Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

start

Early North Data Service

Menu Search

Egils saga Skalla-Grímssonar

Data may derive from Dictionary of Old Norse Prose, the National Library of Iceland, the Arnamagnæan Institutes in Iceland and Copenhagen, the Skaldic Project and the Stories for All Time project. These institutions and projects explicitly or implicitly license this data as research data and any further use of this data should credit these organisations and also be licensed as CC BY-SA 4.0.

60.1

Kom hann þar að kveldi dags, og reið hann þegar í borgina; hann hafði síðan hatt yfir hjálmi, og alvæpni hafði hann. Egill spurði, hvar garður sá væri í borginni, er Arinbjörn átti; honum var það sagt; hann reið þangað í garðinn; en er hann kom að stofunni, steig hann af hesti sínum og hitti mann að máli; var honum þá sagt, að Arinbjörn sat yfir matborði. Egill mælti: ‘Eg vildi, góður drengur, að þú gengir inn í stofuna, og spyr Arinbjörn, hvort hann vill heldur úti eða inni tala við Egil Skalla-Grímsson.’

60.2

Sá maður segir: ‘Það er mér lítið starf að reka þetta erindi.’ Hann gekk inn í stofuna og mælti stundar hátt: ‘Maður er hér kominn úti fyrir dyrum,’ segir hann, ‘mikill sem tröll; en sá bað mig ganga inn og spyrja, hvort þú vildir úti eða inni tala við Egil Skalla-Grímsson.’

60.3

Arinbjörn segir: ‘Gakk og bið hann bíða úti, og mun hann eigi lengi þurfa.’

60.4

Hann gerði sem Arinbjörn mælti, gekk út og sagði sem mælt var við hann. Arinbjörn bað taka upp borðin. Síðan gekk hann út og allir húskarlar hans með honum; og er Arinbjörn hitti Egil, heilsaði hann honum og spurði, hví hann var þar kominn. Egill segir í fám orðum hið ljósasta af um ferð sína; ‘en nú skaltu fyrir sjá, hvert ráð eg skal taka, ef þú vilt nokkurt lið veita mér.’

60.5

’Hefir þú nokkura menn hitt í borginni,’ segir Arinbjörn, ‘þá er þig muni kennt hafa, áður þú komst hér í garðinn?’ ’Engi,’ segir Egill. ’Taki menn þá vopn sín,’ segir Arinbjörn.

60.6

Þeir gerðu svo, og er þeir voru vopnaðir og allir húskarlar Arinbjarnar, þá gekk hann í konungsgarð; en er þeir komu til hallar, þá klappaði Arinbjörn á dyrum og bað upp láta og segir, hver þar var; dyrverðir létu þegar upp hurðina. Konungur sat yfir borðum. Arinbjörn bað þá ganga inn tólf menn, nefndi til þess Egil og tíu menn aðra. ‘Nú skaltu, Egill, færa Eiríki konungi höfuð þitt og taka um fót honum, en eg mun túlka mál þitt.’

60.7

Síðan ganga þeir inn; gekk Arinbjörn fyrir konung og kvaddi hann. Konungur fagnaði honum og spurði, hvað er hann vildi. Arinbjörn mælti: ‘Eg fylgi hingað þeim manni, er kominn er um langan veg að sækja yður heim og sættast við yður; er yður það vegur mikill, herra, er óvinir yðrir fara sjálfviljandi af öðrum löndum og þykjast eigi mega bera reiði yðra, þó að þér séuð hvergi nær. Láttu þér nú verða höfðinglega við þenna mann; lát hann fá af þér sætt góða fyrir það, er hann hefir gert veg þinn svo mikinn, sem nú má sjá, farið yfir mörg höf og torleiði heiman frá búum sínum; bar honum enga nauðsyn til þessar farar nema góðvilji við yður.’

60.8

Þá litaðist konungur um, og sá hann fyrir ofan höfuð mönnum, hvar Egill stóð, og hvessti augun á hann og mælti: ‘Hví varstu svo djarfur, Egill, að þú þorðir að fara á fund minn? Leystist þú svo héðan næstum, að þér var engi von lífs af mér.’

60.9

Þá gekk Egill að borðinu og tók um fót konungi ... Eiríkur konungur sagði: ‘Ekki þarf eg að telja upp sakar á hendur þér, en þó eru þær svo margar og stórar, að ein hver má vel endast til, að þú komir aldrei héðan lífs. Áttu engis annars af von en þú munt hér deyja skulu; máttir þú það vita áður, að þú myndir enga sætt af mér fá.’

60.10

Gunnhildur mælti: ‘Hví skal eigi þegar drepa Egil, eða manstu eigi nú, konungur, hvað Egill hefir gert, drepið vini þína og frændur og þar á ofan son þinn, en nítt sjálfan þig; eða hvar vita menn slíku bellt við konungmann?’

60.11

Arinbjörn segir: ‘Ef Egill hefir mælt illa til konungs, þá má hann það bæta í lofsorðum þeim, er allan aldur megi uppi vera.’ Gunnhildur mælti: ‘Vér viljum ekki lof hans heyra; láttu, konungur, leiða Egil út og höggva hann; vil eg eigi heyra orð hans og eigi sjá hann.’

60.12

Þá mælti Arinbjörn: ‘Eigi mun konungur láta að eggjast um öll níðingsverk þín; eigi mun hann láta Egil drepa í nótt, því að náttvíg eru morðvíg.’ Konungur segir: ‘Svo skal vera, Arinbjörn, sem þú biður, að Egill skal lifa í nótt; hafðu hann heim með þér og fær mér hann á morgun.’

60.13

Arinbjörn þakkaði konungi orð sín. ‘Væntum vér, herra, að héðan af muni skipast mál Egils á betri leið; en þó að Egill hafi stórt til saka gert við yður, þá lítið þér á það, að hann hefir mikils misst fyrir yðrum frændum. Haraldur konungur, faðir þinn, tók af lífi ágætan mann, Þórólf, föðurbróður hans, af rógi vondra manna, en af engum sökum; en þér, konungur, brutuð lög á Agli fyrir sakar Berg-Önundar; en þar á ofan vilduð þér hafa Egil að dauðamanni og drápuð menn af honum, en rænduð hann fé öllu, og þar á ofan gerðuð þér hann útlaga og rákuð hann af landi, en Egill er engi ertingamaður. En hvert mál, er maður skal dæma, verður að líta á tilgerðir. eg mun nú,’ segir Arinbjörn, ‘hafa Egil með mér í nótt heim í garð minn.’

60.14

Var nú svo; og er þeir komu í garðinn, þá ganga þeir tveir í loft nokkurt lítið og ræða um þetta mál. Segir Arinbjörn svo: ‘Allreiður var konungur nú, en heldur þótti mér mýkjast skaplyndi hans nokkuð, áður létti, og mun nú hamingja skipta, hvað upp kemur; veit eg, að Gunnhildur mun allan hug á leggja að spilla þínu máli. Nú vil eg það ráð gefa, að þú vakir í nótt og yrkir lofkvæði um Eirík konung; þætti mér þá vel, ef það yrði drápa tvítug og mættir þú kveða á morgun, er við komum fyrir konung. Svo gerði Bragi, frændi minn, þá er hann varð fyrir reiði Bjarnar Svíakonungs, að hann orti drápu tvítuga um hann eina nótt og þá þar fyrir höfuð sitt; nú mætti vera, að vér bærum gæfu til við konung, svo að þér kæmi það í frið við konung.’

60.15

Egill segir: ‘Freista skal eg þessa ráðs, er þú vilt, en ekki hefi eg við því búist að yrkja lof um Eirík konung.’ Arinbjörn bað hann freista; síðan gekk hann brott til manna sinna; sátu þeir að drykkju til miðrar nætur. Þá gekk Arinbjörn til svefnhúss og sveit hans, og áður hann afklæddist, gekk hann upp í loftið til Egils og spurði, hvað þá liði um kvæðið. Egill segir að ekki var ort - ‘hefir hér setið svala ein við glugginn og klakað í alla nótt, svo að eg hefi aldregi beðið ró fyrir.’

60.16

Síðan gekk Arinbjörn á brott og út um dyr þær, er ganga mátti upp á húsið, og settist við glugg þann á loftinu, er fuglinn hafði áður við setið; hann sá, hvar hamhleypa nokkur fór annan veg af húsinu. Arinbjörn sat þar við glugginn alla nóttina, til þess er lýsti; en síðan er Arinbjörn hafði þar komið, þá orti Egill alla drápuna og hafði fest svo, að hann mátti kveða um morguninn, þá er hann hitti Arinbjörn; þeir héldu vörð á, nær tími myndi vera að hitta konung.

61.1

Eiríkur konungur gekk til borða að vanda sínum, og var þá fjölmenni mikið með honum; og er Arinbjörn varð þess var, þá gekk hann með alla sveit sína alvopnaða í konungsgarð, þá er konungur sat yfir borðum. Arinbjörn krafði sér inngöngu í höllina; honum var það og heimilt gert. Ganga þeir Egill inn með helming sveitarinnar; annar helmingur stóð úti fyrir dyrum.

61.2

Arinbjörn kvaddi konung, en konungur fagnaði honum vel; Arinbjörn mælti: ‘Nú er hér kominn Egill; hefir hann ekki leitað til brotthlaups í nótt. Nú viljum vér vita, herra, hver hans hluti skal verða; vænti eg góðs af yður; hefi eg það gert, sem vert var, að eg hefi engan hlut til þess sparað að gera og mæla svo, að yðvar vegur væri þá meiri en áður. Hefi eg og látið allar mínar eigur og frændur og vini, er eg átti í Noregi, og fylgt yður, en allir lendir menn yðrir skildust við yður, og er það maklegt, því að þú hefir marga hluti til mín stórvel gert.’

61.3

Þá mælti Gunnhildur: ‘Hættu, Arinbjörn, og tala ekki svo langt um þetta; margt hefir þú vel gert við Eirík konung, og hefir hann það fullu launað; er þér miklu meiri vandi á við Eirík konung en Egil; er þér þess ekki biðjanda, að Egill fari refsingalaust héðan af fundi Eiríks konungs, slíkt sem hann hefir til saka gert.’

61.4

Þá segir Arinbjörn: ‘Ef þú, konungur, og þið Gunnhildur hafið það einráðið, að Egill skal hér enga sætt fá, þá er það drengskapur að gefa honum frest og fararleyfi um viku sakar, að hann forði sér; þó hefir hann að sjálfvilja sínum farið hingað á fund yðvarn og væntir sér af því friðar; fara þá enn skipti yður sem verða má þaðan frá.’

61.5

Gunnhildur mælti: ‘Sjá kann eg á þessu, Arinbjörn, að þú ert hollari Agli en Eiríki konungi; ef Egill skal ríða héðan viku í brott í friði, þá mun hann kominn til Aðalsteins konungs á þessi stundu. En Eiríkur konungur þarf nú ekki að dyljast í því, að honum verða nú allir konungar ofureflismenn, en fyrir skömmu mundi það þykja ekki líklegt, að Eiríkur konungur myndi eigi hafa til þess vilja og aðferð að hefna harma sinna á hverjum manni slíkum, sem Egill er.’

61.6

Arinbjörn segir: ‘Engi maður mun Eirík kalla að meira mann, þó að hann drepi einn bóndason útlendan, þann er gengið hefir á vald hans. En ef hann vill miklast af þessu, þá skal eg það veita honum, að þessi tíðindi skulu heldur þykja frásagnarverð, því að við Egill munum nú veitast að, svo að jafnsnemma skal okkur mæta báðum. Muntu, konungur, þá dýrt kaupa líf Egils, um það er vér erum allir að velli lagðir, eg og sveitungar mínir; myndi mig annars vara af yður, en þú myndir mig vilja leggja heldur að jörðu en láta mig þiggja líf eins manns, er eg bið.’

61.7

Þá segir konungur: ‘Allmikið kapp leggur þú á þetta, Arinbjörn, að veita Agli lið; trauður mun eg til vera að gera þér skaða, ef því er að skipta, ef þú vilt heldur leggja fram líf þitt en hann sé drepinn; en ærnar eru sakar til við Egil, hvað sem eg læt gera við hann.’ Og er konungur hafði þetta mælt, þá gekk Egill fyrir hann og hóf upp kvæðið og kvað hátt og fékk þegar hljóð:

61.8

Vestr fórk of ver, en ek Viðris ber munstrandar mar, svá-s mitt of far; drók eik á flot við ísa brot, hlóðk mærðar hlut míns knarrar skut.

61.9

Buðumk hilmir löð, þar ák hróðrar kvöð, berk Óðins mjöð á Engla bjöð; lofat vísa vann, víst mærik þann; hljóðs biðjum hann, því at hróðr of fann.

61.10

Hygg, vísi, at vel sómir þat, hvé ek þylja fet, ef ek þögn of get; flestr maðr of frá, hvat fylkir vá, en Viðrir sá, hvar valr of lá.

61.11

Óx hjörva glöm við hlífar þröm, guðr óx of gram, gramr sótti fram; þar heyrðisk þá, þaut mækis á, malmhríðar spá; sú vas mest of lá.

61.12

Vasat villr staðar vefr darraðar of grams glaðar geirvangs raðar; þars í blóði enn brimlá-móði völlr of þrumði, und véum glumði.

61.13

Hné folk á fit við fleina hnit; orðstír of gat Eiríkr at þat.

61.14

Fremr munk segja, ef firar þegja, frágum fleira til frama þeira, óxu undir við jöfurs fundi, brustu brandar við bláar randar.

61.15

Hlam heinsöðul við hjaldrröðul, beit bengrefill, þat vas blóðrefill; frák, at felli fyr fetilsvelli Óðins eiki í éarnleiki.

61.16

Þar vas eggja at ok odda gnat; orðstír of gat Eiríkr at þat.

61.17

Rauð hilmir hjör, þar vas hrafna gjör, fleinn hitti fjör, flugu dreyrug spjör; ól flagðs gota fárbjóðr Skota, trað nipt Nara náttverð ara.

61.18

Flugu hjaldrs tranar á hræs lanar, órut blóðs vanar benmás granar, sleit und freki, en oddbreki gnúði hrafni á höfuðstafni.

61.19

Kom gríðar læ at Gjalpar skæ; bauð ulfum hræ Eiríkr of sæ.

61.20

Lætr snót saka sverð-Frey vaka, en skers Haka skíðgarð braka; brustu broddar, en bitu oddar, báru hörvar af bogum örvar.

61.21

Beit fleinn floginn, þá vas friðr loginn, vas almr dreginn, varð ulfr feginn; stósk folkhagi við fjörlagi, gall ýbogi at eggtogi.

61.22

Jöfurr sveigði ý, flugu unda bý; bauð ulfum hræ Eiríkr of sæ.

61.23

Enn munk vilja fyr verum skilja skapleik skata, skal mærð hvata; verpr ábröndum, en jöfurr löndum heldr hornklofi; hann's næstr lofi.

61.24

Brýtr bógvita bjóðr hrammþvita, muna hodd-dofa hringbrjótr lofa; mjök's hánum föl haukstrandar möl; glaðar flotna fjöl við Fróða mjöl.

61.25

Verpr broddfleti af baugseti hjörleiks hvati, hann es baugskati; þróask hér sem hvar, hugat mælik þar, frétt's austr of mar, Eiríks of far.

61.26

Jöfurr hyggi at, hvé ek yrkja fat, gótt þykkjumk þat, es ek þögn of gat; hrærðak munni af munar grunni Óðins ægi of jöru fægi.

61.27

Bark þengils lof á þagnar rof; kannk mála mjöt of manna sjöt; ór hlátra ham hróðr bark fyr gram; svá fór þat fram, at flestr of nam.

62.1

Eiríkur konungur sat uppréttur, meðan Egill kvað kvæðið, og hvessti augun á hann; og er lokið var drápunni, þá mælti konungur: ’Besta er kvæðið fram flutt, en nú hefi eg hugsað, Arinbjörn, um mál vort Egils, hvar koma skal. Þú hefir flutt mál Egils með ákafa miklum, er þú býður að etja vandræðum við mig; nú skal það gera fyrir þínar sakar, sem þú hefir beðið, að Egill skal fara frá mínum fundi heill og ósakaður. En þú, Egill, hátta svo ferðum þínum, að síðan, er þú kemur frá mínum fundi af þessi stofu, þá kom þú aldregi í augsýn mér og sonum mínum og verð aldri fyrir mér né mínu liði. En eg gef þér nú höfuð þitt að sinni; fyrir þá sök, er þú gekkst á mitt vald, þá vil eg eigi gera níðingsverk á þér, en vita skaltu það til sanns, að þetta er engi sætt við mig né sonu mína og enga frændur vora, þá sem réttar vilja reka.’

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close