks; er Þórólfur ekki ykkar maki, þó að þið þykist vera menn hraustir eða vel að ykkur gerðir."

Þeir bræður sögðu, að það myndi brátt reynt verða, ef konungur vill þeim lof til gefa, og segja, að þeir hafa oft lagt á hættu mikla við þá menn, er þeir áttu minna í að hefna, og hafði þeim oftast orðið sigurs auðið.

En er voraði, þá bjuggust menn ferða sinna; þá var enn sem fyrr sagt, að þeir Hallvarður bræður héldu á því máli við konung. Hann kvaðst þá lofa, að þeir tækju Þórólf af lífi - "og veit eg, að þið munuð færa mér höfuð hans, er þið komið aftur, og með marga dýrgripi; en þó geta þess sumir menn," segir konungur, "ef þið siglið norður, að þið munið bæði sigla og róa norðan."

Nú búast þeir sem skjótast og höfðu tvö skip og hálft annað hundrað manna, og er þeir voru búnir, taka þeir landnyrðing út eftir firðinum, en það er andviðri norður með landi.

22. kafli

Haraldur konungur sat þá á Hlöðum, er þeir Hallvarður fóru á brott, og þegar jafnskjótt bjóst konungur sem skyndilegast og gekk á skip sín, og reru þeir inn eftir firði um Skarnssund og svo um Beitsjó inn til Eldueiðs. Lét hann þar eftir skipin og fór norður um eiðið til Naumudals, og tók hann þar langskip, er bændur áttu, og gekk hann þar á með lið sitt; hafði hann hirð sína og nær þremur hundruðum manna; hann hafði fimm skip eða sex og öll stór. Þeir tóku andviðri hvasst og reru nótt og dag, svo sem ganga mátti; nótt var þá farljós.

Þeir komu aftan dags til Sandness eftir sólarfall og sáu þar fyrir bænum fljóta langskip mikið og tjaldað yfir. Þar kenndu þeir skip það, er Þórólfur átti; hafði hann það látið búa og ætlaði af landi brott, en þá hafði hann heita látið fararmungát sitt. Konungur bað menn ganga af skipum gersamlega; lét hann fara upp merki sitt. Skammt var að ganga til bæjarins, en varðmenn Þórólfs sátu inni við drykkju og voru eigi gengnir á vörðinn, og var engi maður úti; sat allt lið inni við drykkju.

Konungur lét slá mannhring um stofuna; lustu þeir þá upp herópi, og var blásið í konungslúður herblástur. En er þeir Þórólfur heyra það, hljópu þeir til vopna, því að hvers manns alvæpni hékk yfir rúmi hans. Konungur lét kalla að stofunni og bað ganga út konur og ungmenni og gamalmenni, þræla og mansmenn.

Síðan gekk út Sigríður húsfreyja og með henni konur þær, er inni voru, og aðrir þeir menn, er útganga var lofuð. Sigríður spurði eftir, ef þeir væru þar synir Berðlu-Kára; þeir gengu fram báðir og spurðu, hvað hún vildi þeim.

"Fylgið mér til konungs," sagði hún.

Þeir gerðu svo. En er hún kom til konungs, þá spurði hún: "Skal nokkuð um sættir tjóa að leita, herra, með ykkur Þórólfi?"

Konungur svarar: "Vill Þórólfur upp gefast og ganga á vald mitt til miskunnar, og mun hann halda lífi og limum, en menn hans munu sæta refsingum, svo sem sakar falla til."

Síðan gekk Ölvir hnúfa til stofunnar og lét kalla Þórólf til máls við sig; hann sagði honum þann kost, er konungur gerði.

Þórólfur svarar: "Enga vil eg nauðungarsætt taka af konungi; bið þú konung gefa oss útgöngu; látum þá skeika að sköpuðu."

Ölvir gekk til konungs og sagði, hvers Þórólfur beiddist.

Konungur sagði: "Berið eld að stofunni; ekki vil eg berjast við þá og týna liði mínu; veit eg, að Þórólfur mun gera oss mannskaða mikinn, ef vér skulum sækja hann þar, er hann mun seint að vinna inni, þótt hann hafi lið minna en vér."

Síðan var eldur borinn að stofunni, og sóttist það skjótt, því að timbrið var þurrt og bræddur viðurinn, en næfrum þakið um ræfrið. Þórólfur bað menn sína brjóta upp bálkinn, er var milli stofunnar og forstofunnar, og sóttist það skjótt; en er þeir náðu timburstokknum, þá tóku svo margir stokkinn einn, sem á fengu haldið, og skutu öðrum endanum í hyrningina svo hart, að nafarnar hrutu af fyrir utan, og hljópu í sundur veggirnir, svo að þar var útgangur mikill. Gekk þar Þórólfur fyrstur út og þá Þorgils gjallandi og svo hver eftir annan.

Tókst þá bardaginn, og var það um hríð, að stofan gætti á bak þeim Þórólfi, en er hún tók að brenna, þá sótti eldurinn að þeim; féll þá og margt lið þeirra. Þá hljóp Þórólfur fram og hjó til beggja handa, sótti þangað að, er merki konungs var. Þá féll Þorgils gjallandi. En er Þórólfur kom fram að skjaldborginni, lagði hann sverði í gegnum þann mann, er merkið bar.

Þá mælti Þórólfur: "Nú gekk eg þremur fótum til skammt."

Þá stóðu á honum bæði sverð og spjót, en sjálfur konungur veitti honum banasár, og féll Þórólfur fram á fætur konungi. Þá kallaði konungur og bað hætta að drepa fleiri menn, og var þá svo gert.

Síðan bað konungur menn sína fara ofan til skipa. Hann mælti við Ölvi og þá bræður: "Takið nú Þórólf, frænda ykkarn, og veitið honum umbúnað sæmilegan og svo öðrum mönnum, er hér eru fallnir, og veitið þeim gröft, en látið binda sár manna, þeirra er lífvænir eru, en ekki skal hér ræna, því að þetta er allt mitt fé."

Síðan gekk konungur ofan til skipanna og flest lið með honum; en er þeir voru á skip komnir, þá tóku menn að binda sár sín.

Konungur gekk um skipið og leit á sár manna; hann sá, hvar maður batt svöðusár eitt. Konungur sagði, að ekki hafði Þórólfur veitt það sár - "og allt bitu honum annan veg vopnin; fáir ætla eg, að þau bindi sárin, er hann veitti, og skaði mikill er eftir menn slíka."

En þegar að morgni dags lét konungur draga segl sín og sigldi suður, sem af tók. En er leið á daginn, þá fundu þeir konungur róðrarskip mörg í hverju eyjarsundi, og hafði lið það ætlað til fundar við Þórólf, því að njósnir hans höfðu verið allt suður í Naumudal og víða um eyjar. Höfðu þeir orðið vísir, að þeir Hallvarður bræður voru komnir sunnan með lið mikið og ætluðu að Þórólfi. Höfðu þeir Hallvarður haft jafnan andviðri, og höfðu þeir dvalist í ýmsum höfnum, til þess er njósn hafði farið hið efra um land, og höfðu þess orðið varir njósnarmenn Þórólfs, og hafði þetta herhlaup fyrir þá sök verið.

Konungur sigldi hraðbyrja, til þess er hann kom í Naumudal; lét þar skipin eftir, en hann fór landveg í Þrándheim; tók hann þar skip sín, sem hann hafði eftir látið; hélt þá liðinu út til Hlaða. Spurðust brátt þessi tíðindi og komu fyrir þá Hallvarð, þar er þeir lágu; sneru þeir þá aftur til konungs, og þótti þeirra ferð heldur hæðileg.

Þeir bræður, Ölvir hnúfa og Eyvindur lambi, dvöldust um hríð á Sandnesi; létu þeir búa um val þann, er þar hafði fallið; bjuggu þeir um lík Þórólfs eftir siðvenju, svo sem títt var að búa um lík göfugra manna; settu eftir hann bautasteina. Þeir létu græða sjúka menn; þeir skipuðu og til bús með Sigríði; var þar eftir allur fjárafli, en mestur hafði inni brunnið húsbúnaður og borðbúnaður og klæðnaður manna.

En er þeir bræður voru búnir, þá fóru þeir norðan og komu á fund Haralds konungs, er hann var í Þrándheimi, og voru með honum um hríð; þeir voru hljóðir og mæltu fátt við menn.

Það var einn hvern dag, að þeir bræður gengu fyrir konung; þá mælti Ölvir: "Þess orlofs viljum við bræður þig biðja, konungur, að þú lofir okkur heimferð til búa okkarra, því að hér hafa þau tíðindi gerst, er við berum eigi skaplyndi til að eiga drykk og sess við þá menn, er báru vopn á Þórólf, frænda okkarn."

Konungur leit við honum og svarar heldur stutt: "Eigi mun eg það lofa ykkur; hér skuluð þið vera með mér."

Þeir bræður gengu í brott og aftur til sætis síns.

Annan dag eftir sat konungur í málstofu, lét kalla þangað þá Ölvi bræður.

"Nú skuluð þið vita," segir konungur, "um erindi það er þið hófuð við mig og beiddust heimferðar. Hafið þið verið hér um hríð með mér og verið vel siðaðir; hafið þið vel jafnan dugað; hefir mér til ykkar allir hlutir vel hugnað. Nú vil eg, Eyvindur, að þú farir norður á Hálogaland; vil eg gifta þér Sigríði á Sandnesi, konu þá, er Þórólfur hafði átt; vil eg gefa þér fé það allt, er Þórólfur átti; skaltu þar hafa með vináttu mína, ef þú kannt til að gæta. En Ölvir skal mér fylgja; vil eg hann eigi lausan láta fyrir sakir íþrótta hans."

Þeir bræður þökkuðu konungi þann sóma, er hann veitti þeim, sögðu, að þeir vildu það fúslega þekkjast. Bjóst Eyvindur þá til ferðar, fékk sér gott skip, það er honum hæfði; fékk konungur honum jartegnir sínar til ráðs þessa. Greiddist ferð Eyvindar vel og kom fram norður í Álöst á Sandnesi. Sigríður tók vel við þeim. Síðan bar Eyvindur fram jartegnir konungs og erindi sín fyrir Sigríði og hóf bónorð sitt við hana, sagði, að það var konungs orðsending, að Eyvindur nái ráði þessu. En Sigríður sá þann einn sinn kost, svo sem þá var komið, að láta konung fyrir ráða. Fór það ráð fram, að Eyvindur fékk Sigríðar; tók hann þá við búi á Sandnesi og við fé því öllu, er Þórólfur hafði átt; var Eyvindur göfugur maður. Voru börn þeirra Finnur skjálgi, faðir Eyvindar skáldaspillis, og Geirlaug, er átti Sighvatur rauði. Finnur hinn skjálgi átti Gunnhildi, dóttur Hálfdanar jarls; móðir hennar hét Ingibjörg, dóttir Haralds konungs hins hárfagra. Eyvindur lambi hélst í vináttu við konung, meðan þeir lifðu báðir.

23. kafli

Ketill hængur hét maður, sonur Þorkels Naumdælajarls og Hrafnhildar, dóttur Ketils hængs úr Hrafnistu; Hængur var göfugur maður og ágætur; hann hafði verið hinn mesti vinur Þórólfs Kveld-Úlfssonar og frændi skyldur. Hann var þá í úthlaupi því, er liðsafnaður var á Hálogalandi og menn ætluðu til liðs við Þórólf, svo sem fyrr var ritað. En er Haraldur konungur fór norðan og menn urðu þess varir, að Þórólfur var af lífi tekinn, þá rufu þeir safnaðinn. Hængur hafði með sér sex tigu manna, og sneri hann til Torga; en þar voru fyrir Hildiríðarsynir og höfðu fátt lið; en er Hængur kom á bæinn, veitti hann þeim atgöngu. Féllu þar Hildiríðarsynir og þeir menn flestir, er þar voru fyrir, en þeir Hængur tóku fé allt, það er þeir fengu.

Eftir það tók Hængur knörru tvo, þá er hann fékk mesta; lét þar bera á út fé það allt, er hann átti og hann mátti með komast; hann hafði með sér konu sína og börn, svo þá menn alla, er að þeim verkum höfðu verið með honum. Baugur hét maður, fóstbróðir Hængs, ættstór maður og auðugur; hann stýrði öðrum knerrinum. En er þeir voru búnir og byr gaf, þá sigldu þeir í haf út.

Fáum vetrum áður höfðu þeir Ingólfur og Hjörleifur farið að byggja Ísland, og var mönnum þá alltíðrætt um þá ferð; sögðu menn þar vera allgóða landkosti.

Hængur sigldi vestur í haf og leitaði til Íslands; en er þeir urðu við land varir, þá voru þeir fyrir sunnan að komnir. En fyrir því að veður var hvasst, en brim á landið og ekki hafnlegt, þá sigldu þeir vestur um landið fyrir sandana; en er veðrið tók minnka og lægja brim, þá varð fyrir þeim árós mikill, og héldu þeir þar skipunum upp í ána og lögðu við hið eystra land. Sú á heitir nú Þjórsá; féll þá miklu þröngra og var djúpari en nú er. Þeir ruddu skipin; tóku þá og könnuðu landið fyrir austan ána og fluttu eftir sér búfé sitt; var Hængur hinn fyrsta vetur fyrir utan Rangá hina ytri. En um vorið kannaði hann austur landið og nam þá land milli Þjórsár og Markarfljóts, á milli fjalls og fjöru, og byggði að Hofi við Rangá hina eystri.

Ingunn, kona hans, fæddi barn um vorið, þá er þau höfðu þar verið hinn fyrsta vetur, og hét sveinn sá Hrafn; en er hús voru þar ofan tekin, þá var þar síðan kallað Hrafntóftir.

Hængur gaf Baugi land í Fljótshlíð ofan frá Merkiá til árinnar fyrir utan Breiðabólstað, og bjó hann að Hlíðarenda, og frá Baugi er komin mikil kynslóð í þeirri sveit. Hængur gaf land skipverjum sínum, en seldi sumum við litlu verði, og eru þeir landnámamenn kallaðir.

Stórólfur hét sonur Hængs; hann átti Hvolinn og Stórólfsvöll; hans sonur var Ormur hinn sterki. Herjólfur hét annar sonur Hængs; hann átti land í Fljótshlíð til móts við Baug og út til Hvolslækjar; hann bjó undir Brekkum; sonur hans hét Sumarliði, faðir Veturliða skálds. Helgi var hinn þriðji sonur Hængs; hann bjó á Velli og átti land til Rangár hið efra og ofan til móts við bræður sína. Vestar hét hinn fjórði sonur Hængs; hann átti land fyrir austan Rangá milli og Þverár og hinn neðra hlut Stórólfsvallar; hann átti Móeiði, dóttur Hildis úr Hildisey; þeirra dóttir var Ásný, er átti Ófeigur grettir; Vestar bjó að Móeiðarhvoli. Hrafn var hinn fimmti Hængs sonur; hann var fyrstur lögsögumaður á Íslandi; hann bjó að Hofi eftir föður sinn. Þórlaug var dóttir Hrafns, er átti Jörundur goði; þeirra sonur var Valgarður að Hofi. Hrafn var göfgastur sona Hængs.

24. kafli

Kveld-Úlfur spurði fall Þórólfs, sonar síns; varð hann hryggur við þessi tíðindi, svo að hann lagðist í rekkju af harmi og elli.

Skalla-Grímur kom oft til hans og taldi fyrir honum, bað hann hressa sig, sagði, að allt var annað athæfilegra en það að auvirðast og leggjast í kör - "er hitt heldur ráð, að vér leitum til hefnda eftir Þórólf; má vera, að vér komum í færi við þá nokkura menn, er verið hafa að falli Þórólfs; en ef það er eigi, þá munu þeir vera menn, er vér munum ná, er konungi mun sér þykja móti skapi."

Kveld-Úlfur kvað vísu:


Nú frák norðr í eyju,
norn erum grimm, til snimma
Þundr kaus þremja skyndi,
Þórólf und lok fóru;
létumk þung at þingi
Þórs fangvina at ganga,
skjótt munat hefnt, þótt hvettimk
hugr, malm-Gnáar brugðit.

Haraldur konungur fór það sumar til Upplanda og fór um haustið vestur á Valdres og allt á Vors. Ölvir hnúfa var með konungi og kom oft á mál við konung, ef hann myndi vilja bæta Þórólf, veita Kveld-Úlfi og Skalla-Grími fébætur eða mannsóma þann nokkurn, er þeir mættu við una. Konungur varnaði þess eigi með öllu, ef þeir feðgar færu á fund hans.

Síðan byrjaði Ölvir ferð sína norður í Fjörðu, létti eigi fyrr en hann kom að kveldi dags til þeirra feðga, tóku þeir þakksamlega við honum; dvaldist hann þar nokkura hríð.

Kveld-Úlfur spurði Ölvi vandlega frá atburðum þeim, er gerst höfðu á Sandnesi, þá er Þórólfur féll, svo að því, hvað Þórólfur vann til frama, áður hann félli, svo og hverjir vopn báru á hann, eða hvar hann hafði mest sár, eða hvernig fall hans yrði. Ölvir sagði allt það, er hann spurði, svo það, að Haraldur konungur veitti honum sár það, er ærið myndi eitt til bana, og Þórólfur féll nær á fætur konungi á grúfu.

Þá svarar Kveld-Úlfur: "Vel hefir þú sagt, því að það hafa gamlir menn mælt, að þess manns myndi hefnt verða, ef hann félli á grúfu, og þeim nær koma hefndin, er fyrir yrði, er hinn félli; en ólíklegt er, að oss verði þeirrar hamingju auðið."

Ölvir sagði þeim feðgum, að hann vænti, ef þeir vildu fara á fund konungs og leita eftir bótum, að það myndi sómaför verða, og bað þá til þess hætta og lagði mörg orð til.

Kveld-Úlfur sagði, að hann var hvergi fær fyrir elli sakar, - "mun eg vera heima," sagði hann.

"Vilt þú fara, Grímur?" sagði Ölvir.

"Ekki erindi ætla eg mig eiga," sagði Grímur; "mun konungi eg þykja ekki orðsnjallur; ætla eg mig ekki lengi munu biðja bótanna."

Ölvir sagði, að hann myndi þess eigi þurfa; "skulum vér mæla allt fyrir hönd þína, slíkt er vér kunnum."

En með því að Ölvir sótti það mál mjög, þá hét Grímur ferð sinni, þá er hann þættist búinn; kváðu þeir Ölvir á með sér þá stund, er Grímur skyldi koma á konungsfund. Fór þá Ölvir fyrst á brott og til konungs.

25. kafli

Skalla-Grímur bjóst til ferðar þeirrar, er fyrr var frá sagt; hann valdi sér menn af heimamönnum sínum og nábúum, þá er voru sterkastir að afli og hraustastir, þeirra er til voru. Maður hét Áni, bóndi einn auðugur; annar hét Grani, þriðji Grímólfur og Grímur, bróðir hans, heimamenn Skalla-Gríms, og þeir bræður, Þorbjörn krumur og Þórður beigaldi; þeir voru kallaðir Þórörnusynir; hún bjó skammt frá Skalla-Grími og var fjölkunnug; Beigaldi var kolbítur. Einn hét Þórir þurs og bróðir hans Þorgeir jarðlangur. Oddur hét maður einbúi, Grís lausingi. Tólf voru þeir til fararinnar og allir hinir sterkustu menn og margir hamrammir.

Þeir höfðu róðrarferju, er Skalla-Grímur átti, fóru suður með landi, lögðu inn í Ostrarfjörðu, fóru þá landveg upp á Vors til vatns þess, er þar verður, en leið þeirra bar svo til, að þeir skyldu þar yfir fara. Fengu þeir sér róðrarskip, það er við þeirra hæfi var; reru síðan yfir vatnið, en þá var eigi langt til bæjar þess, er konungurinn var á veislu. Komu þeir Grímur þar þann tíma, er konungur var genginn til borða; þeir Grímur hittu menn að máli úti í garðinum og spurðu, hvað þar var tíðinda; en er þeim var sagt, þá bað Grímur kalla til máls við sig Ölvi hnúfu.

Sá maður gekk inn í stofuna og þar til, er Ölvir sat, og sagði honum: "Menn eru hér komnir úti, tólf saman, ef menn skal kalla; en líkari eru þeir þursum að vexti og að sýn en mennskum mönnum."

Ölvir stóð upp þegar og gekk út; þóttist hann vita, hverjir komnir myndu; fagnaði hann vel Grími frænda sínum og bað hann ganga inn í stofu með sér.

Grímur sagði förunautum sínum: "Það mun hér vera siður, að menn gangi vopnlausir fyrir konung; skulum vér ganga inn sex, en aðrir sex skulu vera úti og gæta vopna vorra."

Síðan ganga þeir inn; gekk Ölvir fyrir konunginn; Skalla-Grímur stóð að baki honum.

Ölvir tók til máls: "Nú er Grímur hér kominn, sonur Kveld- Úlfs; kunnum vér nú aufúsu, konungur, að þér gerið hans för góða hingað, svo sem vér væntum, að vera muni. Fá þeir margir af yður sæmd mikla, er til minna eru komnir en hann og hvergi nær eru jafnvel að sér gervir um flestar íþróttir sem hann mun vera, og mátt þú svo þetta gera, konungur, að mér þykir mestu máli skipta, ef þér þykir það nokkurs vert."

Ölvir talaði langt og snjallt, því að hann var orðfær maður. Margir aðrir vinir Ölvis gengu fyrir konung og fluttu þetta mál.

Konungur litaðist um; hann sá, að maður stóð að baki Ölvi og var höfði hærri en aðrir menn og sköllóttur.

"Er þetta hann Skalla-Grímur," sagði konungur, "hinn mikli maður?"

Grímur sagði, að hann kenndi rétt.

"Eg vil þá," sagði konungur, "ef þú beiðist bóta fyrir Þórólf, að þú gerist minn maður og gangir hér í hirðlög og þjónir mér. Má mér svo vel líka þín þjónusta, að eg veiti þér bætur eftir bróður þinn eða aðra sæmd, eigi minni en eg veitti honum Þórólfi, bróður þínum, og skyldir þú betur kunna að gæta en hann, ef eg gerði þig að svo miklum manni sem hann var orðinn."

Skalla-Grímur svarar: "Það var kunnugt, hversu miklu Þórólfur var framar en eg er að sér gerr um alla hluti, og bar hann enga gæfu til að þjóna þér, konungur. Nú mun eg ekki taka það ráð. Eigi mun eg þjóna þér, því að eg veit, að eg mun eigi gæfu til bera að veita þér þá þjónustu, sem eg myndi vilja og vert væri. Hygg eg, að mér verði meiri muna vant en Þórólfi."

Konungur þagði, og setti hann dreyrrauðan á að sjá. Ölvir sneri þegar í brott og bað þá Grím að ganga út; þeir gerðu svo, gengu út og tóku vopn sín; bað Ölvir þá fara í brott sem skjótast. Gekk Ölvir á leið með þeim til vatnsins og margir menn með honum.

Áður þeir Skalla-Grímur skildust, mælti Ölvir: "Annan veg var för þín, Grímur frændi, til konungs en eg myndi kjósa. Fýsti eg þig mjög hingað-fararinnar, en nú vil eg hins biðja, að þú farir heim sem skyndilegast, og þess með, að þú komir eigi á fund Haralds konungs, nema betri verði sætt ykkar en mér þykir nú á horfast, og gæt þín vel fyrir konungi og hans mönnum."

Síðan fóru þeir Grímur yfir vatnið, en þeir Ölvir gengu þar til, er skip þau voru, er upp sett voru við vatnið, og hjuggu svo, að ekki var fært, því að þeir sáu mannför ofan frá konungsbænum. Voru þeir menn margir saman og vopnaðir mjög og fóru æsilega; þá menn hafði Haraldur konungur sent eftir þeim til þess að drepa Grím.

Hafði konungur tekið til orða litlu síðar en þeir Grímur höfðu út gengið, sagði svo: "Það sé eg á skalla þeim hinum mikla, að hann er fullur upp úlfúðar og hann verður að skaða þeim mönnum nokkurum, er oss mun þykja afnám í, ef hann náir. Megið þér það ætla, þeir menn, er hann mun kalla, að í sökum séu við hann, að sá skalli mun engan yðvarn spara, ef hann kemst í færi; farið nú þá eftir honum og drepið hann."

Síðan fóru þeir og komu til vatnsins og fengu þar engi skip, þau er fær væru; fóru aftur síðan og sögðu konungi sína ferð og svo það, að þeir Grímur myndu þá komnir yfir vatnið.

Skalla-Grímur fór leið sína og föruneyti hans, til þess er hann kom heim; sagði Skalla-Grímur Kveld-Úlfi frá ferð þeirra. Kveld-Úlfur lét vel yfir því, er Grímur hafði eigi farið til konungs þess erindis að ganga til handa honum, sagði enn sem fyrr, að þeir myndu af konungi hljóta skaða einn, en enga uppreist.

Kveld-Úlfur og Skalla-Grímur ræddu oft um ráðagerð sína, og kom það allt ásamt með þeim, sögðu svo, að þeir myndu ekki mega vera þar í landi, heldur en aðrir menn, þeir er í ósætt væru við konung, og myndi þeim hitt ráð að fara af landi á brott, og þótti þeim það fýsilegt að leita til Íslands, því að þá var sagt þar vel frá landkostum. Þar voru þá komnir vinir þeirra og kunningjar, Ingólfur Arnarson og förunautar hans, og tekið sér landskosti og bústaði á Íslandi; máttu menn þar nema sér lönd ókeypis og velja bústaði. Staðfestist það helst um ráðagerð þeirra, að þeir myndu bregða búi sínu og fara af landi á brott.

Þórir Hróaldsson hafði verið í barnæsku að fóstri með Kveld-Úlfi, og voru þeir Skalla-Grímur mjög jafnaldrar; var þar allkært í fóstbræðralag; Þórir var orðinn lendur maður konungs, er þetta var tíðinda, en vinátta þeirra Skalla-Gríms hélst ávallt,

Snemma um vorið bjuggu þeir Kveld-Úlfur skip sín; þeir höfðu mikinn skipakost og góðan, bjuggu tvo knörru mikla og höfðu á hvorum þrjá tigu manna, þeirra er liðfærir voru, og um fram konur og ungmenni. Þeir höfðu með sér lausafé allt, það er þeir máttu með komast, en jarðir þeirra þorði engi maður að kaupa fyrir ríki konungs.

En er þeir voru búnir, þá sigldu þeir í brott; þeir sigldu í eyjar þær, er Sólundir heita; það eru margar eyjar og stórar og svo mjög vogskornar, að það er mælt, að þar munu fáir menn vita allar hafnir.

26. kafli

Guttormur hét maður, sonur Sigurðar hjartar; hann var móðurbróðir Haralds konungs; hann var fósturfaðir konungs og ráðamaður fyrir landi hans, því að konungur var þá á barns aldri, fyrst er hann kom til ríkis. Guttormur var hertogi fyrir liði Haralds konungs, þá er hann vann land undir sig, og var hann í öllum orustum, þeim er konungur átti, þá er hann gekk til lands í Noregi. En er Haraldur var orðinn einvaldskonungur yfir landi öllu og hann settist um kyrrt, þá gaf hann Guttormi, frænda sínum, Vesturfold og Austur- Agðir og Hringaríki og land það allt, er átt hafði Hálfdan svarti, faðir hans. Guttormur átti sonu tvo og dætur tvær. Synir hans hétu Sigurður og Ragnar, en dætur hans Ragnhildur og Áslaug.

Guttormur tók sótt; en er að honum leið, þá sendi hann menn á fund Haralds konungs og bað hann sjá fyrir börnum sínum og fyrir ríki sínu; litlu síðar andaðist hann.

En er konungur spurði andlát hans, þá lét hann kalla til sín Hallvarð harðfara og þá bræður, sagði, að þeir skyldu fara sendiför hans austur í Vík; konungur var þá staddur í Þrándheimi.

Þeir bræður bjuggust til ferðar þeirrar sem veglegast; völdu sér lið og höfðu skip það, er þeir fengu best; þeir höfðu það skip, er átt hafði Þórólfur Kveld-Úlfsson og þeir höfðu tekið af Þorgísli gjallanda. En er þeir voru búnir ferðar sinnar, þá sagði konungur þeim erindi, að þeir skyldu fara austur til Túnsbergs; þar var þá kaupstaður. Þar hafði Guttormur haft aðsetu.

"Skuluð þið," sagði konungur, "færa mér sonu Guttorms, en dætur hans skulu þar upp fæðast, til þess er eg gifti þær; skal eg fá menn til að varðveita ríkið og veita meyjunum fóstur."

En er þeir bræður voru búnir, þá fara þeir leið sína og byrjaði þeim vel; komu þeir um vorið í Vík austur til Túnsbergs og báru þar fram erindi sín; taka þeir Hallvarður við sonum Guttorms og miklu lausafé. Fara þeir, þá er þeir eru búnir, aftur á leið; byrjaði þeim þá nokkurum mun seinna, og varð ekki til tíðinda í þeirra ferð, fyrr en þeir sigla norður um Sognsæ byr góðan og bjart veður og voru þá allkátir.

27. kafli

Kveld-Úlfur og þeir Skalla-Grímur héldu njósnum jafnan um sumarið inn á þjóðleiðinni. Skalla-Grímur var hverjum manni skyggnari; hann sá sigling þeirra Hallvarðs og kenndi skipið, því að hann hafði það skip séð fyrr, þá er Þorgils fór með. Skalla-Grímur hélt vörð á um ferð þeirra, hvar þeir lögðu til hafnar um kveldið; síðan fer hann aftur til liðs síns og segir Kveld-Úlfi það, er hann hafði séð, svo það, að hann hafði kennt skipið, það er þeir Hallvarður höfðu tekið af Þorgísli og Þórólfur hafði átt, og þar myndu þeir menn nokkurir fylgja, er veiður myndi í vera.

Síðan búast þeir og búa báða bátana og höfðu tuttugu menn á hvorum; stýrði öðrum Kveld-Úlfur, en öðrum Skalla-Grímur; róa þeir síðan og leita skipsins, en er þeir koma að, þar er skipið lá, þá lögðu þeir að landi.

Þeir Hallvarður höfðu tjaldað yfir skipi sínu og höfðu þá lagst til svefns; en er þeir Kveld-Úlfur komu að þeim, þá hljópu varðmenn upp, er sátu við bryggjusporð, og kölluðu á skip út, báðu menn upp standa, sögðu, að ófriður fór að þeim; hljópu þeir Hallvarður til vopna sinna.

En er þeir Kveld-Úlfur komu að bryggjusporðinum, þá gekk hann út að skutbryggju, en Skalla-Grímur gekk fram að bryggjunni; Kveld-Úlfur hafði í hendi bryntröll. En er hann kom á skipið, þá bað hann menn sína ganga hið ytra með borðum og höggva tjöldin úr klofum, en hann óð aftur til lyftingarinnar, og svo er sagt, að þá hamaðist hann, og fleiri voru þeir förunautar hans, er þá hömuðust. Þeir drápu menn þá alla, er fyrir þeim urðu; slíkt sama gerði Skalla-Grímur, þar er hann gekk um skipið; léttu þeir feðgar eigi, fyrr en hroðið var skipið. En er Kveld-Úlfur kom aftur að lyftingunni, reiddi hann upp bryntröllið og höggur til Hallvarðs í gegnum hjálminn og höfuðið, og sökk allt að skafti; hnykkti hann þá svo hart að sér, að hann brá Hallvarði á loft og slöngdi honum útbyrðis. Skalla-Grímur ruddi framstafninn og drap Sigtrygg. Margt hljóp manna á kaf, en menn Skalla-Gríms tóku bátinn, er þeir höfðu þangað haft, og reru til og drápu þá alla, er á sundinu voru.

Þar lést alls manna Hallvarðs meir en fimm tigir manna, en þeir Skalla-Grímur tóku skipið, það er þeir Hallvarður höfðu þangað haft, og fé allt, það sem á var.

Þeir tóku höndum menn tvo eða þrjá, þá er þeim þótti sem minnstir væru fyrir sér, og gáfu grið og höfðu af þeim tíðindi, fréttu, hverjir menn hefðu verið á skipinu, og svo hvernig ferð þeirra hefði ætluð verið. En er þeir voru vísir orðnir alls hins sanna, þá könnuðu þeir valinn, þann er á skipinu lá; fannst þeim þá það á, að meiri hlutur manna hafði fyrir borð hlaupið og höfðu týnst en það, er fallið hafði á skipinu. Þeir synir Guttorms höfðu fyrir borð hlaupið og höfðu týnst; þá var annar þeirra tólf vetra, en annar tíu, og hinir vænlegustu menn.

Síðan lét Skalla-Grímur lausa fara þá menn, er hann hafði grið gefið, og bað þá fara á fund Haralds konungs og segja honum vendilega frá þeim tíðindum, er þar gerðust, og svo hverjir þar höfðu að verið. "Skuluð þér," sagði hann, "bera til konungs kviðling þenna:


Nús hersis hefnd
við hilmi efnd;
gengr ulfr ok örn
of ynglings börn;
flugu höggvin hræ
Hallvarðs á sæ;
grár slítr undir
ari Snarfara."

Síðan fluttu þeir Grímur skipið með farmi út til skipa sinna; skiptu þá skipunum, hlóðu þetta, er þá höfðu þeir fengið, en ruddu hitt, er þeir höfðu áður og minna var, báru þar í grjót og brutu þar á raufar og sökktu niður; sigldu síðan á haf út, þegar byr gaf.

Svo er sagt, að þeim mönnum væri farið, er hamrammir eru, eða þeim, er berserksgangur var á, að meðan það var framið, þá voru þeir svo sterkir, að ekki hélst við þeim, en fyrst, er af var gengið, þá voru þeir ómáttkari en að vanda. Kveld- Úlfur var og svo, að þá er af honum gekk hamremmin, þá kenndi hann mæði af sókn þeirri, er hann hafði veitt, og var hann þá af öllu saman ómáttugur, svo að hann lagðist í rekkju.

En byr bar þá í haf út. Kveld-Úlfur réð fyrir skipi því, er þeir höfðu tekið af þeim Hallvarði; þeim byrjaði vel og héldu mjög samfloti, svo að hvorir vissu löngum til annarra.

En er sóttist hafið, þá elnaði sótt á hendur Kveld-Úlfi; en er dró að því, að hann var banvænn, þá kallaði hann til skipverja sína og sagði þeim, að honum þótti líklegt, að þá myndi brátt skilja vega þeirra. "Hef eg," sagði hann, "ekki kvellisjúkur verið, en ef svo fer, sem mér þykir nú líklegast, að eg andist, þá gerið mér kistu og látið mig fara fyrir borð, og verður þetta annan veg en eg hugði, að vera myndi, ef eg skal eigi koma til Íslands og nema þar land. Þér skuluð bera kveðju mína Grími, syni mínum, þá er þér finnist, og segið honum það með, ef svo verður, að hann kemur til Íslands, og beri svo að, þótt það muni ólíklegt þykja, að eg sé þar fyrir, þá taki hann sér þar bústað sem næst því, er eg hefi að landi komið."

Litlu síðar andaðist Kveld-Úlfur; gerðu skipverjar hans svo sem hann hafði fyrir mælt, að þeir lögðu hann í kistu og skutu síðan fyrir borð.

Grímur hét maður, sonur Þóris, Ketils sonar kjölfara, kynstór maður og auðugur; hann var skipverji Kveld-Úlfs; hann hafði verið aldavinur þeirra feðga og hafði verið í ferðum bæði með þeim og Þórólfi, hafði hann og fengið reiði konungs fyrir þá sök. Hann tók til forráða skipið, eftir er Kveld-Úlfur var dauður.

En er þeir voru komnir við Ísland, þá sigldu þeir sunnan að landi; þeir sigldu vestur fyrir landið, því að þeir höfðu það spurt, að Ingólfur hafði sér þar bústað tekið; en er þeir komu fyrir Reykjanes og þeir sáu firðinum upp lúka, þá stefna þeir inn í fjörðinn báðum skipunum. Veður gerði hvasst og væta mikil og þoka; skildust þá skipin. Sigldu þeir inn eftir Borgarfirði, til þess er þraut sker öll; köstuðu þá akkerum, til þess er veður lægði og ljóst gerði; þá biðu þeir flæðar; síðan fluttu þeir skipið upp í árós nokkurn; sú er kölluð Gufuá. Leiddu þar skipið upp eftir ánni, svo sem gekk; báru síðan farm af skipinu og bjuggust þar um hinn fyrsta vetur.

Þeir könnuðu landið með sæ, bæði upp og út; en er þeir höfðu skammt farið, þá fundu þeir í vík einni, hvar upp var rekin kista Kveld-Úlfs; fluttu þeir kistuna á nes það, er þar varð, settu hana þar niður og hlóðu að grjóti.

28. kafli

Skalla-Grímur kom þar að landi, er nes mikið gekk í sæ út, og eið mjótt fyrir ofan nesið, og báru þar farm af; það kölluðu þeir Knarrarnes.

Síðan kannaði Skalla-Grímur landið, og var þar mýrlendi mikið og skógar víðir, langt í milli fjalls og fjöru, selveiðar nógar og fiskifang mikið. En er þeir könnuðu landið suður með sjónum, og varð þar fyrir þeim fjörður mikill, en er þeir fóru inn með firði þeim, þá léttu þeir eigi fyrr ferðinni en þeir fundu förunauta sína, Grím hinn háleyska og þá förunauta; varð þar fagnafundur. Sögðu þeir Skalla-Grími, að Kveld-Úlfur var þar til lands kominn og þeir höfðu hann jarðað; síðan fylgdu þeir Skalla-Grími þar til, og sýndist honum svo, sem þaðan myndi skammt á brott, þar er bólstaðargerð góð myndi vera.

Fór Grímur þá í brott og aftur til skipverja sinna, og sátu þar hvorir um veturinn, sem þeir höfðu að komið.

Þá nam Skalla-Grímur land milli fjalls og fjöru. Mýrar allar út til Selalóns og hið efra til Borgarhrauns, en suður til Hafnarfjalla, og allt það land, er vatnföll deila til sjóvar. Hann flutti um vorið eftir skipið suður til fjarðarins og inn í vog þann, er næstur var því, er Kveld-Úlfur hafði til lands komið, og setti þar bæ og kallaði að Borg, en fjörðinn Borgarfjörð, og svo héraðið upp frá kenndu þeir við fjörðinn.

Grími hinum háleyska gaf hann bústað fyrir sunnan Borgarfjörð, þar er kallað var á Hvanneyri; þar skammt út frá skarst inn vík ein eigi mikil; fundu þeir þar andir margar og kölluðu Andakíl, en Andakílsá, er þar féll til sjóvar. Upp frá á þeirri til þeirrar ár, er kölluð var Grímsá, þar í milli átti Grímur land.

Um vorið, þá er Skalla-Grímur lét reka kvikfé sitt utan með sjó, þá komu þeir á nes eitt lítið og veiddu þar álftir nokkurar og kölluðu Álftanes.

Skalla-Grímur gaf land skipverjum sínum. Ána gaf hann land milli Langár og Háfslækjar, og bjó hann að Ánabrekku; sonur hans var Önundur sjóni. Grímólfur byggði fyrst á Grímólfsstöðum; við hann er kennd Grímólfsfit og Grímólfslækur. Grímur hét sonur hans, er bjó fyrir sunnan fjörð; hans sonur var Grímar, er bjó á Grímarsstöðum; um hann deildu þeir Þorsteinn og Tungu-Oddur. Grani bjó að Granastöðum í Digranesi. Þorbirni krum gaf hann land upp með Gufuá og Þórði beigalda; bjó Krumur í Krumshólum, en Þórður að Beigalda. Þóri þurs og þeim bræðrum gaf hann land upp frá Einkunnum og hið ytra með Langá; Þórir þurs bjó á Þursstöðum; hans dóttir var Þórdís stöng, er bjó í Stangarholti síðan; Þorgeir bjó á Jarðlangsstöðum.

Skalla-Grímur kannaði land upp um hérað, fór fyrst inn með Borgarfirði, til þess er fjörðinn þraut, en síðan með ánni fyrir vestan, er hann kallaði Hvítá, því að þeir förunautar höfðu eigi séð fyrr vötn þau, er úr jöklum höfðu fallið; þótti þeim áin undarlega lit. Þeir fóru upp með Hvítá, til þess er sú á varð fyrir þeim, er féll af norðri frá fjöllum; þá kölluðu þeir Norðurá, og fóru upp með þeirri á, til þess er enn varð á fyrir þeim, og var það lítið vatnfall. Fóru þeir yfir á þá og enn upp með Norðurá; sáu þá brátt, hvar hin litla áin féll úr gljúfrum, og kölluðu þá Gljúfurá. Síðan fóru þeir yfir Norðurá og fóru aftur enn til Hvítár og upp með henni; varð þá enn brátt á, sú er þvers varð, fyrir þeim og féll í Hvítá; þá kölluðu þeir Þverá. Þeir urðu þess varir, að þar var hvert vatn fullt af fiskum; síðan fóru þeir út aftur til Borgar.

29. kafli

Skalla-Grímur var iðjumaður mikill; hann hafði með sér jafnan margt manna, lét sækja mjög föng þau, er fyrir voru og til atvinnu mönnum voru, því að þá fyrst höfðu þeir fátt kvikfjár, hjá því sem þurfti til fjölmennis þess, sem var; en það sem var kvikfjárins, þá gekk öllum vetrum sjálfala í skógum. Skalla-Grímur var skipasmiður mikill, en rekavið skorti eigi vestur fyrir Mýrar; hann lét gera bæ á Álftanesi og átti þar bú annað, lét þaðan sækja útróðra og selveiðar og eggver, er þá voru nóg föng þau öll, svo rekavið að láta að sér flytja. Hvalkomur voru þá og miklar, og skjóta mátti sem vildi; allt var þar þá kyrrt í veiðistöð, er það var óvant manni. Hið þriðja bú átti hann við sjóinn á vestanverðum Mýrum; var þar enn betur komið að sitja fyrir rekum, og þar lét hann hafa sæði og kalla að Ökrum. Eyjar lágu þar út fyrir, er hvalur fannst í, og kölluðu þeir Hvalseyjar. Skalla-Grímur hafði og menn s ína uppi við laxárnar til veiða; Odd einbúa setti hann við Gljúfurá að gæta þar laxveiðar; Oddur bjó undir Einbúabrekkum; við hann er kennt Einbúanes. Sigmundur hét maður, er Skalla-Grímur setti við Norðurá; hann bjó þar, er kallað var á Sigmundarstöðum; þar er nú kallað að Haugum; við hann er kennt Sigmundarnes. Síðan færði hann bústað sinn í Munoðarnes, þótti þar hægra til laxveiða.

En er fram gekk mjög kvikfé Skalla-Gríms, þá gekk féð upp til fjalla allt á sumrum; hann fann mikinn mun á, að það fé varð betra og feitara, er á heiðum gekk, svo það, að sauðfé hélst á vetrum í fjalldölum, þótt eigi verði ofan rekið. Síðan lét Skalla-Grímur gera bæ uppi við fjallið og átti þar bú; lét þar varðveita sauðfé sitt; það bú varðveitti Grís, og er við hann kennd Grísartunga. Stóð þá á mörgum fótum fjárafli Skalla-Gríms.

Stundu síðar en Skalla-Grímur hafði út komið, kom skip af hafi í Borgarfjörð, og átti sá maður, er Óleifur var kallaður hjalti; hann hafði með sér konu sína og börn og annað frændlið sitt og hafði svo ætlað ferð sína, að fá sér bústað á Íslandi; Óleifur var maður auðugur og kynstór og spakur að viti. Skalla-Grímur bauð Óleifi heim til sín til vistar og liði hans öllu, en Óleifur þekktist það, og var hann með Skalla-Grími hinn fyrsta vetur, er Óleifur var á Íslandi.

En eftir um vorið vísaði Skalla-Grímur Óleifi til landskostar fyrir sunnan Hvítá, upp frá Grímsá til Flókadalsár; Óleifur þekktist það og fór þangað búferli sínu og setti þar bústað, er heitir að Varmalæk; hann var göfugur maður. Hans synir voru þeir Ragi í Laugardal og Þórarinn Ragabróðir, er lögsögu tók á Íslandi næst eftir Hrafn Hængsson; Þórarinn bjó að Varmalæk. Hann átti Þórdísi, dóttur Ólafs feilans, systur Þórðar gellis.

30. kafli

Haraldur konungur hinn hárfagri lagði eigu sína á jarðir þær allar, er þeir Kveld-Úlfur og Skalla-Grímur höfðu eftir átt í Noregi, og allt það fé annað, er hann náði. Hann leitaði og mjög eftir mönnum þeim, er verið höfðu í ráðum og vitorðum eða nokkurum tilbeina með þeim Skalla-Grími um verk þau, er þeir unnu, áður Skalla-Grímur fór úr landi á brott, og svo kom sá fjandskapur, er konungi var á þeim feðgum, að hann hataðist við frændur þeirra eða aðra nauðleytamenn eða þá menn, er hann vissi, að þeim höfðu allkærir verið í vináttu. Sættu sumir af honum refsingum, og margir flýðu undan og leituðu sér hælis; sumir innan lands, en sumir flýðu með öllu af landi á brott.

Yngvar, mágur Skalla-Gríms, var einn af þessum mönnum, er nú var frá sagt; tók hann það ráð, að hann varði fé sínu, svo sem hann mátti, í lausaeyri og fékk sér hafskip, réð þar menn til og bjó ferð sína til Íslands, því að hann hafði þá spurt, að Skalla-Grímur hafði tekið þar staðfestu og eigi myndi þar skorta landakosti með Skalla-Grími. En er þeir voru búnir og byr gaf, þá sigldi hann í haf, og greiddist ferð hans vel; kom hann til Íslands fyrir sunnan landið og hélt vestur fyrir Reykjanes og sigldi inn á Borgarfjörð og hélt inn í Langá og upp allt til foss; báru þar farm af skipinu.

En er Skalla-Grímur spurði aðkomu Yngvars, þá fór hann þegar á fund hans og bauð honum til sín með svo mörgum mönnum, sem hann vildi. Yngvar þekktist það; var skipið upp sett, en Yngvar fór til Borgar með marga menn og var þann vetur með Skalla-Grími. En að vori bauð Skalla-Grímur honum landakosti; hann gaf Yngvari bú það, er hann átti á Álftanesi, og land inn til Leirulækjar og út til Straumfjarðar; síðan fór hann til útbús þess og tók þar við, og var hann hinn nýsti maður og hafði auð fjár. Skalla-Grímur gerði þá bú í Knarrarnesi og átti þar bú lengi síðan.

Skalla-Grímur var járnsmiður mikill og hafði rauðablástur mikinn á vetrinn; hann lét gera smiðju með sjónum mjög langt út frá Borg, þar sem heitir Raufarnes; þótti honum skógar þar fjarlægir. En er hann fékk þar engan stein þann, er svo væri harður eða sléttur, að honum þætti gott að lýja járn við, því að þar er ekki malargrjót; eru þar smáir sandar allt með sæ, -- var það eitt kveld, þá er aðrir menn fóru að sofa, að Skalla-Grímur gekk til sjóvar og hratt fram skipi áttæru, er hann átti og reri út til Miðfjarðareyja; lát þá hlaupa niður stjóra fyrir stafn á skipinu. Síðan steig hann fyrir borð og kafaði og hafði upp með sér stein og færði upp í skipið; síðan fór hann sjálfur upp í skipið og reri til lands og bar steininn til smiðju sinnar og lagði niður fyrir smiðjudurum og lúði þar síðan járn við. Liggur sá steinn þar enn og mikið sindur hjá, og sér það á steininum, að hann er barður ofan og það er brimsorfið grjót og ekki því grjóti líkt öðru, er þar er, og munu nú ekki meira hefja fjórir menn.

Skalla-Grímur sótti fast smiðjuverkið, en húskarlar hans vönduðu um og þótti snemma risið; þá orti hann vísu þessa:


Mjök verðr ár, sás aura,
ísarns meiðr at rísa,
váðir vidda bróður
veðrseygjar skal kveðja;
gjalla lætk á golli
geisla njóts, meðan þjóta,
heitu, hrærikytjur
hreggs vindfrekar, sleggjur.

31. kafli

Skalla-Grímur og þau Bera áttu börn mjög mörg, og var það fyrst, að öll önduðust; þá gátu þau son, og var vatni ausinn og hét Þórólfur. En er hann fæddist upp, þá var hann snemma mikill vexti og hinn vænsti sýnum; var það allra manna mál, að hann myndi vera hinn líkasti Þórólfi Kveld-Úlfssyni, er hann var eftir heitinn. Þórólfur var langt um fram jafnaldra sína að afli; en er hann óx upp, gerðist hann íþróttamaður um flesta þá hluti, er þá var mönnum títt að fremja, þeim er vel voru að sér gerðir. Þórólfur var gleðimaður mikill; snemma var hann svo fullkominn að afli, að hann þótti vel liðfær með öðrum mönnum; varð hann brátt vinsæll af alþýðu; unni honum og vel faðir og móðir.

Þau Skalla-Grímur áttu dætur tvær; hét önnur Sæunn, en önnur Þórunn; voru þær og efnilegar í uppvexti.

Enn áttu þau Skalla-Grímur son; var sá vatni ausinn og nafn gefið og kallaður Egill. En er hann óx upp, þá mátti brátt sjá á honum, að hann myndi verða mjög ljótur og líkur föður sínum, svartur á hár. En þá er hann var þrevetur, þá var hann mikill og sterkur, svo sem þeir sveinar aðrir, er voru sex vetra eða sjö; hann var brátt málugur og orðvís; heldur var hann illur viðureignar, er hann var í leikum með öðrum ungmennum.

Það vor fór Yngvar til Borgar, og var það að erindum, að hann bauð Skalla-Grími til boðs út þangað til sín og nefndi til þeirrar ferðar Beru, dóttur sína, og Þórólf, son hennar, og þá menn aðra, er þau Skalla-Grímur vildu að færu; Skalla- Grímur hét för sinni. Fór Yngvar þá heim og bjó til veislunnar og lét þá öl heita.

En er að þeirri stefnu kemur, er Skalla-Grímur skyldi til boðsins fara og þau Bera, þá bjóst Þórólfur til ferðar með þeim og húskarlar, svo að þau voru fimmtán saman.

Egill ræddi um við föður sinn, að hann vildi fara; "á eg þar slíkt kynni sem Þórólfur," segir hann.

"Ekki skaltu fara," segir Skalla-Grímur, "því að þú kannt ekki fyrir þér að vera í fjölmenni, þar er drykkjur eru miklar, er þú þykir ekki góður viðskiptis, að þú sért ódrukkinn."

Steig þá Skalla-Grímur á hest sinn og reið í brott, en Egill undi illa við sinn hlut. Hann gekk úr garði og hitti eykhest einn, er Skalla-Grímur átti, fór á bak og reið eftir þeim Skalla-Grími; honum varð ógreiðfært um mýrarnar, því að hann kunni enga leið, en hann sá þó mjög oft reið þeirra Skalla-Gríms, þá er eigi bar fyrir holt eða skóga. Er það að segja frá hans ferð, að síð um kveldið kom hann á Álftanes, þá er menn sátu þar að drykkju; gekk hann inn í stofu. En er Yngvar sá Egil, þá tók hann við honum feginsamlega og spurði, hví hann hefði svo síð komið. Egill sagði, hvað þeir Skalla-Grímur höfðu við mælst. Yngvar setti Egil hjá sér. Sátu þeir gagnvert þeim Skalla-Grími og Þórólfi.

Það var þar haft ölteiti, að menn kváðu vísur; þá kvað Egill vísu:

Kominn emk til arna
Yngvars, þess's beð lyngva,
hann vask fúss at finna,
fránþvengjar gefr drengjum;
mun eigi þú, þægir,
þrévetran mér betra,
ljósundinna landa
linns, óðar smið finna.

Yngvar hélt upp vísu þeirri og þakkaði vel Agli vísuna; en um daginn eftir þá færði Yngvar Agli að skáldskapar launum kúfunga þrjá og andaregg. En um daginn eftir við drykkju kvað Egill vísu aðra um bragarlaun:

Síþögla gaf söglum
sárgagls þría Agli
hirðimeiðr við hróðri
hagr brimrótar gagra,
ok bekkþiðurs blakka
borðvallar gaf fjorða
kennimeiðr, sás kunni,
körbeð, Egil gleðja.

Vel lagði Egill í þökk skáldskap sinn við marga menn.

Ekki varð þá fleira til tíðinda í ferð þeirra. Fór Egill heim með Skalla-Grími.

32. kafli

Björn hét hersir ríkur í Sogni, er bjó á Aurlandi; hans son var Brynjólfur, er arf allan tók eftir föður sinn. Synir Brynjólfs voru þeir Björn og Þórður; þeir voru menn á ungum aldri, er þetta var tíðinda. Björn var farmaður mikill, var stundum í víking, en stundum í kaupferðum; Björn var hinn gervilegasti maður.

Það barst að á einu hverju sumri, að Björn var staddur í Fjörðum að veislu nokkurri fjölmennri; þar sá hann mey fagra, þá er honum fannst mikið um. Hann spurði eftir, hverrar ættar hún var; honum var það sagt, að hún var systir Þóris hersis Hróaldssonar og hét Þóra hlaðhönd. Björn hóf upp bónorð sitt og bað Þóru, en Þórir synjaði honum ráðsins, og skildust þeir að svo gerðu.

En það sama haust fékk Björn sér liðs og fór með skútu alskipaða norður í Fjörðu og kom til Þóris og svo, að hann var eigi heima. Björn nam Þóru á brott og hafði heim með sér á Aurland; voru þau þar um veturinn, og vildi Björn gera brúðlaup til hennar. Brynjólfi, föður hans, líkaði það illa, er Björn hafði gert, þótti svívirðing í því, þar sem áður hafði löng vinátta verið með Þóri og Brynjólfi.

"Því síður skaltu, Björn," segir Brynjólfur, "brúðlaup til Þóru gera hér með mér að óleyfi Þóris, bróður hennar, að hún skal hér svo vel sett, sem hún væri mín dóttir, en systir þín."

En svo varð að vera allt, sem Brynjólfur kvað á, þar í hans hýbýlum, hvort er Birni líkaði vel eða illa.

Brynjólfur sendi menn til Þóris að bjóða honum sætt og yfirbætur fyrir för þá, er Björn hafði farið. Þórir bað Brynjólf senda heim Þóru, sagði, að ekki myndi af sætt verða ella. En Björn vildi fyrir engan mun láta hana í brott fara, þó að Brynjólfur beiddi þess; leið svo af veturinn.

En er vora tók, þá ræddu þeir Brynjólfur og Björn einn dag um ráðagerðir sínar; spurði Brynjólfur, hvað hann ætlaðist fyrir.

Björn sagði það líkast, að hann myndi fara af landi á brott; "er mér það næst skapi," sagði hann, "að þú fáir mér langskip og þar lið með og fari eg í víking."

"Engi von er þess," sagði Brynjólfur, "að eg fái þér í hendur herskip og lið mikið, því að eg veit eigi, nema þá komir þú þar niður, er mér er öll óaufúsa á, og stendur þó nú áður ærin óró af þér. Kaupskip mun eg fá þér í hendur og þar með kaupeyri; farðu síðan suður til Dyflinnar; sú er nú ferð frægst. Mun eg fá þér föruneyti gott."

Björn segir svo, að hann myndi það verða upp að taka, sem Brynjólfur vildi; lét hann þá búa kaupskip gott og fékk menn til; bjóst Björn þá til þeirrar ferðar og varð ekki snemmbúinn.

En er Björn var albúinn og byr rann á, þá steig hann á bát með tólf menn og reri inn á Aurland, og gengu upp til bæjar og til dyngju þeirrar, er móðir hans átti; sat hún þar inni og konur mjög margar; þar var Þóra. Björn sagði, að Þóra skyldi með honum fara; leiddu þeir hana í brott, en móðir hans bað konurnar vera eigi svo djarfar, að þær gerðu vart við inn í skálann, sagði að Brynjólfur myndi illa í höndum hafa, ef hann vissi, og sagði, að þá væri búið við geig miklum með þeim feðgum. En klæðnaður Þóru og gripir voru þar allir lagðir til handargagns, og höfðu þeir Björn það allt með sér. Fóru þeir síðan um nóttina út til skips síns, drógu þegar segl sitt og sigldu út eftir Sognsæ og síðan í haf.

Þeim byrjaði illa og höfðu réttu stóra og velkti lengi í hafi, því að þeir voru öruggir í því að firrast Noreg sem mest. Það var einn dag, að þeir sigldu austan að Hjaltlandi hvasst veður og lestu skipið í landtöku við Mósey, báru þar af farminn og fóru í borg þá, er þar var, og báru þangað allan varning sinn og settu upp skipið og bættu, er brotið var.

33. kafli

Litlu fyrir vetur kom skip til Hjaltlands sunnan úr Orkneyjum; sögðu þeir þau tíðindi, að langskip hafði komið um haustið til eyjanna; voru það sendimenn Haralds konungs með þeim erindum til Sigurðar jarls, að konungur vildi drepa láta Björn Brynjólfsson, hvar sem hann yrði áhendur, og slíkar orðsendingar gerði hann til Suðureyja, allt til Dyflinnar. Björn spurði þessi tíðindi og það með, að hann var útlægur ger í Noregi. En þegar er hann hafði komið til Hjaltlands, gerði hann brúðlaup til Þóru; sátu þau um veturinn í Móseyjarborg.

En þegar um vorið, er sjó tók að lægja, setti Björn fram skip sitt og bjó sem ákaflegast; en er hann var búinn og byr gaf, sigldi hann í haf; fengu þeir veður stór og voru litla stund úti, komu sunnan að Íslandi. Gekk þá veður á land, og bar þá vestur fyrir landið og þá í haf út, en er þeim gaf byr aftur, þá sigldu þeir að landinu. Engi var sá maður þar innan borðs, er verið hefði fyrr á Íslandi.

Þeir sigldu inn á fjörð einn furðulega mikinn, og bar þá að hinni vestri ströndinni; sáu þar til lands inn ekki nema boða eina og hafuleysur; beittu þá sem þverast austur fyrir landið, allt til þess er fjörður varð fyrir þeim, og sigldu þeir inn eftir firðinum, til þess er lokið var skerjum öllum og brimi. Þá lögðu þeir að nesi einu; lá þar ey fyrir utan, en sund djúpt í milli; festu þar skipið. Vík gekk upp fyrir vestan nesið, en upp af víkinni stóð borg mikil.

Björn gekk á bát einn og menn með honum; Björn sagði förunautum sínum, að þeir skyldu varast að segja það ekki frá ferðum sínum, er þeim stæði vandræði af því. Þeir Björn reru til bæjarins og hittu þar menn að máli; spurðu þeir þess fyrst, hvar þeir voru að landi komnir. Menn sögðu, að það hét að Borgarfirði, en bær sá, er þar var, hét að Borg, en Skalla-Grímur bóndinn. Björn kannaðist brátt við hann og gekk til móts við Skalla-Grím, og töluðust þeir við; spurði Skalla-Grímur, hvað mönnum þeir væru. Björn nefndi sig og föður sinn, en Skalla-Grími var allur kunnleiki á Brynjólfi og bauð Birni allan forbeina sinn, þann er hann þurfti; Björn tók því þakksamlega. Þá spurði Skalla-Grímur, hvað fleira væri þeirra manna á skipi, er virðingamenn væru. Björn sagði, að þar var Þóra Hróaldsdóttir, systir Þóris hersis. Skalla-Grímur varð við það allglaður og sagði svo, að það var skylt og heimilt um systur Þóris, fóstbróður síns, að hann gerði slíkan forbeina, sem þurfti eða hann hefði föng til, og bauð þeim Birni báðum til sín með alla skipverja sína. Björn þekktist það. Var þá fluttur farmur af skipinu upp í tún að Borg; settu þeir þar búðir sínar, en skipið var leitt upp í læk þann, er þar verður; en þar er kallað Bjarnartöður, sem þeir Björn höfðu búðir.

Björn og þeir skipverjar allir fóru til vistar með Skalla-Grími; hann hafði aldri færri menn með sér en sex tigu vígra manna.

34. kafli

Það var um haustið, þá er skip höfðu komið til Íslands af Noregi, að sá kvittur kom yfir, að Björn myndi hafa hlaupist á brott með Þóru og ekki að ráði frænda hennar, og konungur hafði gert hann útlaga fyrir það úr Noregi.

En er Skalla-Grímur varð þess var, þá kallaði hann Björn til sín og spurði, hvernig farið væri um kvonfang hans, hvort það hefði gert verið að ráði frænda. "Var mér eigi þess von," sagði hann, "um son Brynjólfs, að eg myndi eigi vita hið sanna af þér."

Björn sagði: "Satt eitt hefi eg þér sagt, Grímur, en eigi máttu ámæla mér fyrir það, þótt eg segði þér eigi lengra en þú spurðir. En þó skal nú við ganga því, er satt er, að þú hefir sannspurt, að ekki var þetta ráð gert við samþykki Þóris, bróður hennar."

Þá mælti Skalla-Grímur, reiður mjög: "Hví varstu svo djarfur, að þú fórst á minn fund, eða vissir þú eigi, hver vinátta var með okkur Þóri?"

Björn segir: "Vissi eg," segir hann, "að með ykkur var fóstbræðralag og vinátta kær; en fyrir því sótti eg þig heim, að mig hafði hér að landi borið og eg vissi, að mér myndi ekki týja að forðast þig. Mun nú vera á þínu valdi, hver minn hlutur skal verða, en góðs vænti eg af, því að eg er heimamaður þinn."

Síðan gekk fram Þórólfur, sonur Skalla-Gríms, og lagði til mörg orð og bað föður sinn, að hann gæfi Birni eigi þetta að sök, er þó hafði hann tekið við Birni; margir aðrir lögðu þar orð til.

Kom þá svo, að Grímur sefaðist, sagði, að Þórólfur myndi þá ráða "og tak þú við Birni, og ef þú vilt, ver til hans svo vel sem þú vilt."

35. kafli

Þóra ól barn um sumarið, og var það mær; var hún vatni ausin og nafn gefið og hét Ásgerður. Bera fékk til konu að gæta meyjarinnar.

Björn var um veturinn með Skalla-Grími og allir skipverjar hans; Þórólfur gerði sér títt við Björn og var honum fylgjusamur.

En er vor kom, þá var það einn hvern dag, að Þórólfur gekk til máls við föður sinn og spurði hann þess, hvert ráð hann vildi leggja til við Björn, veturgest sinn, eða hverja ásjá hann vildi honum veita. Grímur spurði Þórólf, hvað hann ætlaðist fyrir.

"Það ætla eg," segir Þórólfur, "að Björn vildi helst fara til Noregs, ef hann mætti þar í friði vera; þætti mér það ráð fyrir liggja, faðir, að þú sendir menn til Noregs að bjóða sættir fyrir Björn, og mun Þórir mikils virða orð þín."

Svo kom Þórólfur fyrirtölum sínum, að Skalla-Grímur skipaðist við og fékk menn til utanferðar um sumarið; fóru þeir menn með orðsendingar og jartegnir til Þóris Hróaldssonar og leituðu um sættir með þeim Birni. En þegar er Brynjólfur vissi þessa orðsending, þá lagði hann allan hug á að bjóða sættir fyrir Björn. Kom þá svo því máli, að Þórir tók sættir fyrir Björn, því að hann sá það, að þá var svo komið, að Björn þurfti þá ekki að óttast um sig. Tók Brynjólfur þá sættum fyrir Björn, en sendimenn Gríms voru um veturinn með Þóri, en Björn var þann vetur með Skalla-Grími.

En eftir um sumarið fóru sendimenn Skalla-Gríms aftur; en er þeir komu aftur um haustið, þá sögðu þeir þau tíðindi, að Björn var í sætt tekinn í Noregi. Björn var hinn þriðja vetur með Skalla-Grími, en eftir um vorið bjóst hann til brottferðar og sú sveit manna, er honum hafði þangað fylgt.

En er Björn var búinn ferðar sinnar, þá sagði Bera, að hún vill, að Ásgerður, fóstra hennar, sé eftir, en þau Björn þekktust það, og var mærin eftir og fæddist þar upp með þeim Skalla-Grími.

Þórólfur, sonur Skalla-Gríms, réðst til ferðar með Birni, og fékk Skalla-Grímur honum fararefni; fór hann utan um sumarið með Birni. Greiddist þeim vel og komu af hafi utan að Sognsæ; sigldi Björn þá inn í Sogn og fór síðan heim til föður síns; fór Þórólfur heim með honum; tók Brynjólfur þá við þeim feginsamlega.

Síðan voru ger orð Þóri Hróaldssyni; lögðu þeir Brynjólfur stefnu sín í milli; kom þar og Björn til þeirrar stefnu; tryggðu þeir Þórir þá sættir með sér. Síðan greiddi Þórir af hendi fé það, er Þóra átti í hans garði, og síðan tóku þeir upp, Þórir og Björn, vináttu með tengdum. Var Björn þá heima á Aurlandi með Brynjólfi; Þórólfur var og þar í allgóðu yfirlæti af þeim feðgum.

36. kafli

Haraldur konungur hafði löngum aðsetu sína á Hörðalandi eða Rogalandi að stórbúum þeim, er hann átti að Útsteini eða Ögvaldsnesi eða á Fitjum, á Álreksstöðum eða á Lygru, á Sæheimi; en þann vetur, er nú var frá sagt, var konungur norður í landi. En er þeir Björn og Þórólfur höfðu verið einn vetur í Noregi og vor kom, þá bjuggu þeir skip og öfluðu manna til, fóru um sumarið í víking í austurveg, en fóru heim að hausti og höfðu aflað fjár mikils. En er þeir komu heim, þá spurðu þeir, að Haraldur konungur var þá á Rogalandi og myndi þar sitja um veturinn. Þá tók Haraldur konungur að eldast mjög, en synir hans voru þá mjög á legg komnir margir.

Eiríkur, son Haralds konungs, er kallaður var blóðöx, var þá á ungum aldri; hann var á fóstri með Þóri hersi Hróaldssyni; konungur unni Eiríki mest sona sinna; Þórir var þá í hinum mestu kærleikum við konung.

Björn og þeir Þórólfur fóru fyrst á Aurland, er þeir komu heim, en síðan byrjuðu þeir ferð sína norður í Fjörðu að sækja heim Þóri hersi. Þeir höfðu karfa þann, er reru á borð tólf menn eða þrettán, og höfðu nær þrjá tigu manna; skip það höfðu þeir fengið um sumarið í víking; það var steint mjög fyrir ofan sjó og var hið fegursta. En er þeir komu til Þóris, fengu þeir þar góðar viðtökur og dvöldust þar nokkura hríð, en skipið flaut tjaldað fyrir bænum.

Það var einn dag, er þeir Þórólfur og Björn gengu ofan til skipsins; þeir sáu, að Eiríkur konungsson var þar, gekk stundum á skipið út, en stundum á land upp, stóð þá og horfði á skipið.

Þá mælti Björn til Þórólfs: "Mjög undrast konungsson skipið, og bjóð þú honum að þiggja að þér, því að eg veit, að okkur verður það að liðsemd mikilli við konung, ef Eiríkur er flutningsmaður okkar. Hefi eg heyrt það sagt, að konungur hafði þungan hug á þér af sökum föður þíns."

Þórólfur sagði, að það myndi vera gott ráð. Gengu þeir síðan ofan til skipsins, og mælti Þórólfur: "Vandlega hyggur þú að skipinu, konungsson; hversu líst þér á?"

"Vel," segir hann; "hið fegursta er skipið," segir hann.

"Þá vil eg gefa þér," sagði Þórólfur, "skipið, ef þú vilt þiggja."

"Þiggja vil eg," segir Eiríkur, "en þér munu lítil þykja launin, þótt eg heiti þér vináttu minni, en það stendur þó til vonar, ef eg held lífi."

Þórólfur segir, að þau laun þótti honum miklu meira verð en skipið. Skildust þá síðan, en þaðan af var konungsson allkátur við þá Þórólf.

Þeir Björn og Þórólfur koma á ræðu við Þóri, hvað hann ætlar, hvort það sé með sannindum, að konungur hafi þungan hug á Þórólfi. Þórir dylur þess ekki, að hann hefði það heyrt.

"Þá vildi eg það," sagði Björn, "að þú færir á fund konungs og flyttir mál Þórólfs fyrir hon um, því að eitt skal ganga yfir okkur Þórólf báða; gerði hann svo við mig, þá er eg var á Íslandi."

Svo kom, að Þórir hét ferðinni til konungs og bað þá freista, ef Eiríkur konungsson vildi fara með honum; en er þeir Þórólfur og Björn komu á þessar ræður fyrir Eirík, þá hét hann sinni umsýslu við föður sinn.

Síðan fóru þeir Þórólfur og Björn leið sína í Sogn, en Þórir og Eiríkur konungsson skipuðu karfa þann hinn nýgefna og fóru suður á fund konungs og hittu hann á Hörðalandi; tók hann feginsamlega við þeim. Dvöldust þeir þar um hríð og leituðu þess dagráðs að hitta konung, að hann var í góðu skapi; báru þá upp þetta mál fyrir konung, sögðu, að sá maður var þar kominn, er Þórólfur hét, son Skalla-Gríms; vildum vér þess biðja, konungur, að þú minntist þess, er frændur hans hafa vel til þín gert, en létir hann eigi gjalda þess, er faðir hans gerði, þótt hann hefndi bróður síns."

Talaði Þórir um það mjúklega, en konungur svaraði heldur stutt, sagði, að þeim hafði ótili mikill staðið af Kveld- Úlfi og sonum hans, og lét þess von, að sjá Þórólfur myndi enn vera skaplíkur frændum sínum; "eru þeir allir," sagði hann, "ofsamenn miklir, svo að þeir hafa ekki hóf við og hirða eigi, við hverja þeir eiga að skipta."

Síðan tók Eiríkur til máls, sagði, að Þórólfur hefði vingast við hann og gefið honum ágætan grip, skip það, er þeir höfðu þar. "Hefi eg heitið honum vináttu minni fullkominni; munu fáir til verða að vingast við mig, ef þessum skal ekki tjóa. Muntu eigi það vera láta, faðir, um þann mann, er til þess hefir fyrstur orðið að gefa mér dýrgripi."

Svo kom, að konungur hét þeim því, áður létti, að Þórólfur skyldi í friði vera fyrir honum; "en ekki vil eg," kvað hann, "að hann komi á minn fund; en gera máttu, Eiríkur, hann svo kæran þér sem þú vilt eða fleiri þá frændur, en vera mun annaðhvort, að þeir munu þér verða mjúkari en mér hafa þeir orðið, eða þú munt þessar bænar iðrast og svo þess, ef þú lætur þá lengi með þér vera."

Síðan fór Eiríkur blóðöx og þeir Þórir heim í Fjörðu; sendu síðan orð og létu segja Þórólfi, hvert þeirra erindi var orðið til konungs.

Þeir Þórólfur og Björn voru þann vetur með Brynjólfi; en mörg sumur lágu þeir í víking, en um vetrum voru þeir með Brynjólfi, en stundum með Þóri.

37. kafli

Eiríkur blóðöx tók þá við ríki; hann hafði yfirsókn á Hörðalandi og um Fjörðu; tók hann þá og hafði með sér hirðmenn.

Og eitt hvert vor bjó Eiríkur blóðöx för sína til Bjarmalands og vandaði mjög lið til þeirrar ferðar. Þórólfur réðst til ferðar með Eiríki og var í stafni á skipi hans og bar merki hans; Þórólfur var þá hverjum manni meiri og sterkari og líkur um það föður sínum.

Í ferð þeirri var margt til tíðinda; Eiríkur átti orustu mikla á Bjarmalandi við Vínu; fékk Eiríkur þar sigur, svo sem segir í kvæðum hans, og í þeirri ferð fékk hann Gunnhildar, dóttur Össurar tóta, og hafði hana heim með sér; Gunnhildur var allra kvenna vænst og vitrust og fjölkunnug mjög. Kærleikar miklir voru með þeim Þórólfi og Gunnhildi; Þórólfur var þá jafnan á vetrum með Eiríki, en á sumrum í víkingu.

Það varð þá næst til tíðinda, að Þóra, kona Bjarnar, tók sótt og andaðist, en nokkuru síðar fékk Björn sér annarrar konu, hún hét Ólöf, dóttir Erlings hins auðga úr Ostur; þau áttu dóttur, er Gunnhildur hét.

Maður hét Þorgeir þyrnifótur; hann bjó á Hörðalandi í Fenhring; þar heitir á Aski; hann átti þrjá sonu; hét einn Haddur, annar Berg- Önundur, þriðji hét Atli hinn skammi. Berg-Önundur var hverjum manni meiri og sterkari og var maður ágjarn og ódæll; Atli hinn skammi var maður ekki hár og riðvaxinn og var rammur að afli. Þorgeir var maður stórauðugur að fé; hann var blótmaður mikill og fjölkunnugur. Haddur lá í víking og var sjaldan heima.

38. kafli

Þórólfur Skalla-Grímsson bjóst eitt sumar til kaupferðar; ætlaði þá, sem hann gerði, að fara til Íslands og hitta föður sinn. Hann hafði þá lengi á brottu verið; hann hafði þá ógrynni fjár og dýrgripi marga.

En er hann var búinn til ferðar, þá fór hann á fund Eiríks konungs; en er þeir skildust, seldi konungur í hendur Þórólfi öxi, er hann kveðst gefa vilja Skalla-Grími; öxin var snaghyrnd og mikil og gullbúin, upp skellt skaftið með silfri, og var það hinn virðilegasti gripur.

Þórólfur fór ferðar sinnar, þegar hann var búinn, og greiddist honum vel og kom skipi sínu í Borgarfjörð og fór þegar bráðlega heim til föður síns; varð þar fagnafundur mikill, er þeir hittust. Síðan fór Skalla-Grímur til skips móti Þórólfi, lét setja upp skipið, en Þórólfur fór heim til Borgar með tólfta mann.

En er hann kom heim, bar hann Skalla-Grími kveðju Eiríks konungs og færði honum öxi þá, er konungur hafði sent honum. Skalla-Grímur tók við öxinni, hélt upp og sá á um hríð og ræddi ekki um; festi upp hjá rúmi sínu.

Það var um haustið einn hvern dag að Borg, að Skalla-Grímur lét reka heim yxn mjög marga, er hann ætlaði til höggs; hann lét leiða tvo yxn saman undir húsvegg og leiða á víxl; hann tók hellustein vel mikinn og skaut niður undir hálsana. Síðan gekk hann til með öxina konungsnaut og hjó yxnina báða senn, svo að höfuðið tók af hvorumtveggja, en öxin hljóp niður í steininn, svo að munnurinn brast úr allur og rifnaði upp í gegnum herðuna. Skalla-Grímur sá í eggina og ræddi ekki um; gekk síðan inn í eldahús og steig síðan á stokk upp og skaut öxinni upp á hurðása, lá hún þar um veturinn.

En um vorið lýsti Þórólfur yfir því, að hann ætlaði utan að fara um sumarið. Skalla-Grímur latti hann, sagði, að þá var gott heilum vagni heim að aka; "hefur þú," sagði hann, "farið fremdarför mikla, en það er mælt, er ýmsar verður, ef margar fer; tak þú nú hér við fjárhlut svo miklum, að þú þykist verða mega gildur maður af."

Þórólfur sagði, að hann vill enn fara einhverja ferð, "og á eg nauðsynleg erindi til fararinnar; en þá er eg kem út öðru sinni, mun eg hér staðfestast; en Ásgerður, fóstra þín, skal fara utan með mér á fund föður síns; bauð hann mér um það, þá er eg fór austan."

Skalla-Grímur kvað hann ráða mundu "en svo segir mér hugur um, ef við skiljumst nú, sem við munum eigi finnast síðan."

Síðan fór Þórólfur til skips síns og bjó það; en er hann var albúinn, fluttu þeir út skipið til Digraness, og lá þar til byrjar; fór þá Ásgerður til skips með honum.

En áður Þórólfur fór frá Borg, þá gekk Skalla-Grímur til og tók öxina ofan af hurðásum, konungsgjöfina, og gekk út með; var þá skaftið svart af reyk, en öxin ryðgengin. Skalla-Grímur sá í egg öxinni; síðan seldi hann Þórólfi öxina. Skalla-Grímur kvað vísu:


Liggja ýgs í eggju,
ák sveigar kör deiga,
fox es illt í öxi,
undvargs flösur margar;
arghyrnu lát árna
aptr með roknu skapti;
þörfgi væri þeirar,
þat vas inga gjöf, hingat.

39. kafli

Það varð til tíðinda, meðan Þórólfur hafði verið utanlendis, en Skalla-Grímur bjó að Borg, að eitt sumar kom kaupskip af Noregi í Borgarfjörð; var þá víða höfð uppsát kaupskipum í ár eða í lækjarósa eða í sík. Maður hét Ketill, er kallaður var Ketill blundur, er átti skip það; hann var norrænn maður, kynstór og auðugur. Geir hét son hans, er þá var fulltíði og var á skipi með honum. Ketill ætlaði að fá sér bústað á Íslandi; hann kom síð sumars. Skalla-Grímur vissi öll deili á honum; bauð Skalla-Grímur honum til vistar með sér með allt föruneyti sitt. Ketill þekktist það, og var hann um veturinn með Skalla-Grími.

Þann vetur bað Geir, sonur Ketils, Þórunnar, dóttur Skalla-Gríms, og var það að ráði gert; fékk Geir Þórunnar. En eftir um vorið vísaði Skalla-Grímur Katli til lands upp frá landi Óleifs með Hvítá, frá Flókadalsárósi og til Reykjadalsáróss og tungu þá alla, er þar var á milli upp til Rauðsgils, og Flókadal allan fyrir ofan brekkur.

Ketill bjó í Þrándarholti, en Geir í Geirshlíð; hann átti annað bú í Reykjadal, að Reykjum hinum efri; hann var kallaður Geir hinn auðgi. Hans synir voru þeir Blund-Ketill og Þorgeir blundur; þriðji var Þóroddur Hrísablundur, er fyrstur bjó í Hrísum.

40. kafli

Skalla-Grímur henti mikið gaman að aflraunum og leikum; um það þótti honum gott að ræða. Knattleikar voru þá tíðir. Var þar í sveit gott til sterkra manna í þann tíma, en þó hafði engi afl við Skalla-Grím; hann gerðist þá heldur hniginn að aldri.

Þórður hét sonur Grana að Granastöðum, og var hann hinn mannvænlegasti maður og var á ungum aldri; hann var elskur að Agli Skalla-Grímssyni. Egill var mjög að glímum; var hann kappsamur mjög og reiðinn, en allir kunnu það að kenna sonum sínum, að þeir vægðu fyrir Agli.

Knattleikur var lagður á Hvítárvöllum allfjölmennur á öndverðan vetur; sóttu menn þar til víða um hérað. Heimamenn Skalla-Gríms fóru þangað til leiks margir; Þórður Granason var helst fyrir þeim. Egill bað Þórð að fara með honum til leiks; þá var hann á sjöunda vetur; Þórður lét það eftir honum og reiddi hann að baki sér.

En er þeir komu á leikmótið, þá var mönnum skipt þar til leiks, þar var og komið margt smásveina, og gerðu þeir sér annan leik; var þar og skipt til.

Egill hlaut að leika við svein þann, er Grímur hét, sonur Heggs af Heggsstöðum; Grímur var ellefu vetra eða tíu og sterkur að jöfnum aldri. En er þeir lékust við, þá var Egill ósterkari; Grímur gerði og þann mun allan, er hann mátti. Þá reiddist Egill og hóf upp knatttréð og laust Grím, en Grímur tók hann höndum og keyrði hann niður fall mikið og lék hann heldur illa og kveðst mundu meiða hann, ef hann kynni sig eigi. En er Egill komst á fætur, þá gekk hann úr leiknum, en sveinarnir æptu að honum.

Egill fór til fundar við Þórð Granason og sagði honum, hvað í hafði gerst.

Þórður mælti: "Eg skal fara með þér, og skulum við hefna honum." Hann seldi honum í hendur skeggöxi eina, er Þórður hafði haft í hendi; þau vopn voru þá tíð; ganga þeir þar til, er sveinaleikurinn var. Grímur hafði þá hent knöttinn og rak undan, en aðrir sveinarnir sóttu eftir. Þá hljóp Egill að Grími og rak öxina í höfuð honum, svo að þegar stóð í heila. Þeir Egill og Þórður gengu í brott síðan og til manna sinna; hljópu þeir Mýramenn þá til vopna og svo hvorirtveggju. Óleifur hjalti hljóp til þeirra Borgarmanna með þá menn, er honum fylgdu; voru þeir þá miklu fjölmennri og skildust að svo gerðu.

Þaðan af hófust deildir með þeim Óleifi og Hegg; þeir börðust á Laxfit við Grímsá. Þar féllu sjö menn, en Heggur varð sár til ólífis, og Kvígur féll, bróðir hans.

En er Egill kom heim, lét Skalla-Grímur sér fátt um finnast, en Bera kvað Egil vera víkingsefni og kvað það mundu fyrir liggja, þegar hann hefði aldur til, að honum væru fengin herskip. Egill kvað vísu:


Þat mælti mín móðir,
at mér skyldi kaupa
fley ok fagrar árar
fara á brott með víkingum,
standa upp í stafni,
stýra dýrum knerri,
halda svá til hafnar,
höggva mann ok annan.

Þá er Egill var tólf vetra gamall, var hann svo mikill vexti, að fáir voru menn svo stórir og að afli búnir, að Egill ynni þá eigi flesta menn í leikum; þann vetur, er honum var hinn tólfti, var hann mjög að leikum. Þórður Granason var þá á tvítugs aldri; hann var sterkur að afli; það var oft, er á leið veturinn, að þeim Agli og Þórði tveimur var skipt í móti Skalla-Grími.

Það var eitt sinn um veturinn, er á leið, að knattleikur var að Borg suður í Sandvík; þá voru þeir Þórður í móti Skalla-Grími í leiknum, og mæddist hann fyrir þeim, og gekk þeim léttara. En um kveldið eftir sólarfall, þá tók þeim Agli verr að ganga; gerðist Grímur þá svo sterkur, að hann greip Þórð upp og keyrði niður svo hart, að hann lamdist allur, og fékk hann þegar bana; síðan greip hann til Egils.

Þorgerður brák hét ambátt Skalla-Gríms; hún hafði fóstrað Egil í barnæsku; hún var mikil fyrir sér, sterk sem karlar og fjölkunnug mjög.

Brák mælti: "Hamast þú nú, Skalla-Grímur, að syni þínum."

Skalla-Grímur lét þá lausan Egil, en þreif til hennar. Hún brást við og rann undan, en Skalla-Grímur eftir; fóru þau svo í utanvert Digranes; þá hljóp hún út af bjarginu á sund. Skalla-Grímur kastaði eftir henni steini miklum og setti milli herða henni, og kom hvortki upp síðan. Þar er nú kallað Brákarsund.

En eftir um kveldið, er þeir komu heim til Borgar, var Egill allreiður. En er Skalla-Grímur hafði setst undir borð og alþýða manna, þá var Egill eigi kominn í sæti sitt; þá gekk hann inn í eldahús og að þeim manni, er þar hafði þá verkstjórn og fjárforráð með Skalla-Grími og honum var kærstur; Egill hjó hann banahögg og gekk síðan til sætis síns. En Skalla-Grímur ræddi þá ekki um, og var það mál þaðan af kyrrt, en þeir feðgar ræddust þá ekki við, hvorki gott né illt, og fór svo fram þann vetur.

En hið næsta sumar eftir kom Þórólfur út, sem fyrr var sagt; en er hann hafði verið einn vetur á Íslandi, þá bjó hann eftir um vorið skip sitt í Brákarsundi.

En er hann var albúinn, þá var það einn dag, að Egill gekk til fundar við föður sinn og bað hann fá sér fararefni; "vil eg," sagði hann, "fara utan með Þórólfi."

Grímur spurði, ef hann hefði nokkuð það mál rætt fyrir Þórólfi; Egill segir, að það var ekki; Grímur bað hann það fyrst gera.

En er Egill vakti það mál við Þórólf, þá kvað hann þess enga von, "að eg muni þig flytja með mér á brott; ef faðir þinn þykist eigi mega um þig tæla hér í hýbýlum sínum, þá ber eg eigi traust til þess að hafa þig utanlendis með mér, því að þér mun það ekki hlýða að hafa þar slíkt skaplyndi sem hér."

"Vera má," sagði Egill, "að þá fari hvorgi okkar."

Um nóttina eftir gerði á æðiveður, útsynning; en um nóttina, er myrkt var og flóð var sjóvar, þá kom Egill þar og gekk fyrir utan tjöldin; hjó hann í sundur festar þær,er á útborða voru. Gekk hann þegar sem skjótast upp um bryggjuna, skaut út þegar bryggjunni og hjó þær festar, er á land upp voru. Rak þá út skipið á fjörðinn. En er þeir Þórólfur urðu varir við, er skipið rak, hljópu þeir í bátinn, en veðrið var miklu hvassara en þeir fengju nokkuð að gert. Rak skipið yfir til Andakíls og þar á eyrar upp, en Egill fór heim til Borgar.

En er menn urðu varir við bragð það, er Egill hafði gert, þá löstuðu það flestir; hann sagði, að hann skyldi skammt til láta að gera Þórólfi meira skaða og spellvirki, ef hann vildi eigi flytja hann í brott. En þá áttu menn hlut að í milli þeirra, og kom svo að lyktum, að Þórólfur tók við Agli, og fór hann utan með honum um sumarið.

Þegar Þórólfur kom til skips, þá er hann hafði tekið við öxi þeirri, er Skalla-Grímur hafði fengið í hendur honum, þá kastaði hann öxinni fyrir borð á djúpi, svo að hún kom ekki upp síðan.

Þórólfur fór ferðar sinnar um sumarið og greiddist vel um hafið, og komu utan að Hörðalandi; stefnir Þórólfur þegar norður til Sogns. En þar höfðu þau tíðindi orðið um veturinn, að Brynjólfur hafði andast af sótt, en synir hans höfðu skipt arfi. Hafði Þórður Aurland, bæ þann, er faðir þeirra hafði búið á; hafði hann gerst konungi handgenginn og gerst lendur maður.

Dóttir Þórðar hét Rannveig, móðir þeirra Þórðar og Helga; Þórður var faðir Rannveigar, móður Ingiríðar, er átti Ólafur konungur; Helgi var faðir Brynjólfs, föður þeirra Serks úr Sogni og Sveins.

41. kafli

Björn hlaut annan bústað, góðan og virðilegan; gerðist hann ekki handgenginn konungi; því var hann kallaður Björn höldur; var hann maður vellauðugur og stórmenni mikið.

Þórólfur fór brátt á fund Bjarnar, þegar er hann kom af hafi, og fylgdi heim Ásgerði, dóttur hans; varð þar fagnafundur. Ásgerður var hin vænsta kona og hin gervilegasta, vitur kona og allvel kunnandi.

Þórólfur fór á fund Eiríks konungs; en er þeir hittust, bar Þórólfur Eiríki konungi kveðju Skalla-Gríms og sagði, að hann hafði þakksamlega tekið sending konungs; bar fram síðan langskipssegl gott, er hann sagði, að Skalla-Grímur hefði sent konungi. Eiríkur konungur tók vel við gjöf þeirri og bauð Þórólfi að vera með sér um veturinn.

Þórólfur þakkaði konungi boð sitt; -- "eg mun nú fyrst fara til Þóris; á eg við hann nauðsynja-erindi."

Síðan fór Þórólfur til Þóris, sem hann hafði sagt, og fékk þar allgóðar viðtökur; bauð Þórir honum að vera með sér.

Þórólfur sagði, að hann myndi það þekkjast, -- "og er sá maður með mér, að þar skal vist hafa, sem eg er; hann er bróðir minn, og hefur hann ekki fyrr heiman gengið, og þarf hann, að eg veiti honum umsjá."

Þórir sagði, að það var heimilt, þó að Þórólfur vildi fleiri menn hafa með sér þangað; "þykir oss," segir hann, "sveitarbót að bróður þínum, ef hann er nokkuð þér líkur."

Síðan fór Þórólfur til skips síns og lét það upp setja og um búa, en hann fór og Egill til Þóris hersis.

Þórir átti son, er hét Arinbjörn; hann var nokkuru eldri en Egill; Arinbjörn var þegar snemma skörulegur maður og hinn mesti íþróttamaður. Egill gerði sér títt við Arinbjörn og var honum fylgjusamur, en heldur var fátt með þeim bræðrum.

42. kafli

Þórólfur Skalla-Grímsson hóf ræðu þá við Þóri, hvernig hann myndi taka því máli, ef Þórólfur bæði Ásgerðar, frændkonu hans; Þórir tók því léttlega, sagði, að hann myndi flytjandi þess máls. Síðan fór Þórólfur norður í Sogn og hafði með sér gott föruneyti; Þórólfur kom til bús Bjarnar og fékk þar góðar viðtökur; bauð Björn honum að vera með sér, svo lengi sem hann vildi. Þórólfur bar brátt upp erindi sitt við Björn; hóf þá bónorð sitt og bað Ásgerðar, dóttur Bjarnar. Hann tók því máli vel, og var það auðsótt við hann, og réðst það af, að þar fóru festar fram og kveðið á brullaupsstefnu; skyldi veisla sú vera að Bjarnar þá um haustið. Síðan fór Þórólfur aftur til Þóris og sagði honum það, sem til tíðinda hafði gerst í för hans; Þórir lét vel yfir, er þau ráð skyldu takast.

En er að þeirri stefnu kom, er Þórólfur skyldi sækja til veislunnar, þá bauð hann mönnum til farar með sér, bauð fyrst Þóri og Arinbirni og húskörlum þeirra og ríkum búöndum, og var til þeirrar ferðar fjölmennt og góðmennt. En þá er mjög var komið að stefnudegi þeim, er Þórólfur skyldi heiman fara, og brúðmenn voru komnir, þá tók Egill sótt, svo að hann var eigi fær. Þeir Þórólfur höfðu langskip eitt mikið, alskipað, og fóru ferðar sinnar, svo sem ákveðið var.

43. kafli

Ölvir hét maður; hann var húskarl Þóris og var forstjóri og ráðamaður fyrir búi hans; hafði hann skuldaheimtur og var féhirðir; Ölvir var af æskualdri og þó maður hinn hressasti.

Svo bar til, að Ölvir átti heimanferð að heimta landskyldir Þóris, þær er eftir höfðu staðið um vorið; hafði hann róðrarferju, og voru þar á tólf húskarlar Þóris. Þá tók Egill að hressast, og reis hann þá upp; honum þótti þá gerast dauflegt heima, er alþýða manna var á brott farin; kom hann að máli við Ölvi og sagði, að hann vildi fara með honum. En Ölvi þótti eigi góðum liðsmanni ofaukið, því að skipkostur var ærinn; réðst Egill til ferðar þeirrar; Egill hafði vopn sín, sverð og kesju og buklara. Fara þeir ferðar sinnar, er þeir voru búnir, og fengu veðrabálk harðan, hvöss veður og óhagstæð, en þeir sóttu ferðina knálega, tóku róðrarleiði.

Svo bar til ferð þeirra, að þeir komu aftan dags til Atleyjar og lögðu þar að landi, en þar var í eyjunni skammt upp bú mikið, er átti Eiríkur konungur. En þar réð fyrir maður sá, er Bárður hét; hann var kallaður Atleyjar-Bárður og var sýslumaður mikill og starfsmaður góður; ekki var hann kynstór maður, en kær mjög Eiríki konungi og Gunnhildi drottningu.

Þeir Ölvir drógu upp skip sitt úr flæðarmáli, gengu síðan til bæjar og hittu Bárð úti og sögðu honum um ferð sína, svo það, að þeir vildu þar vera um nóttina. Bárður sá, að þeir voru votir mjög, og fylgdi hann þeim til eldahúss nokkurs; var það brott frá öðrum húsum; hann lét gera eld mikinn fyrir þeim, og voru þar þurrkuð klæði þeirra.

En er þeir höfðu tekið klæði sín, þá kom Bárður þar. "Nú munum vér," segir hann, "hér setja yður borð; eg veit, að yður mun vera títt að sofa; þér eruð menn móðir af vosi."

Ölvi líkaði það vel. Síðan var sett borð og gefinn þeim matur, brauð og smjör, og settir fram skyraskar stórir.

Bárður sagði: "Harmur er það nú mikill, er öl er ekki inni, það er eg megi yður fagna sem vildi; verðið þér nú að bjargast við slíkt, sem til er."

Þeir Ölvir voru þyrstir mjög og supu skyrið; síðan lét Bárður bera inn afur, og drukku þeir það.

"Fús myndi eg," kvað Bárður, "að gefa yður betra drykk, ef til væri."

Hálm skorti þar eigi inni; bað hann þar þá niður leggjast til svefns.

44. kafli

Eiríkur konungur og Gunnhildur komu það sama kveld í Atley, og hafði Bárður þar búið veislu móti honum, og skyldi þar vera dísablót, og var þar veisla hin besta og drykkja mikil inni í stofunni.

Konungur spurði, hvar Bárður væri, -- "er eg sé hann hvergi."

Maður segir: "Bárður er úti og greiðir fyrir gestum sínum."

"Hverjir eru gestir þeir," segir konungur, "er hann lætur sér það skyldara en vera inni hér hjá oss?"

Maðurinn sagði honum, að þar voru komnir húskarlar Þóris hersis.

Konungur mælti: "Gangið eftir þeim sem tíðast og kallið þá inn hingað." Og var svo gert, sagt að konungur vill hitta þá.

Síðan ganga þeir. Fagnar konungur vel Ölvi og bað hann sitja gagnvert sér í öndvegi og þar förunauta hans utar frá. Þeir gerðu svo; sat Egill næstur Ölvi.

Síðan var þeim borið öl að drekka. Fóru minni mörg, og skyldi horn drekka í minni hvert. En er á leið um kveldið, þá kom svo, að förunautar Ölvis gerðust margir ófærir, sumir spjóu þar inni í stofunni, en sumir komust út fyrir dyr; Bárður gekk þá að fast að bera þeim drykk.

Þá tók Egill við horni því, er Bárður hafði fengið Ölvi, og drakk af; Bárður sagði, að hann þyrsti mjög, og færði honum þegar hornið fullt og bað hann af drekka. Egill tók við horninu og kvað vísu:

Sögðuð sverri flagða
sumbleklu ér, kumbla,
því telk, brjótr, þars blétuð,
bragðvísan þik, dísir;
leynduð alls til illa
ókunna þér runna,
illt hafið bragð of brugðit,
Báröðr, hugar fári.

Bárður bað hann drekka og hætta flimtun þeirri. Egill drakk full hvert, er að honum kom, og svo fyrir Ölvi.

Þá gekk Bárður til drottningar og sagði henni, að þar var maður sá, er skömm færði að þeim og aldregi drakk svo, að eigi segði hann sig þyrsta. Drottning og Bárður blönduðu þá drykkinn ólyfjani og báru þá inn; signdi Bárður fullið, fékk síðan ölseljunni; færði hún Agli og bað hann drekka. Egill brá þá knífi sínum og stakk í lófa sér; hann tók við horninu og reist á rúnar og reið á blóðinu. Hann kvað:


Rístum rún á horni,
rjóðum spjöll í dreyra,
þau velk orð til eyrna
óðs dýrs viðar róta;
drekkum veig sem viljum
vel glýjaðra þýja,
vitum, hvé oss of eiri
öl, þats Báröðr signdi.

Hornið sprakk í sundur, en drykkurinn fór niður í hálm. Þá tók að líða að Ölvi; stóð þá Egill upp og leiddi Ölvi utar til dyranna og hélt á sverði sínu. En er þeir koma að dyrunum, þá kom Bárður eftir þeim og bað Ölvi drekka brautfararminni sitt. Egill tók við og drakk og kvað vísu:


Ölvar mik, þvít Ölvi
öl gervir nú fölvan,
atgeira lætk ýrar
ýring of grön skýra;
öllungis kannt illa,
oddskýs, fyr þér nýsa,
rigna getr at regni,
regnbjóðr, Hávars þegna.

Egill kastar horninu, en greip sverðið og brá; myrkt var í forstofunni; hann lagði sverðinu á Bárði miðjum, svo að blóðrefillinn hljóp út um bakið; féll hann dauður niður, en blóð hljóp úr undinni. Þá féll Ölvir, og gaus spýja úr honum. Egill hljóp þá út úr stofunni; þá var niðamyrkur úti; tók Egill þegar rás af bænum.

En inni í forstofunni sáu menn, að þeir voru báðir fallnir, Bárður og Ölvir; kom þá konungur til og lét bera að ljós; sáu menn þá, hvað títt var, að Ölvir lá þar vitlaus, en Bárður var veginn, og flaut í blóði hans gólfið allt.

Þá spurði konungur, hvar sá væri hinn mikli maður, er þar hafði drukkið mest um kveldið, menn sögðu, að hann gekk út.

"Leitið að honum," segir konungur, "og látið hann koma til mín."

Var hans nú leita farið um bæinn, og fannst hann hvergi; en er þeir koma í eldahúsið, þá lágu þar margir menn Ölvis; konungsmenn spurðu, ef þar hefði nokkuð Egill komið.

Þeir segja, að hann hefði hlaupið þar inn og tekið vopn sín, -- "og gekk út eftir það."

Þá var það sagt konungi; konungur bað menn sína fara sem hvatast og taka skip öll, þau er voru í eyjunni; "en á morgun, er ljóst er, skulum vér rannsaka alla eyna og drepa þá manninn."

45. kafli

Egill fór nú um nóttina og leitaði þar til, er skipin voru, en hvar sem hann kom til strandar, þá var þar allt menn fyrir; hann fór nótt þá alla og fékk hvergi skip.

En er lýsa tók, var hann staddur á nesi nokkuru; hann sá þá ey eina, og var þar sund í milli og furðulega langt. Þá var það ráð hans, að hann tók hjálminn, sverð og spjót og braut það af skafti og skaut því á sæ út, en vopnin vafði hann í yfirhöfn sinni og gerði sér af bagga og batt á bak sér. Þá hljóp hann á sund og létti eigi fyrr en hann kom til eyjarinnar; hún hét Sauðey og er ekki mikil ey og hrísótt. Þar var í fénaður, naut og sauðir, og lá það til Atleyjar. En er hann kom til eyjarinnar, vatt hann klæði sín; þá var dagur ljós og sól farin.

Eiríkur konungur lét rannsaka eyna, þegar ljóst var; það var seint, er eyin var mikil, og fannst Egill eigi; var þá farið á skipi til annarra eyja að leita hans. Það var um kveldið, að tólf menn reru til Sauðeyjar að leita Egils, en þó voru margar eyjar nær. Hann sá skipið, er fór til eyjarinnar, en níu gengu upp og skiptu leitum. Egill hafði lagst niður í hrísið og falst, áður skipið kom að landi.

Nú gengu þrír í hverja leit, en þrír gættu skips; og er leiti bar í milli þeirra og skipsins, þá stóð Egill upp og gekk til skipsins. En þeir, er skipsins gættu, fundu eigi fyrr en Egill var kominn að þeim; hann hjó einn þegar banahögg, en annar tók á rás, og var þar að hlaupa á brekku nokkura; Egill hjó eftir honum og af fótinn; en einn hljóp á skipið og stakk við forkinum, en Egill dró að sér festina og hljóp út á skipið, og skiptust þeir eigi lengi höggum við, áður Egill drap hann og rak hann útbyrðis. Þá tók hann árar og reri á brott skipinu; fór hann þá nótt alla og daginn eftir og létti eigi fyrr en hann kom til Þóris hersis. En Ölvi og förunauta hans lét konungur fara í friði af þessum sökum.

En þeir menn, er í Sauðey voru, þá voru þeir þar margar nætur og drápu fé til matar sér, tóku eld og gerðu seyði; þeir gerðu svo mikið, að sjá mátti heim, lögðu þá eld í og gerðu vita; en er það var séð, þá var róið til þeirra. Konungur var þá í brott; fór hann þá til annarrar veislu.

Þeir Ölvir komu fyrr heim en Egill, og voru þeir Þórir og Þórólfur nýkomnir heim frá brullaupinu; Ölvir sagði tíðindi, dráp Bárðar og þá atburði, er þar höfðu orðið, en hann vissi ekki til ferða Egils, og var Þórólfur allókátur og svo Arinbjörn; þótti þeim sem hann myndi eigi aftur koma. En eftir um morguninn kom Egill heim; en er Þórólfur varð þess vís, þá stóð hann upp og gekk til fundar við Egil og spurði, með hverjum hætti hann hefði undan komist og hvað til tíðinda hefði orðið í för hans. Þá kvað Egill vísu:


Svá hefk leystsk ór Lista
láðvarðaðar garði,
né fágak dul drjúgan,
dáðmildr ok Gunnhildar,
at þrifreynis þjónar
þrír nakkvarir Hlakkar
til hásalar Heljar
helgengnir för dvelja.

Arinbjörn lét vel yfir þessum verkum, sagði föður sinn skyldan vera til að sætta hann við konung.

Þórir segir: "Það mun vera mál manna, að Bárður hefði verðleika til þess, er hann var drepinn, en þó er Agli of mjög ættgengt að sjást of lítt fyrir að verða fyrir reiði konungs, en það verður flestum mönnum þungbært; en þó mun eg koma þér í sætt við konung að sinni."

Þórir fór á fund konungs, en Arinbjörn var heima og kvað eitt skyldu yfir þá líða alla; en er Þórir kom á fund konungs, þá bauð hann boð fyrir Egil, bauð festu sína, en dóm konungs.

Eiríkur konungur var hinn reiðasti, og var óhægt ráðum við hann að koma; konungur mælti og kvað það mundu sannast, er faðir hans hafði sagt, að seint myndi mega tryggja þá frændur, bað Þóri svo til haga, -- "þótt eg geri sætt nokkura, að Egill sé ekki langvistum í mínu ríki; en sakir þín, Þórir, mun eg fé taka fyrir menn þessa."

Gerði konungur fésekt slíka, sem honum sýndist, en Þórir galt allt; fór hann þá heim.

46. kafli

Þeir Þórólfur og Egill voru með Þóri í góðu yfirlæti, en þeir bjuggu um vorið langskip mikið og fengu menn til og fóru um sumarið í Austurveg og herjuðu og fengu of fjár og áttu margar orustur. Héldu þeir og út til Kúrlands og lögðu þar við land með hálfs mánaðar friði og kaupstefnu; en er því var lokið, þá tóku þeir að herja og lögðu að í ýmsum stöðum.

Einn dag lögðu þeir að við árós einn mikinn, enda var þar mörk mikil; þeir réðu þar til uppgöngu, og var skipt í sveitir, tólf mönnum saman. Þeir gengu á skóginn, og var þar ekki langt, áður byggðin tók við; þeir rændu þar og drápu menn, en liðið flýði undan, og fengu þeir enga viðurtöku. En er á leið daginn, lét Þórólfur blása liðinu til ofangöngu; sneru menn þá aftur á skóginn, þar sem þá voru staddir, en svo fremi mátti kanna liðið, er þeir komu til strandar; en er Þórólfur var ofan kominn, var Egill eigi kominn, en þá tók að myrkva af nótt, og þóttust þeir eigi mega leita hans.

Egill hafði gengið yfir skóginn og tólf menn með honum, og sáu þeir þá sléttur miklar og byggðir; bær einn stóð skammt frá þeim, og stefndu þeir þar til, og er þeir koma þar til, hlaupa þeir í húsin inn og urðu við enga menn varir, en tóku fé það, er laust var. Þar voru mörg hús, og dvaldist þeim þar lengi, en er þeir voru út komnir og frá bænum, þá var lið komið milli þeirra og skógarins, og sótti það að þeim.

Skíðgarður var hár ger millum þeirra og skógarins. Þá mælti Egill, að þeir skyldu fylgja honum, svo að eigi mætti öllum megin að þeim ganga; gekk Egill þá fyrst, en þá hver að öðrum svo nær, að ekki mátti milli þeirra komast; Kúrir sóttu að þeim fast og mest með lögum og skotum, en gengu ekki í höggorustu. Þeir Egill fundu eigi fyrr, er þeir ganga með görðunum, en garður gekk á aðra hönd þeim, og mátti eigi fram komast; Kúrir sóttu eftir þeim í kvína, en sumir sóttu utan að og lögðu spjótum og sverðum í gegnum garðana, en sumir báru klæði á vopn þeirra. Urðu þeir sárir og því næst handteknir og allir bundnir, leiddir svo heim til bæjarins.

Maður sá, er bæ þann átti, var ríkur og auðugur; hann átti son roskinn; síðan var um rætt, hvað við þá skyldi gera; sagði bóndi að honum þótti það ráð, að drepinn væri hver á fætur öðrum. Bóndason sagði, að þá gerði myrkt af nótt, og mætti þá enga skemmtun af hafa að kvelja þá; bað hann láta bíða morguns; var þeim þá skotið í hús eitt og bundnir rammlega; Egill var bundinn við staf einn, bæði hendur og fætur; síðan var húsið læst rammlega, en Kúrir gengu inn í stofu og mötuðust og voru allkátir og drukku. Egill færðist við og treysti stafinn, til þess er upp losnaði úr gólfinu; síðan féll stafurinn; smeygðist Egill þá af stafnum; síðan leysti hann hendur sínar með tönnum, en er hendur hans voru lausar, leysti hann bönd af fótum sér; síðan leysti hann félaga sína.

En er þeir voru allir lausir, leituðust þeir um í húsin, hvar líkast var út að komast; húsið var gert að veggjum af timburstokkum stórum, en í annan enda hússins var skjaldþili flatt; hljópu þeir þar að og brutu þilið. Var þar hús annað, er þeir komu í; voru þar og timburveggir um.

Þá heyrðu þeir mannamál undir fætur sér niður; leituðust þeir þá um og fundu hurð í gólfinu. Luku þeir þar upp; var þar undir gröf djúp; heyrðu þeir þangað manna mál. Síðan spurði Egill, hvað manna þar væri; sá nefndist Áki, er við hann mælti. Egill spurði, ef hann vildi upp úr gröfinni; Áki segir, að þeir vildu það gjarna. Síðan létu þeir Egill síga festi ofan í gröfina, þá er þeir voru bundnir með, og drógu þar upp þrjá menn.

Áki sagði, að það voru synir hans tveir og þeir voru menn danskir, höfðu þar orðið herteknir hið fyrra sumar. "Var eg," sagði hann, "vel haldinn í vetur; hafði eg mjög fjárvarðveislur búanda, en sveinarnir voru þjáðir og undu því illa. Í vor réðum vér til og hljópum á brott og urðum síðan fundnir, vorum vér þá hér settir í gröf þessa."

"Þér mun hér kunnugt um húsaskipan," segir Egill; "hvar er oss vænst á brott að komast?"

Áki sagði, að þar var annað skjaldþili, -- "brjótið þér það upp; munuð þér þá koma fram í kornhlöðu, en þar má út ganga sem vill."

Þeir Egill gerðu svo, brutu upp þilið, gengu síðan í hlöðuna og þaðan út; niðamyrkur var á; þá mæltu þeir förunautar, að þeir skyldu skunda á skóginn.

Egill mælti við Áka: "Ef þér eru hér kunnug hýbýli, þá muntu vísa oss til féfanga nokkurra."

Áki segir, að eigi myndi þar skorta lausafé; "hér er loft mikið, er bóndi sefur í; þar skortir eigi vopn inni."

Egill bað þá þangað fara til loftsins, en er þeir komu upp í riðið, þá sáu þeir, að loftið var opið; var þar ljós inni og þjónustumenn og bjuggu rekkjur manna. Egill bað þá suma úti vera og gæta, að enginn kæmist út; Egill hljóp inn í loftið, greip þar vopn, því að þau skorti þar eigi inni; drápu þar menn alla, þá er þar voru inni; þeir tóku sér allir alvæpni. Áki gekk til, þar er hlemmur var í gólfþilinu, og lauk upp, mælti, að þeir skyldu þar ofan ganga í undirskemmuna. Þeir tóku sér ljós og gengu þangað, voru þar féhirslur bónda og gripir góðir og silfur mikið; tóku menn sér þar byrðar og báru út; Egill tók undir hönd sér mjöðdrekku eina vel mikla og bar undir hendi sér; fóru þeir þá til skógar.

En er þeir komu í skóginn, þá nam Egill stað og mælti: "Þessi ferð er allill og eigi hermannleg; vér höfum stolið fé bónda, svo að hann veit eigi til, skal oss aldregi þá skömm henda; förum nú aftur til bæjarins og látum þá vita, hvað títt er."

Allir mæltu því í mót; sögðu, að þeir vildu fara til skips. Egill setur niður mjöðdrekkuna; síðan hefur hann á rás og rann til bæjarins; en er hann kom heim til bæjarins, þá sá hann, að þjónustusveinar gengu frá eldaskála með skutildiska og báru inn í stofuna. Egill sá, að í eldahúsinu var eldur mikill og katlar yfir; gekk hann þangað til; þar höfðu verið stokkar stórir fluttir heim og svo eldar gerðir, sem þar er siðvenja til, að eldinn skal leggja í stokks endann, og brennur svo stokkurinn. Egill greip upp stokkinn og bar heim til stofunnar og skaut þeim endanum, er logaði, upp undir ufsina og svo upp í næfrina; eldurinn las skjótt tróðviðinn. En þeir, er við drykkjuna sátu, fundu eigi fyrr en loginn stóð inn um ræfrið; hljópu menn þá til dyranna, en þar var ekki greiðfært út, bæði fyrir viðunum, svo það, að Egill varði dyrnar. Felldi hann menn bæði í dyrunum og úti fyrir dyrunum; en það var s vipstund ein, áður stofan brann, svo að hún féll ofan. Týndist þar lið allt, er þar var inni, en Egill gekk aftur til skógarins, fann þar förunauta sína; fara þá allir saman til skips. Sagði Egill, að mjöðdrekku þá vill hann hafa að afnámsfé, er hann fór með, en hún var reyndar full af silfri.

Þeir Þórólfur urðu allfegnir, er Egill kom ofan; héldu þeir þegar frá landi, er morgnaði. Áki og þeir feðgar voru í sveit Egils; þeir sigldu um sumarið, er á leið, til Danmarkar og lágu þar enn fyrir kaupskipum og rændu þar, er þeir komust við.

47. kafli

Haraldur Gormsson hafði þá tekið við ríki í Danmörk, en Gormur, faðir hans, var þá dauður; landið var þá herskátt; lágu víkingar mjög úti fyrir Danmörku. Áka var kunnugt í Danmörku bæði á sjó og landi; spurði Egill hann mjög eftir, hvar þeir staðir væru, er stór féföng myndu fyrir liggja.

En er þeir komu í Eyrarsund, þá sagði Áki, að þar var á land upp kaupstaður mikill, er hét í Lundi, sagði, að þar var févon, en líklegt, að þar myndi vera viðtaka, er bæjarmenn væru. Það mál var upp borið fyrir liðsmenn, hvort þar skyldi ráða til uppgöngu eða eigi; menn tóku þar allmisjafnt á, fýstu sumir, en sumir löttu. Var því máli skotið til stýrimanna. Þórólfur fýsti heldur uppgöngu. Þá var rætt við Egil, hvað honum þótti ráð. Hann kvað vísu:


Upp skulum órum sverðum,
ulfs tannlituðr, glitra,
eigum dáð at drýgja
í dalmiskunn fiska;
leiti upp til Lundar
lýða hverr sem bráðast
gerum þar fyr setr sólar
seið ófagran vigra.

Síðan bjuggust menn til uppgöngu og fóru til kaupstaðarins. En er bæjarmenn urðu varir við ófrið, þá stefndu þeir í mót; var þar tréborg um staðinn, settu þeir þar menn til að verja; tókst þar bardagi. Egill gengur fyrstur inn um borgina; síðan flýðu bæjarmenn; varð þar mannfall mikið. Rændu þeir kaupstaðinn, en brenndu, áður þeir skildust við; fóru síðan ofan til skipa sinna.

48. kafli

Þórólfur hélt liði sínu norður fyrir Halland og lögðu þar til hafnar, er þeim bægði veður; rændu þar ekki. Þar var skammt á land upp jarl sá, er Arnfinnur er nefndur; en er hann spurði, að víkingar voru þar komnir við land, þá sendi hann menn sína á fund þeirra þess erindis að vita, hvort þeir vildu þar friðland hafa eða hernað.

En er sendimenn voru komnir á fund Þórólfs með sín erindi, þá sagði hann, að þeir myndu þar ekki herja, sagði, að þeim var engi nauðsyn til að herja þar og fara herskildi, sagði, að þar var land ekki auðugt.

Sendimenn fara aftur til jarlsins og sögðu honum erindislok sín; en er jarlinn varð þess var, að hann þurfti ekki liði að safna fyrir þá sök, þá reið hann ofan með ekki lið til fundar við víkinga. En er þeir fundust, þá fóru þar allt vel ræður með þeim; jarl bauð Þórólfi til veislu með sér og liði hans, því er hann vildi, Þórólfur hét ferðinni.

En þá er á var kveðið, lét jarlinn senda reiðskjóta ofan móti þeim; réðust þeir til ferðar bæði Þórólfur og Egill og höfðu með sér þrjá tigu manna. En er þeir komu til jarlsins, fagnaði hann þeim vel; var þeim fylgt inn í stofu. Var þar þegar inni mungát og gefið þeim að drekka; sátu þeir þar til kvelds.

En áður borð skyldi upp fara, þá sagði jarl, að þar skyldi sæti hluta, skyldi drekka saman karlmaður og kona, svo sem til ynnist, en þeir sér, er fleiri væru. Menn báru þá hluti sína í skaut, og tók jarlinn upp. Jarl átti dóttur allfríða og þá vel frumvaxta; svo sagði hlutur til, að Egill skyldi sitja hjá jarlsdóttur um kveldið; hún gekk um gólf og skemmti sér. Egill stóð upp og gekk til rúms þess, er dóttir jarlsins hafði setið um daginn. En er menn skipuðust í sæti sín, þá gekk jarlsdóttir að rúmi sínu; hún kvað:


Hvat skaltu, sveinn, í sess minn?
þvít þú sjaldan hefr gefnar
vargi varmar bráðir,
vesa vilk ein of mína;
sáttaðu hrafn í hausti
of hræsolli gjalla,
vastaðu at, þars eggjar
á skelþunnar runnusk.

Egill tók til hennar og setti hana niður hjá sér; hann kvað:


Farit hefk blóðgum brandi,
svát mér benþiðurr fylgði,
ok gjallanda geiri;
gangr vas harðr af víkingum;
gerðum reiðir róstu,
rann eldr of sjöt manna,
létum blóðga búka
í borghliðum sæfask

Þá drukku þau saman um kveldið og voru allkát. Var þar veisla hin besta og svo um daginn eftir; fóru þá víkingar til skipa sinna; skildust þeir jarl með vináttu og skiptust gjöfum við. Héldu þeir Þórólfur liðinu til Brenneyja; þar var í þann tíma víkingabæli mikið, því að þar sigldu kaupskip mjög í gegnum eyjarnar.

Áki fór heim til búa sinna og synir hans; hann var maður vellauðugur og átti mörg bú á Jótlandi; skildust þeir með kærleik og mæltu til vináttu mikillar milli sín.

En er haustaði, sigldu þeir Þórólfur norður fyrir Noreg og koma fram í Fjörðum, fara á fund Þóris hersis. Tók hann vel við þeim, en Arinbjörn, sonur hans, miklu betur; býður hann, að Egill skal þar vera um veturinn; Egill tók það með þökkum.

En er Þórir vissi boð Arinbjarnar, þá kallaði hann það heldur bráðmælt; "veit eg eigi," sagði hann, "hversu það líkar Eiríki konungi, því að hann mælti svo eftir aftöku Bárðar, að hann vildi ekki, að Egill væri hér í landi."

"Ráða máttu vel, faðir," segir Arinbjörn, "því við konung, að hann telji ekki að um vist Egils; þú munt bjóða Þórólfi, mági þínum, hér að vera, en við Egill munum hafa eitt veturgrið báðir."

En af þessi ræðu sá Þórir, að Arinbjörn myndi þessu ráða; buðu þeir feðgar þá Þórólfi þar veturgrið, en hann þekktist það; voru þeir þar við tólf menn um veturinn.

Bræður tveir eru nefndir Þorvaldur ofsi og Þorfinnur strangi; það voru náfrændur Bjarnar hölds og höfðu með honum fæðst; þeir voru menn miklir og sterkir, kappsmenn miklir og framgjarnir. Þeir fylgdu Birni, þá er hann var í víking, en síðan er hann settist um kyrrt, þá fóru þeir bræður til Þórólfs og voru með honum í hernaði; þeir voru í stafni á skipi hans, en þá er Egill tók skipstjórn, þá var Þorfinnur hans stafnbúi. Þeir bræður fylgdu Þórólfi jafnan, og mat hann þá mest skipverja sinna; þeir bræður voru þann vetur í hans sveit og sátu næst þeim bræðrum. Þórólfur sat í öndvegi og átti drykkju við Þóri, en Egill sat fyrir ádrykkju Arinbjarnar. Skyldi þar um gólf ganga að minnum öllum.

Þórir hersir fór um haustið á fund Eiríks konungs; tók konungur við honum forkunnar vel. En er þeir tóku ræður sínar, þá bað Þórir konung, að hann skyldi eigi fyrirkunna hann þess, er hann hafði Egil með sér um veturinn.

Konungur svarar því vel, sagði, að Þórir mátti þiggja af honum slíkt, er hann vildi, -- "en ekki myndi þetta svo fara, ef annar maður hefði við Agli tekið."

En er Gunnhildur heyrði, hvað þeir ræddu, þá mælti hún: "Það ætla eg, Eiríkur, að nú fari enn sem oftar, að þú sért mjög talhlýðinn, og manst það eigi lengi, er illa er gert til þín, enda muntu til þess draga fram sonu Skalla-Gríms, að þeir munu enn drepa niður nokkura náfrændur þína; en þótt þú látir þér engis þykja vert um dráp Bárðar, þá þykir mér eigi svo þó."

Konungur segir: "Meir frýr þú mér, Gunnhildur, grimmleiks en aðrir menn; en verið hefir kærra við Þórólf af þinni hendi en nú er; en ekki mun eg orð mín aftur taka við þá bræður."

"Vel var Þórólfur hér," sagði hún, "áður Egill spillti fyrir honum, en nú ætla eg engan mun."

Þórir fór heim, þá er hann var búinn, og sagði þeim bræðrum orð konungs og drottningar.

49. kafli

Eyvindur skreyja og Álfur askmaður hétu bræður Gunnhildar, synir Össurar tóta; þeir voru menn miklir og allsterkir og kappsmenn miklir; þeir höfðu þá mest yfirlát af Eiríki konungi og Gunnhildi; ekki voru þeir menn þokkasælir af alþýðu, voru þá á ungum aldri og þó fullkomnir að þroska.

Það var um vorið, að blót skyldi vera að sumri á Gaulum; það var ágæst höfuðhof; sótti þangað fjölmenni mikið úr Fjörðum og af Fjölum og úr Sogni og flest allt stórmenni; Eiríkur konungur fór þangað.

Þá mælti Gunnhildur við bræður sína: "Það vil eg, að þið hagið svo til í fjölmenni þessu, að þið fáið drepið annanhvorn þeirra sona Skalla-Gríms og best, að báðir væru."

Þeir sögðu, að svo skyldi vera.

Þórir hersir bjóst til ferðar þeirrar; hann kallaði Arinbjörn til máls við sig. "Nú mun eg," sagði hann, "fara til blótsins, en eg vil ekki, að Egill fari þangað; eg kann ræðum Gunnhildar, en kappsemd Egils, en ríki konungs, að þess mun eigi hægt að gæta alls saman; en Egill mun ekki letjast láta, nema þú sért eftir. En Þórólfur skal fara með mér," sagði hann, "og aðrir þeir förunautar; skal Þórólfur blóta og leita heilla þeim bræðrum."

Síðan sagði Arinbjörn Agli, að hann mun heima vera -- "og við báðir," sagði hann; Egill kvað svo vera skyldu.

En þeir Þórir fóru til blótsins, og var þar allmikið fjölmenni og drykkjur miklar; Þórólfur fór með Þóri, hvar sem hann fór, og skildust aldregi dag né nótt.

Eyvindur sagði Gunnhildi, að hann fékk ekki færi við Þórólf. Hún bað hann þá drepa einhvern manna hans -- "heldur en allt beri undan."

Það var eitt kveld, þá er konungur var til svefns genginn og svo þeir Þórir og Þórólfur, en þeir sátu eftir Þorfinnur og Þorvaldur, þá komu þeir bræður, Eyvindur og Álfur, og settust hjá þeim og voru allkátir; drukku fyrst sveitardrykkju. Þá kom þar, að horn skyldi drekka til hálfs; drukku þeir saman Eyvindur og Þorvaldur, en Álfur og Þorfinnur. En er á leið kveldið, þá var drukkið við sleitur og því næst orðahnippingar og þá stóryrði. Þá hljóp Eyvindur upp og brá saxi einu og lagði á Þorvaldi, svo að það var ærið banasár; síðan hljópu upp hvorirtveggju, konungsmenn og húskarlar Þóris, en menn voru allir vopnlausir inni, því að þar var hofshelgi, og gengu menn í milli og skildu þá, er óðastir voru; varð þá ekki fleira til tíðinda það kveld.

Eyvindur hafði vegið í véum, og var hann vargur orðinn, og varð hann þegar brott að fara. Konungur bauð bætur fyrir manninn, en Þórólfur og Þorfinnur sögðu, að þeir höfðu aldregi tekið mannbætur og þeir vildu ekki þær taka; skildust að svo búnu; fóru þeir Þórir heim.

Eiríkur konungur og þau Gunnhildur sendu Eyvind suður til Danmerkur til Haralds konungs Gormssonar, því að hann mátti þá eigi vera í norrænum lögum; konungurinn tók vel við honum og föruneyti hans. Eyvindur hafði til Danmarkar langskip allmikið, síðan setti konungur Eyvind þar til landvarnar fyrir víkingum; Eytvindur var hermaður hinn mesti.

En er vor kom eftir vetur þann, þá búast þeir Þórólfur og Egill enn að fara í víking; en er þeir voru búnir, þá halda þeir enn í Austurveg. En er þeir koma í Víkina, þá sigla þeir suður fyrir Jótland og herja þar, og þá fara þeir til Fríslands og dveljast mjög lengi um sumarið, en þá halda þeir enn aftur til Danmerkur.

En er þeir koma til landamæris, þar er mætist Danmörk og Frísland, og lágu þá við land, þá var það eitt kveld, er menn bjuggust til svefns á skipum, að menn tveir komu á skip Egils og sögðu, að þeir áttu við hann erindi; var þeim fylgt til hans. Þeir segja, að Áki hinn auðgi hafði sent þá þangað með þeim erindum, að -- "Eyvindur skreyja liggur úti fyrir Jótlandssíðu og ætlar að sæta yður, þá er þér farið sunnan, og hefir hann lið mikið saman dregið, svo að þér hafið engi áhöld við, ef þér hittið lið hans allt; en hann sjálfur fer með léttiskipum tveimur og er nú hér skammt frá yður."

En er tíðindi þessi komu fyrir Egil, þá láta þeir þegar af sér tjöldin; bað þá fara hljóðlega; þeir gerðu svo. Þeir komu í dögun að þeim Eyvindi, þar er þeir lágu um akkeri, lögðu þegar að þeim, létu ganga bæði grjót og vopn; féll þar lið margt af Eyvindi, en hann sjálfur hljóp fyrir borð og komst með sundi til lands og svo allt það lið, er undan komst.

En þeir Egill tóku skipin og föt þeirra og vopn; fóru þá aftur um daginn til liðs síns, hittu þá Þórólf; spyr hann, hvert Egill hafði farið eða hvar hann hafði fengið skip þau, er þeir fara með. Egill segir, að Eyvindur skreyja hafði haft skipin og þeir höfðu af honum tekið; þá kvað Egill:


Gerðum helsti harða
hríð fyr Jótlands síðu,
barðisk vel, sás varði,
víkingr, Dana ríki,
áðr á sund fyr sandi
snarfengr með lið drengja
austr af unnar hesti
Eyvindr of hljóp skreyja.

Þórólfur segir: "Þetta ætla eg yður svo hafa gert, að oss mun ekki haustlangt ráð að fara til Noregs."

Egill sagði, að það var vel, þótt þeir leituðu þá í annan stað.

50. kafli

Elfráður hinn ríki réð fyrir Englandi; hann var fyrstur einvaldskonungur yfir Englandi sinna kynsmanna; það var á dögum Haralds hins hárfagra, Noregs konungs. Eftir hann var konungur í Englandi sonur hans, Játvarður; hann var faðir Aðalsteins hins sigursæla, fóstra Hákonar hins góða. Í þenna tíma tók Aðalsteinn konungdóm í Englandi eftir föður sinn; þeir voru fleiri bræður, synir Játvarðs.

En er Aðalsteinn hafði tekið konungdóm, þá hófust upp til ófriðar þeir höfðingjar, er áður höfðu látið ríki sín fyrir þeim langfeðgum, þótti nú sem dælst myndi til að kalla, er ungur konungur réð fyrir ríki; voru það bæði Bretar og Skotar og Írar. En Aðalsteinn konungur safnaði herliði að sér og gaf mála þeim mönnum öllum, er það vildu hafa til féfangs sér, bæði útlenskum og innlenskum.

Þeir bræður, Þórólfur og Egill, héldu suður fyrir Saxland og Flæmingjaland; þá spurðu þeir, að Englandskonungur þóttist liðs þurfa og þar var von féfangs mikils; gera þeir þá það ráð að halda þangað liði sínu. Fóru þeir þá um haustið, til þess er þeir komu á fund Aðalsteins konungs; tók hann vel við þeim og leist svo á, að liðsemd mikil myndi vera að fylgd þeirra. Verður það brátt í ræðum Englandskonungs, að hann býður þeim til sín að taka þar mála og gerast landvarnarmenn hans; semja þeir það sín í milli, að þeir gerast menn Aðalsteins.

England var kristið og hafði lengi verið, þá er þetta var tíðinda; Aðalsteinn konungur var vel kristinn; hann var kallaður Aðalsteinn hinn trúfasti. Konungur bað Þórólf og þá bræður, að þeir skyldu láta prímsignast, því að það var þá mikill siður, bæði með kaupmönnum og þeim mönnum, er á mála gengu með kristnum mönnum, því að þeir menn, er prímsignaðir voru, höfðu allt samneyti við kristna menn og svo heiðna, en höfðu það að átrúnaði, er þeim var skapfelldast. Þeir Þórólfur og Egill gerðu það eftir bæn konungs og létu prímsignast báðir. Þeir höfðu þar þrjú hundruð sinna manna, þeirra er mála tóku af konungi.

51. kafli

Ólafur rauði hét konungur á Skotlandi; hann var skoskur að föðurkyni, en danskur að móðurkyni og kominn af ætt Ragnars loðbrókar; hann var ríkur maður. Skotland var kallað þriðjungur ríkis við England.

Norðimbraland er kallað fimmtungur Englands, og er það norðast, næst Skotlandi fyrir austan; það höfðu haft að fornu Danakonungar; Jórvík er þar höfuðstaður. Það ríki átti Aðalsteinn og hafði sett yfir jarla tvo, hét annar Álfgeir, en annar Goðrekur, þeir sátu þar til landvarnar, bæði fyrir ágangi Skota og Dana eða Norðmanna, er mjög herjuðu á landið og þóttust eiga tilkall mikið þar til lands, því að á Norðimbralandi voru þeir einir menn, ef nokkuð var til, að danska ætt áttu að faðerni eða móðerni, en margir hvorirtveggju.

Fyrir Bretlandi réðu bræður tveir, Hringur og Aðils, og voru skattgildir undir Aðalstein konung, og fylgdi það, þá er þeir voru í her með konungi, að þeir og þeirra lið skyldi vera í brjósti í fylking fyrir merkjum konungs; voru þeir bræður hinir mestu hermenn og eigi allungir menn.

Elfráður hinn ríki hafði tekið alla skattkonunga af nafni og veldi; hétu þeir þá jarlar, er áður voru konungar eða konungasynir; hélst það allt um hans ævi og Játvarðar, sonar hans, en Aðalsteinn kom ungur til ríkis, og þótti af honum minni ógn standa; gerðust þá margir ótryggir, þeir er áður voru þjónustufullir.

52. kafli

Ólafur Skotakonungur dró saman her mikinn og fór síðan suður á England, en er hann kom á Norðimbraland, fór hann allt herskildi; en er það spurðu jarlarnir, er þar réðu fyrir, stefna þeir saman liði og fara móti konungi. En er þeir finnast, varð þar orusta mikil, og lauk svo, að Ólafur konungur hafði sigur, en Goðrekur jarl féll, en Álfgeir flýði undan og mestur hluti liðs þess, er þeim hafði fylgt og brott komst úr bardaga. Fékk Álfgeir þá enga viðstöðu; lagði Ólafur konungur þá allt Norðimbraland undir sig. Álfgeir fór á fund Aðalsteins konungs og sagði honum ófarar sínar.

En þegar er Aðalsteinn konungur spurði, að her svo mikill var kominn í land hans, þá gerði hann þegar menn frá sér og stefndi að sér liði, gerði orð jörlum sínum og öðrum ríkismönnum; sneri konungur þegar á leið með það lið, er hann fékk, og fór í mót Skotum.

En er það spurðist, að Ólafur Skotakonungur hafði fengið sigur og hafði lagt undir sig mikinn hluta af Englandi, hafði hann þá her miklu meira en Aðalsteinn, en þá sótti til hans margt ríkismanna. En er þetta spyrja þeir Hringur og Aðils -- höfðu þeir saman dregið lið mikið -- þá snúast þeir í lið með Ólafi konungi, höfðu þeir þá ógrynni liðs.

En er Aðalsteinn spurði þetta allt, þá átti hann stefnu við höfðingja sína og ráðamenn, leitaði þá eftir, hvað tiltækilegast væri, sagði þá allri alþýðu greinilega það, er hann hafði frétt um athöfn Skotakonungs og fjölmenni hans. Allir mæltu þar eitt um, að Álfgeir jarl hafði hinn versta hlut af, og þótti það til liggja að taka af honum tignina; en sú ráðagerð staðfestist, að Aðalsteinn konungur skyldi fara aftur og fara á sunnanvert England og hafa þá fyrir sér liðsafnað norður eftir landi öllu, því að þeir sáu ellegar myndi seint safnast fjölmennið, svo mikið sem þyrfti, ef eigi drægi konungur sjálfur að liðið.

En sá her, er þá var þar saman kominn, þá setti konungur þar yfir höfðingja Þórólf og Egil; skyldu þeir ráða fyrir því liði, er víkingar höfðu þangað haft til konungs, en Álfgeir sjálfur hafði þá enn forráð síns liðs; þá fékk konungur enn sveitarhöfðingja þá, er honum sýndist. En er Egill kom heim af stefnunni til félaga sinna, þá spurðu þeir, hvað hann kynni að segja þeim tíðinda frá Skotakonungi. Hann kvað:

Áleifr of kom jöfri,
ótt, víg, á bak flótta,
þingharðan frák þengil
þann, en felldi annan;
glapstígu lét gnóga
Goðrekr á mó troðna;
jörð spenr Engla skerðir
Alfgeirs und sik halfa.

Síðan gera þeir sendimann til Ólafs konungs og finna það til erinda, að Aðalsteinn konungur vill hasla honum völl og bjóða orustustað í Vínheiði við Vínuskóga, og hann vill, að þeir herji eigi á land hans, en sá þeirra ráði ríki á Englandi, er sigur fær í orustu, lagði til viku stef um fund þeirra, en sá bíður annars viku, er fyrr kemur. En það var þá siður, þegar konungi var völlur haslaður, að hann skyldi eigi herja að skammlausu, fyrr en orustu væri lokið; gerði Ólafur konungur svo, að hann stöðvaði her sinn og herjaði ekki og beið til stefnudags; þá flutti hann her sinn til Vínheiðar.

Borg ein stóð fyrir norðan heiðina; settist Ólafur konungur þar í borgina og hafði þar mestan hlut liðs síns, því að þar var út í frá héruð stór, og þótti honum þar betra til aðflutninga um föng þau, er herinn þurfti að hafa. En hann sendi menn sína upp á heiðina, þar sem orustustaðurinn var ákveðinn; skyldu þeir taka þar tjaldstaði og búast þar um, áður herinn kæmi. En er þeir menn komu í þann stað, er völlurinn var haslaður, þá voru þar settar upp heslistengur allt til ummerkja, þar er sá staður var, er orustan skyldi vera. Þurfti þann stað að vanda, að hann væri sléttur, er miklum her skyldi fylkja; var þar og svo, er orustustaðurinn skyldi vera, að þar var heiður slétt, en annan veg frá féll á ein, en á annan veg frá var skógur mikill.

En þar er skemmst var milli skógarins og árinnar, og var það mjög löng leið, þar höfðu tjaldað menn Aðalsteins konungs; stóðu tjöld þeirra allt milli skógarins og árinnar. Þeir höfðu svo tjaldað, að eigi voru menn í hinu þriðja hverju tjaldi og þó fáir í einu.

En er menn Ólafs konungs komu til þeirra, þá höfðu þeir fjölmennt fyrir framan tjöldin öll, og náðu þeir ekki inn að ganga. Sögðu menn Aðalsteins, að tjöld þeirra væru öll full af mönnum, svo að hvergi nær hefði þar rúm lið þeirra. En tjöldin stóðu svo hátt, að ekki mátti yfir upp sjá, hvort þau stóðu mörg eða fá á þykktina; þeir hugðu, að þar myndi vera her manns.

Ólafs konungs menn tjölduðu fyrir norðan höslurnar, og var þangað allt nokkuð afhallt. Aðalsteins menn sögðu og annan dag frá öðrum, að konungur þeirra myndi þá koma eða vera kominn í borg þá, er var sunnan undir heiðinni; lið dróst til þeirra bæði dag og nótt.

En er stefna sú var liðin, er ákveðið var, þá senda menn Aðalsteins erindreka á fund Ólafs konungs með þeim orðum, að Aðalsteinn konungur er búinn til orustu og hefir her allmikinn, en hann sendir Ólafi konungi þau orð, að hann vill eigi, að þeir geri svo mikið mannspell, sem þá horfðist til, bað hann heldur fara heim í Skotland, en Aðalsteinn vill fá honum að vingjöf skilling silfurs af plógi hverjum um allt ríki sitt og vill, að þeir leggi með sér vináttu.

En er sendimenn koma til Ólafs konungs, þá tók hann að búa her sinn og ætlaði að að ríða; en er sendimenn báru upp erindi, þá stöðvaði konungur ferð sína þann dag; sat þá í ráðagerð og höfðingjar hers með honum. Lögðu menn þar allmisjafnt til; sumir fýstu mjög, að þenna kost skyldi taka, sögðu, að það var þá orðin hin mesta fremdarferð, að þeir færu heim og hefðu tekið gjald svo mikið af Aðalsteini; sumir löttu og sögðu, að Aðalsteinn myndi bjóða miklu meira í annað sinn, ef þetta væri eigi tekið, og var sú ráðagerð staðfest.

Þá báðu sendimenn Ólaf konung að gefa sér tóm til, að þeir hittu enn Aðalstein konung og freistuðu, ef hann vildi enn meira gjald af hendi reiða, til þess að friður væri; þeir beiddu griða einn dag til heimreiðar, en annan til umráða, en hinn þriðja til afturferðar. Konungur játtaði þeim því. Fara sendimenn heim og koma aftur hinn þriðja dag, sem ákveðið var, segja Ólafi konungi, að Aðalsteinn vill gefa allt slíkt, sem hann bauð fyrr, og þar um fram til hlutskiptis liði Ólafs konungs skilling manni hverjum frjálsbornum, en mörk sveitarhöfðingja hverjum þeim, er réði tólf mönnum eða fleirum, en mörk gulls hirðstjóra hverjum, en fimm merkur gulls jarli hverjum.

Síðan lét konungur þetta upp bera fyrir lið sitt. Var enn sem fyrr, að sumir löttu, en sumir fýstu, en að lyktum veitti konungur úrskurð, segir, að þenna kost vill hann taka, ef það fylgir, að Aðalsteinn konungur lætur hann hafa Norðimbraland allt með þeim sköttum og skyldum, er þar liggja.

Sendimenn biðja enn fresta um þrjá daga og þess með, að Ólafur konungur sendi þá menn sína að heyra orð Aðalsteins konungs, hvort hann vill eða eigi þenna kost, segja, að þeir hyggja, að Aðalsteinn konungur myndi láta fátt við nema, að sættin tækist. Ólafur konungur játtir því og sendir menn sína til Aðalsteins konungs; ríða þá sendimenn allir saman og hitta Aðalstein konung í borg þeirri, er var næst heiðinni fyrir sunnan.

Sendimenn Ólafs konungs bera upp erindi sín fyrir Aðalstein konung og sættaboð. Aðalsteins konungs menn sögðu og, með hverjum boðum þeir höfðu farið til Ólafs konungs, og það með, að það var ráðagerð vitra manna að dvelja svo orustu, meðan konungur kæmi eigi.

En Aðalsteinn konungur veitti skjótan úrskurð um þetta mál og sagði sendimönnum svo: "Berið þau orð mín Ólafi konungi, að eg vil gefa honum orlof til þess að fara heim til Skotlands með lið sitt, og gjaldi hann aftur fé það allt, er hann tók upp að röngu hér á landi; setjum hér síðan frið í millum landa vorra og herji hvorugir á aðra; það skal og fylgja, að Ólafur konungur skal gerast minn maður og halda Skotland af mér og vera undirkonungur minn. Farið nú," segir hann, "aftur og segið honum svo búið."

Sendimenn sneru aftur leið sína þegar um kveldið og komu til Ólafs konungs nær miðri nótt; vöktu þá upp konung og sögðu honum þegar orð Aðalsteins konungs; konungur lét þegar kalla til sín jarlana og aðra höfðingja, lét þá sendimenn koma til og segja upp erindislok sín og orð Aðalsteins konungs. En er þetta var kunnugt gert fyrir liðsmönnum, þá var eitt orðtak allra, að það myndi fyrir liggja að búast til orustu, sendimenn sögðu og það með, að Aðalsteinn hafði fjölda liðs, og hann hafði þann dag komið til borgarinnar, sem sendimenn komu.

Þá mælti Aðils jarl: "Nú mun það fram komið, konungur, sem eg sagði, að yður myndu þeir reynast brögðóttir, hinir ensku; höfum vér hér setið langa stund og beðið þess, er þeir hafa dregið að sér allt lið sitt, en konungur þeirra mun verið hafa hvergi nær, þá er vér komum hér; munu þeir nú hafa safnað liði miklu, síðan vér settumst. Nú er það ráð mitt, konungur, að við bræður ríðum þegar í nótt fyrir með okkru liði; má það vera, að þeir óttist nú ekki að sér, er þeir hafa spurt, að konungur þeirra er nær með her mikinn; skulum við þá veita þeim áhlaup, en er þeir verða forflótta, þá munu þeir láta lið sitt, en ódjarfari síðan í atgöngu að móti oss."

Konungi þótti þetta ráð vel fundið. "Munum vér búa her vorn, þegar er lýsir, og fara til móts við yður."

Staðfestu þeir þetta ráð og luku svo stefnunni.

53. kafli

Hringur jarl og Aðils, bróðir hans, bjuggu her sinn og fóru þegar um nóttina suður á heiðina. En er ljóst var, þá sáu varðmenn þeirra Þórólfs, hvar herinn fór; var þá blásinn herblástur, og herklæddust menn, tóku síðan að fylkja liðinu og höfðu tvær fylkingar. Réð Álfgeir jarl fyrir annarri fylking, og var merki borið fyrir honum; var í þeirri fylking lið það, er honum hafði fylgt, og svo það lið, er þar hafði til safnast úr héruðum; var það miklu fleira lið en það, er þeim Þórólfi fylgdi.

Þórólfur var svo búinn, að hann hafði skjöld víðan og þykkvan,hjálm á höfði allsterkan, gyrður sverði því, er hann kallaði Lang, mikið vopn og gott; kesju hafði hann í hendi; fjöðrin var tveggja álna löng og sleginn fram broddur ferstrendur, en upp var fjöðrin breið, falurinn bæði langur og digur, skaftið var eigi hærra en taka mátti hendi til fals og furðulega digurt; járnteinn var í falnum og skaftið allt járnvafið; þau spjót voru kölluð brynþvarar.

Egill hafði hinn sama búnað sem Þórólfur, hann var gyrður sverði því, er hann kallaði Naður; það sverð hafði hann fengið á Kúrlandi; var það hið besta vopn; hvorgi þeirra hafði brynju.

Þeir settu merki upp, og bar það Þorfinnur strangi; allt lið þeirra hafði norræna skjöldu og allan norrænan herbúnað; í þeirri fylking voru allir norrænir menn, þeir er þar voru; fylktu þeir Þórólfur nær skóginum, en Álfgeirs fylking fór með ánni.

Aðils jarl og þeir bræður sáu það, að þeir myndu ekki koma þeim Þórólfi á óvart; þá tóku þeir að fylkja sínu liði; gerðu þeir og tvær fylkingar og höfðu tvö merki; fylkti Aðils móti Álfgeiri jarli, en Hringur móti víkingum. Síðan tókst þar orusta; gengu hvorirtveggju vel fram.

Aðils jarl sótti hart fram, þar til er Álfgeir lét undan sígast; en Aðils menn sóttu þá hálfu djarflegar; var þá og eigi lengi, áður en Álfgeir flýði, og er það frá honum að segja, að hann reið undan suður á heiðina og sveit manna með honum; reið hann, þar til er hann kom nær borg þeirri, er konungur sat.

Þá mælti jarlinn: "Ekki ætla eg oss fara til borgarinnar; vér fengum mikið orðaskak, næst er vér komum til konungs, þá er vér höfðum farið ósigur fyrir Ólafi konungi, og ekki mun honum þykja batnað hafa vor kostur í þessi ferð; mun nú ekki þurfa að ætla til sæmda, þar sem hann er."

Síðan reið hann suður á landið, og er frá hans ferð það að segja, að hann reið dag og nótt, þar til er þeir komu vestur á Jarlsnes; fékk jarl sér þar far suður um sæ og kom fram á Vallandi; þar átti hann kyn hálft; kom hann aldregi síðan til Englands.

Aðils rak fyrst flóttann og eigi langt, áður hann snýr aftur og þar til, er orustan var, og veitti þá atgöngu.

En er Þórólfur sá það, sneri hann í mót jarli og bað þangað bera merkið, bað menn sína fylgjast vel og standa þykkt -- "þokum að skóginum," sagði hann, "og látum hann hlífa á bak oss, svo að þeir megi eigi öllum megin að oss ganga."

Þeir gerðu svo, fylgdu fram skóginum; varð þá hörð orusta; sótti Egill móti Aðísli og áttust þeir við hörð skipti; liðsmunur var allmikill, og þó féll meir lið þeirra Aðils.

Þórólfur gerðist þá svo óður, að hann kastaði skildinum á bak sér, en tók spjótið tveim höndum; hljóp hann þá fram og hjó eða lagði til beggja handa; stukku menn þá frá tveggja vegna, en hann drap marga. Ruddi hann svo stíginn fram að merki jarlsins Hrings, og hélst þá ekki við honum; hann drap þann mann, er bar merki Hrings jarls, og hjó niður merkistöngina. Síðan lagði hann spjótinu fyrir brjóst jarlinum, í gegnum brynjuna og búkinn, svo að út gekk um herðarnar, og hóf hann upp á kesjunni yfir höfuð sér og skaut niður spjótshalanum í jörðina, en jarlinn sæfðist á spjótinu, og sáu það allir, bæði hans menn og svo hans óvinir. Síðan brá Þórólfur sverðinu, og hjó hann þá til beggja handa; sóttu þá og að hans menn. Féllu þá mjög Bretar og Skotar, en sumir snerust á flótta.

En er Aðils jarl sá fall bróður síns og mannfall mikið af liði hans, en sumir flýðu, en hann þóttist hart niður koma, þá sneri hann á flótta og rann til skógarins; hann flýði í skóginn og hans sveit; tók þá að flýja allt lið það, er þeim hafði fylgt. Gerðist þá mannfall mikið af flóttamönnum, og dreifðist þá flóttinn víða um heiðina. Aðils jarl hafði niður drepið merki sínu, og vissi þá engi, hvort hann fór eða aðrir menn. Tók þá brátt að myrkva af nótt, en þeir Þórólfur og Egill sneru aftur til herbúða sinna, og þá jafnskjótt kom þar Aðalsteinn konungur með allan her sinn og slógu þá landtjöldum sínum og bjuggust um.

Litlu síðar kom Ólafur konungur með sinn her; tjölduðu þeir og bjuggust um, þar sem þeirra menn höfðu tjaldað; var Ólafi konungi þá sagt, að fallnir voru þeir báðir jarlar hans, Hringur og Aðils, og mikill fjöldi annarra manna hans.

54. kafli

Aðalsteinn konungur hafði verið áður hina næstu nótt í borg þeirri, er fyrr var frá sagt, og þar spurði hann, að bardagi hafði verið á heiðinni, bjóst þá þegar og allur herinn og sótti norður á heiðina; spurði þá öll tíðindi glögglega, hvernig orusta sú hafði farið. Komu þá til fundar við konung þeir bræður, Þórólfur og Egill; þakkaði hann þeim vel framgöngu sína og sigur þann, er þeir höfðu unnið, hét þeim vináttu sinni fullkominni; dvöldust þeir þar allir samt um nóttina.

Aðalsteinn konungur vakti upp her sinn þegar um morguninn árdegis; hann átti tal við höfðingja sína og sagði, hver skipun vera skyldi fyrir liði hans; skipaði hann fylking sína fyrst, og þá setti hann í brjósti þeirrar fylkingar sveitir þær, er snarpastar voru. Þá mælti hann, að fyrir því liði skyldi vera Egill, -- "en Þórólfur," sagði hann, "skal vera með liði sínu og öðru því liði, er eg set þar; skal sú vera önnur fylking í liði voru, er hann skal vera höfðingi fyrir, því að Skotar eru jafnan lausir í fylkingu, hlaupa þeir til og frá og koma í ýmsum stöðum fram; verða þeir oft skeinusamir, ef menn varast eigi, en eru lausir á velli, ef við þeim er horft."

Egill svaraði konungi: "Ekki vil eg, að við Þórólfur skiljumst í orustu, en vel þykir mér, að okkur sé þar skipað, er mest þykir þurfa og harðast er fyrir."

Þórólfur mælti: "Látum við konung ráða, hvar hann vill okkur skipa; veitum honum svo, að honum líki; mun eg vera heldur, ef þú vilt, þar er þér er skipað."

Egill segir: "Þér munuð nú ráða, en þessa skiptis mun eg oft iðrast."

Gengu menn þá í fylkingar, svo sem konungur hafði skipað, og voru sett upp merki; stóð konungs fylking á víðlendið til árinnar, en Þórólfs fylking fór hið efra með skóginum.

Ólafur konungur tók þá að fylkja liði sínu, þá er hann sá, að Aðalsteinn hafði fylkt; hann gerði og tvær fylkingar, og lét hann fara sitt merki og þá fylking, er hann réð sjálfur fyrir, móti Aðalsteini konungi og hans fylking. Höfðu þá hvorirtveggju her svo mikinn, að engi var munur, hvorir fjölmennri voru, en önnur fylking Ólafs konungs fór nær skóginum móti liði því, er Þórólfur réð fyrir; voru þar höfðingjar jarlar skoskir; voru það Skotar flest, og var það fjölmenni mikið.

Síðan gangast á fylkingar, og varð þar brátt orusta mikil; Þórólfur sótti fram hart og lét bera merki sitt fram með skóginum og ætlaði þar svo fram að ganga, að hann kæmi í opna skjöldu konungsfylkingunni; höfðu þeir skjölduna fyrir sér, en skógurinn var til hægra vegs; létu þeir hann þar hlífa. Þórólfur gekk svo fram, að fáir voru menn hans fyrir honum, en þá er hann varði minnst, þá hlaupa þar úr skóginum Aðils jarl og sveit sú, er honum fylgdi; brugðu þegar mörgum kesjum senn á Þórólfi, og féll hann þar við skóginn, en Þorfinnur, er merkið bar, hopaði aftur, þar er liðið stóð þykkra, en Aðils sótti þá að þeim, og var þar þá orusta mikil. Æptu Skotar þá siguróp, er þeir höfðu fellt höfðingjann.

En er Egill heyrði óp það og sá, að merki Þórólfs fór á hæl, þá þóttist hann vita, að Þórólfur myndi eigi sjálfur fylgja. Síðan hleypur hann til þangað fram í milli fylkinganna; hann varð skjótt var þeirra tíðinda, er þar voru orðin, þegar hann fann sína menn; hann eggjar þá liðið mjög til framgöngu; var hann fremstur í brjóstinu; hann hafði sverðið Naður í hendi. Hann sótti þá fram og hjó til beggja handa og felldi marga menn; Þorfinnur bar merkið þegar eftir honum, en annað lið fylgdi merkinu; var þar hin snarpasta orusta. Egill gekk fram, til þess er hann mætti Aðilsi jarli; áttust þeir fá högg við, áður Aðils jarl féll og margt manna um hann, en eftir fall hans, þá flýði lið það, er honum hafði fylgt, en Egill og hans lið fylgdu þeim og drápu allt það, er þeir náðu, því að ekki þurfti þá griða að biðja. En jarlar þeir hinir skosku stóðu þá ekki lengi, þegar er þeir sáu, að aðrir flýðu þeirra félagar; tóku þegar á rás undan.

En þeir Egill stefndu þá þar til, er var konungs fylkingin, og komu þá í opna skjöldu og gerðu þar brátt mikið mannfall. Riðlaðist þá fylkingin og losnaði öll; flýðu þá margir af Ólafs mönnum, en víkingar æptu þá siguróp. En er Aðalsteinn konungur þóttist finna, að rofna tók fylking Ólafs konungs, þá eggjaði hann lið sitt og lét fram bera merki; gerði þá atgöngu harða, svo að hrökk fyrir lið Ólafs og gerðist allmikið mannfall. Féll þar Ólafur konungur og mestur hluti liðs þess, er Ólafur hafði haft, því að þeir, er á flótta snerust, voru allir drepnir, er náð varð; fékk Aðalsteinn konungur þar allmikinn sigur.

55. kafli

Aðalsteinn konungur sneri í brott frá orustunni, en menn hans ráku flóttann; hann reið aftur til borgarinnar og tók eigi fyrr náttstað en í borginni, en Egill rak flóttann og fylgdi þeim lengi og drap hvern mann, er hann náði. Síðan sneri hann aftur með sveitunga sína og fór þar til, er orustan hafði verið, og hitti þar Þórólf, bróður sinn, látinn; hann tók upp lík hans og þó, bjó um síðan, sem siðvenja var til. Grófu þeir þar gröf og settu Þórólf þar í með vopnum sínum öllum og klæðum; síðan spennti Egill gullhring á hvora hönd honum, áður hann skildist við, hlóðu síðan að grjóti og jósu að moldu. Þá kvað Egill vísu:


Gekk, sás óðisk ekki,
jarlmanns bani snarla,
þreklundaðr fell, Þundar,
Þórólfr í gný stórum;
jörð grær, en vér verðum,
Vínu nær of mínum,
helnauð es þat, hylja
harm, ágætum barma.

Og enn kvað hann:


Valköstum hlóðk vestan
vang fyr merkistangir,
ótt vas él þats sóttak
Aðgils bláum Naðri;
háði ungr við Engla
Áleifr þrimu stála;
helt, né hrafnar sultu,
Hringr á vápna þingi.

Síðan fór Egill með sveit sína á fund Aðalsteins konungs og gekk þegar fyrir konung, er hann sat við drykkju; þar var glaumur mikill; og er konungur sá, að Egill var inn kominn, þá mælti hann, að rýma skyldi pallinn þann hinn óæðra fyrir þeim, og mælti, að Egill skyldi sitja þar í öndvegi gegnt konungi.

Egill settist þar niður og skaut skildinum fyrir fætur sér; hann hafði hjálm á höfði og lagði sverðið um kné sér og dró annað skeið til hálfs, en þá skellti hann aftur í slíðrin; hann sat uppréttur og var gneyptur mjög. Egill var mikilleitur, ennibreiður, brúnamikill, nefið ekki langt, en ákaflega digurt, granstæðið vítt og langt, hakan breið furðulega og svo allt um kjálkana, hálsdigur og herðimikill, svo að það bar frá því, sem aðrir menn voru, harðleitur og grimmlegur, þá er hann var reiður; hann var vel í vexti og hverjum manni hærri, úlfgrátt hárið og þykkt og varð snemma sköllóttur; en er hann sat, sem fyrr var ritað, þá hleypti hann annarri brúninni ofan á kinnina, en annarri upp í hárrætur; Egill var svarteygur og skolbrúnn. Ekki vildi hann drekka, þó að honum væri borið, en ýmsum hleypti hann brúnunum ofan eða upp.

Aðalsteinn konungur sat í hásæti; hann lagði og sverð um kné sér, og er þeir sátu svo um hríð, þá dró konungur sverðið úr slíðrum og tók gullhring af hendi sér, mikinn og góðan, og dró á blóðrefilinn, stóð upp og gekk á gólfið og rétti yfir eldinn til Egils. Egill stóð upp og brá sverðinu og gekk á gólfið; hann stakk sverðinu í bug hringinum og dró að sér, gekk aftur til rúms síns; konungur settist í hásæti. En er Egill settist niður, dró hann hringinn á hönd sér, og þá fóru brýn hans í lag; lagði hann þá niður sverðið og hjálminn og tók við dýrshorni, er honum var borið, og drakk af. Þá kvað hann:


Hrammtangar lætr hanga
hrynvirgil mér brynju
Höðr á hauki troðnum
heiðis vingameiði;
rítmæðis knák reiða,
ræðr gunnvala bræðir,
gelgju seil á galga
geirveðrs, lofi at meira.

Þaðan af drakk Egill að sínum hlut og mælti við aðra menn.

Eftir það lét konungur bera inn kistur tvær; báru tveir menn hvora; voru báðar fullar af silfri.

Konungur mælti: "Kistur þessar, Egill, skaltu hafa, og ef þú kemur til Íslands, skaltu færa þetta fé föður þínum; í sonargjöld sendi eg honum; en sumu fé skaltu skipta með frændum ykkrum Þórólfs, þeim er þér þykja ágætastir. En þú skalt taka hér bróðurgjöld hjá mér, lönd eða lausa aura, hvort er þú vilt heldur, og ef þú vilt með mér dveljast lengdar, þá skal eg hér fá þér sæmd og virðing, þá er þú kannt mér sjálfur til segja."

Egill tók við fénu og þakkaði konungi gjafir og vinmæli; tók Egill þaðan af að gleðjast, og þá kvað hann:


Knáttu hvarms af harmi
hnúpgnípur mér drúpa,
nú fann ek þanns ennis
ósléttur þær rétti;
gramr hefr gerðihömrum
grundar upp of hrundit,
sá's til ýgr, af augum,
armsíma, mér grímu.

Síðan voru græddir þeir menn, er sárir voru og lífs auðið.

Egill dvaldist með Aðalsteini konungi hinn næsta vetur eftir fall Þórólfs, og hafði hann allmiklar virðingar af konungi; var þá með honum lið það allt, er áður hafði fylgt þeim báðum bræðrum og úr orustu höfðu komist. Þá orti Egill drápu um Aðalstein konung, og er í því kvæði þetta:


Nú hefr foldgnárr fellda,
fellr jörð und nið Ellu,
hjaldrsnerrandi, harra
höfuðbaðmr, þría jöfra;
Aðalsteinn of vann annat,
allt's lægra kynfrægjum,
hér sverjum þess, hyrjar
hrannbrjótr, konungmanni.

En þetta er stefið í drápunni:


Nú liggr hæst und hraustum
hreinbraut Aðalsteini.

Aðalsteinn gaf þá enn Agli að bragarlaunum gullhringa tvo, og stóð hvor mörk, og þar fylgdi skikkja dýr, er konungur sjálfur hafði áður borið.

En er voraði, lýsti Egill yfir því fyrir konungi, að hann ætlaði í brott um sumarið og til Noregs og vita, hvað títt er um hag Ásgerðar -- "konu þeirrar, er átt hefir Þórólfur, bróðir minn; þar standa saman fé mikil, en eg veit eigi, hvort börn þeirra lifa nokkur; á eg þar fyrir að sjá, ef þau lifa, en eg á arf allan, ef Þórólfur hefir barnlaus andast."

Konungur sagði: "Það mun vera, Egill, á þínu forráði að fara héðan á brott, ef þú þykist eiga skyldarerindi, en hinn veg þykir mér best, að þú takir hér staðfestu með mér og slíka kosti, sem þú vilt beiðast."

Egill þakkaði konungi orð sín; "eg mun nú fara fyrst, svo sem mér ber skylda til, en það er líkara, að eg vitji hingað þessa heita, þá er eg kemst við."

Konungur bað hann svo gera. Síðan bjóst Egill brott með liði sínu, en margt dvaldist eftir með konungi; Egill hafði eitt langskip mikið og þar á hundrað manna eða vel svo. Og er hann var búinn ferðar sinnar og byr gaf, þá hélt hann til hafs; skildust þeir Aðalsteinn konungur með mikilli vináttu; bað hann Egil koma aftur sem skjótast; Egill kvað svo vera skyldu.

Síðan hélt Egill til Noregs, og er hann kom við land, fór hann sem skyndilegast inn í Fjörðu; hann spurði þau tíðindi, að andaður var Þórir hersir, en Arinbjörn hafði tekið við arfi og gerst lendur maður. Egill fór á fund Arinbjarnar og fékk þar góðar viðtökur; bauð Arinbjörn honum þar að vera. Egill þekktist það; lét hann setja upp skipið og vista lið; en Arinbjörn tók við Agli við tólfta mann og var með honum um veturinn.

56. kafli

Berg-Önundur sonur Þorgeirs þyrnifótar, hafði þá fengið Gunnhildar, dóttur Bjarnar hölds; var hún komin til bús með honum á Aski; en Ásgerður, er átt hafði Þórólfur Skalla-Grímsson, var þá með Arinbirni frænda sínum; þau Þórólfur áttu dóttur eina unga, er Þórdís hét, og var mærin þar með móður sinni. Egill sagði Ásgerði lát Þórólfs og bauð henni sína umsjá; Ásgerður varð mjög ókát við þá sögu, en svaraði vel ræðum Egils og tók lítið af öllu.

Og er á leið haustið, tók Egill ógleði mikla, sat oft og drap höfðinu niður í feld sinn.

Eitt hvert sinn gekk Arinbjörn til hans og spurði, hvað ógleði hans ylli -- "nú þó að þú hafir fengið skaða mikinn um bróður þinn, þá er það karlmannlegt að bera það vel; skal maður eftir mann lifa, eða hvað kveður þú nú? Láttu mig nú heyra."

Egill sagði, að hann hefði þetta fyrir skemmstu kveðið:


Ókynni vensk, ennis
ungr þorðak vel forðum,
haukaklifs, at hefja,
Hlín, þvergnípur mínar;
verðk í feld, þás foldar
faldr kömr í hug skaldi
berg-Óneris, brúna
brátt miðstalli hváta.

Arinbjörn spurði, hver kona sú væri, er hann orti mansöng um, -- "hefir þú fólgið nafn hennar í vísu þessi."

Þá kvað Egill:


Sef-Skuldar felk sjaldan,
sorg Hlés vita borgar,
í niðjerfi Narfa
nafn aurmýils, drafnar,
þvít geir-Rótu götva
gnýþings bragar fingrum
rógs at ræsis veigum
reifendr sumir þreifa.

"Hér mun vera," segir Egill, "sem oft er mælt, að segjanda er allt sínum vin; eg mun segja þér það, er þú spyrð, um hverja konu eg yrki; þar er Ásgerður, frændkona þín, og þar til vildi eg hafa fullting þitt, að eg næði því ráði."

Arinbjörn segir, að honum þyki það vel fundið -- "skal eg víst leggja þar orð til, að þau ráð takist."

Síðan bar Egill það mál fyrir Ásgerði, en hún skaut til ráða föður síns og Arinbjarnar, frænda síns; síðan ræðir Arinbjörn við Ásgerði, og hafði hún hin sömu svör fyrir sér; Arinbjörn fýsti þessa ráðs. Síðan fara þeir Arinbjörn og Egill á fund Bjarnar; og hefur Egill þá bónorð og bað Ásgerðar, dóttur Bjarnar; Björn tók því máli vel og sagði, að Arinbjörn myndi því mjög ráða; Arinbjörn fýsti mjög, og lauk því máli svo, að Egill festi Ásgerði, og skyldi brullaup vera að Arinbjarnar. En er að þeirri stefnu kemur, þá var þar veisla allvegleg, er Egill kvongaðist. Var hann þá allkátur, það er eftir var vetrarins.

Egill bjó um vorið kaupskip til Íslandsferðar; réð Arinbjörn honum það að staðfestast ekki í Noregi, meðan ríki Gunnhildar væri svo mikið -- "því að hún er allþung til þín," segir Arinbjörn, "og hefir þetta mikið um spillt, er þér Eyvindur fundust við Jótland."

Og er Egill var búinn og byr gaf, þá siglir hann í haf, og greiddist hans ferð vel; kemur hann um haustið til Íslands og hélt til Borgarfjarðar; hann hafði þá verið utan tólf vetur. Gerðist þá Skalla-Grímur maður gamall; varð hann þá feginn, er Egill kom heim; fór Egill til Borgar að vistum og með honum Þorfinnur strangi og þeir mjög margir saman; voru þeir með Skalla-Grími um veturinn. Egill hafði þar ógrynni fjár, en ekki er þess getið, að Egill skipti silfri því, er Aðalsteinn konungur hafði fengið honum í hendur, hvorki við Skalla-Grím né aðra menn.

Þann vetur fékk Þorfinnur Sæunnar, dóttur Skalla-Gríms, og eftir um vorið fékk Skalla-Grímur þeim bústað að Langárfossi og land inn frá Leirulæk milli Langár og Álftár allt til fjalls. Dóttir Þorfinns og Sæunnar var Þórdís, er átti Arngeir í Hólmi, sonur Bersa goðlauss; þeirra sonur var Björn Hítdælakappi.

Egill dvaldist þá með Skalla-Grími nokkura vetur; tók hann til fjárforráða og búsumsýslu engu miður Skalla-Grími. Egill gerðist enn snoðinn.

Þá tók héraðið að byggjast víða; Hrómundur, bróðir Gríms hins háleyska, byggði þá í Þverárhlíð og skipverjar hans; Hrómundur var faðir Gunnlaugs, föður Þuríðar dyllu, móður Illuga svarta.

57. kafli

Egill hafði þá verið, svo að vetrum skipti mjög mörgum, að Borg; þá var það á einu sumri, er skip komu af Noregi til Íslands, að þau tíðindi spurðust austan, að Björn höldur var andaður. Það fylgdi þeirri sögn, að fé það allt, er Björn hafði átt, hafði upp tekið Berg-Önundur, mágur hans; hann hafði flutt heim til sín alla lausa aura, en jarðir hafði hann byggt og skilið sér allar landskyldir; hann hafði og sinni eigu kastað á jarðir þær allar, er Björn hafði átt.

Og er Egill heyrði þetta, þá spurði hann vandlega, hvort Berg-Önundur myndi sínum ráðum fram hafa farið um þetta eða hefði hann traust til haft sér meiri manna; honum var sagt, að Önundur var kominn í vináttu mikla við Eirík konung og við Gunnhildi þó miklu kærra.

Egill lét það kyrrt vera á því hausti, en er veturinn leið af og vora tók, þá lét Egill setja fram skip, það er hann átti, er staðið hafði í hrófi við Langárfoss; hann bjó skip það til hafs og fékk menn til. Ásgerður, kona hans, var ráðin til farar, en Þórdís, dóttir Þórólfs, var eftir. Egill sigldi í haf, er hann var búinn; er frá hans ferð ekki að segja, fyrr en hann kemur til Noregs; hélt hann þegar til fundar við Arinbjörn, sem fyrst mátti hann. Arinbjörn tók vel við honum og bauð Agli með sér að vera, og það þekktist hann; fóru þau Ásgerður bæði þangað og nokkurir menn með þeim.

Egill kom brátt á ræður við Arinbjörn um fjárheimtur þær, er Egill þóttist eiga þar í landi.

Arinbjörn segir: "Það mál þykir mér óvænlegt; Berg-Önundur er harður og ódæll, ranglátur og fégjarn, en hann hefir nú hald mikið af konungi og drottningu; er Gunnhildur hinn mesti óvinur þinn, sem þú veist áður, og mun hún ekki fýsa Önund, að hann geri greiða á málinu."

Egill segir: "Konungur mun oss láta ná lögum og réttindum á máli þessu, en með liðveislu þinni þá vex mér ekki í augu að leita laga við Berg-Önund."

Ráða þeir það af, að Egill skipar skútu; fóru þeir þar á nær tuttugu; þeir fóru suður á Hörðaland og koma fram á Aski; ganga þeir þar til húss og hitta Önund.

Ber þá Egill upp mál sín og krefur Önund skiptis um arf Bjarnar og segir, að dætur Bjarnar væru jafnkomnar til arfs eftir hann að lögum -- "þó að mér þyki," kvað Egill, "sem Ásgerður muni þykja ættborin miklu betur en Gunnhildur, kona þín."

Önundur segir þá snellt mjög: "Þú ert furðulega djarfur maður, Egill, útlagi Eiríks konungs, er þú ferð hingað í land hans og ætlar hér til ágangs við menn hans. Máttu svo ætla, Egill, að eg hefi velta látið slíka sem þú ert og af minnum sökum en mér þykja þessar, er þú telur til arfs fyrir hönd konu þinnar, því að það er kunnugt alþýðu, að hún er þýborin að móðerni." Önundur var málóði um hríð.

Og er Egill sá, að Önundur vildi engan hlut greiða um þetta mál, þá stefnir Egill honum þing og skýtur málinu til Gulaþingslaga.

Önundur segir: "Koma mun eg til Gulaþings, og myndi eg vilja, að þú kæmir þaðan eigi heill í brott."

Egill segir, að hann mun til þess hætta að koma þó til þings allt að einu -- "verður þá sem má, hversu málum vorum lýkur."

Fara þeir Egill síðan í brott, og er hann kom heim, segir hann Arinbirni frá ferð sinni og frá svörum Önundar; Arinbjörn varð reiður mjög, er Þóra, föðursystir hans, var kölluð ambátt.

Arinbjörn fór á fund Eiríks konungs, bar upp fyrir hann þetta mál.

Konungur tók heldur þungt hans máli og segir, að Arinbjörn hefði lengi fylgt mjög málum Egils -- "hefir hann notið þín að því, er eg hefi látið hann vera hér í landi, en nú mun mér örðugt þykja, ef þú heldur hann til þess, að hann gangi á vini mína."

Arinbjörn segir: "Þú munt láta oss ná lögum af þessu máli."

Konungur var heldur styggur í þessu máli; Arinbjörn fann, að drottning myndi þó miklu verr viljuð; fer Arinbjörn aftur og sagði, að heldur horfir óvænt.

Líður af veturinn og kemur þar, er menn fara til Gulaþings; Arinbjörn fjölmennti mjög til þings; var Egill í för með honum. Eiríkur konungur var þar og hafði fjölmenni mikið; Berg-Önundur var í sveit konungs og þeir bræður, og höfðu þeir sveit mikla. En er þinga skyldi um mál manna, þá gengu hvorirtveggju þar til, er dómurinn var settur, að flytja fram sannindi sín; var Önundur þá allstórorður.

En þar er dómurinn var settur, var völlur sléttur og settar niður heslistengur í völlinn í hring, en lögð um utan snæri umhverfis; voru það kölluð vébönd. En fyrir innan í hringinum sátu dómendur, tólf úr Firðafylki og tólf úr Sygnafylki, tólf úr Hörðafylki; þær þrennar tylftir manna skyldu þar dæma um mál manna. Arinbjörn réð því, hverjir dómendur voru úr Firðafylki, en Þórður af Aurlandi, hverjir úr Sogni voru; voru þeir allir eins liðs.

Arinbjörn hafði haft fjölmenni mikið til þingsins; hann hafði snekkju alskipaða, en hafði margt smáskipa, skútur og róðrarferjur, er búendur stýrðu. Eiríkur konungur hafði þar mikið lið, langskip sex eða sjö; þar var og fjölmenni mikið af búöndum.

Egill hóf þar mál sitt, að hann krafði dómendur að dæma sér lög af máli þeirra Önundar. Innti hann þá upp, hver sannindi hann hafði í tilkalli fjár þess, er átt hafði Björn Brynjólfsson. Sagði hann, að Ásgerður, dóttir Bjarnar, en eiginkona Egils, var til komin arfsins, og hún væri óðalborin og lendborin í allar kynkvíslir, en tiginborin fram í ættir, krafði hann þess dómendur að dæma Ásgerði til handa hálfan arf Bjarnar, lönd og lausa aura.

En er hann hætti ræðu sinni, þá tók Berg-Önundur til máls: "Gunnhildur, kona mín," sagði hann, "er dóttir Bjarnar og Ólafar, þeirrar konu, er Björn hafði lögfengið; er Gunnhildur réttur erfingi Bjarnar. Tók eg fyrir þá sök upp fé það allt, er Björn hafði átt, að eg vissi, að sú ein var dóttir Bjarnar önnur, er ekki átti arf að taka; var móðir hennar hernumin, en síðan tekin frillutaki og ekki að frændaráði og flutt land af landi. En þú, Egill, ætlar að fara hér sem hvarvetna annars staðar, þess er þú hefir komið, með ofkapp þitt og ójafnað; nú mun þér það hér ekki týja, því að Eiríkur konungur og Gunnhildur drottning hafa mér því heitið, að eg skal rétt hafa af hverju máli, þar er þeirra ríki stendur yfir. eg mun færa fram sönn vitni fyrir konungi og dómöndum, að Þóra hlaðhönd, móðir Ásgerðar, var hertekin heiman frá Þóris, bróður síns, og annað sinni af Aurlandi frá Brynjólfs. Fór hún þá af landi á braut með víkingum og útlögum konungs, og í þeirri útlegð gátu þau Björn dóttur þessa, Ásgerði. Nú er furða að um Egil, er hann ætlar að gera ómæt öll orð Eiríks konungs, það fyrst, er þú, Egill, hefir verið hér í landi, síðan er Eiríkur konungur gerði þig útlægan, og það, þótt þú hafir fengið ambáttar, að kalla hana arfgenga. Vil eg þess krefja dómendur, að þeir dæmi mér allan arf Bjarnar, en dæmi Ásgerði ambátt konungs, því að hún var svo getin, að þá var faðir hennar og móðir í útlegð konungs."

Þá tók Arinbjörn til máls: "Vitni munum vér fram bera, Eiríkur konungur, til þess og láta eiða fylgja, að það var skilið í sætt þeirra Þóris, föður míns, og Bjarnar hölds, að Ásgerður, dóttir þeirra Bjarnar og Þóru, var til arfs leidd eftir Björn, föður sinn, og svo það, sem yður er sjálfum kunnugt, konungur, að þú gerðir Björn ílendan, og öllu því máli var þá lukt, er áður hafði milli staðið sættar manna."

Konungur svarar ekki skjótt máli hans.

Þá kvað Egill:


Þýborna kveðr þorna
þorn reið áar horna,
sýslir hann of sína
síngirnð Önundr, mína;
naddhristir, ák nesta
norn til arfs of borna;
þigg, Auða konr, eiða,
eiðsært es þat, greiða.

Arinbjörn lét þá fram bera vitnisburðinn tólf menn, og allir vel til valdir, og höfðu allir þeir heyrt á sætt þeirra Þóris og Bjarnar og buðu þá konungi og dómöndum að sverja þar eftir. Dómendur vildu taka eiða þeirra, ef konungur bannaði eigi; konungur sagði, að hann myndi þar hvorki að vinna að leggja á það lof eða bann.

Þá tók til máls Gunnhildur drottning, sagði svo: "Þetta er undarlegt, konungur, hvernig þú lætur Egil þenna hinn mikla vefja mál öll fyrir þér; eða hvort myndir þú eigi móti honum mæla, þótt hann kallaði til konungdómsins í hendur þér? En þótt þú viljir enga úrskurði veita, þá er Önundi sé lið að, þá skal eg það eigi þola, að Egill troði svo undir fótum vini mína, að hann taki með rangindi sín fé þetta af Önundi; en hvar ertu, Askmaður? Far þú til með sveit þína, þar sem dómendurnir eru, og lát eigi dæma rangindi þessi."

Síðan hljóp Askmaður og þeir sveitungar til dómsins, skáru í sundur véböndin og brutu niður stengurnar, en hleyptu á braut dómöndunum; þá gerðist þys mikill á þinginu, en menn voru þar allir vopnlausir.

Þá mælti Egill: "Hvort mun Berg-Önundur heyra orð mín?"

"Heyri eg," sagði hann.

"Þá vil eg bjóða þér hólmgöngu og það, að við berjumst hér á þinginu; hafi sá fé þetta, lönd og lausa aura, er sigur fær, en þú ver hvers manns níðingur, ef þú þorir eigi."

Þá svarar Eiríkur konungur: "Ef þú, Egill, ert allfús til að berjast, þá skulum vér það nú veita þér."

Egill svarar: "Ekki vil eg berjast við þig eða við ofurefli liðs, en fyrir jafnmiklum mönnum, þá mun eg eigi flýja, ef mér skal þess unna; mun eg og að því gera engan mannamun."

Þá mælti Arinbjörn: "Förum vér á brott, ekki munum vér hér iðna að sinni, það að okkur vinni." Síðan sneri hann á braut og allt lið hans með honum.

Þá sneri Egill aftur og sagði: "Því skírskota eg undir þig, Arinbjörn, og þig, Þórður, og alla þá menn, er nú mega orð mín heyra, lenda menn og lögmenn og alla alþýðu, að eg banna jarðir þær allar, er Björn hefir átt, að byggja og að vinna. Banna eg þér, Berg-Önundur, og öðrum mönnum öllum, innlenskum og útlenskum, tignum og ótignum, en hverjum manni, er það gerir, legg eg við lögbrot landsréttar og griðarof og goðagremi."

Þá gekk Egill á brott með Arinbirni; fóru þeir nú til skipa sinna yfir leiti nokkuð, er eigi sá skipin af þinginu.

En er Arinbjörn kom til skips síns, mælti hann: "Það er öllum mönnum kunnugt, hver hér hafa orðið þinglok, að vér höfum eigi náð lögum, en konungur er reiður svo mjög, að mér er von, að vorir menn sæti afarkostum af honum, ef hann má; vil eg nú, að hver maður fari til skipa sinna og fari heim."

Þá mælti hann við Egil: "Gakk þú nú á skip þitt og þitt föruneyti og verðið í brottu og verjið yður, fyrir því að konungur mun eftir leita, að fund yðvarn beri saman; leitið þá á fund vorn, hvað sem í kann að gerast með yður konungi."

Egill gerði sem hann mælti; gengu þeir á skútu þrír tigir manna og fóru sem ákafast. Skipið var einkar skjótt. Þá reru fjöldi annarra skipa úr höfninni, er Arinbjörn átti, skútur og róðrarferjur, en langskip, er Arinbjörn átti, fór síðast, því að það var þyngst undir árum; en skúta Egils gekk skjótt hjá fram. Þá kvað Egill vísu:


Erfingi réð arfi
arfljúgr fyr mér svarfa,
mætik hans ok heitum
hótun, Þyrnifótar,
nærgis simla sorgar
slík rán ek get hánum,
vér deildum fjöl foldar
foldværingja, goldin.

Eiríkur konungur heyrði ályktarorð Egils, þau er hann mælti síðast á þinginu, og varð hann reiður mjög; en allir menn höfðu vopnlausir gengið á þinginu, veitti konungur því eigi atgöngu. Hann bað menn sína alla ganga til skipa, og þeir gerðu sem hann mælti.

Þá skaut konungur á húsþingi og sagði þá fyrirætlan sína: "Vér skulum nú láta fara tjöld af skipum vorum; vil eg nú fara á fund Arinbjarnar og Egils; vil eg og því lýsa fyrir yður, að eg vil Egil af lífi taka, ef vér komumst í færi, en hlífa engum þeim, er í móti vill standa."

Eftir það gengu þeir út á skip og bjuggust sem skjótast og lögðu út skipunum og reru þangað, sem skip Arinbjarnar höfðu verið; þá lét konungur róa eftir norður í sundin. En er þeir komu í Sognsæ, sáu þeir lið Arinbjarnar; sneru þá langskipin inn til Sauðungssunds, og sneri þá konungur þangað. Hann hitti þar skip Arinbjarnar, og lagði konungur þegar að, og köstuðust orðum á; spyr konungur, hvort Egill væri þar á skipinu.

Arinbjörn svaraði: "Eigi er hann á mínu skipi; munuð þér og, konungur, brátt mega það sjá; eru þeir einir hér innan borðs, er þér munuð kenna, en Egill mun ekki felast undir þiljum niðri, þótt fund yðvarn beri saman."

Konungur spyr, hvað Arinbjörn vissi síðast til hans, en hann sagði, að Egill var við þrítugunda mann á skútu, -- "og fóru þeir leið sína út til Steinssunds."

Þeir konungur höfðu séð, að mörg skip höfðu róið til Steinssunds. Mælti konungur, að þeir skyldu róa í hin innri sundin og stefna svo móti þeim Agli.

Maður er nefndur Ketill; hann var hirðmaður Eiríks konungs; hann sagði leið fyrir konungs skipinu, en hann stýrði sjálfur; Ketill var mikill maður vexti og fríður sýnum og náfrændi konungs, og var það mál manna, að þeir konungur væru líkir yfirlits.

Egill hafði flota látið skipi sínu og fluttan til farminn, áður hann fór til þingsins, en nú fer Egill þar til, er kaupskip var, og gengu þeir á skipið upp, en skútan flaut við stýristengur milli lands og skipsins, og lágu þar árar í hömlu.

En um morguninn, er ljóst var orðið varla, verða þeir varir við, er vörð héldu, að skip stór reru að þeim; en er Egill vissi það, þá stóð hann upp þegar; sá hann brátt, að ófriður var að kominn; voru þar sex langskip og stefndu að þeim. Þá mælti Egill, að þeir skyldu hlaupa allir í skútuna. Egill tók upp kistur tvær, er Aðalsteinn konungur gaf honum; hann hafði þær jafnan með sér; þeir hljópu í skútuna. Hann vopnaðist skjótt og allir þeir, og reru fram í milli landsins og snekkju þeirrar, er næst fór landinu, en það var skip Eiríks konungs.

En því að bráðum bar að, að lítt var lýst, þá renndust skipin hjá, og er lyftingar bar saman, þá skaut Egill spjóti, og kom á þann mann miðjan, er við stýrið sat, en þar var Ketill höður. Þá kallar Eiríkur konungur og bað menn róa eftir þeim Agli; en er skipin renndu hjá kaupskipinu, þá hljópu menn konungs upp á skipið, en þeir menn, er eftir höfðu orðið af Egils mönnum og eigi hljópu í skútuna, þá voru allir drepnir, þeir er náð varð, en sumir hljópu á land; þar létust tíu menn af sveitungum Egils. Sum skipin reru eftir þeim Agli, en sum rændu kaupskipið; var þar tekið fé það allt, er innan borðs var, en þeir brenndu skipið.

En þeir, er eftir þeim Agli reru, sóttu ákaft, tóku tveir eina ár; skortir þar eigi lið innan borðs, en þeir Egill höfðu þunnskipað; voru þeir þá átján á skútunni. Þá dró saman með þeim; en fyrir innan eyna var vaðilsund nokkuð grunnt milli og annarrar eyjar; útfall var sjávarins; þeir Egill hleyptu skútunni í það hið grunna sundið, en snekkjurnar flutu þar eigi, og skildi þar með þeim; sneri þá konungur suður aftur, en Egill fór norður á fund Arinbjarnar. Þá kvað Egill vísu:


Nú hefr þrym-Rögnir þegna
þróttharðr, en mik varðak
víti, várrar sveitar
vígelds tíu fellda,
þvít sárlagar Sýrar,
sendr ór minni hendi,
digr fló beint meðal bjúgra
bifþorn Ketils rifja.

Egill kom á fund Arinbjarnar og segir honum þessi tíðindi.

Arinbjörn segir, að honum var ekki vildara af von um skipti þeirra Eiríks konungs -- "en ekki mun þig fé skorta, Egill; eg skal bæta þér skipið og fá þér annað, það er þú megir vel fara á til Íslands."

Ásgerður, kona Egils, hafði verið með Arinbirni, síðan þeir fóru til þings.

Arinbjörn fékk Agli skip það, er vel var haffæranda, og lét ferma af viði; býr Egill skip það til hafs og hafði þá enn nær þremur tigum manna; skiljast þeir Arinbjörn þá með vináttu. Þá kvað Egill:


Svá skyldi goð gjalda,
gram reki bönd af löndum,
reið sé rögn ok Óðinn,
rán míns féar hánum;
folkmýgi lát flýja,
Freyr ok Njörðr, af jörðum,
leiðisk lofða stríði
landáss, þanns vé grandar.

58. kafli

Haraldur hinn hárfagri setti sonu sína til ríkis í Noregi, þá er hann tók að eldast, gerði Eirík konung yfirkonung sona sinna allra, og er Haraldur hafði verið sjö tigu vetra konungur, þá seldi hann í hendur Eiríki, syni sínum, ríki. Í þann tíma ól Gunnhildur son, og jós Haraldur konungur vatni og gaf nafn sitt og lét það fylgja, að hann skyldi konungur vera eftir föður sinn, ef honum entist aldur til. Haraldur konungur settist þá í kyrrsetu og sat oftast á Rogalandi eða Hörðalandi; en þremur vetrum síðar andaðist Haraldur konungur á Rogalandi, og var ger haugur eftir hann við Haugasund.

En eftir andlát hans var deila mikil milli sona hans, því að Víkverjar tóku sér til konungs Ólaf, en Þrændir Sigurð; en Eiríkur felldi þá báða bræður sína í Túnsbergi einum vetri eftir andlát Haralds konungs. Var það allt á einu sumri, er Eiríkur konungur fór af Hörðalandi með her sinn austur í Vík til bardaga við bræður sína og áður höfðu þeir deilt á Gulaþingi Egill og Berg-Önundur og þessi tíðindi, er nú var sagt.

Berg-Önundur var heima að búi sínu, þá er konungur fór í leiðangur, því að honum þótti óvarlegt að fara frá búi sínu, meðan Egill var eigi úr landi farinn; þar var bróðir hans, Haddur, þá með honum.

Fróði hét maður, frændi Eiríks konungs og fóstursonur hans; hann var hinn fríðasti maður, ungur að aldri og þó vaxinn maður; Eiríkur konungur setti hann eftir til trausts Berg-Önundi; sat Fróði á Álreksstöðum að búi konungs og hafði þar sveit manna.

Rögnvaldur er nefndur sonur Eiríks konungs og Gunnhildar; hann var þá vetra tíu eða ellefu og var hið fríðasta mannsefni; hann var þá með Fróða, er þetta var tíðinda.

En áður Eiríkur konungur reri þenna leiðangur, þá gerði hann Egil útlaga fyrir endilangan Noreg og dræpan hverjum manni. Arinbjörn var með konungi í leiðangri, en áður hann fór heiman, þá lagði Egill skipi sínu til hafs og hélt í útver það, er Vitar heita, út frá Alda; það er komið af þjóðleið; þar voru fiskimenn, og var þar gott að spyrja tíðindi; þá spurði hann, að konungur hafði gert hann útlaga. Þá kvað Egill vísu:


Lögbrigðir hefr lagða,
landalfr, fyr mér sjölfum,
blekkir bræðra sökkva
brúðfang, vega langa;
Gunnhildi ák gjalda,
greypt's hennar skap, þenna,
ungr gatk ok læ launat,
landrekstr, bili grandat.

Veður voru vindlítil, fjallvindur um nætur, en hafgola um daga. Eitt kveld sigldu þeir Egill út á haf, en fiskimenn reru þá inn til lands, þeir er til njósnar höfðu settir verið um farar þeirra Egils. Kunnu þeir það að segja, að Egill hafði út látið og á haf siglt og hann var á brottu; létu þessa njósn koma til Berg-Önundar.

Og er hann vissi þessi tíðindi, hann sendi þá frá sér menn þá er hann hafði áður haft þar til varúðar. Reri hann þá inn til Álreksstaða og bauð Fróða til sín, því að Berg-Önundur átti öl mikið heima að sín; Fróði fór með honum og hafði með sér nokkura menn; tóku þeir þar veislu góða og höfðu gleði mikla; var þar þá allt óttalaust.

Rögnvaldur konungsson átti karfa einn, reru sex menn á borð; hann var steindur allur fyrir ofan sjó; hann hafði með sér menn tíu eða tólf, þá er honum fylgdu einart. Og er Fróði var heiman farinn, þá tók Rögnvaldur karfann, og reru þeir út til Herðlu tólf saman; þar var konungsbú mikið, og réð sá maður fyrir, er hét Skegg-Þórir; þar hafði Rögnvaldur verið á fóstri í barnæsku. Tók Þórir feginsamlega við konungssyni; skorti þar og eigi drykk mikinn.

Egill sigldi út á haf um nóttina, sem fyrr var ritað, og er morgnaði, féll veðrið og gerði logn; lögðu þeir þá í rétt og létu reiða fyrir nokkurar nætur; en er hafgola kom á, sagði Egill skipurum sínum:

"Nú munum vér sigla að landi, því að ógerla veit, ef hafviðri kemur á hvasst, hvar vér náum þá landi, en heldur ófriðvænt fyrir í flestum stöðum."

Hásetar báðu Egil fyrir ráða þeirra ferð; síðan tóku þeir til seglin og sigldu inn til Herðluvers; fengu þeir þar góða höfn og tjölduðu yfir skipi sínu og lágu þá um nóttina. Þeir höfðu á skipinu lítinn bát, og gekk Egill þar á við þriðja mann; reri hann þá inn um nóttina til Herðlu, sendi þar mann í eyna upp að spyrja tíðinda; og er sá kom ofan til skips, sagði hann, að þar á bænum var Rögnvaldur konungsson og hans menn - "sátu þeir þá við drykkju; hitti eg einn af húskörlum, en var sá ölóður og sagði, að hér skyldi eigi minna drekka en að Berg-Önundar, þótt Fróði væri þar á veislu og þeir fimm saman."

Ekki kvað hann þar fleira manna en heimamenn nema Fróða og hans menn.

Síðan reri Egill aftur til skips og bað menn upp standa og taka vopn sín; þeir gerðu svo; þeir lögðu út skipið um akkeri. Egill lét gæta tólf menn skips, en hann fór á eftirbátinn og þeir átján saman, reru síðan inn eftir sundum; þeir stilltu svo til, að þeir komu um kveldið inn í Fenhring og lögðu þar til leynivogs eins.

Þá mælti Egill: "Nú vil eg ganga einn upp í eyna og njósna, hvers eg verði vís, en þér skuluð bíða mín hér."

Egill hafði vopn sín, þau er hann var vanur að hafa, hjálm og skjöld, gyrður sverði, höggspjót í hendi; síðan gekk hann upp í eyna og fram með skógi nokkurum; hann hafði dregið hött síðan yfir hjálm. Hann kom þar að, er sveinar nokkurir voru og hjá þeim hjarðtíkur stórar, og er þeir tókust að orðum, spurði hann, hvaðan þeir væru, eða fyrir hví þeir væru þar og hefðu hunda svo stóra.

Þeir mæltu: "Þú munt vera allheimskur maður; hefir þú eigi heyrt, að hér gengur björn um eyna, hinn mesti spellvirki, drepur hér bæði menn og fénað, og er lagt fé til höfuðs honum; vökum við hér hverja nótt á Aski yfir fé voru, er byrgt er í grindum - eða hví ferðu með vopnum um nætur?"

Hann segir: "Hræðist eg björninn, og fáir þykir mér sem nú fari vopnlausir; hefir björninn lengi elt mig í nótt, eða sjáið hann nú, þar er hann nú í skógarnefinu. Hvort eru allir menn í svefni á bænum?"

Sveinninn sagði, að þeir Berg-Önundur og Fróði myndu enn drekka; "þeir sitja nætur allar."

"Segið þeim þá," segir hann Egill, "hvar björninn er, en eg verð að skynda heim."

Hann gekk þá brott, en sveinninn hljóp heim til bæjarins og til stofunnar, er þeir drukku í; var þá svo komið, að allir menn voru sofa farnir nema þeir þrír, Önundur og Fróði og Haddur. Sveinninn segir, hvar björninn var; þeir tóku vopn sín, er þar héngu hjá þeim, og hljópu þegar út og upp til skógar; þar gengu fram skógarnef af mörkinni og runnar í sumum stöðum. Sveinninn segir þeim, hvar björninn hafði verið í runninum. Þá sáu þeir, að limarnar hrærðust, þóttust þá skilja, að björninn myndi þar vera. Þá mælti Berg-Önundur, að þeir Haddur og Fróði skyldu fram renna milli og meginmerkurinnar og gæta, að björninn næði eigi skóginum.

Berg-Önundur rann fram af runninum; hann hafði hjálm og skjöld, gyrður sverði, en kesju í hendi. Egill var þar fyrir í runninum, en engi björn, og er hann sá, hvar Berg-Önundur var, þá brá hann sverðinu, en þar var hönk á meðalkaflanum, og dró hann hana á hönd sér og lét þar hanga. Hann tók í hönd sér kesjuna og rann þá fram í mót Berg-Önundi, og er Berg-Önundur sá það, þá gæddi hann rásina og skaut skildinum fyrir sig, og áður þeir mættust, þá skaut hvor kesju að öðrum. Egill laust skildinum við kesjunni og bar hallan, svo að reist úr skildinum og flaug í völlinn, en Egils spjót kom á miðjan skjöldinn og gekk í gegnum langt upp á fjöðrina, og varð fast spjótið í skildinum; varð Önundi þungbær skjöldurinn. Egill greip þá skjótt meðalkafla sverðsins; Önundur tók þá og að bregða sínu sverði, og er eigi var brugðið til hálfs, þá lagði Egill í gegnum hann með sínu sverði. Önundur rataði við lagið, e n Egill kippti að sér sverðinu hart og hjó til Önundar og af nær höfuðið; síðan tók Egill kesjuna úr skildinum.

Þeir Haddur og Fróði sáu fall Berg-Önundar og runnu þangað til; Egill snerist í móti þeim; hann skaut kesjunni að Fróða og í gegnum skjöld hans og í brjóstið, svo að yddi um bakið; féll hann þegar á bak aftur dauður; Egill tók þá sverðið og snerist í mót Haddi, og skiptust þeir fáum höggum við, áður Haddur féll.

Þá komu sveinarnir að, og mælti Egill við þá: "Gætið hér til Önundar, húsbónda yðvars, og þeirra félaga, að eigi slíti dýr eða fuglar hræ þeirra."

Egill gekk þá leið sína og eigi langt, áður félagar hans komu í mót honum ellefu, en sex gættu skips; þeir spurðu, hvað hann hefði sýslað. Hann kvað þá:


Sátum lyngs til lengi
ljósheims börvi þeima,
meir varðak fé forðum,
fjarðölna hlut skarðan,
áðr Berg-Önund benjum
bensæfðan létk venjask,
Bors niðjar feltk beðju
blóði, Hadd ok Fróða.

Þá mælti Egill: "Vér skulum nú snúa aftur til bæjarins og fara hermannlega, drepa menn þá alla, er vér náum, en taka fé allt, það er vér megum með komast."

Þeir fara til bæjarins og hlaupa þar inn í hús og drepa þar menn fimmtán eða sextán; sumir komust undan af hlaupi; þeir rændu þar öllu fé, en spilltu því, er þeir máttu eigi með fara. Þeir ráku búfé til strandar og hjuggu, báru á bátinn sem hann tók við; fóru síðan leið sína og reru út um eyjasund.

Egill var nú allreiður, svo að það mátti ekki við hann mæla; sat hann við stýri á bátinum.

Og er þeir sóttu út á fjörðinn til Herðlu, þá reru utan í móti þeim Rögnvaldur konungsson og þeir þrettán saman á karfanum þeim hinum steinda. Þeir höfðu þá spurt, að skip Egils lá í Herðluveri; ætluðu þeir að gera Önundi njósn um ferðir Egils; og er Egill sá skipið, þá kenndi hann þegar. Hann stýrði sem beinst á þá, og er skipin renndust að, þá kom barð skútunnar á kinnung karfans; hallaði honum svo, að sjór féll inn á annað borð og fyllti skipið. Egill hljóp þá upp á og greip kesjuna, hét á menn sína, að þeir skyldu engan láta með lífi á brott komast, þann er á karfanum var. Það var þá hægt, því að þar var þá engi vörn; voru allir þeir á kafi drepnir, en engi komst undan. Létust þeir þar þrettán, Rögnvaldur og förunautar hans; þeir Egill reru þá inn til eyjarinnar Herðlu. Þá kvað Egill vísu:


Börðumk vér, né virðak,
vígleiptr sonar, heiptir,
Blóðöxar rauðk blóði,
böðmildr ok Gunnhildar;
þar féllu nú þollar
þrettán lagar mána,
stendr af styrjar skyndi
starf, á einum karfa.

Og er þeir Egill komu til Herðlu, þá runnu þeir þegar upp til bæjar með alvæpni; en er það sá Þórir og hans heimamenn, þá runnu þeir þegar af bænum og forðuðu sér allir, þeir er ganga máttu, karlar og konur. Þeir Egill rændu þar öllu fé, því er þeir máttu höndum á koma; fóru síðan út til skips; var þá og eigi langt að bíða, að byr rann á af landi; búast þeir til að sigla, og er þeir voru seglbúnir, gekk Egill upp í eyna.

Hann tók í hönd sér heslistöng og gekk á bergsnös nokkura, þá er vissi til lands inn; þá tók hann hrosshöfuð og setti upp á stöngina. Síðan veitti hann formála og mælti svo: "Hér set eg upp níðstöng, og sný eg þessu níði á hönd Eiríki konungi og Gunnhildi drottningu" - hann sneri hrosshöfðinu inn á land - "sný eg þessu níði á landvættir þær, er land þetta byggja, svo að allar fari þær villar vega, engi hendi né hitti sitt inni, fyrr en þær reka Eirík konung og Gunnhildi úr landi."

Síðan skýtur hann stönginni niður í bjargrifu og lét þar standa; hann sneri og höfðinu inn á land, en hann reist rúnar á stönginni, og segja þær formála þenna allan.

Eftir það gekk Egill á skip; tóku þeir til segls og sigldu á haf út; tók þá byrinn að vaxa, og gerði veður hvasst og hagstætt; gekk þá skipið mikið. Þá kvað Egill:


Þél höggr stórt fyr stáli
stafnkvígs á veg jafnan
út með éla meitli
andærr jötunn vandar,
en svalbúinn selju
sverfr eirar vanr þeiri
Gestils ölpt með gustum
gandr of stál fyr brandi.

Síðan sigldu þeir í haf, og greiddist vel ferð þeirra og komu af hafi í Borgarfjörð; hélt hann skipi sínu þar til hafnar og báru föt sín á land. Fór þá Egill heim til Borgar, en skiparar hans vistuðust. Skalla-Grímur gerðist þá gamall og hrumur af elli; tók Egill þá til fjárforráða og bús varðveislu.

59. kafli

Þorgeir hét maður; hann átti Þórdísi Yngvarsdóttur, systur Beru, móður Egils; Þorgeir bjó inn frá Álftanesi, á Lambastöðum; hann hafði komið út með Yngvari; hann var auðugur og virtur vel af mönnum. Sonur þeirra Þorgeirs var Þórður, er bjó á Lambastöðum eftir föður sinn í þenna tíma, er Egill kom til Íslands.

Það var þá um haustið nokkuru fyrir vetur, að Þórður reið inn til Borgar að hitta Egil, frænda sinn, og bauð honum heim til veislu; hafði hann látið heita mungát út þar. Egill hét ferðinni, og var kveðið á vikustef nokkuð; og er svo var liðið, bjóst Egill til ferðar og með honum Ásgerður, kona hans; voru þau saman tíu eða tólf; og er Egill var búinn, þá gekk Skalla-Grímur út með honum og hvarf til hans, áður Egill steig á bak, og mælti; "Seint þykir mér þú, Egill, hafa greitt fé það, er Aðalsteinn konungur sendi mér, eða hvernig ætlar þú, að fara skyli fé það?"

Egill segir: "Er þér nú féfátt mjög, faðir? eg vissi það eigi. Þegar skal eg láta þig hafa silfur, er eg veit, er þú þarft, en eg veit, að þú munt enn hafa að varðveita eina kistu eða tvær, fullar af silfri."

"Svo þykir mér," segir Skalla-Grímur, "sem þú munir þykjast skipt hafa lausafé með okkur; muntu láta þér vel hugna, að eg geri slíkt, er mér líkar, af því, er eg varðveiti."

Egill segir: "Þú munt engis lofs þykjast þurfa að biðja mig um þetta, því að þú munt ráða vilja, hvað sem eg mæli."

Síðan reið Egill í brott, þar til er hann kom á Lambastaði; var þar tekið honum vel og feginsamlega; skyldi hann þar sitja þrjár nætur.

Það sama kveld, er Egill hafði heiman farið, lét Skalla-Grímur söðla sér hest; reið hann þá heiman, er aðrir menn fóru að sofa; hann reiddi í knjám sér kistu vel mikla, en hann hafði í handarkrika sér eirketil, er hann fór í brott. Hafa menn það síðan fyrir satt, að hann hafi látið fara annað hvort eða bæði í Krumskeldu og látið þar fara á ofan hellustein mikinn.

Skalla-Grímur kom heim um miðnættisskeið og gekk þá til rúms síns og lagðist niður í klæðum sínum; en um morguninn, er lýsti og menn klæddust, þá sat Skalla-Grímur fram á stokk og var þá andaður og svo stirður, að menn fengu hvergi rétt hann né hafið, og var alls við leitað.

Þá var hesti skotið undir einn mann; hleypti sá sem ákaflegast, til þess er hann kom á Lambastaði; gekk hann þegar á fund Egils og segir honum þessi tíðindi. Þá tók Egill vopn sín og klæði og reið heim til Borgar um kveldið, og þegar hann hafði af baki stigið, gekk hann inn og í skot, er var um eldahúsið, en dyr voru fram úr skotinu að setum innanverðum. Gekk Egill fram í setið og tók í herðar Skalla-Grími og kneikti hann aftur á bak, lagði hann niður í setið og veitti honum þá nábjargir; þá bað Egill taka graftól og brjóta vegginn fyrir sunnan. Og er það var gert, þá tók Egill undir höfðahlut Skalla-Grími, en aðrir tóku fótahlutinn; báru þeir hann um þvert húsið og svo út í gegnum vegginn, þar er áður var brotinn. Báru þeir hann þá í hríðinni ofan í Naustanes; var þar tjaldað yfir um nóttina; en um morguninn að flóði var lagður Skalla-Grímur í skip og róið með hann út til Digraness. Lét Egill þ ar gera haug á framanverðu nesinu; var þar í lagður Skalla-Grímur og hestur hans og vopn hans og smíðartól; ekki er þess getið, að lausafé væri lagt í haug hjá honum.

Egill tók þar við arfi, löndum og lausum aurum; réð hann þá fyrir búi; þar var með Agli Þórdís, dóttir Þórólfs og Ásgerðar.

60. kafli

Eiríkur konungur réð einn vetur fyrir Noregi eftir andlát föður síns, Haralds konungs, áður Hákon Aðalsteinsfóstri, annar sonur Haralds konungs, kom til Noregs vestan af Englandi, og það sama sumar fór Egill Skalla-Grímsson til Íslands. Hákon fór norður til Þrándheims; var hann þar til konungs tekinn; voru þeir Eiríkur um veturinn báðir konungar í Noregi. En eftir um vorið dró hvortveggi her saman; varð Hákon miklu fjölmennri; sá Eiríkur þá engan sinn kost annan en flýja land; fór hann þá á brott með Gunnhildi, konu sína, og börn þeirra.

Arinbjörn hersir var fóstbróðir Eiríks konungs og barnfóstri hans; hann var kærstur konungi af öllum lendum mönnum; hafði konungur sett hann höfðingja yfir allt Firðafylki. Arinbjörn fór úr landi með konungi; fóru fyrst vestur um haf til Orkneyja; þá gifti hann Ragnhildi, dóttur sína, Arnfinni jarli; síðan fór hann með liði sínu suður fyrir Skotland og herjaði þar; þaðan fór hann suður til Englands og herjaði þar.

Og er Aðalsteinn konungur spurði það, safnaði hann liði og fór í mót Eiríki; og er þeir hittust, voru borin sáttmál milli þeirra, og var það að sættum, að Aðalsteinn konungur fékk Eiríki til forráða Norðimbraland, en hann skyldi vera landvarnarmaður Aðalsteins konungs fyrir Skotum og Írum. Aðalsteinn konungur hafði skattgilt undir sig Skotland eftir fall Ólafs konungs, en þó var það fólk jafnan ótrútt honum. Eiríkur konungur hafði jafnan atsetu í Jórvík.

Svo er sagt, að Gunnhildur lét seið efla og lét það seiða, að Egill Skalla-Grímsson skyldi aldrei ró bíða á Íslandi, fyrr en hún sæi hann. En það sumar, er þeir Hákon og Eiríkur höfðu hitst og deilt um Noreg, þá var farbann til allra landa úr Noregi, og komu það sumar engi skip til Íslands og engi tíðindi úr Noregi.

Egill Skalla-Grímsson sat að búi sínu; en þann vetur annan, er hann bjó að Borg eftir andlát Skalla-Gríms, þá gerðist Egill ókátur, og var því meiri ógleði hans, er meir leið á veturinn. Og er sumar kom, þá lýsti Egill yfir því, að hann ætlar að búa skip sitt til brottfarar um sumarið; tók hann þá háseta; hann ætlar þá að sigla til Englands; þeir voru á skipi þrír tigir manna. Ásgerður var þá eftir og gætti bús þeirra, en Egill ætlaði þá að fara á fund Aðalsteins konungs og vitja heita þeirra, er hann hafði heitið Agli að skilnaði þeirra.

Egill varð ekki snemmbúinn, og er hann lét í haf, þá byrjaði heldur seint, tók að hausta og stærði veðrin; sigldu þeir fyrir norðan Orkneyjar; vildi Egill ekki þar við koma; því að hann hugði, að ríki Eiríks konungs myndi allt yfir standa í eyjunum. Sigldu þeir þá suður fyrir Skotland og höfðu storm mikinn og veður þvert; fengu þeir beitt fyrir Skotland og svo norðan fyrir England. En aftan dags, er myrkva tók, var veður hvasst; finna þeir eigi fyrr en grunnföll voru á útborða og svo fram fyrir. Var þá engi annar til en stefna á land upp, og svo gerðu þeir, sigldu þá til brots og komu að landi við Humru mynni; þar héldust menn allir og mestur hluti fjár, annað en skip; það brotnaði í spón.

Og er þeir hittu menn að máli, spurðu þeir þau tíðindi, er Agli þótti háskasamleg, að Eiríkur konungur blóðöx var þar fyrir og Gunnhildur og þau höfðu þar ríki til forráða og hann var skammt þaðan uppi í borginni Jórvík. Það spurði hann og, að Arinbjörn hersir var þar með konungi og í miklum kærleik við konunginn.

Og er Egill var vís orðinn þessa tíðinda, þá gerði hann ráð sitt; þótti honum sér óvænt til undankomu, þótt hann freistaði þess að leynast og fara huldu höfði leið svo langa, sem vera myndi, áður hann kæmi úr ríki Eiríks konungs; var hann þá auðkenndur þeim, er hann sæju. Þótti honum það lítilmannlegt að vera tekinn í flótta þeim; herti hann þá huginn og réð það af, að þegar um nóttina, er þeir höfðu þar komið, þá fær hann sér hest og ríður þegar til borgarinnar. Kom hann þar að kveldi dags, og reið hann þegar í borgina; hann hafði síðan hatt yfir hjálmi, og alvæpni hafði hann.

Egill spurði, hvar garður sá væri í borginni, er Arinbjörn átti; honum var það sagt; hann reið þangað í garðinn; en er hann kom að stofunni, steig hann af hesti sínum og hitti mann að máli; var honum þá sagt, að Arinbjörn sat yfir matborði.

Egill mælti: "Eg vildi, góður drengur, að þú gengir inn í stofuna, og spyr Arinbjörn, hvort hann vill heldur úti eða inni tala við Egil Skalla-Grímsson."

Sá maður segir: "Það er mér lítið starf að reka þetta erindi."

Hann gekk inn í stofuna og mælti stundar hátt: "Maður er hér kominn úti fyrir dyrum," segir hann, "mikill sem tröll; en sá bað mig ganga inn og spyrja, hvort þú vildir úti eða inni tala við Egil Skalla-Grímsson."

Arinbjörn segir: "Gakk og bið hann bíða úti, og mun hann eigi lengi þurfa."

Hann gerði sem Arinbjörn mælti, gekk út og sagði sem mælt var við hann.

Arinbjörn bað taka upp borðin. Síðan gekk hann út og allir húskarlar hans með honum; og er Arinbjörn hitti Egil, heilsaði hann honum og spurði, hví hann var þar kominn.

Egill segir í fám orðum hið ljósasta af um ferð sína; "en nú skaltu fyrir sjá, hvert ráð eg skal taka, ef þú vilt nokkurt lið veita mér."

"Hefir þú nokkura menn hitt í borginni," segir Arinbjörn, "þá er þig muni kennt hafa, áður þú komst hér í garðinn?"

"Engi," segir Egill.

"Taki menn þá vopn sín," segir Arinbjörn.

Þeir gerðu svo, og er þeir voru vopnaðir og allir húskarlar Arinbjarnar, þá gekk hann í konungsgarð; en er þeir komu til hallar, þá klappaði Arinbjörn á dyrum og bað upp láta og segir, hver þar var; dyrverðir létu þegar upp hurðina. Konungur sat yfir borðum.

Arinbjörn bað þá ganga inn tólf menn, nefndi til þess Egil og tíu menn aðra. "Nú skaltu, Egill, færa Eiríki konungi höfuð þitt og taka um fót honum, en eg mun túlka mál þitt."

Síðan ganga þeir inn; gekk Arinbjörn fyrir konung og kvaddi hann. Konungur fagnaði honum og spurði, hvað er hann vildi.

Arinbjörn mælti: "Eg fylgi hingað þeim manni, er kominn er um langan veg að sækja yður heim og sættast við yður; er yður það vegur mikill, herra, er óvinir yðrir fara sjálfviljandi af öðrum löndum og þykjast eigi mega bera reiði yðra, þó að þér séuð hvergi nær. Láttu þér nú verða höfðinglega við þenna mann; lát hann fá af þér sætt góða fyrir það, er hann hefir gert veg þinn svo mikinn, sem nú má sjá, farið yfir mörg höf og torleiði heiman frá búum sínum; bar honum enga nauðsyn til þessar farar nema góðvilji við yður."

Þá litaðist konungur um, og sá hann fyrir ofan höfuð mönnum, hvar Egill stóð, og hvessti augun á hann og mælti: "Hví varstu svo djarfur, Egill, að þú þorðir að fara á fund minn? Leystist þú svo héðan næstum, að þér var engi von lífs af mér."

Þá gekk Egill að borðinu og tók um fót konungi; hann kvað þá:


Kominn emk á jó Íva
angrbeittan veg langan
öldu enskrar foldar
atsitjanda at vitja;
nú hefr sískelfir sjalfan
snarþátt Haralds áttar
viðr ofrhuga yfrinn
undar bliks of fundinn.

Eiríkur konungur sagði: "Ekki þarf eg að telja upp sakar á hendur þér, en þó eru þær svo margar og stórar, að ein hver má vel endast til, að þú komir aldrei héðan lífs. Áttu engis annars af von en þú munt hér deyja skulu; máttir þú það vita áður, að þú myndir enga sætt af mér fá."

Gunnhildur mælti: "Hví skal eigi þegar drepa Egil, eða manstu eigi nú, konungur, hvað Egill hefir gert, drepið vini þína og frændur og þar á ofan son þinn, en nítt sjálfan þig; eða hvar vita menn slíku bellt við konungmann?"

Arinbjörn segir: "Ef Egill hefir mælt illa til konungs, þá má hann það bæta í lofsorðum þeim, er allan aldur megi uppi vera."

Gunnhildur mælti: "Vér viljum ekki lof hans heyra; láttu, konungur, leiða Egil út og höggva hann; vil eg eigi heyra orð hans og eigi sjá hann."

Þá mælti Arinbjörn: "Eigi mun konungur láta að eggjast um öll níðingsverk þín; eigi mun hann láta Egil drepa í nótt, því að náttvíg eru morðvíg."

Konungur segir: "Svo skal vera, Arinbjörn, sem þú biður, að Egill skal lifa í nótt; hafðu hann heim með þér og fær mér hann á morgun."

Arinbjörn þakkaði konungi orð sín. "Væntum vér, herra, að héðan af muni skipast mál Egils á betri leið; en þó að Egill hafi stórt til saka gert við yður, þá lítið þér á það, að hann hefir mikils misst fyrir yðrum frændum. Haraldur konungur, faðir þinn, tók af lífi ágætan mann, Þórólf, föðurbróður hans, af rógi vondra manna, en af engum sökum; en þér, konungur, brutuð lög á Agli fyrir sakar Berg-Önundar; en þar á ofan vilduð þér hafa Egil að dauðamanni og drápuð menn af honum, en rænduð hann fé öllu, og þar á ofan gerðuð þér hann útlaga og rákuð hann af landi, en Egill er engi ertingamaður. En hvert mál, er maður skal dæma, verður að líta á tilgerðir. eg mun nú," segir Arinbjörn, "hafa Egil með mér í nótt heim í garð minn."

Var nú svo; og er þeir komu í garðinn, þá ganga þeir tveir í loft nokkurt lítið og ræða um þetta mál. Segir Arinbjörn svo: "Allreiður var konungur nú, en heldur þótti mér mýkjast skaplyndi hans nokkuð, áður létti, og mun nú hamingja skipta, hvað upp kemur; veit eg, að Gunnhildur mun allan hug á leggja að spilla þínu máli. Nú vil eg það ráð gefa, að þú vakir í nótt og yrkir lofkvæði um Eirík konung; þætti mér þá vel, ef það yrði drápa tvítug og mættir þú kveða á morgun, er við komum fyrir konung. Svo gerði Bragi, frændi minn, þá er hann varð fyrir reiði Bjarnar Svíakonungs, að hann orti drápu tvítuga um hann eina nótt og þá þar fyrir höfuð sitt; nú mætti vera, að vér bærum gæfu til við konung, svo að þér kæmi það í frið við konung."

Egill segir: "Freista skal eg þessa ráðs, er þú vilt, en ekki hefi eg við því búist að yrkja lof um Eirík konung."

Arinbjörn bað hann freista; síðan gekk hann brott til manna sinna; sátu þeir að drykkju til miðrar nætur. Þá gekk Arinbjörn til svefnhúss og sveit hans, og áður hann afklæddist, gekk hann upp í loftið til Egils og spurði, hvað þá liði um kvæðið.

Egill segir að ekki var ort - "hefir hér setið svala ein við glugginn og klakað í alla nótt, svo að eg hefi aldregi beðið ró fyrir."

Síðan gekk Arinbjörn á brott og út um dyr þær, er ganga mátti upp á húsið, og settist við glugg þann á loftinu, er fuglinn hafði áður við setið; hann sá, hvar hamhleypa nokkur fór annan veg af húsinu. Arinbjörn sat þar við glugginn alla nóttina, til þess er lýsti; en síðan er Arinbjörn hafði þar komið, þá orti Egill alla drápuna og hafði fest svo, að hann mátti kveða um morguninn, þá er hann hitti Arinbjörn; þeir héldu vörð á, nær tími myndi vera að hitta konung.

61. kafli

Eiríkur konungur gekk til borða að vanda sínum, og var þá fjölmenni mikið með honum; og er Arinbjörn varð þess var, þá gekk hann með alla sveit sína alvopnaða í konungsgarð, þá er konungur sat yfir borðum. Arinbjörn krafði sér inngöngu í höllina; honum var það og heimilt gert. Ganga þeir Egill inn með helming sveitarinnar; annar helmingur stóð úti fyrir dyrum.

Arinbjörn kvaddi konung, en konungur fagnaði honum vel; Arinbjörn mælti: "Nú er hér kominn Egill; hefir hann ekki leitað til brotthlaups í nótt. Nú viljum vér vita, herra, hver hans hluti skal verða; vænti eg góðs af yður; hefi eg það gert, sem vert var, að eg hefi engan hlut til þess sparað að gera og mæla svo, að yðvar vegur væri þá meiri en áður. Hefi eg og látið allar mínar eigur og frændur og vini, er eg átti í Noregi, og fylgt yður, en allir lendir menn yðrir skildust við yður, og er það maklegt, því að þú hefir marga hluti til mín stórvel gert."

Þá mælti Gunnhildur: "Hættu, Arinbjörn, og tala ekki svo langt um þetta; margt hefir þú vel gert við Eirík konung, og hefir hann það fullu launað; er þér miklu meiri vandi á við Eirík konung en Egil; er þér þess ekki biðjanda, að Egill fari refsingalaust héðan af fundi Eiríks konungs, slíkt sem hann hefir til saka gert."

Þá segir Arinbjörn: "Ef þú, konungur, og þið Gunnhildur hafið það einráðið, að Egill skal hér enga sætt fá, þá er það drengskapur að gefa honum frest og fararleyfi um viku sakar, að hann forði sér; þó hefir hann að sjálfvilja sínum farið hingað á fund yðvarn og væntir sér af því friðar; fara þá enn skipti yður sem verða má þaðan frá."

Gunnhildur mælti: "Sjá kann eg á þessu, Arinbjörn, að þú ert hollari Agli en Eiríki konungi; ef Egill skal ríða héðan viku í brott í friði, þá mun hann kominn til Aðalsteins konungs á þessi stundu. En Eiríkur konungur þarf nú ekki að dyljast í því, að honum verða nú allir konungar ofureflismenn, en fyrir skömmu mundi það þykja ekki líklegt, að Eiríkur konungur myndi eigi hafa til þess vilja og aðferð að hefna harma sinna á hverjum manni slíkum, sem Egill er."

Arinbjörn segir: "Engi maður mun Eirík kalla að meira mann, þó að hann drepi einn bóndason útlendan, þann er gengið hefir á vald hans. En ef hann vill miklast af þessu, þá skal eg það veita honum, að þessi tíðindi skulu heldur þykja frásagnarverð, því að við Egill munum nú veitast að, svo að jafnsnemma skal okkur mæta báðum. Muntu, konungur, þá dýrt kaupa líf Egils, um það er vér erum allir að velli lagðir, eg og sveitungar mínir; myndi mig annars vara af yður, en þú myndir mig vilja leggja heldur að jörðu en láta mig þiggja líf eins manns, er eg bið."

Þá segir konungur: "Allmikið kapp leggur þú á þetta, Arinbjörn, að veita Agli lið; trauður mun eg til vera að gera þér skaða, ef því er að skipta, ef þú vilt heldur leggja fram líf þitt en hann sé drepinn; en ærnar eru sakar til við Egil, hvað sem eg læt gera við hann."

Og er konungur hafði þetta mælt, þá gekk Egill fyrir hann og hóf upp kvæðið og kvað hátt og fékk þegar hljóð:


Vestr fórk of ver,
en ek Viðris ber
munstrandar mar,
svá-s mitt of far;
drók eik á flot
við ísa brot,
hlóðk mærðar hlut
míns knarrar skut.


Buðumk hilmir löð,
þar ák hróðrar kvöð,
berk Óðins mjöð
á Engla bjöð;
lofat vísa vann,
víst mærik þann;
hljóðs biðjum hann,
því at hróðr of fann.


Hygg, vísi, at
vel sómir þat,
hvé ek þylja fet,
ef ek þögn of get;
flestr maðr of frá,
hvat fylkir vá,
en Viðrir sá,
hvar valr of lá.


Óx hjörva glöm
við hlífar þröm,
guðr óx of gram,
gramr sótti fram;
þar heyrðisk þá,
þaut mækis á,
malmhríðar spá;
sú vas mest of lá.


Vasat villr staðar
vefr darraðar
of grams glaðar
geirvangs raðar;
þars í blóði
enn brimlá-móði
völlr of þrumði,
und véum glumði.


Hné folk á fit
við fleina hnit;
orðstír of gat
Eiríkr at þat.


Fremr munk segja,
ef firar þegja,
frágum fleira
til frama þeira,
óxu undir
við jöfurs fundi,
brustu brandar
við bláar randar.


Hlam heinsöðul
við hjaldrröðul,
beit bengrefill,
þat vas blóðrefill;
frák, at felli
fyr fetilsvelli
Óðins eiki
í éarnleiki.


Þar vas eggja at
ok odda gnat;
orðstír of gat
Eiríkr at þat.


Rauð hilmir hjör,
þar vas hrafna gjör,
fleinn hitti fjör,
flugu dreyrug spjör;
ól flagðs gota
fárbjóðr Skota,
trað nipt Nara
náttverð ara.


Flugu hjaldrs tranar
á hræs lanar,
órut blóðs vanar
benmás granar,
sleit und freki,
en oddbreki
gnúði hrafni
á höfuðstafni.


Kom gríðar læ
at Gjalpar skæ;
bauð ulfum hræ
Eiríkr of sæ.


Lætr snót saka
sverð-Frey vaka,
en skers Haka
skíðgarð braka;
brustu broddar,
en bitu oddar,
báru hörvar
af bogum örvar.


Beit fleinn floginn,
þá vas friðr loginn,
vas almr dreginn,
varð ulfr feginn;
stósk folkhagi
við fjörlagi,
gall ýbogi
at eggtogi.


Jöfurr sveigði ý,
flugu unda bý;
bauð ulfum hræ
Eiríkr of sæ.


Enn munk vilja
fyr verum skilja
skapleik skata,
skal mærð hvata;
verpr ábröndum,
en jöfurr löndum
heldr hornklofi;
hann's næstr lofi.


Brýtr bógvita
bjóðr hrammþvita,
muna hodd-dofa
hringbrjótr lofa;
mjök's hánum föl
haukstrandar möl;
glaðar flotna fjöl
við Fróða mjöl.


Verpr broddfleti
af baugseti
hjörleiks hvati,
hann es baugskati;
þróask hér sem hvar,
hugat mælik þar,
frétt's austr of mar,
Eiríks of far.


Jöfurr hyggi at,
hvé ek yrkja fat,
gótt þykkjumk þat,
es ek þögn of gat;
hrærðak munni
af munar grunni
Óðins ægi
of jöru fægi.


Bark þengils lof
á þagnar rof;
kannk mála mjöt
of manna sjöt;
ór hlátra ham
hróðr bark fyr gram;
svá fór þat fram,
at flestr of nam.

62. kafli

Eiríkur konungur sat uppréttur, meðan Egill kvað kvæðið, og hvessti augun á hann; og er lokið var drápunni, þá mælti konungur:

"Besta er kvæðið fram flutt, en nú hefi eg hugsað, Arinbjörn, um mál vort Egils, hvar koma skal. Þú hefir flutt mál Egils með ákafa miklum, er þú býður að etja vandræðum við mig; nú skal það gera fyrir þínar sakar, sem þú hefir beðið, að Egill skal fara frá mínum fundi heill og ósakaður. En þú, Egill, hátta svo ferðum þínum, að síðan, er þú kemur frá mínum fundi af þessi stofu, þá kom þú aldregi í augsýn mér og sonum mínum og verð aldri fyrir mér né mínu liði. En eg gef þér nú höfuð þitt að sinni; fyrir þá sök, er þú gekkst á mitt vald, þá vil eg eigi gera níðingsverk á þér, en vita skaltu það til sanns, að þetta er engi sætt við mig né sonu mína og enga frændur vora, þá sem réttar vilja reka."

Þá kvað Egill:


Erumka leitt,
þótt ljótr séi,
hjalma klett
af hilmi þiggja;
hvar's sás gat
af göfuglyndum
æðri gjöf
allvalds syni.

Arinbjörn þakkaði konungi með fögrum orðum þá sæmd og vináttu, er konungur hefir veitt honum. Þá ganga þeir Arinbjörn og Egill heim í garð Arinbjarnar; síðan lét Arinbjörn búa reiðskjóta liði sínu. Reið hann brott með Agli og hundrað manna alvopnaðra með honum; Arinbjörn reið með lið það, til þess er þeir komu til Aðalsteins konungs, og fengu þar góðar viðtökur; bauð konungur Agli með sér að vera og spurði, hvernig farið hafði með þeim Eiríki konungi.

Þá kvað Egill:


Svartbrúnum lét sjónum
sannsparr Hugins varra,
hugr tjóðum mjök mága,
mögnuðr Egil fagna;
arfstóli knák Ála
áttgöfguðum hattar
fyr regnaðar regni
ráða nú sem áðan.

En að skilnaði þeirra Arinbjarnar og Egils, þá gaf Egill Arinbirni gullhringa þá tvo, er Aðalsteinn konungur gaf honum, og stóð mörk hvor, en Arinbjörn gaf Agli sverð það, er Dragvandill hét. Það hafði gefið Arinbirni Þórólfur Skalla-Grímsson, en áður hafði Skalla-Grímur þegið af Þórólfi, bróður sínum, en Þórólfi gaf sverðið Grímur loðinkinni, sonur Ketils hængs; það sverð hafði átt Ketill hængur og haft í hólmgöngum, og var það allra sverða bitrast. Skildust þeir með kærleik hinum mesta; fór Arinbjörn heim í Jórvík til Eiríks konungs; en förunautar Egils og skipverjar hans höfðu þar frið góðan og vörðu varningi sínum í trausti Arinbjarnar; en er á leið veturinn, fluttust þeir suður til Englands og fóru á fund Egils.

63. kafli

Eiríkur alspakur hét lendur maður í Noregi; hann átti Þóru, dóttur Þóris hersis, systur Arinbjarnar; hann átti eignir í Vík austur; hann var maður stórauðugur og hinn mesti virðingamaður, spakur að viti. Þorsteinn hét sonur þeirra; hann fæddist upp með Arinbirni og var þá vaxinn mjög og þó á ungum aldri; hann hafði farið vestur til Englands með Arinbirni.

En það sama haust sem Egill hafði komið til Englands, spurðust af Noregi þau tíðindi, að Eiríkur alspakur var andaður, en arf hans höfðu tekið ármenn konungs og kastað á konungs eign. Og er Arinbjörn og Þorsteinn spurðu þessi tíðindi, þá gerðu þeir það ráð, að Þorsteinn skyldi fara austur og vitja arfsins.

Og er vorið leið fram og menn bjuggu skip sín, þeir er fara ætluðu landa í millum, þá fór Þorsteinn suður til Lundúna og hitti þar Aðalstein konung; bar hann fram jartegnir og orðsending Arinbjarnar til konungs, og svo til Egils, að hann væri flutningsmaður við konung, að Aðalsteinn konungur gerði orðsending sína til Hákonar konungs, fóstra síns, að Þorsteinn næði arfi og eignum í Noregi. Aðalsteinn konungur var þess auðbeðinn, því að Arinbjörn var honum kunnugur að góðu.

Þá kom og Egill að máli við Aðalstein konung og sagði honum fyrirætlan sína: "Vil eg í sumar," segir hann, "fara austur til Noregs að vitja fjár þess, er Eiríkur konungur rændi mig og þeir Berg-Önundur; situr nú yfir því fé Atli hinn skammi, bróðir Berg-Önundar; veit eg, ef orðsendingar yðrar koma til, að eg mun ná lögum af því máli."

Konungur segir, að Egill skal ráða ferðum sínum - "en best þætti mér, að þú værir með mér og gerðist landvarnarmaður minn og réðir fyrir herliði mínu; mun eg fá þér veislur stórar."

Egill segir: "Þessi kostur þykir mér allfýsilegur að taka; vil eg því játa, en eigi níta; en þó verð eg fyrst að fara til Íslands og vitja konu minnar og fjár þess, er eg á þar.

Aðalsteinn konungur gaf Agli kaupskip gott og þar með farminn; var þar á til þunga hveiti og hunang og enn mikið fé annað í öðrum varningi. Og er Egill bjó skip sitt til hafs, þá réðst til farar með honum Þorsteinn Eiríksson, er fyrr var getið, er síðan var kallaður Þóruson, og er þeir voru búnir, þá sigldu þeir; skildust þeir Aðalsteinn konungur og Egill með hinni mestu vináttu.

Þeim Agli greiddist vel ferðin, komu að Noregi í Vík austur og héldu skipinu inn allt í Óslóarfjörð; þar átti Þorsteinn bú á land upp og svo inn allt á Raumaríki. Og er Þorsteinn kom þar til lands, þá veitti hann tilkall um föðurarf sinn við ármennina, er setst höfðu í bú hans; veittu Þorsteini margir lið að þessu. Voru þar stefnur til lagðar; átti Þorsteinn þar marga frændur göfga; lauk þar svo, er skotið var til konungs úrskurðar, en Þorsteinn tók við varðveislu fjár þess, er faðir hans hafði átt.

Egill fór til veturvistar með Þorsteini og þeir tólf saman; var þangað flutt heim til Þorsteins hveiti og hunang; var þar um veturinn gleði mikil, og bjó Þorsteinn rausnarsamlega, því að nóg voru föng til.

64. kafli

Hákon konungur Aðalsteinsfóstri réð þá fyrir Noregi, sem fyrr var sagt; konungur sat þann vetur norður í Þrándheimi.

En er á leið veturinn, byrjaði Þorsteinn ferð sína og Egill með honum; þeir höfðu nær þremur tigum manna; og er þeir voru búnir, fóru þeir fyrst til Upplanda, þaðan norður um Dofrafjall til Þrándheims og komu þar á fund Hákonar konungs. Báru þeir upp erindi sín við konung; sagði Þorsteinn skyn á máli sínu og kom fram vitnum með sér, að hann átti arf þann allan, er hann kallaði til. Konungur tók því máli vel, lét hann Þorstein ná eignum sínum, og þar með gerðist hann lendur maður konungs, svo sem faðir hans hafði verið.

Egill gekk á fund Hákonar konungs og bar fyrir hann sín erindi og þar með orðsending Aðalsteins konungs og jartegnir hans. Egill taldi til fjár þess, er átt hafði Björn höldur, landa og lausaaura; taldi hann sér helming fjár þess og Ásgerði, konu sinni, bauð þar fram vitni og eiða með máli sínu, sagði og, að hann hafði það allt fram borið fyrir Eiríki konungi, lét það fylgja, að hann hafði þá eigi náð lögum fyrir ríki Eiríks konungs, en eggjan Gunnhildar. Egill innti upp allan þann málavöxt, er fyrr hafði í gerst á Gulaþingi; beiddi hann þá konung unna sér laga á því máli.

Hákon konungur svarar: "Svo hefi eg spurt, að Eiríkur, bróðir minn, muni það kalla, og þau Gunnhildur bæði, að þú, Egill, munir hafa kastað steini um megn þér í yðrum skiptum; þætti mér þú vel mega yfir láta, Egill, að eg legði ekki til þessa máls, þó að við Eiríkur bærum eigi gæfu til samþykkis."

Egill mælti: "Ekki máttu, konungur, þegja yfir svo stórum málum, því að allir menn hér í landi, innlenskir og útlenskir, skulu hlýða yðru boði. eg hefi spurt, að þér setjið lög hér í landi og rétt hverjum manni; nú veit eg, að þér munuð mig láta þeim ná sem aðra menn; þykist eg hafa til þess burði og frændastyrk hér í landi að hafa við Atla hinn skamma. En um mál okkur Eiríks konungs er yður það að segja, að eg var á hans fund, og skildumst við svo, að hann bað mig í friði fara, hvert er eg vildi. Vil eg bjóða yður, herra, mína fylgd og þjónustu; veit eg, að vera munu hér með yður þeir menn, er ekki munu þykja víglegri á velli að sjá en eg er; er það mitt hugboð, að eigi líði langt, áður fundi ykkra Eiríks konungs muni saman bera, ef ykkur endist aldur til; þykir mér það undarlegt, ef eigi skal þar koma, að þér þyki Gunnhildur eiga sona uppreist marga."

Konungur segir: "Ekki muntu, Egill, gerast mér handgenginn; miklu hafið þér frændur meira skarð höggvið í ætt vora en þér muni duga að staðfestast hér í landi. Far þú til Íslands út og ver þar að föðurarfi þínum; mun þér þá verða ekki mein að oss frændum, en hér í landi er þess von um alla þína daga, að vorir frændur séu ríkastir. En fyrir sakir Aðalsteins konungs, fóstra míns, þá skaltu hafa hér frið í landi og ná lögum og landsrétti, því að eg veit, að Aðalsteinn konungur hefir mikla elsku á þér."

Egill þakkaði konungi orð sín og beiddist þess, að konungur skyldi fá honum sannar jartegnir sínar til Þórðar á Aurland eða annarra lendra manna í Sogni og á Hörðalandi. Konungur segir, að svo skyldi vera.

65. kafli

Þorsteinn og Egill bjuggu ferð sína, þegar þeir höfðu lokið erindum sínum; fara þeir þá aftur á leið; og er þeir koma suður um Dofrafjall, þá segir Egill, að hann vill fara ofan til Raumsdals og síðan suður sundaleið. "Vil eg," segir hann, "lúka erindum mínum í Sogni og á Hörðalandi, því að eg vil búa skip mitt í sumar til Íslands út."

Þorsteinn bað hann ráða ferð sinni; skiljast þeir Þorsteinn og Egill; fór Þorsteinn suður um Dali og alla leið, til þess er hann kom til búa sinna; bar hann þá fram jartegnir konungs og orðsending fyrir ármennina, að þeir skyldu láta fé það allt, er þeir hafa upp tekið og Þorsteinn kallaði til.

Egill fór leiðar sinnar og þeir tólf saman; komu þeir fram í Raumsdal, fengu sér þá flutningar; fóru síðan suður á Mæri. Er ekki sagt frá ferð þeirra, fyrr en þeir komu í ey þá, er Höð heitir, og fóru til gistingar á bæ þann, er heitir á Blindheimi; það var göfugur bær. Þar bjó lendur maður, er Friðgeir hét; hann var ungur að aldri, hafði nýtekið við föðurarfi sínum; móðir hans hét Gyða. Hún var systir Arinbjarnar hersis, skörungur mikill og göfug kona. Hún var að ráðum með syni sínum, Friðgeiri; höfðu þau þar rausnarbú mikið. Þar fengu þeir allgóðar viðtökur; sat Egill um kveldið hið næsta Friðgeiri og förunautar hans þar utar frá; var þar drykkja mikil og dýrleg veisla.

Gyða húsfreyja gekk um kveldið til tals við Egil; hún spurði að Arinbirni, bróður sínum, og enn að fleirum frændum sínum og vinum, þeim er til Englands höfðu farið með Arinbirni. Egill sagði henni það, sem hún spurði; hún spurði, hvað til tíðinda hefði gerst í ferðum Egils; hann segir henni af hið ljósasta. Þá kvað hann:


Urðumk leið en ljóta
landbeiðaðar reiði;
sígrat gaukr, ef glamma
gamm veit of sik þramma;
þar nautk enn sem optar
arnstalls sjötulbjarnar;
hnígrat allr, sás holla
hjalpendr of för gjalpar.

Egill var allkátur um kveldið, en Friðgeir og heimamenn voru heldur hljóðir. Egill sá þar mey fagra og vel búna; honum var sagt, að hún var systir Friðgeirs; mærin var ókát og grét einart um kveldið; það þótti þeim undarlegt.

Þar voru þeir um kveldið. En um morguninn var veður hvasst og eigi sæfært; þar þurftu þeir far úr eyjunni. Þá gekk Friðgeir og bæði þau Gyða til fundar við Egil; buðu þau honum þar að sitja með förunauta sína, til þess er gott væri færiveður, og hafa þaðan fararbeina, þann sem þeir þyrftu. Egill þekktist það; sátu þeir þar veðurfastir þrjár nætur, og var þar hinn mesti mannfagnaður. Eftir það gerði veður lygnt; stóðu þeir Egill þá upp snemma um morguninn og bjuggust, gengu þá til matar, og var þeim gefið öl að drekka, og sátu þeir um hríð; síðan tóku þeir klæði sín. Egill stóð upp og þakkaði bónda og húsfreyju beina sinn, og gengu síðan út. Bóndi og móðir hans gengu á götu með þeim; þá gekk Gyða til máls við Friðgeir, son sinn, og talaði við hann lágt. Egill stóð meðan og beið þeirra.

Egill mælti við meyna: "Hvað grætur þú, mær? eg sé þig aldrei káta."

Hún mátti engu svara og grét að meir. Friðgeir svarar móður sinni hátt: "Ekki vil eg nú biðja þess; þeir eru nú búnir ferðar sinnar."

Þá gekk Gyða að Agli og mælti: "Eg mun segja þér, Egill, tíðindi þau, sem hér eru með oss. Maður heitir Ljótur hinn bleiki; hann er berserkur og hólmgöngumaður; hann er óþokkasæll. Hann kom hér og bað dóttur minnar, en vér svöruðum skjótt og synjuðum honum ráðsins; síðan skoraði hann til hólmgöngu á Friðgeir, son minn, og skal á morgun koma til hólmsins í ey þá, er Vörl heitir. Nú vildi, eg, Egill, að þú færir til hólmsins með Friðgeiri; myndi það sannast, ef Arinbjörn væri hér í landi, að vér myndum eigi þola ofríki slíkum manni sem Ljótur er."

"Skylt er það, húsfreyja, fyrir sakar Arinbjarnar, frænda þíns, að eg fari með syni þínum, ef honum þykir sér það nokkurt fullting."

"Þá gerir þú vel," segir Gyða, "skulum vér þá ganga inn í stofu og vera öll saman daglangt."

Ganga þeir Egill þá inn í stofu og drukku; sátu þeir þar um daginn, en um kveldið komu vinir Friðgeirs, þeir er til ferðar voru ráðnir með honum, og var fjölmennt um nóttina; var þar þá veisla mikil.

En eftir um daginn bjóst Friðgeir til ferðar og margt manna með honum; var þar Egill í för; þá var gott færiveður; fara þeir síðan og koma í eyna Vörl. Þar var fagur völlur skammt frá sjónum, er hólmstefnan skyldi vera; var þar markaður hólmstaður, lagðir steinar utan um.

Nú kom þar Ljótur með lið sitt; bjóst hann þá til hólmgöngu; hann hafði skjöld og sverð; Ljótur var allmikill maður og sterklegur. Og er hann gekk fram á völlinn að hólmstaðnum, þá kom á hann berserksgangur, tók hann þá að grenja illilega og beit í skjöld sinn. Friðgeir var maður ekki mikill, grannlegur og fríður sjónum og ekki sterkur; hafði hann og ekki staðið í bardögum. Og er Egill sá Ljót, þá kvað hann vísu:


Esa Friðgeiri færi,
förum holms á vit, sörvar,
skulum banna mjök manni
mey, örlygi at heyja
við þanns bítr ok blótar
bönd élhvötuð Göndlar,
alfeigum skýtr ægir
augum, skjöld at baugi.

Ljótur sá, hvar Egill stóð, og heyrði orð hans og mælti:

"Gakk þú hingað, hinn mikli maður, á hólminn og berst við mig, ef þú ert allfús til, og reynum með okkur; er það miklu jafnlegra en eg berjist við Friðgeir, því að eg þykist eigi að meiri maður, þó að eg leggi hann að jörðu."

Þá kvað Egill:


Esat lítillar Ljóti,
leik ek við hal bleikan
við bifteini, bænar,
brynju, rétt at synja;
búumk til vígs, en vægðar
ván lætka ek hánum,
skapa verðum vit skaldi
skæru, drengr, á Mæri.

Síðan bjóst Egill til hólmgöngu við Ljót. Egill hafði skjöld þann, sem hann var vanur að hafa, en hann var gyrður sverði því, er hann kallaði Naður, en hann hafði Dragvandil í hendi. Hann gekk inn yfir mark það, er hólmstefnan skyldi vera, en Ljótur var þá eigi búinn. Egill skók sverðið og kvað vísu:


Höggum hjaltvönd skyggðan,
hæfum rönd með brandi,
reynum randar mána,
rjóðum sverð í blóði;
stýfum Ljót af lífi.
leikum sárt við bleikan,
kyrrum kappa errinn,
komi örn á hræ, jörnum.

Þá kom Ljótur fram á vígvöllinn, og síðan rennast þeir að, og heggur Egill til Ljóts, en Ljótur brá við skildinum, en Egill hjó hvert högg að öðru, svo að Ljótur fékk ekki höggvið í móti. Hann hopaði undan til höggrúmsins, en Egill fór jafnskjótt eftir og hjó sem ákafast; Ljótur fór út um marksteinana og víða um völlinn. Gekk svo hin fyrsta hríð. Þá beiddist Ljótur hvíldar; Egill lét það og vera; nema þeir þá stað og hvíla sig. Þá kvað Egill:


Fyrir þykki mér fúra
fleins stökkvandi nökkvat,
hræðisk hodda beiðir
happlauss, fara kappi;
stendrat fast, sás frestar
fleindöggvar stafr, höggum;
vábeiða ferr víðan
völl fyr rotnum skalla.

Það voru hólmgöngulög í þann tíma, að sá, er skorar á mann annan til eins hvers hlutar, og fengi sá sigur, er á skoraði, þá skyldi sá hafa sigurmál það, er hann hafði til skorað, en ef hann fengi ósigur, þá skyldi hann leysa sig þvílíku fé, sem ákveðið væri; en ef hann félli á hólminum, þá hafði hann fyrirvegið allri sinni eigu, og skyldi sá taka arf hans, er hann felldi á hólmi. Það voru og lög, ef útlendur maður andaðist, sá er þar í landi átti engan erfingja, þá gekk sá arfur í konungsgarð.

Egill bað, að Ljótur skyldi búinn verða. "Vil eg, að vér reynum nú hólmgöngu þessa."

Síðan hljóp Egill að honum og hjó til hans; gekk hann þá svo nær honum, að hann hrökk fyrir, og bar þá skjöldinn af honum. Þá hjó Egill til Ljóts, og kom á fyrir ofan kné og tók af fótinn; féll Ljótur þá og var þegar örendur.

Þá gekk Egill þar til, er þeir Friðgeir voru; var þetta verk honum allvel þakkað. Þá kvað Egill:


Fell sás flest et illa,
fót hjó skald af Ljóti,
ulfgrennir hefr unnit,
eir veittak Friðgeiri;
séka lóns til launa
logbrjótanda í móti,
jafn vas mér í gný geira
gamanleikr við hal bleikan.

Ljótur var lítt harmaður af flestum mönnum, því að hann hafði verið hinn mesti óeirumaður; hann var sænskur að ætt og átti enga frændur þar í landi; hann hafði komið þangað og aflað sér fjár á hólmgöngum. Hann hafði fellt marga góða bændur og skorað áður á þá til hólmgöngu og til jarða þeirra og óðala, var þá orðinn stórauðugur bæði að löndum og lausum aurum.

Egill fór heim með Friðgeiri af hólmstefnunni; dvaldist hann þar þá litla hríð, áður hann fór suður á Mæri. Skildust þeir Egill og Friðgeir með miklum kærleik; bauð Egill Friðgeiri um að heimta jarðir þær, er Ljótur hafði átt. Fór Egill sína leið, kom fram í Fjörðum; þaðan fór hann inn í Sogn á fund Þórðar á Aurlandi. Tók hann vel við honum; bar hann fram erindi sín og orðsendingar Hákonar konungs; tók Þórður vel ræðum Egils og hét honum liðveislu sinni um það mál; dvaldist Egill þar lengi um vorið með Þórði.

66. kafli

Egill gerði ferð sína suður á Hörðaland; hann hafði til þeirrar ferðar róðrarferju og þar á þrjá tigu manna. Þeir koma einn dag í Fenhring á Ask; gekk Egill þar til með tuttugu menn, en tíu gættu skips. Atli hinn skammi var þar fyrir með nokkura menn; Egill lét hann út kalla og segja, að Egill Skalla-Grímsson átti erindi við hann; Atli tók vopn sín og allir þeir menn, er þar voru vígir fyrir, og gengu út síðan.

Egill mælti: "Svo er mér sagt, Atli, að þú munir hafa að varðveita fé það, er eg á að réttu og Ásgerður, kona mín; muntu heyrt hafa þar fyrr um rætt, að eg kallaði mér arf Bjarnar hölds, er Berg-Önundur, bróðir þinn, hélt fyrir mér. Er eg nú kominn að vitja fjár þess, landa og lausaaura, og krefja þig, að þú látir laust og greiðir mér í hendur."

Atli segir: "Lengi höfum vér það heyrt, Egill, að þú sért ójafnaðarmaður, en nú mun eg að raun um koma, ef þú ætlar að kalla til þess fjár í hendur mér, er Eiríkur konungur dæmdi Önundi, bróður mínum; átti Eiríkur konungur þá að ráða boði og banni hér í landi. Hugði eg nú, Egill, að þú myndir fyrir því hér kominn að bjóða mér gjöld fyrir bræður mína, er þú tókst af lífi, og þú myndir bæta vilja rán það, er þú rændir hér á Aski; myndi eg þá veita svör þessu máli, ef þú flyttir þetta erindi fram, en hér kann eg engu svara."

"Það vil eg," segir Egill, "bjóða þér, sem eg bauð Önundi, að Gulaþingslög skipi um mál okkur; tel eg bræður þína hafa fallið ógilda á sjálfra sinna verkum, því að þeir höfðu áður rænt mig lögum og landsrétti og tekið fé mitt að herfangi. Hefi eg til þessa konungsleyfi að leita laga við þig um þetta mál; vil eg stefna þér til Gulaþings og hafa þar lagaúrskurð um þetta mál."

"Koma mun eg," segir Atli, "til Gulaþings, og megum við þar ræða um þessi mál."

Síðan fór Egill í brott með föruneyti sitt; fór hann þá norður í Sogn og inn á Aurland til Þórðar, mágs síns, og dvaldist þar til Guluþings.

Og er menn komu til þings, þá kom Egill þar; Atli hinn skammi var og þar kominn. Tóku þeir þá að tala sín mál og fluttu fram fyrir þeim mönnum, er um skyldu dæma; flutti Egill fram fjárheimtu, en Atli bauð lögvörn í mót, tylftareiða, að hann hefði ekki fé það að varðveita, er Egill ætti.

Og er Atli gekk að dómum með eiðalið sitt, þá gekk Egill mót honum og segir, að eigi vill hann eiða hans taka fyrir fé sitt; "vil eg bjóða þér önnur lög, þau, að við göngum á hólm hér á þinginu, og hafi sá fé þetta, er sigur fær."

Það voru og lög, er Egill mælti, og forn siðvenja, að hverjum manni var rétt að skora á annan til hólmgöngu, hvort er hann skyldi verja sakir fyrir sig eða sækja.

Atli sagði, að hann myndi eigi synja að ganga á hólm við Egil "því að þú mælir það, er eg ætti að mæla, því að ærinna harma á eg að hefna á þér; þú hefir að jörðu lagt bræður mína tvo, og er mér mikilla muna vant, að eg haldi réttu máli, ef eg skal heldur láta lausar eignir mínar aflaga fyrir þér en berjast við þig, er þú býður mér það."

Síðan taka þeir Atli og Egill höndum saman og festa það með sér, að þeir skulu á hólm ganga og sá, er sigur fær, skal eiga jarðir þær, er þeir deildu áður um.

Eftir það búast þeir til hólmgöngu; gekk Egill fram og hafði hjálm á höfði og skjöld fyrir sér og kesju í hendi, en sverðið Dragvandil festi hann við hægri hönd sér. Það var siður hólmgöngumanna að þurfa ekki að bregða sverði sínu á hólmi, láta heldur sverðið hendi fylgja, svo að þegar væri sverðið tiltækt, er hann vildi. Atli hafði hinn sama búnað sem Egill; hann var vanur hólmgöngum; hann var sterkur maður og hinn mesti fullhugi.

Þar var leiddur fram graðungur mikill og gamall; var það kallað blótnaut; það skyldi sá höggva, er sigur hefði. Var það stundum eitt naut, stundum lét sitt hvor fram leiða, sá er á hólm gekk.

Og er þeir voru búnir til hólmgöngu, þá hlaupast þeir að og skutu fyrst spjótum, og festi hvortki spjótið í skildi, námu bæði í jörðu staðar. Síðan taka þeir báðir til sverða sinna, gengust þá að fast og hjuggust til; gekk Atli ekki á hæl; þeir hjuggu títt og hart, og ónýttust skjótt skildirnir. Og er skjöldur Atla var mjög ónýttur, þá kastaði hann honum, tók þá sverðið tveim höndum og hjó sem tíðast. Egill hjó til hans á öxlina, og beit ekki sverðið; hann hjó annað og hið þriðja; var honum þá hægt að leita höggstaðar á Atla, að hann hafði enga hlíf; Egill reiddi sverðið af öllu afli, en ekki beit, hvar sem hann hjó til.

Sér þá Egill, að eigi mun hlýða svo búið, því að skjöldur hans gerðist þá ónýtur. Þá lét Egill laust sverðið og skjöldinn og hljóp að Atla og greip hann höndum. Kenndi þá aflsmunar, og féll Atli á bak aftur, en Egill greyfðist að niður og beit í sundur í honum barkann; lét Atli þar líf sitt. Egill hljóp upp skjótt og þar til, er blótnautið stóð, greip annarri hendi í granarnar, en annarri í hornið og snaraði svo, að fætur vissu upp, en í sundur hálsbeinið; síðan gekk Egill þar til, er stóð föruneyti hans. Þá kvað Egill:


Beitat nú, sás brugðum,
blár Dragvandill randir,
af þvít eggjar deyfði
Atli framm enn skammi;
neyttak afls við ýti
örmálgastan hjörva;
jaxlbróður létk eyða,
ek bar af sauði, nauðum.

Síðan eignaðist Egill jarðir þær allar, er hann hafði til deilt og hann kallaði, að Ásgerður, kona hans, hefði átt að taka eftir föður sinn. Ekki er getið, að þá yrði fleira til tíðinda á því þingi. Egill fór þá fyrst inn í Sogn og skipaði jarðir þær, er hann hafði þá fengið að eiginorði; dvaldist hann þar mjög lengi um vorið; síðan fór hann með föruneyti sitt austur í Vík; fór hann þá á fund Þorsteins og var þar um hríð.

67. kafli

Egill bjó skip sitt um sumarið og fór, þegar hann var búinn; hann hélt til Íslands; honum fórst vel; hélt hann til Borgarfjarðar og kom skipinu skammt frá bæ sínum; lét hann flytja heim varning sinn, en setti upp skipið. Var Egill vetur þann að búi sínu. Egill hafði nú út haft allmikið fé; var hann maður stórauðugur; hann hafði mikið bú og risulegt.

Ekki var Egill íhlutunarsamur um mál manna og ótilleitinn við flesta menn, þá er hann var hér á landi; gerðust menn og ekki til þess að sitja yfir hlut hans. Egill var þá að búi sínu, svo að það skipti vetrum eigi allfáum.

Egill og Ásgerður áttu börn, þau er nefnd eru, -- Böðvar hét sonur þeirra, annar Gunnar, Þorgerður dóttir og Bera; Þorsteinn var yngstur. Öll voru börn Egils mannvæn og vel viti borin. Þorgerður var elst barna Egils, Bera þar næst.

68. kafli

Egill spurði þau tíðindi austan um haf, að Eiríkur blóðöx hefði fallið í vesturvíking, en Gunnhildur og synir þeirra voru farin til Danmerkur suður, og brottu var af Englandi það lið allt, er þeim Eiríki hefði þangað fylgt. Arinbjörn var þá kominn til Noregs; hafði hann fengið veislur sínar og eignir þær, er hann hafði átt, og var kominn í kærleika mikla við konunga; þótti Agli þá enn fýsilegt gerast að fara til Noregs. Það fylgdi og tíðindasögu, að Aðalsteinn konungur var andaður; réð þá fyrir Englandi bróðir hans, Játmundur.

Egill bjó þá skip sitt og réð háseta til. Önundur sjóni réðst þar til, sonur Ána frá Ánabrekku; Önundur var mikill og þeirra manna sterkastur, er þá voru þar í sveit; eigi var um það einmælt, að hann væri eigi hamrammur. Önundur hafði oft verið í förum landa í milli; hann var nokkuru eldri en Egill; með þeim hafði lengi verið vingott.

Og er Egill var búinn, lét hann í haf, og greiddist þeirra ferð vel; komu að miðjum Noregi. Og er þeir sáu land, stefndu þeir inn í Fjörðu; og er þeir fengu tíðindi af landi, var þeim sagt, að Arinbjörn var heima að búum sínum; heldur Egill þangað skipi sínu í höfn sem næst bæ Arinbjarnar.

Síðan fór Egill að finna Arinbjörn, og varð þar fagnafundur mikill með þeim; bauð Arinbjörn Agli þangað til vistar og föruneyti hans, því er hann vildi, að þangað færi. Egill þekktist það og lét ráða skipi sínu til hlunns, en hásetar vistuðust; Egill fór til Arinbjarnar og þeir tólf saman. Egill hafði látið gera langskipssegl mjög vandað; segl það gaf hann Arinbirni og enn fleiri gjafar, þær er sendilegar voru. Var Egill þar um veturinn í góðu yfirlæti. Egill fór um veturinn suður í Sogn að landskyldum sínum, dvaldist þar mjög lengi; síðan fór hann norður í Fjörðu.

Arinbjörn hafði jólaboð mikið, bauð til sín vinum sínum og héraðsbóndum; var þar fjölmenni mikið og veisla góð; hann gaf Agli að jólagjöf slæður, gerðar af silki og gullsaumaðar mjög, settar fyrir allt gullknöppum í gegnum niður; Arinbjörn hafði látið gera klæði það við vöxt Egils. Arinbjörn gaf Agli alklæðnað, nýskorinn, að jólum; voru þar skorin í ensk klæði með mörgum litum. Arinbjörn gaf margs konar vingjafar um jólin þeim mönnum, er hann höfðu heimsótt, því að Arinbjörn var allra manna örvastur og mestur skörungur.

Þá orti Egill vísu:


Sjalfráði lét slæður
silki drengr of fengit
gollknappaðar greppi,
getk aldri vin betra;
Arinbjörn hefr árnat
eirarlaust eða meira,
síð man seggr of fæðask
slíkr, oddvita ríki.

69. kafli

Egill fékk ógleði mikla eftir jólin, svo að hann kvað eigi orð; og er Arinbjörn fann það, þá tók hann ræðu við Egil og spurði, hverju það gegndi, ógleði sú, er hann hafði; "vil eg," segir hann, "að þú látir mig vita, hvort þú ert sjúkur, eða ber annað til; megum vér þá bætur á vinna."

Egill segir: "Engar hefi eg kvellisóttir, en áhyggjur hefi eg miklar um það, hversu eg skal ná fé því, er eg vann til, þá er eg felldi Ljót hinn bleika norður á Mæri. Mér er sagt, að ármenn konungs hafi það fé allt upp tekið og kastað á konungs eigu. Nú vil eg þar til hafa þitt liðsinni um þessa fjárheimtu."

Arinbjörn segir: "Ekki ætla eg það fjarri lands lögum, að þú eignaðist fé það, en þó þykir mér nú féð fastlega komið; er konungsgarður rúmur inngangs, en þröngur brottfarar. Hafa oss orðið margar torsóttar fjárheimtur við ofureflismennina, og sátum vér þá í meira trausti við konung en nú er, því að vinátta okkur Hákonar konungs stendur grunnt, þó að eg verði svo að gera sem fornkveðið orð er, að þá verður eik að fága, er undir skal búa."

"Þar leikur þó minn hugur á," segir Egill, "ef vér höfum lög að mæla, að vér freistum; má svo vera, að konungur unni oss hér af rétts, því að mér er sagt, að konungur sé maður réttlátur og haldi vel lög þau, er hann setur hér í landi; telst mér það helst í hug, að eg muni fara á fund konungs og freista þessa mála við hann."

Arinbjörn segir, að hann var ekki fús þess; "þykir mér, sem því muni óhægt saman að koma, Egill, kappi þínu og dirfð, en skaplyndi konungs og ríki hans, því að eg hygg hann vera engan vin þinn, og þykja honum þó sakar til vera. Vil eg heldur, að við látum þetta mál niður falla og hefjum eigi upp; en ef þú vilt það, Egill, þá skal eg heldur fara á fund konungs með þessi málaleitan."

Egill segir, að hann kynni þess mikla þökk og aufúsu og hann vill þenna kost gjarna. Hákon var þá á Rogalandi, en stundum á Hörðalandi; varð ekki torsótt að sækja hans fund; var það og eigi miklu síðar en ræðan hafði verið.

Arinbjörn bjó ferð sína; var þá gert ljóst fyrir mönnum, að hann ætlaði til konungs fundar; skipaði hann húskörlum sínum tvítugsessu, er hann átti. Egill skyldi heima vera; vildi Arinbjörn eigi, að hann færi. Fór Arinbjörn, þá er hann var búinn, og fórst honum vel; fann hann Hákon konung og fékk þar góðar viðtökur.

Og er hann hafði litla hríð dvalist þar, bar hann upp erindi sín við konung og segir, að Egill Skalla-Grímsson er þar kominn til lands og hann þóttist eiga fé það allt, er átt hafði Ljótur hinn bleiki; "er oss svo sagt, konungur, að Egill muni lög mæla um þetta, en féð hafa tekið upp ármenn yðrir og kastað á yðvarri eigu; vil eg yður þess biðja, herra, að Egill nái þar af lögum."

Konungur svarar hans máli og tók seint til orða: "Eigi veit eg, hví þú gengur með slíku máli fyrir hönd Egils; kom hann eitt sinn á minn fund, og sagði eg honum, að eg ekki vildi hér í landi vistir hans af þeim sökum, sem yður er áður kunnugt. Nú þarf Egill ekki að hefja upp slíkt tilkall við mig sem við Eirík, bróður minn. En þér, Arinbjörn, er það að segja, að þú svo megir vera hér í landi, að þú metir eigi meira útlenda menn en mig eða mín orð, því að eg veit, að hugir þínir standa þar til, er Haraldur er Eiríksson, fósturson þinn, og er þér sá kostur bestur að fara til fundar við þá bræður og vera með þeim, því að mér er mikill grunur á, að mér muni slíkir menn illir tiltaks, ef það þarf að reyna um skipti vor sona Eiríks."

Og er konungur tók þessu máli svo þvert, þá sá Arinbjörn, að ekki myndi tjá að leita þeirra mála við hann; bjóst hann þá til heimferðar; konungur var heldur styggur og óblíður til Arinbjarnar, síðan hann vissi erindi hans. Arinbjörn hafði þá og ekki skaplyndi til að mjúklæta sig við konung um þetta mál; skildust þeir við svo búið.

Fór Arinbjörn heim og sagði Agli erindislok sín; "mun eg eigi slíkra mála oftar leita við konung."

Egill varð allófrýnn við þessa sögu, þóttist þar mikils fjár missa og eigi að réttu.

Fáum dögum síðar var það snemma einn morgun, þá er Arinbjörn var í herbergi sínu, -- var þar þá ekki margt manna, -- þá lét hann kalla þangað Egil, og er hann kom þar, þá lét Arinbjörn lúka upp kistu og reiddi þar úr fjóra tigu marka silfurs og mælti svo: "Þetta fé geld eg þér, Egill, fyrir jarðir þær, er Ljótur hinn bleiki hafði átt; þykir mér það sannlegt, að þú hafir þessi laun af okkur Friðgeiri frændum fyrir það, er þú leystir líf hans af Ljóti, en eg veit, að þú lést mín að njóta; er eg því skyldur að láta þig eigi lögræning af því máli."

Egill tók við fénu og þakkaði Arinbirni; gerðist Egill þá enn einteiti.

70. kafli

Arinbjörn var þenna vetur heima að búum sínum, en eftir um vorið lýsti hann yfir því, að hann ætlar að fara í víking. Arinbjörn hafði skipakost góðan; bjó hann um vorið þrjú langskip og öll stór; hann hafði þrjú hundruð manna; hafði hann húskarla á skipi sínu, og var það allvel skipað; hann hafði og marga bóndasonu með sér. Egill réðst til farar með honum; stýrði hann skipi, og fór með honum margt af föruneyti því, er hann hafði haft með sér af Íslandi. En kaupskip það, er Egill hafði haft af Íslandi, lét hann flytja austur í Vík; fékk hann þar manna til að fara með varnað sinn. En þeir Arinbjörn og Egill héldu langskipunum suður með landi; síðan stefndu þeir liðinu suður til Saxlands og herjuðu þar um sumarið og fengu sér fé; en er hausta tók, héldu þeir norður aftur og lágu við Frísland.

Einhverja nótt, þá er veður var kyrrt, lögðu þeir upp í móðu eina, þar er illt var til hafna og útfiri mikil; þar voru á land upp sléttur miklar og skammt til skógar; þar voru vellir blautir, því að regn höfðu verið mikil.

Þar réðu þeir til uppgöngu og létu eftir þriðjung liðs að gæta skipa; þeir gengu upp með ánni, milli og skógarins; þá varð brátt fyrir þeim þorp eitt, og byggðu þar margir bændur; liðið rann úr þorpinu á landið, þar er mátti, þegar er vart varð við herinn, en víkingar sóttu eftir þeim. Var þá síðan annað þorp og hið þriðja. Liðið flýði allt það, er því kom við. Þar var jafnlendi og sléttur miklar; díki voru skorin víða um landið og stóð í vatn. Höfðu þeir lukt um akra sína og eng, en í sumum stöðum voru settir staurar stórir yfir díkin, þar er fara skyldi; voru brúar og lagðir yfir viðir. Landsfólkið flýði í mörkina.

En er víkingar voru komnir langt í byggðina, þá söfnuðust Frísir saman í skóginum, og er þeir höfðu aukin þrjú hundruð manna, þá stefna þeir í móti víkingum og ráða til orustu við þá. Varð þar harður bardagi, en svo lauk, að Frísir flýðu, en víkingar ráku flóttann; dreifðist bæjarliðið víðs vegar, það er undan fór; gerðu þeir og svo, er eftir fóru; kom þá svo, að fáir fóru hvorir saman.

Egill sótti þá hart eftir þeim og fáir menn með honum, en mjög margir fóru undan; komu Frísir þar að, er díki var fyrir þeim, og fóru þar yfir; síðan tóku þeir af bryggjuna. Þá koma þeir Egill að öðrum megin. Réð Egill þegar til og hljóp yfir díkið, en það var ekki annarra manna hlaup, enda réð og engi til. Og er Frísir sáu það, þá sækja þeir að honum, en hann varðist; þá sóttu að honum ellefu menn, en svo lauk þeirra viðskiptum, að hann felldi þá alla. Eftir það skaut Egill yfir brúnni og fór þá aftur yfir díkið; sá hann þá, að lið þeirra allt hafði snúið til skipanna; hann var þá staddur nær skóginum; síðan fór Egill fram með skóginum og svo til skipanna, að hann átti kost skógarins, ef hann þyrfti.

Víkingar höfðu haft mikið herfang ofan og strandhögg, og er þeir komu til skipanna, hjuggu sumir búféð, sumir fluttu út á skipin fén þeirra, sumir stóðu fyrir ofan í skjaldborg, því að Frísir voru ofan komnir og höfðu mikið lið og skutu á þá; höfðu Frísir þá aðra fylking. Og er Egill kom ofan og hann sá, hvað títt var, þá rann hann að sem snarast, þar sem múginn stóð; hafði hann kesjuna fyrir sér og tók hana tveimur höndum, en kastaði skildinum á bak sér. Hann lagði fram kesjunni, og stökk frá allt, það er fyrir stóð, og gafst honum svo rúm fram í gegnum fylkinguna; sótti hann svo ofan til manna sinna; þóttust þeir hafa hann úr helju heimtan.

Ganga þeir síðan á skip sín og héldu brott frá landi; sigldu þeir þá til Danmerkur; og er þeir koma til Limafjarðar og lágu að Hálsi, þá átti Arinbjörn húsþing við lið sitt og sagði mönnum fyrirætlan sína: "Nú mun eg," segir hann, "leita á fund Eiríkssona við lið það, er mér vill fylgja. eg hefi nú spurt, að þeir bræður eru hér í Danmörku og halda sveitir stórar og eru á sumrum í hernaði, en sitja á vetrum hér í Danmörk. Vil eg nú gefa leyfi öllum mönnum að fara til Noregs, þeim er það vilja heldur en fylgja mér; sýnist mér það ráð, Egill, að þú snúir aftur til Noregs og leitir enn sem bráðast til Íslands út, þegar við skiljumst."

Síðan skiptust menn á skipunum; réðust þeir til Egils, er aftur vildu fara til Noregs, en hitt var meiri hluti liðs miklu, er fylgdi Arinbirni. Skildust þeir Arinbjörn og Egill með blíðu og vináttu; fór Arinbjörn á fund Eiríkssona og í sveit með Haraldi gráfeld, fóstursyni sínum, og var síðan með honum, meðan þeir lifðu báðir.

Egill fór norður í Víkina og hélt inn í Óslóarfjörð; var þar fyrir kaupskip hans, það er hann hafði látið flytja suður um vorið; þar var og varnaður hans og sveitungar, þeir er með skipinu höfðu farið.

Þorsteinn Þóruson kom á fund Egils og bauð honum með sér að vera um veturinn og þeim mönnum, er hann vildi með sér hafa; Egill þekktist það, lét upp setja skip sín og færa varnað til staðar. En lið það, er honum fylgdi, vistaðist þar sumt, en sumir fóru norður í land, þar er þeir áttu heimili. Egill fer til Þorsteins, og voru þar saman tíu eða tólf; var Egill þar um veturinn í góðum fagnaði.

71. kafli

Haraldur konungur hinn hárfagri hafði lagt undir sig austur Vermaland. Vermaland hafði unnið fyrstur Ólafur trételgja, faðir Hálfdanar hvítbeins, er fyrst var konungur í Noregi sinna kynsmanna, en Haraldur konungur var þaðan kominn að langfeðgatali, og höfðu þeir allir langfeðgar ráðið fyrir Vermalandi og tekið skatta af, en setta menn yfir til landsgæslu.

Og er Haraldur konungur var gamall orðinn, þá réð fyrir Vermalandi jarl sá, er Arnviður hét; var þar þá, sem mjög víða annars staðar, að skattar greiddust verr en þá, er Haraldur konungur var á léttasta skeiði aldurs, svo og þá er synir Haralds deildu um ríki í Noregi; var þá lítt séð eftir um skattlöndin, þau er fjarri lágu.

En þá er Hákon sat í friði, þá leitaði hann eftir um ríki það allt, er Haraldur, faðir hans, hafði haft. Hákon konungur hafði sent menn austur á Vermaland, tólf saman; höfðu þeir fengið skatt af jarlinum; og er þeir fóru aftur um Eiðaskóg, þá komu að þeim stigamenn og drápu þá alla. Á sömu leið fór um aðra sendimenn, er Hákon konungur sendi austur á Vermaland, að menn voru drepnir, en fé kom eigi aftur. Var það þá sumra manna mál, að Arnviður jarl myndi setja menn sína til að drepa menn konungsins, en hafa féð að færa jarlinum.

Þá sendir Hákon konungur hina þriðju menn; var hann þá í Þrándheimi; og skyldu þeir fara í Vík austur til fundar við Þorstein Þóruson með þeim orðum, að hann skyldi fara austur á Vermaland að heimta skatta konungi til handa, en að öðrum kosti skyldi Þorsteinn fara úr landi, því að konungur hafði þá spurt, að Arinbjörn, móðurbróðir hans, var kominn suður til Danmerkur og var með Eiríkssonum, það og með, að þeir höfðu þar miklar sveitir og voru í hernaði um sumrum. Þótti Hákoni konungi þeir allir saman ekki trúlegir, því að honum var von ófriðar af Eiríkssonum, ef þeir hefðu styrk nokkurn til þess að gera uppreist móti Hákoni konungi. Þá gerði hann til allra frænda Arinbjarnar og mága eða vina, rak hann þá marga úr landi eða gerði þeim aðra afarkosti. Kom það og þar fram, er Þorsteinn var, að konungur gerði fyrir þá sök þetta kostaboð.

Maður sá, er erindi þetta bar, hann var allra landa maður, hafði verið löngum í Danmörk og í Svíaveldi; var honum þar allt kunnugt fyrir bæði um leiðir og mannadeili; hann hafði og víða farið um Noreg. Og er hann bar þetta mál Þorsteini Þórusyni, þá segir Þorsteinn Agli, með hverjum erindum þessir menn fóru, og spurði, hversu svara skyldi.

Egill segir: "Auðsætt líst mér um orðsending þessa, að konungur vill þig úr landi sem aðra frændur Arinbjarnar, því að þetta kalla eg forsending svo göfgum manni sem þú ert; er það mitt ráð, er þú kallir til tals við þig sendimenn konungs, og vil eg vera við ræðu yðra; sjáum þá hvað í gerist."

Þorsteinn gerði sem hann mælti, kom þeim í talið; sögðu þá sendimenn allt hið sanna frá erindum sínum og orðsending konungs, að Þorsteinn skyldi fara þessa sendiför, en vera útlægur að öðrum kosti.

Þá segir Egill: "Sé eg gerla um erindi yðvart, ef Þorsteinn vill eigi fara, þá munuð þér fara skulu að heimta skattinn."

Sendimenn sögðu, að hann gat rétt.

"Eigi mun Þorsteinn fara þessa ferð, því að hann er ekki þess skyldur, svo göfugur maður, að fara svo óríflegar sendiferðir, en hitt mun Þorsteinn gera, er hann er til skyldur, að fylgja konungi innan lands og utan lands, ef konungur vill þess krefja; svo og ef þér viljið nokkura menn hafa héðan til þessar ferðar, þá mun yður það heimilt, og allan farargreiða þann, er þér viljið Þorsteini til segja."

Síðan töluðu sendimenn sín í milli, og kom það ásamt með þeim, að þeir skyldu þennan kost upp taka, ef Egill vildi fara í ferðina; "er konungi," sögðu þeir, "allilla til hans, og mun honum þykja vor ferð allgóð, ef vér komum því til leiðar, að hann sé drepinn; má hann þá reka Þorstein úr landi, ef honum líkar."

Síðan segja þeir Þorsteini, að þeir láta sér líka, ef Egill fer, og sitji Þorsteinn heima.

"Það skal þá vera," segir Egill, "að eg mun Þorstein undan ferð þessi leysa, eða hversu marga menn þykist þér þurfa héðan að hafa?"

"Vér erum saman átta," sögðu þeir, "viljum vér, að héðan fari fjórir menn; erum vér þá tólf."

Egill segir, að svo skyldi vera.

Önundur sjóni og þeir nokkurir sveitungar Egils höfðu farið út til sjóvar að sjá um skip þeirra og annan varnað, er þeir höfðu selt til varðveislu um haustið, og komu þeir eigi heim; þótti Agli það mikið mein, því að konungsmenn létu óðlega um ferðina og vildu ekki bíða.

72. kafli

Egill bjóst til ferðar og þrír menn aðrir hans förunautar; höfðu þeir hesta og sleða svo sem konungsmenn. Þá voru snjóvar miklir og breyttir vegar allir. Ráða þeir til ferðar, er þeir voru búnir, og óku upp á land, og er þeir sóttu austur til Eiða, þá var það á einni nótt, að féll snjór mikill, svo að ógerla sá vegana; fórst þeim þá seint um daginn eftir, því að kafhlaup voru, þegar af fór veginum.

Og er á leið daginn, dvöldust þeir og áðu hestum sínum; þar var nær skógarháls einn.

Þá mæltu þeir við Egil: "Nú skiljast hér vegar, en hér fram undan hálsinum býr bóndi sá, er heitir Arnaldur, vinur vor; munum vér förunautar fara þangað til gistingar, en þér skuluð fara hér upp á hálsinn, og þá er þér komið þar, mun brátt verða fyrir yður bær mikill, og er yður þar vís gisting; þar býr stórauðugur maður, er heitir Ármóður skegg. En á morgun árdegis skulum vér hittast og fara annað kveld til Eiðaskógs, þar býr góður bóndi, er Þorfinnur heitir."

Síðan skiljast þeir; fara þeir Egill upp á hálsinn, en frá konungsmönnum er það að segja, að þegar er sýn fal í milli þeirra Egils, þá tóku þeir skíð sín, er þeir höfðu haft, og stigu þar á; létu síðan ganga aftur á leið, sem þeir máttu; fóru þeir nótt og dag og sneru til Upplanda, og þaðan norður um Dofrafjall, og léttu eigi fyrr en þeir komu á fund Hákonar konungs og sögðu um sína ferð sem farið hafði.

Egill og förunautar hans fóru um kveldið yfir hálsinn; var það þar skjótast af að segja, að þeir fóru þegar af veginum; var snjórinn mikill; lágu hestarnir á kafi annað skeið, svo að draga varð upp. Þar voru kleifar og kjarrskógar nokkurir, en um kjörrin og kleifarnar var alltorsótt; var þeim þá seinkan mikil að hestunum, en mannfærðin var hin þyngsta. Mæddust þeir þá mjög, en þó komust þeir af hálsinum og sáu þá fyrir sér bæ mikinn og sóttu þangað til.

Og er þeir komu í túnið, þá sáu þeir, að þar stóðu menn úti, Ármóður og sveinar hans. Köstuðust þeir orðum á og spurðust tíðinda; og er Ármóður vissi, að þeir voru sendimenn konungs, þá bauð hann þeim þar gisting; þeir þekktust það; tóku húskarlar Ármóðs við hestum þeirra og reiða, en bóndi bað Egil ganga inn í stofu, og þeir gerðu svo. Ármóður setti Egil í öndvegi á hinn óæðra bekk, og þar förunautar hans utar frá; þeir ræddu margt um, hversu erfillega þeir höfðu farið um kveldið, en heimamönnum þótti mikið undur, er þeir höfðu fram komist, og sögðu, að þar væri engum manni fært, þó að snjólaust væri.

Þá mælti Ármóður: "Þykir yður eigi sá beini bestur, að yður sé borð sett og gefinn náttverður, en síðan farið þér að sofa? Munuð þér þá hvílast best."

"Það líkar oss allvel," segir Egill.

Ármóður lét setja þeim borð, en síðan voru settir fram stórir askar, fullir af skyri; þá lét Ármóður, að honum þætti það illa, er hann hafði eigi mungát að gefa þeim. Þeir Egill voru mjög þyrstir af mæði; tóku þeir upp askana og drukku ákaft skyrið, og þó Egill miklu mest. Engi kom önnur vistin fram.

Þar var margt hjóna; húsfreyja sat á þverpalli og þar konur hjá henni, dóttir bónda var á gólfinu, tíu vetra eða ellefu. Húsfreyja kallaði hana til sín og mælti í eyra henni. Síðan fór mærin utar fyrir borðið, þar er Egill sat. Hún kvað:


Því sendi mín móðir
mik við þik til fundar
ok orð bera Agli,
at ér varir skyldið;
Hildr mælti þat horna:
haga svá maga þínum,
eigu órir gestir
æðra nest á frestum.

Ármóður laust meyna og bað hana þegja -- "mælir þú það jafnan, er verst gegnir."

Mærin gekk á brott, en Egill skaut niður skyraskinum, og var þá nær tómur; voru þá og brott teknir askarnir frá þeim. Gengu þá og heimamenn í sæti sín, og voru borð upp tekin um alla stofu, og sett á vist; því næst komu inn sendingar og voru þá settar fyrir Egil sem fyrir aðra menn.

Því næst var öl inn borið, og var það hið sterkasta mungát; var þá brátt drukkinn einmenningur; skyldi einn maður drekka af dýrshorni; var þar mestur gaumur að gefinn, er Egill var og sveitungar hans; skyldu drekka sem ákafast. Egill drakk ósleitilega fyrst langa hríð; en er förunautar hans gerðust ófærir, þá drakk hann fyrir þá, það er þeir máttu eigi. Gekk svo til þess, er borð fóru brott; gerðust þá og allir mjög drukknir, þeir er inni voru, en hvert full, er Ármóður drakk, þá mælti hann: "Drekk eg til þín, Egill;" en húskarlar drukku til förunauta Egils og höfðu hinn sama formála. Maður var til þess fenginn að bera þeim Agli hvert full, og eggjaði sá mjög, að þeir skyldu skjótt drekka. Egill mælti við förunauta sína, að þeir skyldu þá ekki drekka, en hann drakk fyrir þá, það er þeir máttu eigi annan veg undan komast.

Egill fann þá, að honum myndi eigi svo búið eira; stóð hann þá upp og gekk um gólf þvert, þangað er Ármóður sat; hann tók höndum í axlir honum og kneikti hann upp að stöfum. Síðan þeysti Egill upp úr sér spýju mikla og gaus í andlit Ármóði, í augun og nasarnar og í munninn; rann svo ofan um bringuna, en Ármóði varð við andhlaup, og er hann fékk öndinni frá sér hrundið, þá gaus upp spýja. En allir mæltu það, þeir er hjá voru, húskarlar Ármóðs, að Egill skyldi fara allra manna armastur og hann væri hinn versti maður af þessu verki, er hann skyldi eigi ganga út, er hann vildi spýja, en verða eigi að undrum inni í drykkjustofunni.

Egill segir: "Ekki er að hallmæla mér um þetta, þótt eg geri sem bóndi gerir, spýr hann af öllu afli, eigi síður en eg."

Síðan gekk Egill til rúms síns og settist niður, bað þá gefa sér að drekka. Þá kvað Egill við raust:


Títt erum verð at vátta,
vætti berk at hættak
þung til þessar göngu,
þinn kinnalá minni;
margr velr gestr, þars gistir,
gjöld, finnumsk vér sjaldan,
Ármóði liggr, æðri,
ölðra dregg í skeggi.

Ármóður hljóp upp og út, en Egill bað gefa sér drekka. Þá mælti húsfreyja við þann mann, er þeim hafði skenkt um kveldið, að hann skyldi gefa drykk, svo að þá skyrti eigi, meðan þeir vildu drekka; síðan tók hann dýrshorn mikið og fyllti og bar til Egils; Egill kneyfði af horninu í einum drykk. Þá kvað hann:


Drekkum ór, þótt Ekkils
eykríðr beri tíðum
horna sund at hendi,
hvert full, bragar Ulli;
leifik vætr, þótt Laufa
leikstærir mér færi
hrosta tjörn í horni,
horn til dags at morgni.

Egill drakk um hríð og kneyfði hvert horn, er að honum kom, en lítil var þá gleði í stofunni, þótt nokkurir menn drykkju. Síðan stendur Egill upp og förunautar hans og taka vopn sín af veggjum, er þeir höfðu upp fest; ganga síðan til kornhlöðu þeirrar, er hestar þeirra voru inni; lögðust þeir þar niður í hálm og sváfu um nóttina.

73. kafli

Egill stóð upp um morguninn, þegar er dagaði; bjuggust þeir förunautar og fóru þegar, er þeir voru búnir, aftur til bæjarins og leita Ármóðs. Og er þeir komu til skemmubúrs þess, er Ármóður svaf í og kona hans og dóttir, þá hratt Egill upp hurðinni og gekk til rekkjunnar Ármóðs; hann brá þá sverði, en annarri hendi greip hann í skegg Ármóðs og hnykkti honum á stokk fram, en kona Ármóðs og dóttir hljópu upp og báðu Egil, að hann dræpi eigi Ármóð.

Egill segir, að hann skyldi það gera fyrir þeirra sakar - "því að það er maklegt; en hefði hann verðleika til, að eg dræpi hann." Þá kvað Egill:

Nýtr illsögull ýtir
armlinns konu sinnar,
oss's við ógnar hvessi
óttalaust, ok dóttur;
þeygi munt við þenna
þykkjask verðr fyr drykkju
grepp, skulum á veg vappa
vítt, svágöru hlíta.

Síðan sneið Egill af honum skeggið við hökuna; síðan krækti hann fingrinum í augað, svo að úti lá á kinninni: eftir það gekk Egill á brott og til förunauta sinna.

Fara þeir þá leið sína, koma að dagverðarmáli til bæjar Þorfinns; hann bjó við Eiðaskóg; þeir Egill kröfðu dagverðar og æja hestum sínum. Þorfinnur bóndi lét heimilt skyldu það; ganga þeir Egill þá inn í stofu.

Egill spurði, ef Þorfinnur hefði var orðið við förunauta hans - "höfðum vér hér mælt mót með oss."

Þorfinnur segir svo: "Fóru hér sex menn saman nokkuru fyrir dag og voru vopnaðir mjög."

Þá mælti húskarl Þorfinns: "Eg ók í nótt eftir viði, og fann eg sex menn á leið, og voru það húskarlar Ármóðs, og var það miklu fyrir dag; nú veit eg eigi, hvort þeir munu allir einir og hinir sex menn, er þú sagðir frá."

Þorfinnur segir, að þeir menn, er hann hafði hitt, höfðu síðar farið en húskarlinn kom heim með viðarhlassið.

Og er þeir Egill sátu og mötuðust, þá sá Egill, að kona sjúk lá í þverpallinum; Egill spurði Þorfinn, hver kona sú væri, er þar var svo þunglega haldin.

Þorfinnur segir, að hún hét Helga og var dóttir hans - "hefir hún haft langan vanmátt," og það var kröm mikil; fékk hún enga nótt svefn og var sem hamstoli væri.

"Hefir nokkurs í verið leitað," segir Egill, "um mein hennar?"

Þorfinnur segir: "Ristnar hafa verið rúnar, og er sá einn bóndason héðan skammt í brott, er það gerði, og er síðan miklu verr en áður, eða kanntu, Egill, nokkuð gera að slíkum meinum?"

Egill segir: "Vera kann, að ekki spillist við, þó að eg komi til."

Og er Egill var mettur, gekk hann þar til, er konan lá, og ræddi við hana; hann bað þá hefja hana úr rúminu og leggja undir hana hrein klæði, og nú var svo gert. Síðan rannsakaði hann rúmið, er hún hafði hvílt í, og þar fann hann tálkn, og voru þar á rúnarnar. Egill las þær, og síðan telgdi hann af rúnarnar og skóf þær í eld niður; hann brenndi tálknið allt og lét bera vind í klæði þau, er hún hafði haft áður. Þá kvað Egill:

Skalat maðr rúnar rísta,
nema ráða vel kunni,
þat verðr mörgum manni,
es of myrkvan staf villisk;
sák á telgðu talkni
tíu launstafi ristna,
þat hefr lauka lindi
langs ofrtrega fengit.

Egill reist rúnar og lagði undir hægindið í hvíluna, þar er hún hvíldi; henni þótti sem hún vaknaði úr svefni og sagði, að hún var þá heil, en þó var hún máttlítil, en faðir hennar og móðir urðu stórum fegin; bauð Þorfinnur, að Egill skyldi þar hafa allan forbeina, þann er hann þóttist þurfa.

74. kafli

Egill segir förunautum sínum, að hann vill fara ferð sína og bíða eigi lengur. Þorfinnur átti son, er Helgi hét; hann var vasklegur maður; þeir feðgar buðu Agli föruneyti sitt um skóginn. Sögðu þeir, að þeir vissu til sanns, að Ámóður skegg hafði gert menn sex á skóginn fyrir þá, og þó líkara, að vera myndu fleiri sátirnar á skóginum, ef hin fyrsta slyppi; voru þeir Þorfinnur fjórir saman, er til ferðar buðust. Þá kvað Egill vísu:


Veist, ef ferk með fjóra,
færat sex, þás víxli
hlífa hneitiknífum
hjaldrgoðs við mik roðnum;
en ef ek em með átta,
esat þeir tolf, es skelfi
at samtogi sverða
svartbrúnum mér hjarta.

Þeir Þorfinnur réðu þessu, að þeir fóru á skóginn með Agli, og voru þeir þá átta saman; og er þeir komu þar, er sátin var fyrir, þá sáu þeir þar menn. En þeir húskarlar Ármóðs, er þar sátu, sáu, að þar fóru átta menn, og þótti þeim sér ekki færi til að ráða; leyndust þá í brott á skóginn. En er þeir Egill komu þar, sem njósnarmenn höfðu verið, þá sáu þeir, að eigi var allt fritt. Þá mælti Egill, að þeir Þorfinnur skyldu aftur fara, en þeir buðu að fara lengra. Egill vildi það eigi og bað þá fara heim, og þeir gerðu svo og hurfu aftur, en þeir Egill héldu fram ferðinni og voru þá fjórir saman.

Og er á leið daginn, urðu þeir Egill varir við, að þar voru sex menn á skóginum, og þóttust vita, að þar myndu vera húskarlar Ármóðs. Njósnarmenn hljópu upp og réðu að þeim, en þeir í mót, og varð sá fundur þeirra, að Egill felldi tvo menn, en hinir, er eftir voru, hljópu þá í skóginn.

Síðan fóru þeir Egill sína leið, og gerðist þá ekki til tíðinda, áður þeir komu af skóginum og tóku gisting við skóginn að bónda þess, er Álfur hét og var kallaður Álfur hinn auðgi. Hann var maður gamall og auðugur að fé, maður einrænn, svo að hann mátti ekki hafa hjón með sér nema fá ein. Góðar viðtökur hafði Egill þar, og var Álfur við hann málreitinn; spurði Egil margra tíðinda, en Álfur sagði slíkt, er hann spurði; þeir ræddu flest um jarlinn og um sendimenn Noregskonungs, þá er fyrr höfðu farið austur þangað að heimta skatt. Álfur var engi vinur jarls í ræðum sínum.

75. kafli

Egill bjóst snemma um morguninn til farar og þeir förunautar, en að skilnaði gaf Egill Álfi loðúlpu; Álfur tók þakksamlega við gjöfinni -- "og má hér gera mér af loðkápu" - og bað Egil þar koma til sín, er hann færi aftur. Skildust þeir vinir, og fór Egill ferðar sinnar og kom aftan dags til hirðar jarlsins Arnviðar og fékk þar allgóðar viðtökur; var þeim förunautum skipað næst öndvegismanni.

Og er þeir Egill höfðu þar verið um nótt, þá bera þeir upp erindi sín við jarlinn og orðsending konungs úr Noregi og segja, að hann vill hafa skatt þann allan af Vermalandi, sem áður hefir eftir staðið, síðan Arnviður var þar yfir settur.

Jarlinn segir, að hann hefði af höndum greitt allan skatt og fengið í hendur sendimönnum konungs - "en eigi veit eg, hvað þeir hafa síðan við gert, hvort þeir hafa fengið konungi eða hafa þeir hlaupið af landi á brott með; en því að þér berið sannar jartegnir til, að konungur hefir yður sent, þá mun eg greiða skatt þann allan, sem hann á að réttu, og fá yður í hönd, en eigi vil eg ábyrgjast síðan, hvernig yður ferst með."

Dveljast þeir Egill þar um hríð, en áður Egill færi í brott, greiðir jarl þeim skattinn; var það sumt í silfri, sumt í grávöru.

Og er þeir Egill voru búnir, þá fóru þeir aftur á leið; segir Egill jarli að skilnaði þeirra: "Nú munum vér færa konungi skatt þenna, er vér höfum við tekið, en það skaltu vita, jarl, að þetta er fé miklu minna en konungur þykist hér eiga, og er það þó ekki talið, er honum mun þykja, að þér eigið að gjalda aftur sendimenn hans manngjöldum, þá er menn kalla, að þér munuð hafa drepa látið."

Jarl segir, að það var eigi satt; skildust þeir að þessu.

Og er Egill var á brottu, þá kallaði jarl til sín bræður tvo, er hvortveggi hét Úlfur; hann mælti svo: "Egill sjá hinn mikli, er hér var um hríð, ætla eg, að oss muni allóþarfur, er hann kemur til konungs; megum vér af því marka, hvernig hann mun bera fyrir konung vort mál, er hann jós slíku í augu oss upp, aftöku konungsmanna. Nú skuluð þið fara eftir þeim og drepa þá alla og láta þá ekki bera róg þetta fyrir konung; þykir mér það ráðlegast, að þér sætið þeim á Eiðaskógi; hafið með yður menn svo marga, að það sé víst, að engi þeirra komist undan, en þér fáið ekki mannspell af þeim."

Nú búast þeir bræður til ferðar og höfðu þrjá tigu manna; fóru þeir á skóginn, og kunnu þeir þar hvern stíg fyrir; héldu þeir þá njósn um ferð Egils.

Á skóginum voru tvennar leiðir; var önnur að fara yfir ás nokkurn, og var þar klif bratt og einstigi yfir að fara - var sú leiðin skemmri - en önnur var fyrir framan ásinn að fara, og voru þar fen stór og höggnar á lágir, og var þar einstigi yfir að fara, og sátu fimmtán í hvorum stað.

76. kafli

Egill fór til þess, er hann kom til Álfs, og var þar um nótt í góðum beinleika; eftir um morguninn stóð hann upp fyrir dag, bjóst þá til ferðar. Og er þeir sátu yfir dagverði, þá kom þar Álfur bóndi. Hann mælti: "Snemma búist þér, Egill, en hitt myndi mitt ráð að hrapa ekki ferðinni, sjást heldur fyrir, því að eg ætla, að menn muni settir fyrir yður á skóginn. eg hefi ekki menn til að fá þér til fylgdar, svo að þér sé styrkur að, en það vil eg bjóða, að þú dveljist hér með mér, þar til er eg kann það segja þér, að fært mun um skóginn."

Egill segir: "Það mun ekki nema hégómi einn; mun eg fara veg minn, sem eg hefi áður ætlað."

Þeir Egill bjuggust til farar, en Álfur latti og bað hann aftur fara, ef hann yrði var við, að vegurinn væri troðinn, sagði, að þar hefði enginn maður farið yfir skóginn austan, síðan er Egill fór austur - "nema þessir hafi farið, er mér er von, að yður vilji finna."

"Hvað ætlar þú, hversu margir þeir muni vera, ef svo er, sem þér segið? Ekki erum vér uppnæmir, þótt nokkur sé liðsmunur."

Hann segir: "Eg var farinn fram til skógarins og húskarlar mínir með mér, og komum við á mannafar, og lá sú slóð fram á skóginn, og mundu þeir hafa verið margir saman; en ef þú trúir eigi því, er eg segi þér, þá far þangað og sjá slóðina, en snú aftur, ef þér sýnist sem eg segi þér."

Egill fór sína leið; og er þeir komu á veginn, þann er á skóginn lá, þá sáu þeir þar bæði manna spor og hrossa; þá mæltu förunautar Egils, að þeir skyldu aftur hverfa.

"Fara munum vér," sagði Egill; "þykir mér það ekki undarlegt, þótt menn hafi farið um Eiðaskóg, því að það er alþýðuleið."

Síðan fóru þeir, og hélst ferillinn, og var þá fjöldi spora, og er þeir koma þar, er leiðir skildi, þá skildi og slóðina og var þá jafnmikil í hvorn stað.

Þá mælti Egill: "Nú þykir mér vera mega, að Álfur hafi satt sagt; skulum vér nú búast um, svo sem oss sé von, að fundur vor muni verða."

Síðan kasta þeir Egill af sér skikkjum og öllum lausaklæðum; leggja þeir það í sleða. Egill hafði haft í sleða sínum bastlínu mjög mikla, því að það er siður manna, er aka langar leiðir, að hafa með sér lausataugir, ef að reiða þarf að gera. Egill tók hellustein mikinn og lagði fyrir brjóst sér og kviðinn; síðan rábendi hann þar að tauginni og vafði henni sívafi og bjó svo allt upp um herðarnar. Eftir það fara þeir leið sína.

Eiðaskógur er á þann veg, að mörk er stór allt að byggðinni hvorritveggju, en um miðjan skóginn er víða smáviði og kjörr, en sums staðar skóglaust með öllu.

Þeir Egill sneru leið hina skemmri, er yfir hálsinn lá; allir höfðu þeir skjöldu og hjálma og höggvopn og lagvopn; Egill fór fyrir þeim. Og er þeir fóru að hálsinum, þá var þar undir niðri skógur, en skóglaust uppi á klifinu.

En er þeir voru komnir upp í klifið, þá hljópu sjö menn úr skóginum og upp í kleifina eftir þeim og skutu að þeim. Þeir Egill snerust við, og stóðu þeir jafnfram um þvera götuna; þá komu aðrir menn ofan að þeim á hamarinn, og grýttu þeir þaðan á þá, og var þeim það miklu hættara.

Þá mælti Egill: "Nú skuluð þér fara á hæli undan í kleifina og hlífast sem þér megið, en eg mun leita upp á bergið."

Þeir gerðu svo; og er Egill kom upp úr klifinu, þá voru þar fyrir átta menn og gengu allir senn að honum og sóttu hann; en ekki er að segja frá höggva viðskiptum; svo lauk, að hann felldi þá alla. Síðan gekk hann á bergið fram og bar ofan grjót, og stóð þar ekki við; lágu þar eftir þrír hinir vermsku, en fjórir komust í skóginn, og voru þeir sárir og barðir.

Síðan tóku þeir Egill hesta sína og fóru fram á leið, til þess er þeir komu yfir hálsinn, en þeir hinir vermsku, er undan höfðu komist, gerðu njósn félögum sínum, þeim er við fenin voru; stefndu þeir þá fram hina neðri leiðina og svo fram fyrir þá Egil á veginn.

Þá sagði Úlfur félögum sínum: "Nú skulum vér fara að ráðum við þá; stilla svo til, að þeir nái eigi að renna; hér er þannig til farið," segir hann, "að leiðin liggur fram með hálsinum, en feninu víkur að upp, og er þar hamar fyrir ofan, en brautin liggur þar fram í milli og er eigi breiðari en götubreidd. Skulu sumir fara fram um hamarinn og taka við þeim, ef þeir vilja fram, en sumir skulu leynast hér í skóginum og hlaupa síðan á bak þeim, er þeir koma fram um; gætum svo til, að engi komist undan."

Þeir gerðu svo sem Úlfur mælti; fór Úlfur fram um bergið og tíu menn með honum.

Þeir Egill fara sína leið og vissu ekki til þessar ráðagerðar, fyrr en þeir komu í einstigið; þá hljópu þar menn á bak þeim og báru þegar vopn á þá; þeir Egill snerust í móti og vörðust. Nú drífa og menn að þeim, þeir er verið höfðu fyrir framan hamarinn, og er Egill sá það, snerist hann í móti þeim; var þar skammt höggva í millum, og felldi Egill þar suma í götunni, en sumir hurfu aftur, þar er jafnlendið var meira. Egill sótti þá eftir þeim; þar féll Úlfur, og að lyktum drap Egill þar einn ellefu menn; síðan sótti hann þar til, er förunautar hans vörðu götuna fyrir átta mönnum; voru þar hvorirtveggju sárir. Og er Egill kom til, þá flýðu þegar hinir vermsku, en skógurinn var við sjálft; komust þar undan fimm og allir sárir mjög, en þrír féllu þar.

Egill hafði mörg sár og engi stór; fóru þeir nú sína leið; hann batt sár förunauta sinna og voru engi banvæn; settust þeir þá í sleða og óku, það er eftir var dagsins.

En þeir hinir vermsku, er undan komust, tóku hesta sína og drógust austur af skóginum til byggða; voru þá bundin sár þeirra; fá þeir sér föruneyti, til þess er þeir komu á fund jarls, og segja honum sínar ófarar; þeir segja, að hvortveggi Úlfur er fallinn og dauðir voru hálfur þriðji tigur manna -- "en fimm einir komust undan með lífi og þó þeir allir sárir og barðir."

Jarl spurði, hvað þá væri tíðinda um Egil og hans förunauta.

Þeir svöruðu: "Ógerla vissum vér, hversu mjög þeir voru sárir, en ærið djarflega sóttu þeir að oss; þá er vér vorum átta, en þeir fjórir, þá flýðum vér; komust fimm á skóginn, en þrír létust, en eigi sáum vér annað en þeir Egill væru þá spánnýir."

Jarlinn sagði, að þeirra ferð var orðin hin versta -- "myndi eg kunna því, að vér hefðum mannalát mikið, ef þér hefðuð drepið þá Norðmennina, en nú er þeir koma vestur af skóginum og segja þessi tíðindi Noregskonungi, þá eigum vér af honum von hinna mestu afarkosta."

77. kafli

Egill fór, til þess er hann kom vestur af skóginum; sóttu þeir til Þorfinns að kveldi og fengu þar allgóðar viðtökur; voru þá bundin sár þeirra Egils; nokkurar nætur voru þeir þar. Helga, dóttir bónda, var þá á fótum og heil meina sinna; þakkaði hún og öll þau Agli það. Hvíldu sig þar og eyki sína.

En maður sá, er Helgu hafði rúnar ristið, var þaðan skammt á brott; kom það þá upp, að hann hafði beðið hennar, en Þorfinnur vildi eigi gifta hana; þá vildi bóndason glepja hana, en hún vildi eigi; þá þóttist hann rista henni manrúnar, en hann kunni það eigi, og hafði hann það ristið henni, er hún fékk meinsemi af.

Og er Egill var til brottfarar búinn, þá fylgdi Þorfinnur honum og þeir feðgar á götu; voru þeir þá saman tíu eða tólf; fóru þeir þá dag þann allan með þeim til varúðar fyrir Ármóði og húskörlum hans. Og er þessi tíðindi spurðust, að þeir Egill höfðu barist við ofurefli liðs á skóginum og sigrað, þá þótti Ármóði engi von, að hann myndi mega reisa rönd við Agli; sat Ármóður því heima við alla sína menn. Þeir Egill og Þorfinnur skiptust gjöfum við að skilnaði og mæltu til vináttu með sér.

Síðan fóru þeir Egill leið sína, og er ekki sagt, að til tíðinda yrði í ferð þeirra, áður þeir komu til Þorsteins. Voru þá grædd sár þeirra; dvöldust þeir Egill þar til vors; en Þorsteinn fékk sendimenn til Hákonar konungs að færa honum skatt þann, er Egill hafði sótt til Vermalands. Og er þeir komu á konungs fund, þá sögðu þeir honum tíðindi þau, er gerst höfðu í ferð þeirra Egils, og færðu honum skattinn; konungur þóttist þá vita, að það mundi satt vera, er áður hafði hann grunað um, að Arnviður jarl mundi hafa látið drepa sendimenn hans tvenna, er hann hafði austur sent; sagði konungur, að Þorsteinn skyldi þá hafa landsvist og vera í sætt við hann. Fara sendimenn síðan heimleiðis, og er þeir koma aftur til Þorsteins, þá segja þeir honum, að konungur lét vel yfir þessi ferð og Þorsteinn skyldi þá vera í sætt og vináttu við konung.

Hákon konungur fór í Vík austur um sumarið, en þaðan gerði hann ferð sína austur á Vermaland með mikið lið; Arnviður jarl flýði undan, en konungur tók stór gjöld af bóndum þeim, er honum þóttu í sökum við sig, svo sem sagt er af þeim, er skattinn sóttu; setti hann þar yfir jarl annan og tók gíslar af honum og bóndum.

Hákon konungur fór í þeirri ferð víða um Gautland hið vestra og lagði það undir sig, svo sem sagt er í sögu hans og finnst í kvæðum þeim, er um hann hafa ort verið. Þá er og sagt, að hann fór til Danmerkur og herjaði þar víða; þá hrauð hann tólf skip af Dönum með tveimur skipum, og þá gaf hann konungsnafn Tryggva Ólafssyni, bróðursyni sínum, og vald yfir Víkinni austur.

Egill bjó kaupskip sitt um sumarið og réð þar til föruneyti, en langskip það, er hann hafði haft um haustið úr Danmörku, gaf hann Þorsteini að skilnaði; Þorsteinn gaf Agli góðar gjafar, og mæltu til mikillar vináttu sín í milli. Egill gerði sendimenn til Þórðar á Aurland, mágs síns, og fékk honum umboð sitt að skipa jarðir þær, er Egill átti í Sogni og á Hörðalandi, og bað hann selja, ef kaupendur væru til.

Og er Egill var búinn ferðar sinnar og byr gaf, þá sigldu þeir út eftir Víkinni og svo leið sína norður fyrir Noreg og síðan í haf út; byrjaði þeim til góðrar hlítar, komu af hafi í Borgarfjörð, og hélt Egill skipinu inn eftir firðinum og til hafnar skammt frá bæ sínum og lét heim flytja varnað sinn, en ráða skipi til hlunns. Egill fór heim til bús síns; urðu menn honum fegnir; dvaldist Egill þar þann vetur.

78. kafli

Þá er þetta var tíðinda, að Egill var út kominn úr þessi ferð, þá var héraðið albyggt; voru þá andaðir allir landnámamenn, en synir þeirra lifðu eða sonarsynir, og bjuggu þeir þá í héraði.

Ketill gufa kom til Íslands, þá er land var mjög byggt; hann var hinn fyrsta vetur að Gufuskálum á Rosmhvalanesi. Ketill hafði komið vestan um haf af Írlandi; hann hafði með sér þræla marga írska. Lönd voru öll byggð á Rosmhvalanesi þann tíma; réðst Ketill því þaðan í brott og inn á Nes og sat annan vetur á Gufunesi og fékk þar engan ráðstafa. Síðan fór hann inn í Borgarfjörð og sat þar hinn þriðja vetur, er síðan er kallað að Gufuskálum, en áin Gufuá, er þar fellur í ofan, er hann hafði skip sitt í um veturinn.

Þórður Lambason bjó þá á Lambastöðum; hann var kvongaður og átti son, er Lambi hét. Hann var þá vaxinn maður, mikill og sterkur að jöfnum aldri. Eftir um sumarið, þá er menn riðu til þings, reið Lambi til þings; en Ketill gufa var þá farinn vestur í Breiðafjörð að leita þar um bústaði.

Þá hljópu þrælar hans á brott. Þeir komu fram um nótt að Þórðar á Lambastöðum og báru þar eld að húsum og brenndu þar inni Þórð og hjón hans öll, en brutu upp búr hans og báru út gripi og vöru; síðan ráku þeir heim hross og klyfjuðu og fóru síðan út til Álftaness.

Þann morgun um sólarupprásarskeið kom Lambi heim, og hafði hann séð eldinn um nóttina; þeir voru nokkurir menn saman. Hann reið þegar að leita þrælanna; ríða þar menn af bæjum til móts við hann; og er þrælarnir sáu eftirför þá, stefndu þeir undan, en létu lausan ránsfeng sinn. Hljópu sumir á Mýrar út, en sumir út með sjó, til þess að fjörður var fyrir þeim.

Þá sóttu þeir Lambi eftir þeim og drápu þar þann, er Kóri hét -- því heitir þar síðan Kóranes -- en Skorri og Þormóður og Svartur gengu á kaf og summu frá landi. Síðan leituðu þeir Lambi að skipum og reru að leita þeirra, og fundu þeir Skorra í Skorraey og drápu hann þar; þá reru þeir út til Þormóðsskers og drápu þar Þormóð; er við hann skerið kennt. Þeir hendu þrælana enn fleiri, þar sem síðan eru örnefni við kennd.

Lambi bjó síðan að Lambastöðum og var gildur bóndi; hann var rammur að afli, engi var hann uppivöðslumaður.

Ketill gufa fór síðan vestur í Breiðafjörð og staðfestist í Þorskafirði; við hann er kenndur Gufudalur og Gufufjörður; hann átti Ýri, dóttur Geirmundar heljarskinns; Váli var sonur þeirra.

Grímur hét maður og var Svertingsson; hann bjó að Mosfelli fyrir neðan Heiði; hann var auðugur og ættstór. Rannveig var systir hans sammæðra, er átti Þóroddur goði í Ölfusi; var þeirra sonur Skafti lögsögumaður. Grímur var og lögsögumaður síðan. Hann bað Þórdísar Þórólfsdóttur, bróðurdóttur Egils og stjúpdóttur. Egill unni Þórdísi engum mun minna en sínum börnum; hún var hin fríðasta kona. En fyrir því að Egill vissi, að Grímur var maður göfugur og sá ráðakostur var góður, þá var það að ráði gert. Var Þórdís gift Grími; leysti Egill þá af hendi föðurarf hennar; fór hún til bús með Grími, og bjuggu þau lengi að Mosfelli.

79. kafli

Ólafur hét maður, sonur Höskulds Dala-Kollssonar og sonur Melkorku, dóttur Mýrkjartans Írakonungs. Ólafur bjó í Hjarðarholti í Laxárdal vestur í Breiðafjarðardölum; Ólafur var stórauðugur að fé; hann var þeirra manna fríðastur sýnum, er þá voru á Íslandi; hann var skörungur mikill.

Ólafur bað Þorgerðar, dóttur Egils; Þorgerður var væn kona og kvenna mest, vitur og heldur skapstór, en hversdagslega kyrrlát. Egill kunni öll deili á Ólafi og vissi, að það gjaforð var göfugt, og fyrir því var Þorgerður gift Ólafi; fór hún til bús með honum í Hjarðarholt. Þeirra börn voru þau Kjartan, Þorbergur, Halldór, Steindór, Þuríður, Þorbjörg, Bergþóra; hana átti Þórhallur goði Oddason; Þorbjörgu átti fyrr Ásgeir Knattarson, en síðar Vermundur Þorgrímsson; Þuríði átti Guðmundur Sölmundarson; voru þeirra synir Hallur og Víga-Barði.

Össur Eyvindarson, bróðir Þórodds í Ölfusi, fékk Beru, dóttur Egils.

Böðvar, sonur Egils, var þá frumvaxti; hann var hinn efnilegasti maður, fríður sýnum, mikill og sterkur, svo sem verið hafði Egill eða Þórólfur á hans aldri; Egill unni honum mikið; var Böðvar og elskur að honum.

Það var eitt sumar, að skip var í Hvítá, og var þar mikil kaupstefna. Hafði Egill þar keypt við margan og lét flytja heim á skipi; fóru húskarlar og höfðu skip áttært, er Egill átti. Það var þá eitt sinn, að Böðvar beiddist að fara með þeim, og þeir veittu honum það; fór hann þá inn á Völlu með húskörlum; þeir voru sex saman á áttæru skipi. Og er þeir skyldu út fara, þá var flæðurin síð dags, og er þeir urðu hennar að bíða, þá fóru þeir um kveldið síð. Þá hljóp á útsynningur steinóði, en þar gekk í móti útfallsstraumur; gerði þá stórt á firðinum, sem þar kann oft verða; lauk þar svo, að skipið kafði undir þeim, og týndust þeir allir. En eftir um daginn skaut upp líkunum; kom lík Böðvars inn í Einarsnes, en sum komu fyrir sunnan fjörðinn, og rak þangað skipið; fannst það inn við Reykjarhamar.

Þann dag spurði Egill þessi tíðindi, og þegar reið hann að leita líkanna; hann fann rétt lík Böðvars. Tók hann það upp og setti í kné sér og reið með út í Digranes til haugs Skalla-Gríms. Hann lét þá opna hauginn og lagði Böðvar þar niður hjá Skalla-Grími; var síðan aftur lokinn haugurinn, og var eigi fyrr lokið en um dagseturs skeið. Eftir það reið Egill heim til Borgar, og er hann kom heim, þá gekk hann þegar til lokrekkju þeirrar, er hann var vanur að sofa í; hann lagðist niður og skaut fyrir loku. Engi þorði að krefja hann máls.

En svo er sagt, þá er þeir settu Böðvar niður, að Egill var búinn: hosan var strengd fast að beini; hann hafði fustanskyrtil rauðan, þröngvan upphlutinn og lás að síðu; en það er sögn manna, að hann þrútnaði svo, að kyrtillinn rifnaði af honum og svo hosurnar.

En eftir um daginn lét Egill ekki upp lokrekkjuna; hann hafði þá og engan mat né drykk; lá hann þar þann dag og nóttina eftir. Engi maður þorði að mæla við hann.

En hinn þriðja morgun, þegar er lýsti, þá lét Ásgerður skjóta hesti undir mann -- reið sá sem ákaflegast vestur í Hjarðarholt -- og lét segja Þorgerði þessi tíðindi öll saman, og var það um nónskeið, er hann kom þar. Hann sagði og það með, að Ásgerður hafði sent henni orð að koma sem fyrst suður til Borgar.

Þorgerður lét þegar söðla sér hest, og fylgdu henni tveir menn; riðu þau um kveldið og nóttina, til þess er þau komu til Borgar; gekk Þorgerður þegar inn í eldahús. Ásgerður heilsaði henni og spurði, hvort þau hefðu náttverð etið.

Þorgerður segir hátt: "Engan hefi eg náttverð haft, og engan mun eg fyrr en að Freyju; kann eg mér eigi betri ráð en faðir minn; vil eg ekki lifa eftir föður minn og bróður."

Hún gekk að lokhvílunni og kallaði: "Faðir, lúk upp hurðinni, vil eg, að við förum eina leið bæði."

Egill spretti frá lokunni; gekk Þorgerður upp í hvílugólfið og lét loku fyrir hurðina; lagðist hún niður í aðra rekkju, er þar var.

Þá mælti Egill: "Vel gerðir þú, dóttir, er þú vilt fylgja föður þínum; mikla ást hefir þú sýnt við mig. Hver von er, að eg muni lifa vilja við harm þenna?"

Síðan þögðu þau um hríð.

Þá mælti Egill: "Hvað er nú, dóttir, tyggur þú nú nokkuð?"

"Tygg eg söl," segir hún, "því að eg ætla, að mér muni þá verra en áður; ætla eg ella, að eg muni of lengi lifa."

"Er það illt manni?" segir Egill.

"Allillt," segir hún, "viltu eta?"

"Hvað mun varða?" segir hann.

En stundu síðar kallaði hún og bað gefa sér drekka; síðan var henni gefið vatn að drekka.

Þá mælti Egill: "Slíkt gerir að, er sölin etur, þyrstir æ þess að meir."

"Viltu drekka, faðir?" segir hún.

Hann tók við og svalg stórum, og var það í dýrshorni. Þá mælti Þorgerður: "Nú erum við vélt; þetta er mjólk."

Þá beit Egill skarð úr horninu, allt það er tennur tóku, og kastaði horninu síðan.

Þá mælti Þorgerður: "Hvað skulum við nú til ráðs taka? Lokið er nú þessi ætlan. Nú vildi eg, faðir, að við lengdum líf okkar, svo að þú mættir yrkja erfikvæði eftir Böðvar, en eg mun rísta á kefli, en síðan deyjum við, ef okkur sýnist. Seint ætla eg Þorstein, son þinn, yrkja kvæðið eftir Böðvar, en það hlýðir eigi, að hann sé eigi erfður, því að eigi ætla eg okkur sitja að drykkjunni þeirri, að hann er erfður."

Egill segir, að það var þá óvænt, að hann myndi þá yrkja mega, þótt hann leitaði við, - "en freista má eg þess," segir hann.

Egill hafði þá átt son, er Gunnar hét, og hafði sá og andast litlu áður. Og er þetta upphaf kvæðis:


Mjök erum tregt
tungu at hræra
eða loptvætt
ljóðpundara;
esa nú vænligt
of Viðurs þýfi
né hógdrægt
ór hugar fylgsni.


Esa auðþeystr
þvít ekki veldr
höfugligr,
ór hyggju stað
fagnafundr
Friggjar niðja,
ár borinn
ór Jötunheimum,


lastalauss
es lifnaði
á Nökkvers
nökkva bragi.
Jötuns hals
undir þjóta
Náins niðr
fyr naustdyrum.


Þvít ætt mín
á enda stendr,
hræbarnir
sem hlynir marka;
esa karskr maðr
sás köggla berr
frænda hrörs
af fletjum niðr.


Þó munk mitt
ok móður hrör
föður fall
fyrst of telja,
þat berk út
ór orðhofi
mærðar timbr
máli laufgat.


Grimmt vörum hlið,
þats hrönn of braut
föður míns
á frændgarði;
veitk ófullt
ok opit standa
sonar skarð,
es mér sær of vann.


Mjök hefr Rán
ryskt um mik,
emk ofsnauðr
at ástvinum;
sleit marr bönd
minnar ættar,
snaran þátt
af sjölfum mér.


Veist, ef þá sök
sverði of rækak,
vas ölsmiðr
allra tíma;
hroða vágs bræðr,
ef vega mættak,
fórk andvígr
ok Ægis mani.


En ek ekki
eiga þóttumk
sakar afl
við sonar bana,
þvít alþjóð
fyr augum verðr
gamals þegns
gengileysi.


Mik hefr marr
miklu ræntan,
grimmt es fall
frænda at telja;
síðan's minn
á munvega
ættar skjöldr
aflífi hvarf.


Veitk þat sjalfr,
at í syni mínum
vasa ills þegns
efni vaxit,
ef sá randviðr
röskvask næði,
uns Hergauts
hendr of tæki.


Æ lét flest
þats faðir mælti,
þótt öll þjóð
annat segði,
mér upp helt
of verbergi
ok mitt afl
mest of studdi.


Opt kömr mér
mána bjarnar
í byrvind
bræðraleysi,
hyggjumk um,
es hildr þróask,
nýsumk hins
ok hygg at því,


hverr mér hugaðr
á hlið standi
annarr þegn
við óðræði;
þarfk þess opt
of þvergörum;
verðk varfleygr,
es vinir þverra.


Mjök es torfyndr,
sás trúa knegum
of alþjóð
Elgjar galga,
þvít niflgóðr
niðja steypir
bróður hrör
við baugum selr.


Finn ek þat opt,
es féar beiðir ...


Þat's ok mælt,
at engi geti
sonar iðgjöld
nema sjalfr ali
enn þann nið,
es öðrum sé
borinn maðr
í bróður stað.


Erumka þekkt
þjóða sinni,
þótt sér hverr
sátt of haldi;
burr's Bileygs
í bæ kominn,
kvánar sonr,
kynnis leita.


En mér fens
í föstum þokk
hrosta hilmir
á hendi stendr;
máka'k upp
jörðu grímu,
rýnnis-reið,
réttri halda,


sís son minn
sóttar brími
heiptugligr
ór heimi nam,
þanns ek veit
at varnaði
vamma varr
við vámæli.


Þat mank enn,
es upp of hóf
í goðheim
Gauta spjalli
ættar ask,
þanns óx af mér,
ok kynvið
kvánar minnar.


Áttak gótt
við geirs dróttin,
gerðumk tryggr
at trúa hánum,
áðr vinan
vagna rúni,
sigrhöfundr,
of sleit við mik.


Blætka því
bróður Vílis
goðjaðar,
at gjarn séak,
þó hefr Míms vinr
mér of fengnar
bölva bætr,
ef et betra telk.


Göfumk íþrótt
ulfs of bági
vígi vanr
vammi firrða
ok þat geð,
es ek gerða mér
vísa fjandr
af vélöndum.


Nú erum torvelt:
Tveggja bága
njörva nipt
á nesi stendr;
skalt þá glaðr
með góðan vilja
ok óhryggr
heljar bíða.

Egill tók að hressast, svo sem fram leið að yrkja kvæðið, og er lokið var kvæðinu, þá færði hann það Ásgerði og Þorgerði og hjónum sínum; reis hann þá upp úr rekkju og settist í öndvegi; kvæði þetta kallaði hann Sonatorrek. Síðan lét Egill erfa sonu sína eftir fornri siðvenju. En er Þorgerður fór heim, þá leiddi Egill hana með gjöfum í brott.

80. kafli

Egill bjó að Borg langa ævi og varð maður gamall, en ekki er getið, að hann ætti málaferli við menn hér á landi; ekki er og sagt frá hólmgöngum hans eða vígaferlum, síðan er hann staðfestist hér á Íslandi.

Svo segja menn, að Egill færi ekki í brott af Íslandi, síðan er þetta var tíðinda, er nú var áður frá sagt, og bar það mest til þess, að Egill mátti ekki vera í Noregi af þeim sökum, sem fyrr var frá sagt, að konungar þóttust eiga við hann. Bú hafði hann rausnarsamlegt, því að fé skorti eigi; hann hafði og gott skaplyndi til þess.

Hákon konungur Aðalsteinsfóstri réð fyrir Noregi langa stund, en hinn efra hluta ævi hans, þá komu synir Eiríks til Noregs og deildu til ríkis í Noregi við Hákon konung, og áttu þeir orustu saman, og hafði Hákon jafnan sigur. Hina síðustu orustu áttu þeir á Hörðalandi, í Storð á Fitjum; þar fékk Hákon konungur sigur og þar með banasár; eftir það tóku þeir konungdóm í Noregi Eiríkssynir.

Arinbjörn hersir var með Haraldi Eiríkssyni og gerðist ráðgjafi hans og hafði af honum veislur stórlega miklar; var hann forstjóri fyrir liði og landvörn; Arinbjörn var hermaður mikill og sigursæll; hann hafði að veislum Fjarðafylki.

Egill Skalla-Grímsson spurði þessi tíðindi, að konungaskipti var orðið í Noregi, og það með, að Arinbjörn var þá kominn í Noreg til búa sinna og hann var þá í virðing mikilli. Þá orti Egill kvæði um Arinbjörn, og er þetta upphaf að:


Emk hraðkvæðr
hilmi at mæra,
en glapmáll
of glöggvinga,
opinspjallr
of jöfurs dáðum,
en þagmælskr
of þjóðlygi,


skaupi gnægðr
skrökberöndum,
emk vilkvæðr
of vini mína;
sótt hefk mörg
mildinga sjöt
með grunlaust
grepps of æði.


Hafðak endr
Ynglings burar,
ríks konungs,
reiði fengna;
drók djarfhött
of dökkva skör,
létk hersi
heim of sóttan,


þars allvaldr
und ýgs hjalmi,
ljóðfrömuðr,
at landi sat;
stýrði konungr
við stirðan hug
í Jórvík
úrgum ströndum.


Vasa þat tunglskin
tryggt at líta
né ógnlaust
Eiríks bráa,
þás ormfránn
ennimáni
skein allvalds
ægigeislum.


Þó bólstrverð
of bera þorðak
maka hæings
markar dróttni,
svát Yggs full
ýranda kom
at hvers manns
hlusta munnum.


Né hamfagrt
hölðum þótti
skaldfé mitt
at skata húsum,
þás ulfgrátt
við Yggjar miði
hattar staup
at hilmi þák.


Við því tók,
en tvau fylgðu
sökk sámleit
síðra brúna
ok sá muðr,
es mína bar
höfuðlausn
fyr hilmis kné.


Þars tannfjölð
með tungu þák
ok hlertjöld
hlustum göfguð,
en sú gjöf
golli betri
hróðugs konungs
of heitin vas.


Þar stóð mér
mörgum betri
hoddfíöndum
á hlið aðra
tryggr vinr minn,
sás trúa knáttak,
heiðþróaðr
hverju ráði.


Arinbjörn,
es oss einn of hóf,
knía fremstr,
frá konungs fjónum,
vinr þjóðans,
es vættki ló
í herskás
hilmis garði.


Ok .....
... stuðli lét
margfrömuðr
minna dáða,
sem en ... að ...
... Halfdanar
at í væri
ættar skaði.


Munk vinþjófr
verða heitinn
ok váljúgr
at Viðurs fulli,
hróðrs örverðr
ok heitrofi,
nema þess gagns
gjöld of vinnak.


Nú's þat sét,
hvars setja skal
bratt stiginn
bragar fótum
fyr mannfjölð,
margra sjónir,
hróðr máttigs
hersa kundar.


Erum auðskæf
ómunlokri
magar Þóris
mærðar efni,
vinar míns,
þvít valið liggja
tvenn ok þrenn
á tungu mér.


Þat telk fyrst,
es flestr of veit
ok alþjóð
eyru sækir,
hvé mildgeðr
mönnum þótti
bjóða björn
birkis ótta.


Þat allsheri
at undri gefsk,
hvé hann urþjóð
auði gnægir,
en grjót-björn
of gæddan hefr
Freyr ok Njörðr
at féar afli.


En Hróalds
at höfuðbaðmi
auðs iðgnótt
at ölnum sifjar,
sér vinreið
af vegum öllum
á vindkers
víðum botni.


Hann drógseil
of eiga gat
sem hildingr
heyrnar spanna,
goðum ávarðr
með gumna fjölð,
vinr Véþorms,
veklinga tös.


Þat hann viðr,
es þrjóta mun
flesta menn,
þótt fé eigi;
kveðka skammt
meðal skata húsa
né auðskept
almanna spjör.


Gekk maðr engi
at Arinbjarnar
ór legvers
löngum knerri
háði leiddr
né heiptkviðum
með atgeirs
auðar toptir.


Hinn's fégrimmr,
es í Fjörðum býr,
sá's of dolgr
Draupnis niðja,
en sökunautr
Sónar hvinna,
hringum hættr,
hoddvegandi.


Hann aldrteig
of eiga gat
fjölsáinn
með friðar spjöllum.
...


Þat's órétt,
ef orpit hefr
á máskeið
mörgu gagni,
ramriðin
Rökkva stóði,
vellvönuðr,
þvís veitti mér.


Vask árvakr,
bark orð saman
með málþjóns
morginverkum,
hlóðk lofköst
þanns lengi stendr
óbrotgjarn
í bragar túni.

81. kafli

Einar hét maður; hann var sonur Helga Óttarssonar, Bjarnarsonar hins austræna, er nam lönd í Breiðafirði; Einar var bróðir Ósvífurs hins spaka. Einar var þegar á unga aldri mikill og sterkur og hinn mesti atgervimaður; hann tók að yrkja, þegar er hann var ungur, og var maður námgjarn.

Það var eitt sumar á alþingi, að Einar gekk til búðar Egils Skalla-Grímssonar, og tókust þeir að orðum, og kom þar brátt talinu, að þeir ræddu um skáldskap; þótti hvorumtveggja þær ræður skemmtilegar.

Síðan vandist Einar oftlega að ganga til tals við Egil; gerðist þar vinátta mikil. Einar hafði litlu áður komið út úr för. Egill spurði Einar mjög austan tíðinda og að vinum sínum, svo og að þeim, er hann þóttist vita, að óvinir hans voru; hann spurði og mjög eftir stórmenni. Einar spurði og í móti Egil að þeim tíðindum, er fyrr höfðu gerst um ferðir Egils og stórvirki hans, en það tal þótti Agli gott, og rættist af vel. Einar spurði Egil, hvar hann hefði þess verið staddur, að hann hafði mest reynt sig, og bað hann það segja sér. Egill kvað:


Börðumk einn við átta,
en við ellifu tysvar,
svá fengum val vargi,
varðk einn bani þeira;
skiptumsk hart af heiptum
hlífar skelfiknífum;
létk af Emblu aski
eld valbasta kastat.

Þeir Egill og Einar mæltu til vináttu með sér að skilnaði. Einar var löngum utanlendis með tignum mönnum; Einar var ör maður og oftast félítill, en skörungur mikill og drengur góður; hann var hirðmaður Hákonar jarls Sigurðarsonar.

Í þann tíma var í Noregi ófriður mikill og bardagar með þeim Hákoni jarli og Eiríkssonum, og stukku ýmsir úr landi. Haraldur konungur Eiríksson féll suður í Danmörk, að Hálsi í Limafirði, og var hann svikinn; þá barðist hann við Harald Knútsson, er kallaður var Gull-Haraldur, og þá Hákon jarl.

Þar féll og þá með Haraldi konungi Arinbjörn hersir, er fyrr var frá sagt. Og er Egill spurði fall Arinbjarnar, þá kvað hann:


Þverra nú, þeirs þverrðu,
þingbirtingar Ingva,
hvar skalk manna mildra,
mjaðveitar dag, leita,
þeira's hauks fyr handan
háfjöll digulsnjávi
jarðar gjörð við orðum
eyneglda mér hegldu.

Einar Helgason skáld var kallaður skálaglamm; hann orti drápu um Hákon jarl, er kölluð er Vellekla, og var það mjög lengi, að jarlinn vildi eigi hlýða kvæðinu, því að hann var reiður Einari. Þá kvað Einar:

Gerðak veig um virða
vörð, þanns sitr at jörðu,
iðrumk þess, meðan aðrir,
örr Váfaðar, sváfu;
hykk, at hodda stökkvi,
hinig sóttak gram, þótti,
fýsinn, fræknum vísa,
ferri, skald in verra.

Og enn kvað hann:


Sækjum jarl, þanns auka
ulfs verð þorir sverðum;
skipum borðróinn barða
baugskjöldum Sigvalda;
drepr eigi sá sveigir
sárlinns, es gram finnum,
rönd berum út á andra
Endils, við mér hendi.

Jarlinn vildi eigi, að Einar færi á brott, og hlýddi þá kvæðinu, og síðan gaf hann Einari skjöld, og var hann hin mesta gersemi; hann var skrifaður fornsögum, en allt milli skriftanna voru lagðar yfir spengur af gulli, og settur steinum. Einar fór til Íslands og til vistar með Ósvífi, bróður sínum.

En um haustið reið Einar vestan og kom til Borgar og gisti þar. Egill var þá eigi heima, og var hann farinn norður til héraða, og var hans þá heim von. Einar beið hans þrjár nætur, en það var engi siður að sitja lengur en þrjár nætur að kynni. Bjóst Einar þá í brott, og er hann var búinn, þá gekk hann til rúms Egils og festi þar upp skjöldinn þann hinn dýra og sagði heimamönnum, að hann gaf Agli skjöldinn.

Síðan reið Einar í brott, en þann sama dag kom Egill heim; en er hann kom inn til rúms síns, þá sá hann skjöldinn og spurði, hver gersemi þá ætti; honum var sagt, að Einar skálaglamm hafði þar komið og hann hafði gefið honum skjöldinn.

Þá mælti Egill: "Gefi hann allra manna armastur! Ætlar hann, að eg skyli þar vaka yfir og yrkja um skjöld hans? Nú takið hest minn. Skal eg ríða eftir honum og drepa hann."

Honum var þá sagt, að Einar hafði riðið snemma um morguninn -- "mun hann nú kominn vestur til Dala."

Síðan orti Egill drápu, og er þetta upphaf að:


Mál es lofs at lýsa
ljósgarð, es þák, barða,
mér kom heim at hendi
hoddsendis boð, enda;
skalat at grundar Gylfa
glaums misfengnir taumar,
hlýðið ér til orða,
erðgróins mér verða.

Egill og Einar héldu vináttu sinni, meðan þeir lifðu báðir. En svo er sagt, að færi skjöldurinn um síðir, að Egill hafði hann með sér í brúðför þá, er hann fór norður á Víðimýri með Þorkatli Gunnvaldssyni og þeir Rauða-Bjarnarsynir, Trefill og Helgi; þá var spillt skildinum og kastað í sýruker; en síðan lét Egill taka af búnaðinn, og voru tólf aurar gulls í spöngunum.

82. kafli

Þorsteinn, sonur Egils, þá er hann óx upp, var allra manna fríðastur sýnum, hvítur á hár og bjartur álitum; hann var mikill og sterkur, og þó ekki eftir því sem faðir hans. Þorsteinn var vitur maður og kyrrlátur, hógvær, stilltur manna best; Egill unni honum lítið; Þorsteinn var og ekki við hann ástúðugur, en þau Ásgerður og Þorsteinn unnust mikið. Egill tók þá að eldast mjög.

Það var eitthvert sumar, er Þorsteinn reið til alþingis, en Egill sat þá heima; en áður Þorsteinn færi heiman, stilltu þau Ásgerður um og tóku úr kistu Egils silkislæður, Arinbjarnarnauta, og hafði Þorsteinn til þings. Og er hann hafði á þinginu, þá voru honum dragsíðar og urðu saurgar neðan, þá er þeir voru í Lögbergsgöngu. Og er hann kom heim, þá hirti Ásgerður slæðurnar, þar sem áður voru; en mjög miklu síðar, þá er Egill lauk upp kistu sína, þá fann hann, að spillt var slæðunum, og leitaði þá máls um við Ásgerði, hverju það gegndi; hún sagði þá hið sanna til. Þá kvað Egill:


Áttak erfinytja,
arfa mér til þarfan,
mik hefr sonr of svikvinn,
svik telk í því, kvikvan;
vel mátti þess vatna
viggríðandi bíða,
es hafskíða hlæði
hljótendr of mik grjóti.

Þorsteinn fékk Jófríðar, dóttur Gunnars Hlífarsonar; móðir hennar var Helga, dóttir Ólafs feilans, systir Þórðar gellis; Jófríði hafði átt fyrr Þóroddur, sonur Tungu-Odds.

Litlu eftir þetta andaðist Ásgerður. Eftir það brá Egill búi og seldi í hendur Þorsteini, en Egill fór þá suður til Mosfells til Gríms, mágs síns, því að hann unni mest Þórdísi, stjúpdóttur sinni, þeirra manna, er þá voru á lífi.

Það var eitt sumar, að skip kom út í Leiruvogi, og stýrði sá maður, er Þormóður hét; hann var norrænn og húskarl Þorsteins Þórusonar; hann hafði með að fara skjöld, er Þorsteinn hafði sent Agli Skalla-Grímssyni, og var það ágætagripur. Þormóður færði Agli skjöldinn, en hann tók við þakksamlega; eftir um veturinn orti Egill drápu um skjaldargjöfina, er kölluð er Berudrápa, og er þetta upphaf að:


Heyri fúrs á forsa
fallhadds vinar stalla,
hyggi, þegn, til þagnar
þínn lýðr, konungs, mína;
opt skal arnar kjapta
örð góð of tröð Hörða,
hrafnstýrandi hræra
hregna, mín of fregnask.

Þorsteinn Egilsson bjó að Borg; hann átti tvo laungetna sonu, Hriflu og Hrafn, en síðan hann kvongaðist, áttu þau Jófríður tíu börn; Helga hin fagra var þeirra dóttir, er þeir deildu um Skáld-Hrafn og Gunnlaugur ormstunga. Grímur var elstur sona þeirra, annar Skúli, þriðji Þorgeir, fjórði Kollsveinn, fimmti Hjörleifur, sjötti Halli, sjöundi Egill, átti Þórður; Þóra hét dóttir þeirra, er átti Þormóður Kleppjárnsson. Frá börnum Þorsteins er komin kynslóð mikil og margt stórmenni; það er kallað Mýramannakyn, allt það, er frá Skalla-Grími er komið.

83. kafli

Önundur sjóni bjó að Ánabrekku, þá er Egill bjó að Borg; Önundur sjóni átti Þorgerði, dóttur Bjarnar hins digra af Snæfellsströnd; börn þeirra Önundar voru þau Steinar og Dalla, er átti Ögmundur Galtason, þeirra synir Þorgils og Kormákur. Og er Önundur gerðist gamall og sýndur lítt, þá seldi hann af hendi bú; tók þá við Steinar, sonur hans. Þeir feðgar áttu auð fjár. Steinar var allra manna mestur og rammur að afli, ljótur maður, bjúgur í vexti, fóthár og miðskammur; Steinar var uppivöðslumaður mikill og ákafamaður, ódæll og harðfengur, hinn mesti kappsmaður.

Og er Þorsteinn Egilsson bjó að Borg, þá gerðist þegar fátt um með þeim Steinari. Fyrir sunnan Háfslæk liggur mýrr, er heitir Stakksmýrr; standa þar yfir vötn á vetrinn, en á vorið, er ísa leysir, þá er þar útbeit svo góð nautum, að það var kallað jafnt og stakkur töðu. Háfslækur réð þar landamerkum að fornu fari; en á vorum gengu naut Steinars mjög á Stakksmýri, er þau voru rekin utan að Háfslæk, en húskarlar Þorsteins vönduðu um. Steinar gaf að því engan gaum, og fór svo fram hið fyrsta sumar, að ekki varð til tíðinda.

En annað vor, þá hélt Steinar beitinni, en Þorsteinn lagði þá í umræðu við hann og ræddi þó stillilega; bað hann Steinar halda beit búfjár síns, svo sem að fornu hafði verið. Steinar segir, að fé myndi ganga þar sem það vildi; hann ræddi um allt heldur festilega, og skiptust þeir Þorsteinn við nokkurum orðum. Síðan lét Þorsteinn hnekkja nautunum út á mýrar yfir Háfslæk, og er Steinar varð þess var, þá fékk hann til Grana, þræl sinn, að sitja að nautunum á Stakksmýri, og sat hann þar alla daga; þetta var hinn efra hlut sumars; beittust þá upp allar engjar fyrir sunnan Háfslæk.

Nú var það einn dag, að Þorsteinn hafði gengið upp á borg að sjást um; hann sá, hvar naut Steinars fóru; hann gekk út á mýrar; það var síð dags; hann sá, að nautin voru þá komin langt út í holtasundið. Þorsteinn rann út um mýrarnar, og er Grani sá það, þá rak hann nautin óvægilega, til þess er þau komu á stöðul. Þorsteinn kom þá eftir, og hittust þeir Grani í garðshliðinu; Þorsteinn vó hann þar; það heitir Granahlið síðan; það er á túngarðinum; Þorsteinn hratt garðinum ofan á Grana og huldi svo hræ hans. Síðan fór Þorsteinn heim til Borgar, en konur þær, er til stöðuls fóru, fundu Grana, þar er hann lá; eftir það fóru þær heim til húss og sögðu Steinari þessi tíðindi. Steinar leiddi hann uppi í holtunum, síðan fékk Steinar til annan þræl að fylgja nautunum, og er sá eigi nefndur. Þorsteinn lét þá sem hann vissi eigi um beit, það sem eftir var sumarsins.

Það varð til tíðinda, að Steinar fór hinn fyrra hlut vetrar út á Snæfellsströnd og dvaldist þar um hríð. Steinar sá þá þræl, er Þrándur hét; hann var allra manna mestur og sterkastur. Steinar falaði þræl þann og bauð til verð mikið, en sá, er átti þrælinn, mat hann fyrir þrjár merkur silfurs og mat hann hálfu dýrra en meðalþræl, og var það kaup þeirra. Hann hafði Þránd með sér heim.

Og er þeir komu heim, þá ræðir Steinar við Þránd: "Nú er svo til farið, að eg vil hafa verknað af þér; er hér skipað áður til verka allra. Nú mun eg verk fyrir þig leggja, er þér er lítið erfiði í. Þú skalt sitja að nautum mínum; þykir mér það miklu skipta, að þeim sé vel til haga haldið; vil eg, að þú hafir þar engis manns hóf við nema þitt, hvar hagi er bestur á mýrum; má eg eigi á manni sjá, ef þú hefir eigi til þess hug eða afl að halda til fulls við einn hvern húskarl Þorsteins."

Steinar seldi í hendur Þrándi öxi mikla, nær álnar fyrir munn, og var hún hárhvöss. "Svo líst mér á þig, Þrándur," segir Steinar, "sem eigi sé sýnt, hversu mikils þú metur goðorð Þorsteins, ef þið sjáist tveir á."

Þrándur svarar: "Engan vanda ætla eg mér á við Þorstein, en skilja þykist eg, hvert verk þú hefir fyrir mig lagt; muntu þykjast litlu til verja, þar sem eg er; en eg ætla mér vera góðan kost, hvor sem upp kemur, ef við Þorsteinn skulum reyna með okkur."

Síðan tók Þrándur til nautagæslu; honum hafði það skilist, þótt hann hefði eigi lengi verið, hvert Steinar hafði nautum sínum látið halda, og sat Þrándur að nautum á Stakksmýri.

Og er Þorsteinn varð þess var, þá sendi hann húskarl sinn til fundar við Þránd og bað segja honum landamerki með þeim Steinari; og er húskarl hitti Þránd, þá sagði hann honum erindi sín og bað hann halda nautunum annan veg, sagði, að það var land Þorsteins Egilssonar, er nautin voru þá í komin.

Þrándur segir: "Það hirði eg aldri, hvor þeirra land á; mun eg naut hafa þar, sem mér þykir hagi bestur."

Síðan skildust þeir. Fór húskarl heim og segir Þorsteini svör þrælsins. Þorsteinn lét þá kyrrt vera, en Þrándur tók þá að sitja að nautum nætur og daga.

84. kafli

Þorsteinn stóð upp einn morgun við sól og gekk upp á borg; hann sá, hvar naut Steinars voru; síðan gekk Þorsteinn út á mýrar, til þess er hann kom til nautanna. Þar stendur skógarklettur við Háfslæk, en uppi á klettinum svaf Þrándur og hafði leyst af sér skúa sína; Þorsteinn gekk upp á klettinn og hafði öxi í hendi ekki mikla og engi fleiri vopn. Þorsteinn stakk öxarskaftinu á Þrándi og bað hann vaka; hann spratt upp skjótt og hart og greip tveim höndum öxina og reiddi upp; hann spurði, hvað Þorsteinn vildi.

Hann segir: "Eg vil segja þér, að eg á land þetta, en þér eigið hagabeit fyrir utan lækinn. Er það eigi undarlegt, þóttú vitir eigi landamerki hér."

Þrándur segir: "Engu þykir mér skipta, hver land á; mun eg þar láta naut vera, er þeim þykir best."

"Hitt er líklegra," segir Þorsteinn, "að eg muni nú ráða vilja fyrir landi mínu, en eigi þrælar Steinars."

Þrándur segir: "Miklu ertu, Þorsteinn, óvitrari maður en eg hugði, ef þú vilt eiga náttból undir öxi minni og hætta til þess virðingu þinni. Mér sýnist, að ætla til, sem eg muni hafa tvö öfl þín, en mig skortir eigi hug; eg er og vopnaður betur en þú."

Þorsteinn mælti: "Á þá hættu mun eg leggja, ef þú gerir eigi að um beitina. Vænti eg, að mikið skilji hamingju okkra, svo sem málaefni eru ójöfn."

Þrándur segir: "Nú skaltu sjá, Þorsteinn, hvort eg hræðist nokkuð hót þín."

Síðan settist Þrándur niður og batt skó sinn, en Þorsteinn reiddi upp öxina hart og hjó á háls Þrándi, svo að höfuðið féll á bringuna; síðan bar Þorsteinn grjót að honum og huldi hræ hans, gekk síðan heim til Borgar.

En þann dag komu seint heim naut Steinars, og er þrotin von þótti þess, þá tók Steinar hest sinn og lagði á söðul; hann hafði alvæpni sitt. Hann reið suður til Borgar, og er hann kom þar, hitti hann menn að máli; hann spurði, hvar Þorsteinn væri; honum var sagt, að hann sat inni. Þá bað Steinar, að Þorsteinn kæmi út, kvaðst eiga erindi við hann; og er Þorsteinn heyrði þetta, tók hann vopn sín og gekk út í dyr. Síðan spurði hann Steinar, hver erindi hans væru.

"Hefir þú drepið Þránd, þræl minn?" segir Steinar.

"Svo er víst," segir Þorsteinn, "þarftu það ekki öðrum mönnum að ætla."

"Þá sé eg, að þú munt þykjast harðhendlega verja land þitt, er þú hefir drepið þræla mína tvo; en mér þykir það ekki svo mikið framaverk. Nú mun eg gera þér á þessu miklu betra kost, ef þú vilt með kappi verja landið þitt, og skal ekki öðrum mönnum nú að hlíta að reka nautin, en vita skaltu það að nautin skulu bæði dag og nótt í þínu landi vera."

"Svo er," segir Þorsteinn, "að eg drap fyrr í sumar þræl þinn, þann er þú fékkst til að beita nautunum í land mitt, en síðan lét eg yður hafa beit, sem þér vilduð, allt til vetrar. Nú hefi eg drepið annan þræl þinn fyrir þér; gaf eg þessum hina sömu sök sem hinum fyrra. Nú skaltu hafa beit héðan í frá í sumar, sem þú vilt, en að sumri, ef þú beitir land mitt og færð menn til þess að reka hingað fé þitt, þá mun eg enn drepa fyrir þér einn hvern mann, þann er fénu fylgir, svo þó að þú fylgir sjálfur. Mun eg svo gera á hverju sumri, meðan þú heldur teknum hætti um beitina."

Síðan reið Steinar í brott og heim til Brekku, og litlu síðar reið Steinar upp í Stafaholt. Þar bjó þá Einar; hann var goðorðsmaður; Steinar bað hann liðs og bauð honum fé til.

Einar segir: "Þig mun litlu skipta um mína liðsemd, nema fleiri virðingamenn veiti að þessu máli."

Eftir það reið Steinar upp í Reykjardal á fund Tungu-Odds og bað hann liðs og bauð honum fé til; Oddur tók við fénu og hét liðveislu sinni, að hann skyldi efla Steinar að koma fram lögum við Þorstein. Steinar reið síðan heim.

En um vorið fóru þeir Oddur og Einar með Steinari stefnuför og höfðu fjölmenni mikið; stefndi Steinar Þorsteini um þræladráp og lét varða fjörbaugsgarð um hvort vígið, því að það voru lög, þar er þrælar voru drepnir fyrir manni, enda væru eigi færð þrælsgjöldin fyrir hina þriðju sól; en jafnt skyldu metast tvær fjörbaugssakar og ein skóggangssök.

Þorsteinn stefndi engum sökum í mót, og litlu síðar sendi Þorsteinn menn suður á Nes; komu þeir til Mosfells til Gríms og sögðu þar þessi tíðindi. Egill lét sér fátt um finnast og spurði þó að í hljóði vandlega um skipti þeirra Þorsteins og Steinars og svo að þeim mönnum, er Steinar höfðu styrkt til þessa máls; síðan fóru sendimenn heim, og lét Þorsteinn vel yfir þeirra ferð.

Þorteinn Egilsson fjölmennti mjög til vorþings og kom þar nótt fyrr en aðrir menn, og tjölduðu búðir sínar, og þingmenn hans, er þar áttu búðir. Og er þeir höfðu um búist, þá lét Þorsteinn ganga til þingmannalið sitt, og gerðu þar búðarveggi mikla. Síðan lét hann búð tjalda miklu meiri en aðrar búðir, þær er þar voru; í þeirri búð voru engir menn.

Steinar reið til þings og fjölmennti mjög; þar réð Tungu-Oddur fyrir liði og var allfjölmennur; Einar úr Stafaholti var og fjölmennur; tjölduðu þeir búðir sínar; var þingið fjölmennt; fluttu menn fram mál sín. Þorsteinn bauð engar sættir fyrir sig, en svaraði því þeim mönnum, er um sættir leituðu, að hann ætlaði að láta dóms bíða, sagði, að honum þóttu mál lítils verð, þau er Steinar fór með um dráp þærla hans, en taldi þræla Steinars hafa nógar sakar til gert. Steinar lét stórlega yfir málum sínum; þóttu honum sakar löglegar, en liðsafli nógur að koma lögum fram; var hann því framgjarn um sín mál.

Þann dag gengu menn í þingbrekku, og mæltu menn málum sínum, en um kveldið skyldu dómar út fara til sóknar; var Þorsteinn þar með flokk sinn; hann réð þar þingsköpum mest, því að svo hafði verið, meðan Egill fór með goðorð og mannaforráð. Þeir höfðu hvorirtveggju alvæpni.

Menn sáu af þinginu, að flokkur manna reið neðan með Gljúfurá, og blikuðu þar skildir við; og er þeir riðu á þingið, þá reið þar maður fyrir í blárri kápu, hafði hjálm á höfði gullroðinn, en skjöld á hlið gullbúinn, í hendi krókaspjót, var þar gullrekinn falurinn; hann var sverði gyrður. Þar var kominn Egill Skalla-Grímsson með átta tigu manna, alla vel vopnaða, svo sem til bardaga væru búnir; það lið var valið mjög; hafði Egill haft með sér hina bestu bóndasonu af Nesjum sunnan, þá er honum þóttu víglegastir. Egill reið með flokkinn til búðar þeirrar, er Þorsteinn hafði tjalda látið og áður var auð; stigu þeir af hestum sínum.

Og er Þorsteinn kenndi ferð föður síns, þá gekk hann í móti honum með allan flokk sinn og fagnaði honum vel; létu þeir Egill bera inn fargervi sína í búð, en reka hesta í haga. Og er þetta var sýslað, gekk Egill og Þorsteinn með flokkinn allan upp í þingbrekku og settust, þar sem þeir voru vanir að sitja.

Síðan stóð Egill upp og mælti hátt: "Hvort er Önundur sjóni hér í þingbrekkunni?"

Önundur kvaðst þar vera -- "eg er feginn orðinn, Egill, er þú ert kominn. Mun það allt bæta til um það, er hér stendur milli máls manna."

"Hvort ræður þú því, er Steinar, sonur þinn, sækir sökum Þorstein, son minn, og hefir dregið saman fjölmenni til þess að gera Þorstein að urðarmanni?"

"Því veld eg eigi," segir Önundur, "er þeir eru ósáttir; hefi eg þar lagt til mörg orð og beðið Steinar sættast við Þorstein, því að mér hefir verið í hvern stað Þorsteinn, sonur þinn, sparari til ósæmdar, og veldur því sú hin forna ástvinátta, er með okkur hefir verið, Egill, síðan er við fæddumst hér upp samtýnis."

"Brátt mun það," segir Egill, "ljóst verða, hvort þú mælir þetta af alvöru eða af hégóma, þótt eg ætli það síður vera munu. Man eg þá daga, að hvorumtveggja okkrum mundi þykja ólíklegt, að við myndum sökum sækjast eða stilla eigi sonu okkra, að þeir fari eigi með fíflsku slíkri, sem eg heyri, að hér horfist til. Sýnist mér það ráð, meðan við erum á lífi og svo nær staddir deilu þeirra, að við tökum mál þetta undir okkur og setjum niður, en látum eigi þá Tungu-Odd og Einar etja saman sonum okkrum sem kapalhestum; látum þá hafa annað héðan í frá til févaxtar sér en taka á slíku."

Þá stóð Önundur upp og mælti: "Rétt segir þú, Egill, og það er okkur ófallið að vera á því þingi, er synir okkrir deila; skal okkur og aldri þá skömm henda að vera þeir vanskörungar að sætta þá eigi. Nú vil eg, Steinar, að þú seljir mér mál þessi í hendur og látir mig með fara sem mér líkar."

"Eigi veit eg það," segir Steinar, "hvort eg vil svo kasta niður málum mínum, því að eg hefi áður leitað mér liðsemdar af stórmenni; vil eg nú svo að einu lúka málum mínum, að það líki vel Oddi og Einari."

Síðan ræddu þeir Oddur og Steinar sín í milli; sagði Oddur svo: "Efna vil eg, Steinar, liðsemd við þig, þá er eg hét að veita þér til laga eða þeirra málalykta, er þú vilt taka þér til handa; muntu mest í ábyrgjast, hvernig mál þín eru til komin, ef Egill skal um dæma."

Þá mælti Önundur: "Ekki þarf eg að eiga þetta undir tungurótu Odds. Hefi eg af honum haft hvorki gott né illt, en Egill hefir margt stórvel gert til mín. Trúi eg honum miklu betur en öðrum, enda skal eg þessu ráða; mun þér það hæfa að hafa eigi alla oss í fangi þér; hefi eg enn hér til ráðið fyrir okkur, og skal enn svo vera."

"Ákafur ertu um þetta mál, faðir, en oft ætla eg, að við iðrumst þessa."

Síðan seldi Steinar í hendur Önundi málið, og skyldi hann þá sækja eða sættast á, svo sem lög kenndu til.

Og þegar er Önundur réð fyrir málum þessum, þá gekk hann til fundar við þá feðga, Þorstein og Egil.

Þá mælti Önundur: "Nú vil eg, Egill, að þú skapir einn og skerir um þessi mál, svo sem þú vilt, því að eg trúi þér best til að skipa þessum mínum málum og öllum öðrum."

Síðan tókust þeir Önundur og Þorsteinn í hendur og nefndu sér votta og það með vottnefnunni, að Egill Skalla-Grímsson skyldi einn gera um mál þessi, svo sem hann vill, allt óskorað, þar á þingi, og lauk svo þessum málum; gengu menn svo heim til búða. Þorsteinn lét leiða til búðar Egils þrjá yxn og lét höggva til þingnests honum.

Og er þeir Tungu-Oddur og Steinar komu heim til búðar, þá mælti Oddur: "Nú hefir þú, Steinar, og þið feðgar, ráðið fyrir lykt mála ykkarra. Nú telst eg úr laus við þig, Steinar, um liðveislu þá, er eg hét þér, því að svo var mælt með okkur, að eg skyldi veita þér svo, að þú kæmir málum þínum fram eða til þeirra lykta, er þér hugnaði, hvernig sem þér gefst sættargerð Egils."

Steinar segir, að Oddur hefur honum vel veitt og drengilega, og þeirra vinátta skal nú vera miklu betri en áður; "vil eg kalla, að þú sért úr laus við mig um það, er þú varst í bundinn."

Um kveldið fóru dómar út, og er ekki getið, að þar yrði til tíðinda.

85. kafli

Egill Skalla-Grímsson gekk í þingbrekku um daginn eftir og með honum Þorsteinn og allur flokkur þeirra; þar kom þá og Önundur og Steinar; Tungu-Oddur var og þar kominn og þeir Einar.

Og er menn höfðu þar mælt lögmálum sínum, þá stóð Egill upp og mælti svo: "Hvort eru þeir Steinar og Önundur feðgar hér, svo að þeir megi skilja mál mitt?"

Önundur segir, að þeir voru þar.

"Þá vil eg ljúka upp sættargerð milli þeirra Steinars og Þorsteins; hefi eg þar upp það mál, er Grímur, faðir minn, kom hingað til lands og nam hér öll lönd um Mýrar og víða hérað og tók sér bústað að Borg og ætlaði þar landeign til, en gaf vinum sínum landakosti þar út í frá, svo sem þeir byggðu síðan; hann gaf Ána bústað að Ánabrekku, þar sem Önundur og Steinar hafa hér til búið. Vitum vér það allir, Steinar, hvar landamerki eru milli Borgar og Ánabrekku, að þar ræður Háfslækur. Nú var eigi það, Steinar, að þú gerðir þér óvitandi að beita land Þorsteins og lagðir undir þig eign hans og ætlaðir, að hann myndi vera svo mikill ættleri, að hann myndi vera vilja ræningi þinn - því að þú, Steinar, og þið Önundur megið það vita, að Áni þá land að Grími, föður mínum - en Þorsteinn drap fyrir þér þræla tvo. Nú er það öllum mönnum auðsýnt, að þeir hafa fallið á verkum sínum, og eru þeir óbótamenn, og að heldur, þótt þeir væru frjálsir menn, þá væru þeir þó óbótamenn. En fyrir það, Steinar, er þú hugðist ræna mundu Þorstein, son minn, landeign sinni, þeirri er hann tók með mínu ráði og eg tók í arf eftir föður minn, þar fyrir skaltu láta laust þitt land að Ánabrekku og hafa eigi fyrir fé. Það skal og fylgja, að þú skalt eigi hafa bústað né vistafar hér í héraði fyrir sunnan Langá og vera brottu frá Ánabrekku, áður fardagar séu liðnir, en falla óheilagur fyrir öllum þeim mönnum, er Þorsteini vilja lið veita, þegar eftir fardaga, ef þú vilt eigi brott fara eða nokkurn hlut eigi halda, þann er eg hefi á lagt við þig."

En er Egill settist niður, þá nefndi Þorsteinn votta að gerð hans.

Þá mælti Önundur sjóni: "Það mun mál manna, Egill, að gerð sjá, er þú hefir gert og upp sagt, sé heldur skökk. Nú er það frá mér að segja, að eg hefi allan mig við lagt að skirra vandræðum þeirra, en héðan af skal eg ekki af spara, það er eg má gera til óþurftar Þorsteini."

"Hitt mun eg ætla," segir Egill, "að hlutur ykkar feðga mun æ því verri, er deildir vorar standa lengur. Hugði eg, Önundur, að þú myndir það vita, að eg hefi haldið hlut mínum fyrir þvílíkum svo mönnum sem þið eruð feðgar. En Oddur og Einar, er dregist hafa svo mjög til þessa máls, hafa hér af fengið skapnaðar virðing."

86. kafli

Þorgeir blundur var þar á þinginu, systursonur Egils, og hafði mikið lið veitt Þorsteini í þessum málum. Hann bað þá feðga gefa sér land nokkuð út þar á Mýrunum; hann bjó áður fyrir sunnan Hvítá, fyrir neðan Blundsvatn. Egill tók vel á því og fýsti Þorstein, að hann léti hann þangað fara; þeir settu Þorgeir niður að Ánabrekku, en Steinar færði bústað sinn út yfir Langá og settist niður að Leirulæk. En Egill reið heim suður á Nes, og skildust þeir með blíðskap feðgar.

Maður sá var með Þorsteini, er Íri hét, hverjum manni fóthvatari og allra manna skyggnastur; hann var útlendur og lausingi Þorsteins, en þó hafði hann fjárgæslur og þær mest að safna geldfé upp til fjalls á vorum, en á haust ofan til réttar. En nú eftir fardaga lét Þorsteinn safna geldfé því, er eftir hafði verið um vorið, og ætlaði að láta reka það til fjalls. Íri var þá í fjárréttinum, en Þorsteinn, og húskarlar hans, reið upp til fjalls, og voru þeir átta saman.

Þorsteinn lét gera garð um þvera Grísartungu milli Langavatns og Gljúfurár, lét hann þar að vera marga menn um vorið. Og er Þorsteinn hafði litið yfir verk húskarla sinna, þá reið hann heim, og er hann kom gegnt þingstöð, þá kom Íri þar hlaupandi í mót þeim og sagði, að hann vill mæla við Þorstein einmæli. Þorsteinn mælti, að förunautar hans skyldu ríða fyrir, meðan þeir töluðu.

Íri segir Þorsteini, að hann hefði farið upp á Einkunnir um daginn og séð til sauða -- "en eg sá," segir hann, "í skóginum fyrir ofan veturgötu, að skinu við tólf spjót og skildir nokkurir."

Þorsteinn segir hátt, svo að förunautar hans heyrðu svo beint: "Hví mun honum svo annt að hitta mig, að eg megi eigi ríða heim leiðar minnar, en þó mun Ölvaldi þykja ósannlegt, að eg synji honum máls, ef hann er sjúkur."

Íri hljóp þá, sem mest mátti hann, til fjalls upp.

Þorsteinn segir förunautum sín: "Lengja ætla eg nú leiðina, ef vér skulum fyrst ríða suður til Ölvaldsstaða. Ölvaldur sendi mér orð, að eg skyldi finna hann; mun honum þó eigi miklu þykja launaður uxinn, er hann gaf mér í fyrra haust, að eg hitti hann, ef honum þykir máli skipta."

Síðan riðu þeir Þorsteinn suður um mýrar fyrir ofan Stangarholt og svo suður til Gufuár og ofan með ánni reiðgötur. Og er hann kom niður frá Vatni, þá sáu þeir fyrir sunnan ána naut mörg og mann hjá; var þar húskarl Ölvalds. Spurði Þorsteinn, hvernig þar væri heilt; hann sagði, að þar var vel heilt og Ölvaldur var í skógi að viðarhöggvi.

"Þá skaltu," segir Þorsteinn, "segja honum, ef hann á við mig skylt erindi, að hann komi til Borgar, en eg mun nú ríða heim." Og svo gerði hann.

En það spurðist þó síðan, að Steinar Sjónason hafði þann sama dag setið uppi við Einkunnir með tólfta mann; Þorsteinn lét sem hann hefði ekki spurt, og var það kyrrt síðan.

87. kafli

Þorgeir er maður nefndur; hann var frændi Þorsteins og hinn mesti vinur; hann bjó í þenna tíma á Álftanesi; Þorgeir var vanur að hafa haustboð hvert haust. Þorgeir fór til fundar við Þorstein Egilsson og bauð honum til sín; Þorsteinn hét ferðinni, og fór Þorgeir heim.

En að ákveðnum degi bjóst Þorsteinn til farar, og voru þá fjórar vikur til vetrar; með Þorsteini fór Austmaður hans og húskarlar hans tveir. Grímur hét sonur Þorsteins; hann var þá tíu vetra og fór og með Þorsteini, og voru þeir fimm saman og riðu út til foss og þar yfir Langá, síðan út, sem leið lá, til Aurriðaár.

En fyrir utan ána var Steinar á verki og Önundur og húskarlar þeirra; og er þeir kenndu Þorstein, þá hljópu þeir til vopna sinna og síðan eftir þeim Þorsteini. Og er Þorsteinn sá eftirför Steinars, þá riðu þeir út af Langaholti; þar er hóll einn hár og óvíður; þar stíga þeir Þorsteinn af hestunum og sækja upp á hólinn. Þorsteinn mælti, að sveinninn Grímur skyldi fara í skóginn og verða eigi við staddur fundinn. Og þegar er þeir Steinar koma að hólnum, þá sækja þeir að þeim Þorsteini, og varð þar bardagi; þeir Steinar voru sex saman vaxnir menn, en hinn sjöundi sonur Steinars tíu vetra gamall. Þenna fund sáu þeir menn, er voru á engiteigum af öðrum bæjum, og runnu til að skilja þá. Og er þeir voru skildir, þá voru látnir húskarlar Þorsteins báðir; fallinn var og einn húskarl Steinars, en sárir sumir.

Og er þeir voru skildir, leitar Þorsteinn að, hvar Grímur var, og finna þeir hann; var Grímur þá sár mjög, og sonur Steinars lá þar hjá honum dauður.

Og er Þorsteinn hljóp á hest sinn, þá kallaði Steinar á hann og mælti: "Rennur þú nú, Þorsteinn hvíti?" segir hann.

Þorsteinn segir: "Lengra skaltu renna, áður vika sé liðin."

Síðan riðu þeir Þorsteinn út yfir mýrina og höfðu með sér sveininn Grím; og er þeir komu út í holt það, er þar verður, þá andast sveinninn, og grófu þeir hann þar í holtið, og er það kallað Grímsholt, en þar heitir Orustuhvoll, sem þeir börðust.

Þorsteinn reið á Álftanes um kveldið, sem hann hafði ætlað, og sat þar að boði þrjár nætur, en síðan bjóst hann til heimferðar; menn buðust til að fara með honum, en hann vildi eigi; riðu þeir tveir saman.

Og þann sama dag, er Steinar vissi von, að Þorsteinn myndi heim ríða, þá reið Steinar út með sjó. Og er hann kom á mela þá, er verða fyrir neðan Lambastaði, þá settist hann þar á melinn; hann hafði sverð það, er Skrýmir hét, allra vopna best; hann stóð þar á melnum með sverðið brugðið og horfði þá á einn veg, því að hann sá þá reið Þorsteins utan um sandinn.

Lambi bjó á Lambastöðum og sá, hvað Steinar hafðist að; hann gekk heiman og ofan á bakkann, og er hann kom að Steinari, þá greip hann aftan undir hendur honum. Steinar vildi slíta hann af sér. Lambi hélt fast, og fara þeir nú af melunum á sléttuna, en þá ríða þeir Þorsteinn hið neðra götuna. Steinar hafði riðið stóðhesti sínum, og hljóp hann inn með sjó; það sáu þeir Þorsteinn og undruðust, því að þeir höfðu ekki varir orðið við för Steinars. Þá þveraðist Steinar fram á bakkann, því að hann sá eigi, að Þorsteinn hefði um riðið. Og er þeir komu á bakkann framanverðan, þá hratt Lambi honum fyrir melinn ofan, en það varaðist Steinar ekki; hann rasaði ofan á sandinn, en Lambi hljóp heim. Og er Steinar komst á fætur, þá rann hann eftir Lamba; en er Lambi kom að dyrum, þá hljóp hann inn, en rak aftur hurðina. Steinar hjó eftir honum, svo að sverðið stóð fast í vindskeiðunum; skildust þeir þar; gekk Steinar heim.

En er Þorsteinn kom heim, þá sendi hann um daginn eftir húskarl sinn út til Leirulækjar að segja Steinari, að hann færði bústað sinn um Borgarhraun, en að öðrum kosti myndi hann njóta þess við Steinar, ef hann ætti fleira mannaforráð -- "og mun þá eigi kostur brottferðar."

En Steinar bjó ferð sína út á Snæfellsströnd, og þar setti hann bú saman, er heitir að Elliða, og lýkur þar viðskiptum þeirra Þorsteins Egilssonar.

Þorgeir blundur bjó að Ánabrekku; hann veitti Þorsteini illar búsifjar í öllu því, er hann mátti.

Það var eitt sinn, er þeir hittust Egill og Þorsteinn, að þeir ræddu margt um Þorgeir blund, frænda sinn, og komu allar ræður ásamt með þeim. Þá kvað Egill:

Spanðak jörð með orðum;
endr Steinari ór hendi;
ek þóttumk þá orka
arfa Geirs til þarfar;
mér brásk minnar systur
mögr; hétumk þá fögru;
máttit böls of bindask
Blundr, ek slíkt of undrumk.

Þorgeir blundur fór í brott frá Ánabrekku og fór suður í Flókadal, því að Þorsteinn þóttist ekki mega við hann eiga, en hann vildi þó vægjast þar við.

Þorsteinn var maður órefjusamur og réttlátur og óáleitinn við menn, en hélt hlut sínum, ef aðrir menn leituðu á hann, enda veitti það heldur þungt flestum að etja kappi við hann.

Oddur var þá höfðingi í Borgarfirði fyrir sunnan Hvítá; hann var hofsgoði og réð fyrir hofi því, er allir menn guldu hoftoll til fyrir innan Skarðsheiði.

88. kafli

Egill Skalla-Grímsson varð maður gamall, en í elli hans gerðist hann þungfær, og glapnaði honum bæði heyrn og sýn; hann gerðist og fótstirður. Egill var þá að Mosfelli með Grími og Þórdísi.

Það var einn dag, er Egill gekk úti með vegg og drap fæti og féll; konur nokkurar sáu það og hlógu að og mæltu: "Farinn ertu nú, Egill, með öllu, er þú fellur einn saman."

Þá segir Grímur bóndi: "Miður hæddu konur að okkur, þá er við vorum yngri."

Þá kvað Egill:


Vals hefk váfur helsis;
váfallr em ek skalla;
blautr erum bergis fótar
borr, en hlust es þorrin.

Egill varð með öllu sjónlaus. Það var einnhvern dag, er veður var kalt um veturinn, að Egill fór til elds að verma sig; matseljan ræddi um, að það var undur mikið, slíkur maður sem Egill hafði verið, að hann skyldi liggja fyrir fótum þeim, svo að þær mættu eigi vinna verk sín.

"Ver þú vel við," segir Egill, "þótt eg bakist við eldinn, og mýkjumst vér við um rúmin."

"Statt þú upp," segir hún, "og gakk til rúms þíns og lát oss vinna verk vor."

Egill stóð upp og gekk til rúms síns og kvað:


Hvarfak blindr of branda,
biðk eirar Syn geira,
þann berk harm á hvarma
hnitvöllum mér, sitja;
es jarðgöfugr orðum,
orð mín konungr forðum
hafði gramr at gamni,
Geirhamðis mik framði.

Það var enn eitt sinn, er Egill gekk til elds að verma sig, þá spurði maður hann, hvort honum væri kalt á fótum, og bað hann eigi rétta of nær eldinum.

"Svo skal vera," segir Egill, "en eigi verður mér nú hógstýrt fótunum, er eg sé eigi, og er of dauflegt sjónleysið."

Þá kvað Egill:


Langt þykki mér,
ligg einn saman,
karl afgamall,
á konungs vörnum;
eigum ekkjur
allkaldar tvær,
en þær konur
þurfu blossa.

Það var á dögum Hákonar hins ríka öndverðum, þá var Egill Skalla-Grímsson á níunda tugi, og var hann þá hress maður fyrir annars sakar en sjónleysis.

Það var um sumarið, er menn bjuggust til þings, þá beiddi Egill Grím að ríða til þings með honum; Grímur tók því seinlega.

Og er þau Grímur og Þórdís töluðust við, þá sagði Grímur henni, hvers Egill hafði beitt; "vil eg, að þú forvitnist, hvað undir mun búa bæn þessi."

Þórdís gekk til máls við Egil, frænda sinn; var þá mest gaman Egils að ræða við hana; og er hún hitti hann, þá spurði hún: "Er það satt, frændi, er þú vilt til þings ríða? Vildi eg, að þú segðir mér, hvað væri í ráðagerð þinni."

"Eg skal segja þér," kvað hann, "hvað eg hefi hugsað. eg ætla að hafa til þings með mér kistur þær tvær, er Aðalsteinn konungur gaf mér, er hvortveggja er full af ensku silfri. Ætla eg að láta bera kisturnar til Lögbergs, þá er þar er fjölmennast; síðan ætla eg að sá silfrinu, og þykir mér undarlegt, ef allir skipta vel sín í milli; ætla eg, að þar myndi vera þá hrundningar, eða pústrar, eða bærist að um síðir, að allur þingheimurinn berðist."

Þórdís segir: "Þetta þykir mér þjóðráð, og mun uppi, meðan landið er byggt."

Síðan gekk Þórdís til tals við Grím og sagði honum ráðagerð Egils.

"Það skal aldri verða, að hann komi þessu fram, svo miklum firnum."

Og er Egill kom á ræður við Grím um þingferðina, þá taldi Grímur það allt af, og sat Egill heima um þingið; eigi líkaði honum það vel; var hann heldur ófrýnn.

Að Mosfelli var höfð selför, og var Þórdís í seli um þingið.

Það var eitt kveld, þá er menn bjuggust til rekkna að Mosfelli, að Egill kallaði til sín þræla tvo, er Grímur átti; hann bað þá taka sér hest -- "vil eg fara til laugar."

Og er Egill var búinn, gekk hann út og hafði með sér silfurkistur sínar; hann steig á hest, fór síðan ofan eftir túninu fyrir brekku þá, er þar verður, er menn sáu síðast.

En um morguninn, er menn risu upp, þá sáu þeir, að Egill hvarflaði á holtinu fyrir austan garð og leiddi eftir sér hestinn; fara þeir þá til hans og fluttu hann heim.

En hvorki kom aftur síðan þrælarnir né kisturnar, og eru þar margar gátur á, hvar Egill hafi fólgið fé sitt. Fyrir austan garð að Mosfelli gengur gil ofan úr fjalli; en það hefir orðið þar til merkja, að í bráðaþeyjum er þar vatnfall mikið, en eftir það er vötnin hafa fram fallið, hafa fundist í gilinu enskir peningar; geta sumir menn þess, að Egill muni þar féð hafa fólgið. Fyrir neðan tún að Mosfelli eru fen stór og furðulega djúp; hafa það margir fyrir satt, að Egill muni þar hafa kastað í fé sínu. Fyrir sunnan ána eru laugar og þar skammt frá jarðholur stórar, og geta þess sumir, að Egill mundi þar hafa fólgið fé sitt, því að þangað er oftlega sénn haugaeldur. Egill sagði, að hann hefði drepið þræla Gríms, og svo það, að hann hafði fé sitt fólgið, en það sagði hann engum manni, hvar hann hefði fólgið.

Egill tók sótt eftir um haustið, þá er hann leiddi til bana. En er hann var andaður, þá lét Grímur færa Egil í klæði góð; síðan lét hann flytja hann ofan í Tjaldanes og gera þar haug, og var Egill þar í lagður og vopn hans og klæði.

89. kafli

Grímur að Mosfelli var skírður, þá er kristni var í lög leidd á Íslandi; hann lét þar kirkju gera. En það er sögn manna, að Þórdís hafi látið flytja Egil til kirkju, og er það til jartegna, að síðan er kirkja var gerð að Mosfelli, en ofan tekin að Hrísbrú sú kirkja, er Grímur hafði gera látið, þá var þar grafinn kirkjugarður. En undir altarisstaðnum, þá fundust mannabein; þau voru miklu meiri en annarra manna bein. Þykjast menn það vita af sögn gamalla manna, að mundu verið hafa bein Egils.

Þar var þá Skafti prestur Þórarinsson, vitur maður; hann tók upp hausinn Egils og setti á kirkjugarðinn; var hausinn undarlega mikill, en hitt þótti þó meir frá líkindum, hve þungur var; hausinn var allur báróttur utan svo sem hörpuskel. Þá vildi Skafti forvitnast um þykkleik haussins; tók hann þá handöxi vel mikla og reiddi annarri hendi sem harðast og laust hamrinum á hausinn og vildi brjóta, en þar sem á kom, hvítnaði hann, en ekki dalaði né sprakk, og má af slíku marka, að haus sá mundi ekki auðskaddur fyrir höggum smámennis, meðan svörður og hold fylgdi. Bein Egils voru lögð niður í utanverðum kirkjugarði að Mosfelli.

90. kafli

Þorsteinn Egilsson tók skírn, þá er kristni kom á Ísland, og lét kirkju gera að Borg; hann var maður trúfastur og vel siðaður; hann varð maður gamall og sóttdauður og var jarðaður að Borg að þeirri kirkju, er hann lét gera.

Frá Þorsteini er mikil ætt komin og margt stórmenni og skáld mörg, og er það Mýramannakyn og svo allt það, er komið er frá Skalla-Grími. Lengi hélst það í ætt þeirri, að menn voru sterkir og vígamenn miklir, en sumir spakir að viti. Það var sundurleitt mjög, því að í þeirri ætt hafa fæðst þeir menn, er fríðastir hafa verið á Íslandi, sem var Þorsteinn Egilsson og Kjartan Ólafsson, systursonur Þorsteins, og Hallur Guðmundarson, svo og Helga hin fagra, dóttir Þorsteins, er þeir deildu um Gunnlaugur ormstunga og Skáld-Hrafn; en fleiri voru Mýramenn manna ljótastir.

Þorgeir, sonur Þorsteins, var þeirra sterkastur bræðra, en Skúli var mestur; hann bjó að Borg eftir dag Þorsteins, föður síns. Skúli var lengi í víking; hann var stafnbúi Eiríks jarls á Járnbarðanum, þá er Ólafur konungur Tryggvason féll; Skúli hafði átt í víking sjö orustur.

Words in saga: 62243

approx. location of saga

Overview of distribution of stanzas by chapter

ch.stanzas
1 (456 words)
2 (96 words)
3 (612 words)
4 (543 words)
5 (467 words)
6 (456 words)
7 (575 words)
8 (787 words)
9 (1279 words)
10 (266 words)
11 (323 words)
12 (978 words)
13 (549 words)
14 (551 words)
15 (154 words)
16 (748 words)
17 (710 words)
18 (719 words)
19 (835 words)
20 (178 words)
21 (309 words)
22 (1429 words)
23 (593 words)
24 (453 words)1
25 (1193 words)
26 (360 words)
27 (1082 words)2
28 (594 words)
29 (463 words)
30 (544 words)3
31 (568 words)4, 5
32 (673 words)
33 (503 words)
34 (290 words)
35 (447 words)
36 (891 words)
37 (253 words)
38 (495 words)6
39 (206 words)
40 (1242 words)7
41 (282 words)
42 (223 words)
43 (401 words)
44 (644 words)8, 9, 10
45 (821 words)11
46 (1352 words)
47 (198 words)12
48 (898 words)13, 14
49 (835 words)15
50 (328 words)
51 (222 words)
52 (1604 words)16
53 (847 words)
54 (801 words)
55 (938 words)17, 18, 19, 20, 21, 22
56 (581 words)23, 24
57 (2612 words)25, 26, 27, 28
58 (2012 words)29, 30, 31, 32
59 (624 words)
60 (1836 words)33
62 (364 words)56, 57
63 (515 words)
64 (572 words)
65 (1357 words)58, 59, 60, 61, 62, 63
66 (1014 words)64
67 (146 words)
68 (395 words)65
69 (866 words)
70 (928 words)
71 (774 words)
72 (1085 words)66, 67, 68
73 (527 words)69, 70
74 (357 words)71
75 (501 words)
76 (1171 words)
77 (642 words)
78 (534 words)
81 (636 words)122, 123, 124, 125, 125, 126
61 (553 words)34, 35, 36, 37, 38, 39, 40, 41, 42, 43, 44, 45, 46, 47, 47, 48, 49, 50, 51, 52, 53, 54
79 (1017 words)72, 73, 74, 75, 76, 77, 78, 79, 80, 81, 82, 83, 84, 85, 86, 87, 88, 89, 90, 91, 92, 93, 94, 95, 96
80 (242 words)97, 98, 99, 100, 101, 102, 103, 104, 105, 106, 107, 108, 109, 110, 111, 112, 113, 114, 115, 116, 117, 118, 119, 120, 121
82 (385 words)127, 128
83 (842 words)
84 (1898 words)
85 (480 words)
86 (492 words)
87 (833 words)129
88 (814 words)130, 131, 132
89 (197 words)
90 (177 words)
Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close