Haralds saga Sigurðssonar 12 — ed. not skaldic
Not published: do not cite (HSig ch. 12)
The new edition is either unpublished or unavailable. The following is taken from an old edition (Skj where relevant):
Haraldur fór með liði sínu út til Jórsalalands, fór þá síðan
yfir til Jórsalaborgar. En hvar sem hann fór um Jórsalaland
voru allar borgir og kastalar gefnir í vald hans.
Svo segir Stúfur skáld er heyrt hafði konunginn sjálfan frá
þessum tíðindum segja:
Fór ofrhugi hinn efri
eggdjarfr und sig leggja,
fold var víga valdi
virk, Jórsali úr Girkjum.
Ok með ærnu ríki
óbrunnin kom gunnar
heimil jörð und herði.
Hafi ríks þars vel líkar.
Hér segir frá því að þetta land kom óbrunnið og óherjað í
vald Haralds. Fór hann þá út til Jórdanar og laugaði sig þar
sem háttur er til annarra pálmara. Haraldur varði stórfé til
grafar drottins og kross hins helga og til annarra heilagra
dóma á Jórsalalandi. Þá friðaði hann veginn allt út til
Jórdanar og drap raufara og annað hernaðarfólk.
Svo segir Stúfur:
Stóðust ráð og reiði,
rann það svikum manna,
Egða grams á ýmsum
orð Jórdanar borðum.
Enn fyr afgerð sanna,
illa gát, frá stilli
þjóð fékk vísan voða,
vist um aldr með Kristi.
Þá fór hann aftur til Miklagarðs.
Text is based on reconstruction from the base text and variant apparatus and may contain alternative spellings and other normalisations not visible in the manuscript text. Transcriptions may not have been checked and should not be cited.
Use the buttons at the top of the page to navigate between stanzas in a poem.
The text and translation are given here, with buttons to toggle whether the text is shown in the verse order or prose word order. Clicking on indiviudal words gives dictionary links, variant readings, kennings and notes, where relevant.
This is the text of the edition in a similar format to how the edition appears in the printed volumes.
This view is also used for chapters and other text segments. Not all the headings shown are relevant to such sections.