— ed. not skaldic
Not published: do not cite (Gunnl ch. 10)
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Nú er að segja frá Gunnlaugi að hann fór af Svíþjóðu það
sumar til Englands er Hrafn fór til Íslands og þá góðar
gjafir af Ólafi konungi að skilnaði þeirra. Aðalráður
konungur tók við Gunnlaugi allvel og var hann með honum um
veturinn með góðri sæmd.
Í þenna tíma réð fyrir Danmörku Knútur hinn ríki Sveinsson og
hafði nýtekið við föðurleifð sinni og heitaðist jafnan að
herja til Englands fyrir því að Sveinn konungur faðir hans
hafði unnið mikið ríki á Englandi áður hann andaðist vestur
þar. Og í þann tíma var mikill her danskra manna vestur þar
og var sá höfðingi fyrir er Hemingur hét, son Strút-Haralds
jarls og bróðir Sigvalda jarls, og hélt hann það ríki undir
Knút konung er Sveinn konungur hafði áður unnið.
Um vorið bað Gunnlaugur konunginn sér orlofs til brottferðar.
Hann svarar: "Ei samir þér nú að fara frá mér til slíks
ófriðar sem nú horfir hér í Englandi þar sem þú ert minn
hirðmaður."
Gunnlaugur svarar: "Þér skuluð ráða minn herra og gef mér
orlof að sumri til brottferðar ef Danir koma eigi."
Konungur svarar: "Sjáum við þá."
Nú leið það sumar og veturinn eftir og komu Danir eigi. Og
eftir mitt sumar fékk Gunnlaugur orlof til brottferðar af
konungi og fór Gunnlaugur þaðan austur til Noregs og fann
Eirík jarl í Þrándheimi á Hlöðum og tók jarl honum þá vel og
bauð honum þá með sér að vera. Gunnlaugur þakkar honum boðið
og kveðst þó vilja fara fyrst út til Íslands á vit
festarmeyjar sinnar.
Jarl mælti: "Nú eru öll skip í brottu, þau er til Íslands
bjuggust."
Þá mælti hirðmaður einn: "Hér lá Hallfreður vandræðaskáld í
gær út undir Agðanesi."
Jarl svarar: "Svo má vera," segir hann. "Hann sigldi héðan
fyrir fimm náttum."
Eiríkur jarl lét þá flytja Gunnlaug út til Hallfreðar.
Hallfreður tók við honum með fagnaði og gaf þegar byr undan
landi og voru vel kátir. Það var síð sumars.
Hallfreður mælti til Gunnlaugs: "Hefir þú frétt bónorðið
Hrafns Önundarsonar við Helgu hina fögru?"
Gunnlaugur kveðst frétt hafa og þó ógjörla. Hallfreður segir
honum slíkt sem hann vissi af og það með að margir menn mæltu
það að Hrafn væri ei óröskari en Gunnlaugur.
Gunnlaugur kvað þá vísu:
Ræki eg lítt þó leiki,
létt veðr er nú, þéttan
austanvindr að öndri
andness viku þessa.
Meir sjáumk hitt, en hæru
hoddstríðandi bíðit,
orð að eg eigi verði
jafnröskr taliðr Hrafni.
Hallfreður mælti þá: "Þess þyrfti félagi að þér veitti betur
málin við Hrafn en mér. Eg kom skipi mínu í Leiruvog fyrir
neðan Heiði fyrir fám vetrum og átti eg að gjalda hálfa mörk
silfurs húskarli Hrafns og hélt eg því fyrir honum. En Hrafn
reið til vor með sex tigu manna og hjó strengina og rak
skipið upp á leirur og búið við skipbroti. Varð eg þá að
selja Hrafni sjálfdæmi og galt eg mörk og eru slíkar mínar að
segja frá honum.
Og þá varð þeim eintalað um Helgu og lofaði Hallfreður mjög
vænleik hennar.
Gunnlaugur kvað þá:
Munat háðvörum hyrjar
hríðmundaðar Þundi
hafna hörvi drifna
hlýða jörð að þýðast
því að lautsíkjar lékum
lyngs, er vorum yngri,
alnar gims á ýmsum
andnesjum því landi.
"Þetta er vel ort," segir Hallfreður.
Þeir tóku land norður á Melrakkasléttu í Hraunhöfn hálfum
mánuði fyrir vetur og skipuðu þar upp.
Þórður hét maður. Hann var bóndason þar á Sléttunni. Hann
gekk í glímur við þá kaupmennina og gekk þeim illa við hann.
Þá varð komið saman fangi með þeim Gunnlaugi. Og um nóttina
áður hét Þórður á Þór til sigurs sér. Og um daginn er þeir
fundust tóku þeir til glímu. Þá laust Gunnlaugur báða fæturna
undan Þórði og felldi hann mikið fall en fóturinn Gunnlaugs
stökk úr liði, sá er hann stóð á, og féll Gunnlaugur þá með
Þórði.
Þá mælti Þórður: "Vera má," segir hann, "að þér vegni eigi
annað betur."
"Hvað þá?" segir Gunnlaugur.
"Málin við Hrafn ef hann fær Helgu hinnar vænu að veturnóttum
og var eg hjá í sumar á alþingi er það réðst."
Gunnlaugur svarar öngu. Þá var vafiður fóturinn og í liðinn
færður og þrútnaði allmjög.
Þeir Hallfreður riðu tólf menn saman og komu suður á
Gilsbakka í Borgarfirði það laugarkveld er þeir sátu að
brúðlaupinu að Borg. Illugi varð feginn Gunnlaugi syni sínum
og hans förunautum. Gunnlaugur kvaðst þá þegar vilja ofan
ríða til Borgar. Illugi kvað það ekki ráð og svo sýndist
öllum nema Gunnlaugi en Gunnlaugur var þó ófær fyrir fótarins
sakir þótt hann léti ekki á sjást og varð því ekki af
ferðinni.
Hallfreður reið heim um morguninn til Hreðuvatns í
Norðurárdal. Þar réð fyrir eignum þeirra Galti bróðir hans og
var vaskur maður.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.