— ed. not skaldic
Not published: do not cite (Hrafnk ch. 17)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Þess er getið, að skip kom af hafi í Reyðarfjörð, og var
stýrimaður Eyvindur Bjarnason. Hann hafði utan verið sjö
vetur. Eyvindur hafði mikið við gengist um menntir og var
orðinn hinn vaskasti maður. Eru honum sögð brátt þau
tíðindi, er gerst höfðu, og lét hann sér um það fátt
finnast. Hann var fáskiptinn maður.
Og þegar Sámur spyr þetta, þá ríður hann til skips.
Verður nú mikill fagnafundur með þeim bræðrum. Sámur
býður honum vestur þangað, en Eyvindur tekur því vel og
biður Sám ríða heim fyrir, en senda hesta á móti varningi
hans. Hann setur upp skip sitt og býr um.
Sámur gerir svo, fer heim og lætur reka hesta á móti
Eyvindi. Og er hann hefur búið svo um varnað sinn, býr
hann ferð sína til Hrafnkelsdals, fer upp eftir
Reyðarfirði. Þeir voru fimm saman; hinn sjötti var
skósveinn Eyvindar. Sá var íslenskur að kyni, skyldur
honum. Þenna svein hafði Eyvindur tekið af volaði og
flutt utan með sér og haldið sem sjálfan sig. Þetta bragð
Eyvindar var uppi haft, og var það alþýðu rómur að færri
væri hans líkar.
Þeir ríða upp Þórisdalsheiði og ráku fyrir sér sextán
klyfjaða hesta. Voru þar húskarlar Sáms tveir, en þrír
farmenn. Voru þeir og allir í litklæðum og riðu við fagra
skjöldu. Þeir riðu um þveran Skriðudal og yfir háls yfir
til Fljótsdals, þar sem heita Bulungarvellir, og ofan á
Gilsáreyri. Hún gengur austan að fljótinu milli
Hallormsstaða og Hrafnkelsstaða. Ríða þeir upp með
Lagarfljóti fyrir neðan völl á Hrafnkelsstöðum og svo
fyrir vatnsbotninn og yfir Jökulsá að Skálavaði. Þá var
jafnnær rismálum og dagmálum.
Kona ein var við vatnið og þó léreft sín. Hún sér ferð
manna. Griðkona sjá sópar saman léreftunum og hleypur
heim. Hún kastar þeim niður úti hjá viðarkesti, en
hleypur inn. Hrafnkell var þá eigi upp staðinn, og
nokkrir vildarmenn lágu í skálanum, en verkmenn voru til
íðnar farnir. Þetta var um heyjaannir.
Konan tók til orða, er hún kom inn: "Satt er flest það, er
fornkveðið er, að svo ergist hver sem eldist. Verður sú
lítil virðing, sem snemma leggst á, ef maður lætur síðan
sjálfur af með ósóma og hefir eigi traust til að reka
þess réttar nokkurt sinni, og eru slík mikil undur um
þann mann, sem hraustur hefir verið. Nú er annan veg
þeirra lífi, er upp vaxa með föður sínum og þykja yður
einskis háttar hjá yður, en þá er þeir eru frumvaxta,
fara land af landi og þykja þar mestháttar, sem þá koma
þeir; koma við það út og þykjast þá höfðingjum meiri.
Eyvindur Bjarnason reið hér yfir á að Skálavaði með svo
fagran skjöld, að ljómaði af. Er hann svo menntur, að
hefnd væri í honum."
Lætur griðkonan ganga af kappi.
Hrafnkell rís upp og svarar henni: "Kann vera, að þú
mælir helst margt satt - eigi fyrir því að þér gangi gott
til. Er nú vel, að þér aukist erfiði. Far þú hart suður á
Víðivöllu eftir Hallsteinssonum, Sighvati og Snorra. Bið
þá skjótt til mín koma með þá menn, sem þar eru
vopnfærir."
Aðra griðkonu sendir hann út á Hrólfsstaði eftir þeim
Hrólfssonum, Þórði og Halla, og þeim, sem þar voru
vopnfærir. Þessir hvorirtveggju voru gildir menn og allvel
menntir. Hrafnkell sendi og eftir húskörlum sínum. Þeir
uðru alls átján saman. Þeir vopnuðust harðfengilega; ríða
þar yfir á sem hinir fyrri.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.