— ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSig ch. 85)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
En er Haraldur konungur sá að fylking enskra manna var komin
ofan með díkinu gegnt þeim þá lét hann blása herblásturinn og
eggjaði herinn ákaflega, lét þá fram bera merkið Landeyðuna,
snaraði þá atgönguna svo harða að allt hrökk fyrir. Gerðist
þá mannfall mikið í liði jarla. Snerist þá liðið brátt á
flótta, flýði sumt upp með ánni og ofan en flest fólkið hljóp
út á díkið. Lá þar svo þykkt valurinn að Norðmenn máttu ganga
þurrfætis yfir fenið. Þar týndist Mörukári jarl.
Svo segir Steinn Herdísarson:
Þjóð fórst mörg í móðu.
Menn drukknuðu sokknir.
Drengr lá ár um ungan
ófár Mörukára.
Fira drottinn rak flótta
framr. Tók her á ramri
rás fyr röskum vísa.
Ríklundaðr veit undir.
Þessa drápu orti Steinn Herdísarson um Ólaf, son Haralds
konungs, og getur hér þess að Ólafur var í orustu með Haraldi
konungi föður sínum.
Þessa getur og í Haraldsstikka:
Lágu fallnir
í fen ofan
Valþjófs liðar,
vopnum höggnir,
svo að gunnhvatir
ganga máttu
Norðmenn yfir
að nám einum.
Valþjófur jarl og það lið er undan komst flýði upp til
borgarinnar Jork. Var þar hið mesta mannfall. Orusta var
miðvikudag næsta dag fyrir Mattheusmessu.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.