Cookies on our website

We use cookies on this website, mainly to provide a secure browsing experience but also to collect statistics on how the website is used. You can find out more about the cookies we set, the information we store and how we use it on the cookies page.

Continue

skaldic

Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages

Menu Search

Odd ch. 1

Odds þáttr Ófeigssonar 1 — ed. not skaldic

Not published: do not cite (Odd ch. 1)

Anonymous íslendingaþættirOdds þáttr Ófeigssonar
1

text and translation

The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):



Eitt sumar kom af Íslandi Oddur sonur Ófeigs Skíðasonar og
kom norður við Finnmörk og var þar of veturinn. Þá var
Haraldur konungur yfir Noregi.



Og er þeir sigldu norðan of vorið þá mælti Oddur við
skipverja sína: "Ferð þessi er með nokkurri ábyrgð," segir
hann, "því að hingað á engi maður kaupferð að hafa nema með
konungs leyfi eða sýslumanns. Er sá nú og maðurinn til
fenginn að heimta finnskattinn og hafa þar yfirsókn er ekki
þykir væginn sem er Einar fluga. Vil eg nú vita hve mikið þér
hafið að gert of kaup við Finnana."



En þeir duldu að þeir hefðu keypt. Og nú er þeir fara norðan
og sigla fyrir Þjóttu þá sjá þeir að langskip brunar fram
undan eyjunni og til þeirra. Var þar Einar.



Og er þeir sáu þetta þá bað Oddur menn við búast og varast að
eigi fyndist með þeim finnskatturinn "og ef það er eigi
alltrútt sem mig grunar er þér munuð keypt hafa við Finna
látum nú þá koma fé það í einn stað allt ef rannsakað verður
skipið."



Og nú reynist það sem Oddur gat og bera fram hver það er
keypt hafði og fela síðan þannig sem Oddi sýnist ráðlegast og
höfðu lokið starfi þessu áður en Einar kemur að þeim. Nú
leggja þeir snekkjuna fram hjá skipinu og var á byr, lætur sá
og þróaðist heldur í hverri og óx.



Oddur kvaddi Einar því að þeir kunnust og mælti hann Einar:
"Kunnigur ertu Oddur," segir hann, "að því er vel samir. En
þér hafið verið í vetur með Finnum og má það vera að aðrir
menn þínir hafi eigi jafn vel við séð að kaupa við Finna en
oss er það ofboð í hendur fengið af konungi og viljum vér
rannsaka skipið yðart."



Oddur segir og kvað heimilt skyldu að líta yfir varnaðinn og
lúka menn upp kistur sínar. Ganga þeir Einar á skipið upp og
leita og finna ekki af finnskattinum.



Þá mælti Einar: "Heldur hafa þessir menn meir við séð en eg
hugði. Ætla eg nú varlega mega rjúfa búlkann því að veðrið
vex og mun hitt ráð að vér förum á vort skip."



Þá mælti maður er sat á búlka: "Sjá skaltu áður bagga þenna
er eg hefi, yfir hverju hann búi," tekur til og leysir en
Einar bíður og er þar ól löng um baggann og torsótt að leysa
og er hann lengi að.



Einar biður hann leysa skjótt. Hann kvað svo vera skyldu og
tekur þar úr enn bagga og leysir og eru þar um margar ólar og
fatrast mjög fyrir honum.



Þá mælti Einar: "Sein gerir þú málin," segir hann og bíður þó
enn ef nakkvað megi það finnast í hans böggum er honum væri
til sakagiftar.



Og því næst kemur upp hinn þriðji bagginn og er hann fékk þar
til raufað þá var þar ekki í nema tötrar einir og það er engu
var nýtt.



Þá mælti hann Einar: "Allra manna armastur," segir hann,
"hefir þú dvalið oss og gabbað að eyin er vötnuð."



Fer nú síðan á skip sitt því að byrinn þróaðist og máttu þeir
eigi við haldast kaupskipið. Skiljast nú við svo búið.



Þá mælti Oddur: "Nú höfum vér sett undan ágangi Einars flugu
en þar þætti mér oss nú máldeili á að vér hittum eigi
konung."



Einar sendir þegar orð konungi og lætur hann vita hvað títt
er.



Og nú er þeir koma suður við Mjölu þá bar þar svo til að
Haraldur konungur var þar fyrir og sjá þeir kaupskipið.



Og nú með því er konungi var komin fréttin áður þá mælti hann
er þeir sáu skipið: "Nú kann vera," segir hann, "að mjög vel
beri til. Þetta mun vera skipið Odds og er eigi óskaplegt að
við finnumst. Og sjaldan hefir Einar svo vaðboginn farið sem
fyrir þeim Oddi."



Konungur var reiður. Þeir Oddur leggja nú að eyjunni. Og meta
þeir konungur eigi muninn, fara þegar á fund þeirra Odds og
fagnar hann vel konungi. En konungur svarar fá og heldur
reiðulega og kvað Odd ómaklega við sig búa, lést jafnan hafa
tekið við honum með sæmd en kvað hann nú hafa farið og keypt
við Finna að óleyfi sínu.



Oddur segir: "Fegnir mundum vér herra því," segir hann, "að
hafa sunnar tekið land en Finnmörk en hinu mátti eg heldur
ráða að kaupa ekki að óleyfi yðru."



Konungur mælti: "Þess get eg," segir hann, "að vera mundu
sakar til þó að þér væruð allir upp festir og hengdir við hið
hæsta tré. Og þó að þú sjálfur sért þessa eigi sjálfur valdur
þá líst mér þó þannig að eins á menn þína að þeir munu eigi
sparað hafa að kaupa ólofað og viljum vér rannsaka yður."



"Það skal heimilt herra," segir Oddur.



Var nú svo gert og finna þeir ekki.



Þorsteinn hét maður, frændi Þóris hunds. Hann var ungur maður
og vænn, vinur Odds góður, og var þá með konungi. Hann
Þorsteinn dvelst eftir á skipinu þá er þeir konungur gengu í
brott og bregður síðan Oddi á mál leynilega og spyr hvort
þeir voru nokkurs af valdir um þetta mál og lét að konungur
væri reiður og mundi mjög vera eftir leitað við þá.



"Það ætla eg að eigi beri skírt af oss of málið. Tóku þeir
það í fyrstu með sínu einræði svo að eg bannaði en nú hefi eg
þó síðan ráð til gefið með þeim að leynast mætti."



"Hvar er nú komið féið?" segir Þorsteinn.



Oddur segir honum að allt var í húðfati einu.



Þorsteinn mælti: "Hér mun konungur enn koma og rannsaka en
það sama húðfat skaltu taka og leggja undir konung og búa þar
hásæti á ofan. Mun hann þess síst vara að því er eg get að
undir honum sjálfum muni vera það er hann leitar en þó er það
allt með nokkurri hættu."



Fer Þorsteinn síðan í brott en Oddur gerir sem hann lagði til
ráð. Kom konungur þar litlu síðar og settist í rúm það eða
sæti er var honum búið en konungsmenn leita fjárins bæði í
kistum og hvetvetna var upp brotið það er vænast þótti til
vera að þeir hefðu fólgið og fannst ekki.



Konungur mælti: "Eigi má eg þetta skilja því að ekki er þar á
móti að féið er hér á skipinu það er vér leitum."



Oddur svarar: "Það er fornt mál herra að oft verður villur sá
er geta skal."



Konungur gengur nú í brott og menn hans en Þorsteinn dvelst
enn eftir á skipinu og mælti við Odd: "Eigi mun þetta bragð
lengur duga og mun konungur sjá þetta af stundu og seint mun
hann af láta hyggjast um leitina. Svo skuluð þér til ætla. Nú
skulu þeir láta féið koma í seglið og færið síðan seglið upp
við tréð og allt mun nú upp brotið á skipinu, bæði búlki og
annað."



Svo gera þeir Oddur sem Þorsteinn mælti og fer hann á braut.



Og er hann kom eftir þeim konungi þá spyr konungur hví hann
dveldist eftir.



"Nauðsyn átti eg til herra," segir hann, "eg varð að gera að
hosu minni."



Konungur varð fár um.



Og litlu síðar kemur konungur á skip Odds og mælti: "Það kann
vera," segir hann, "að þér búið setið mitt með finnskattinum
og skal þar nú fyrst leita og hvervetna um skipið og svo
mikið sem oss verður fyrir þá skuluð þér því harðara niður
koma."



Og er nú leitað þar sem í hug kemur og finnst eigi.



Gengur konungur á land en Þorsteinn hvimar eftir nokkuð svo
og mælti við Odd: "Eigi mun þetta enn lengi hlýða og dugir nú
ekki annað en flytja af skipinu og flytjið fyrir nesið fram
en eg mun ganga aðra leið heim en konungur. Þá mun hann síður
vita að eg hafi dvalist eftir. Og í kveld þá er dagur er
undir vindið þá upp akkerin og tak nú til farsnilli þinnar
Oddur, því að svo mun konungur yður nær leggja ellegar að
eigi rekist þér undan. Miklu er hann maður ráðgari og þrárri
á það er honum leggst í lund."



Oddur kvað Þorsteini mjög vandlaunað lið það er hann veitti
þeim. Skiljast þeir. Fer Þorsteinn á brott en þeir Oddur gera
sem hann mælti, eru í starfi um nóttina.



Og um morguninn kom konungur og lét nú leita í seglinu og
fannst eigi og grunaði konung eftir jafnan hvar þeir mundu
fólgið hafa.



Oddur mælti: "Herra, nú máttu eigi gruna oss því að hver
leppur er upp brotinn á voru skipi."



Konungur segir, lét að eigi mundi sú raun á verða sem hann
segir og kvað enga slíkt hafa að sér fært. Máttu þeir ekki
festa orð á konungi, svo var hann reiður.



Og líður af dagurinn.



Og er náttar flytja þeir aftur féið á skip sitt og búast um
og í óttu kemur á byr og hóf þá frá landi.



Konungur vaknar snemma og mælti: "Nú þykist eg vita og sjá
allt ráð þeirra eftir og munu fleiri hafa hlut í átt en þeir
einir og vættir mig að nú finnum vér á skipinu það sem vér
leitum. En eigi kunni eg að gefa þeim banasök meðan mér var
get til. Skulum vér nú fara og leita."



Og er þeir koma úr tjöldum og litast um þá sjá þeir segl
þeirra Odds utarlega við eyjar og þá mælti konungur: "Þar mun
nú skilja með oss Oddi að sinni. En þú Þorsteinn kannt vel
fylgja þínum vinum og meira virðir þú nú þá Odd en mig og
kann vera að þú segist í ætt þína um svikin."



Þorsteinn segir: "Ekki eru þetta svik herra þótt þú drepir
eigi Odd er verið hefir vinur þinn góður og marga aðra menn
um getsök og þykir mér það trúleikur við þig að firra yður
slíkri óhæfu."



Þeir Oddur létu í haf og höfðu góða byri.



Þá mælti Oddur við háseta sína: "Nú skal segja yður hversu
farið hefir og hvað mér gekk til hverskis. Eg bað yður eigi
meira kaupa að Finnum en leyft var en þér fenguð eigi við
séð. Og er svo var komið og vér hittum Einar þá mælti eg því
að þér skylduð bjóða honum sæmilega en gera þó langmælt við
hann og fá mart til faturs að eg vissi að þér voruð
sakbitnir. Bað eg því sigla meðan hann dvaldist að þannug
mátti skjótast skilja með oss. Og þá fyrst er konungi var
sagt að séð var skipið þá spurði hann hvort það mundi vort
skip en Þorsteinn vinur vor sagði og kvað menn þar draga
fiska. "Góð veiður," sagði konungur, "veit sá er sig kann og
mun sú veiður undir mér." Nú höfum vér þó haldið veiðinni og
komist á brott og er það mjög Þorsteini að launa."



Oddur kemur út hingað og fer til bús síns.



Sá maður var þá í förum er Hárekur hét, frændi Þorsteins, og
kom í Miðfjörð. Þá var hér illa ært en Oddur bauð honum til
sín og sendir utan með honum stóðhross góð, rauð að lit og
hvít mönin á, til handa Þorsteini og kvað hann verið hafa
sinn fjörgjafa.



Hárekur fer utan um sumarið og hittir Þorstein, var hann þá
enn með konungi, og færir honum hrossin og kvað Odd hafa sent
honum.



Þorsteinn segir: "Þetta er mér mest ólið því að nú mundi yfir
hylmast ellegar en nú mun eigi leynast mega og er nú nakkvað
vandráðið."



Þorsteinn sýnir nú konungi hrossin og kvað Odd hafa sent
honum að gjöf.



Konungur segir: "Ekki var eg gjafanna verður frá Oddi og
hefir hann þér sent en eigi mér og þú skalt hafa" og biður
drepa hann.



En menn voru þess ófúsir og réðst Þorsteinn brott frá
hirðinni og var í öngri konungs vingan.

sources

Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.

Close

Log in

This service is only available to members of the relevant projects, and to purchasers of the skaldic volumes published by Brepols.
This service uses cookies. By logging in you agree to the use of cookies on your browser.

Close

Stanza/chapter/text segment

Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.

Information tab

Interactive tab

The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.

Full text tab

This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.

Chapter/text segment

This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.